Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 11
MINNSTAÐUR | VESTURLAND MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 11 bílar Áskrifendum Morgunbla›sins b‡›st smáaugl‡sing í bla›inu Bílar fyrir a›eins 995 kr. Fólkið sem þú vilt ná til les sama blað og þú! Ertu a› hugsa um a› selja bílinn flinn? Far›u árangursríkustu lei›ina og augl‡stu hann í bla›inu Bílar. Pantanafrestur er til kl. 12 á flri›judögum. Panta›u núna í síma 569 1111 e›a sendu tölvupóst á augl@mbl.is -alltaf á miðvikudögum Borgarnes | Theódór Kr. Þórðarson var skip- aður yfirlögregluþjónn við embætti sýslu- mannsins frá 1. janúar 2004. Verksvið og ábyrgð yfirlögregluþjóns felst í daglegri stjórn lögregluliðsins í umboði lögreglustjórans eða fulltrúa hans. Theódór hafði áður verið settur í starfið í desember 2002 og frá í maí 2003 þegar forveri hans, Þórður Sigurðsson, hætti sem yf- irlögregluþjónn. Löggæsluumdæmið nær frá Hvalfjarð- arbotni í suðri að Hítará í vestri, Brattabrekka og Holtavörðuheiðin marka svæðið í norðri og svo Arnarvatnsheiðin og Langjökull í austri. Umdæmismörk eru á móti sjö öðrum lög- regluliðum og segir Theódór að þeir eigi í góðu samstarfi við mörg önnur embætti. Í lögregl- unni í Borgarnesi eru 6 lögreglumenn og verið er að ráða þann sjöunda. Einn lögreglumaður sinnir eingöngu tollgæslu og að auki eru 3 hér- aðslögreglumenn, sem stundum er gripið til um helgar eða á öðrum álagstímum þegar mikið er að gera. Theódór hefur að baki 27 ára feril sem lög- regluþjónn. „Ég hóf störf í lögreglunni sem hér- aðslögreglumaður á dansleik sem var haldinn í samkomuhúsinu í Borgarnesi 17. júní árið 1977. Ég hafði verið töluvert í leikstarfsemi á vegum leikdeildar Ungmennafélagsins Skallagríms á þeim tíma og þegar ég gekk í samkomusalinn í nýja lögreglubúningnum þá klöppuðu sam- komugestir og skelltu upp úr, því þeir voru viss- ir um að þetta væri eitthvert grín hjá mér,“ seg- ir Theódór og bætir við að honum hafi sannarlega verið vel tekið sem lögreglumanni allt frá fyrstu vaktinni. Hann byrjaði í fastri vinnu sem lögreglumaður ári síðar og fór í lög- regluskólann 1979. Árið 1987 var Theódór skip- aður varðstjóri og samhliða vöktunum þá vann hann talsvert við yfirheyrslur og rannsóknir, auk forvarnar- og fræðslustarfa í grunnskólum og leikskólum í héraðinu. Theódór segist taka við góðu búi hvað lög- regluliðið varðar. Hér sé góður og dugleg- ur mannskapur sem hafi mikinn metnað fyrir störfum sínum og lögreglunni sem heild. Liðinu tekst að leysa nær öll sín mál án utanaðkomandi aðstoðar og það tekst á við æ fleiri verkefni á flestum sviðum, án þess að mannskap sé fjölgað eða að yf- irvinna fari úr böndunum. „Sú staðreynd að hringvegurinn liggur í gegnum um- dæmið hefur mikið að segja um verkefnin hjá okkur sem snúast mikið í kring um umferðina. Álagið jókst mjög mikið þegar Hvalfjarðargöngin opnuðust þann 11. júlí 1998. En með aðstoð umferðardeildar Rík- islögreglustjóra og samvinnu lögreglulið- anna hefur tekist að mæta þessari auknu um- ferð og því sem henni fylgir með öflugri löggæslu.“ Lögreglan heldur uppi lögum og reglu í sam- félaginu en Theódór segir að sér finnist stund- um eins og of lítið sé gert úr þjónustuhlutverki lögreglunnar. Lögreglan þjónar fólkinu og sam- félaginu öllu með því að koma í veg fyrir td. ölv- unarakstur, hraðakstur eða önnur afbrot í um- ferðinni, hún gætir eigna fólks og upplýsir innbrot svo dæmi séu tekin. Hann telur að jafn- vel með breyttu viðhorfi lögreglumannanna sjálfra sé hægt að ná því fram að lögreglan vinni meira með fólkinu í landinu og sé ekki eins teflt gegn því eins og oft gerist í umræðunni. Theó- dór hefur alltaf haft mikinn áhuga á öllu sem tengist löggæslu og kannski þess vegna tekið þátt í ýmsum félagsmálum hjá lögreglunni, jafnt heima fyrir og á landsvísu. Starfandi í leikhúsi lífisins Í mynd Hrafns Gunnlaugssonar Opinberun Hannesar mátti líta Theódór í hlutverki lög- regluvarðstjórans og er það ekki eina hlut- verkið sem hann hefur tekið að sér. Þrátt fyrir það telur Theódór ekki að leiklistarbakterían hafi náð tökum á honum. „Lögregustarfið sjálft er mjög fjölbreytt og er því gefandi. En það get- ur stundum einnig verið átakanlegt og sorglegt. Starfið og viðfangsefnin því samfara spegla alla mannlífsflóruna og raunveruleikann eins og hann er og því má segja að ég sé starfandi í leik- húsi lífsins og trúlega hefur það slegið á leiklist- arbakteríuna hjá mér.“ Áhugamál og hæfileikar Theódórs liggja víða því hann hefur einnig starfað við fjölmiðla, bæði verið fréttaritari Morgunblaðsins og flutt þætti í Ríkisútvarpinu. „Ég hef haft gaman af snjöllum og stundum margræðum tilsvörum sem ég hef heyrt í gegn- um tíðina og ég hef gert mitt til að þau lifi áfram með því að koma þeim á blað. Margt af þessu er áratuga gamalt og ættað úr Borgarnesi og Borgarfirði.“ Á sínum tíma birtust nokkrir pistl- ar eftir Theódór í Morgunblaðinu með slíku efni sem var þá blandað inn í gamansögur, sögur af sérkennilegu fólki og uppnefnum. Einnig var hann með svipaða pistla í RÚV í þættinum „Samfélagið í nærmynd“ á árunum 1996 til 1999 og skaut þá gjarnan vel völdum vísum með. Sem dæmi um þetta má nefna tilsvör tveggja tré- smiða sem eru eftirfarandi. Tveir smiðir voru að störfum og annar þeirra var með gatslitna hanska og var orðinn sár á höndunum við vinnu sína. Vinnufélagi hans snýr sér loks að hon- um og spyr af hverju í ósköpunum hann kaupi sér ekki nýja vinnuvettlinga. Þá svar- ar hinn; „hendurnar gróa en hanskarnir ekki.“ Annar smiður var eitt sinn spurður að því hvort að hann tryði ekki á drauga. „Nei“ svaraði smiðurinn, „ég trúi ekki á drauga, ég vinn með einum og ég hef ekki nokkra trú á honum.“ Þá hefur Theódór í nokkur ár verið með viðtalsþætti í Ríkisútvarpinu sem nefnast „Laufskálinn“ og ræðir við fólk af Vest- urlandi. Theódór segist trúlega vera búinn að ræða við um 80 manns í þessum þáttum. ,,Í þessu felst mikil tilbreyting hjá mér og ég hef stundum sagt að það sé gott að geta með þessu móti nálgast fólk á öðrum nótum en að líta á það sem sakborninga, grunaða eða vitni,“ segir Theódór og bætir við að oft hafi komið sér vel í að geta slegið á létta strengi þegar það á við, og hefur stundum tekist að brjóta upp spennuþrungið og erf- itt ástand með hæfilegu gríni. Í lofti og á sjó Af öðrum áhugamálum Theódórs má nefna að hann er með flugpróf og á 1/8 hlut í vél sem hann flýgur gjarnan á um héraðið á góðviðr- isdögum. „Stundum flýg ég einn en oft býð ég fólki með mér.“ Theódór segist stundum nota flugvélina í starfinu, hafa td. farið í eftirlitsflug um veiðilendur vegna veiðibannsins á rjúpunni. Auk flugprófsins er Theódór með pungapróf og á kvarthlut í trillu. „Ég hef mjög mikla ánægju af að sigla á út Borgarfjörðinn og fiska þá gjarn- an í kringum Þormóðsskerið og Grænhólma eða skýt nokkra svartfugla í soðið.“ Sem fréttaritari hefur Theódór tekið töluvert af myndum og sem áhugaljósmyndari. Fjarnám í Lögregluskólanum Í mars 2003 hóf Theódór stjórnunarnám við Lögregluskóla ríkisins sem er haldið í samvinnu við Endurmenntunardeild HÍ. Námið er fjar- nám á háskólastigi og samsvarar 25 einingum og lýkur í maí 2004. Theódór segir að þarna sé saman kominn mjög skemmtilegur hópur lög- reglumanna og lögreglustjóra, konur og karlar, sem leggjast á eitt við lærdóminn. Námið er sniðið að þörfum lögreglunnar og kemur því til með að nýtast mönnum vel. Tekur hlutverk sitt alvarlega Umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi er víðfeðmt en þar starfa sex lögreglumenn. Guðrún Vala Elísdótt- ir fréttaritari ræddi við Theódór Kr. Þórðarson yf- irlögregluþjón sem einnig á sér ýmis áhugamál. Theódór Þórðarson yfirlögregluþjónn í Borgarnesi með umdæmið á veggnum á bakvið sig. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.