Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 12

Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 12
ERLENT 12 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MIHAIL Saakashvili sór í gær emb- ættiseið forseta Georgíu í höfuð- borginni Tbilisi og varð þar með yngsti þjóðarleiðtogi í Evrópu. Tveir mánuðir eru liðnir frá því að Edúard Shevardnadze sagði af sér forseta- embættinu. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Igor Ivanov, utan- ríkisráðherra Rússlands, og Brian Cowen, utanríkisráðherra Írlands og fulltrúi Evrópusambandsins, voru viðstaddir embættistökuna. Mikil ör- yggisgæsla var meðan á henni stóð og voru lögreglumenn staddir á öll- um helstu umferðarleiðum Tbilisi á meðan. Shevardnadze, sem átti 76 ára afmæli í gær, var ekki viðstaddur embættistökuna. Saakashvili var um hríð dóms- málaráðherra í ríkisstjórn Shevar- dnadzes. Hann öðlaðist vinsældir eftir að hafa verið í forystu þeirra sem mótmæltu niðurstöðum kosn- inga í landinu í nóvember síðastliðn- um, en niðurstöðurnar voru sagðar falsaðar. Shevardnadze sagði svo af sér 23. nóvember í fyrra. Saakashvili sór embættiseiðinn framan við þinghúsið, á sama stað og hann stýrði fjöldamótmælum gegn Shevardnadze fyrir tveimur mánuð- um. Fjórir risastórir hvítir og rauðir fánar, tákn andspyrnuhreyfingar Saakashvilis, blöktu á þinghúsinu og eftir að hafa skrifað undir eiðstaf sinn undirritaði nýi forsetinn tilskip- un um að þessi fáni væri nýr þjóðfáni Georgíu. Saakashvili fékk rúmlega 96% at- kvæða í forsetakosningum sem haldnar voru fyrr í þessum mánuði. Saakashvili er 36 ára gamall lög- fræðingur, sem hlaut menntun í Bandaríkjunum. Hann hefur heitið því að færa Georgíu til nútímans, binda enda á spillingu í stjórnkerfinu og leggja grundvöll að efnahagsbata og stöðugleika. Powell viðstaddur Nærvera Powells við embættis- tökuna er talin til merkis um hve Bandaríkin leggja mikla áherslu á gott samband við stjórnvöld í Georgíu. Það eykur á mikilvægi landsins í augum Bandaríkjamanna, að verið er að leggja olíuleiðslu frá Kaspíahafi til Vesturlanda um Georgíu en Bandaríkin vonast til að þurfa ekki í framtíðinni að reiða sig á olíu frá Mið-Austurlöndum í jafn- miklum mæli og nú. Saakashvili hefur einnig heitið því að eiga góð samskipti við Rússa, sem selja Georgíu orku og hafa tvær her- stöðvar í landinu. Forsetinn segir jafnframt, að Rússar geti ekki litið á Georgíu sem nýlendu og að Georgíu- menn vilji nánari tengsl við Evrópu. Saakashvili sver embættis- eið sem forseti Georgíu Tiblisi. AFP. AP Mikhail Saakashvili, er hann sór embættiseið sem forseti Georgíu í gær. DEMÓKRATINN John Kerry gæti sigrað George W. Bush Bandaríkjaforseta ef forseta- kosningarnar færu fram nú. Þessi er niður- staða könnun- ar, sem News- week birti um helgina. Kerry, sem er öldunga- deildarþing- maður frá Massachu- setts, fengi 49% atkvæða en Bush 46%. Kerry hefur einnig forustu í baráttunni um útnefningu Demókrataflokksins sem for- setaefni en sjö frambjóðendur keppa um að mæta Bush í for- setakosningum í nóvember. Forkosningar demókrata fara fram í New Hampshire á morg- un. Samkvæmt könnuninni nýt- ur Kerry fylgis um 30% kjós- enda Demókrataflokksins en John Edwards öldungadeildar- þingmaður hefur 13%. Howard Dean, fyrrverandi ríkisstóri, sem naut mests fylgis fyrir nokkrum vikum, er með 12%. Fyrir hálfum mánuði var Dean með 24% fylgi í sams konar könnun Newsweek en fylgið hefur hrunið af honum eftir að honum tókst ekki að sigra í for- kosningum í Iowa. Þátttakendur í skoðanakönn- uninni virðast þó ekki hafa mikla trú á frambjóðendum Demókrataflokksins. 52% þátt- takenda í könnuninni sögðust ekki vilja að Bush yrði endur- kjörinn en 78% sögðust telja líklegt eða mjög líklegt að Bush yrði forseti áfram. 103 millj- arðar í arf JOAN Kroc, ekkja Rays Krocs, sem stofnaði McDonald’s-veit- ingahúsakeðjuna, arfleiddi Hjálpræðisherinn í Bandaríkj- unum að 103 milljörðum ísl. kr. Er þetta líklega langstærsta gjöfin, sem ein samtök hafa fengið fyrr og síðar. Joan Kroc, sem lést í októ- ber, leggur svo fyrir í erfða- skránni, að Hjálpræðisherinn komi upp meira en 25 íþrótta- miðstöðvum í Bandaríkjunum fyrir alþýðubörn. Á vef Hjálp- ræðishersins sagði, að nýir tímar væru runnir upp í starf- seminni. Þess má geta, að Bill Gates gaf fyrir ekki löngu sex millj- arða dollara, 414 milljarða kr. til ýmissa verkefna. Leyndu ástandinu Forsætisráðherra Taílands, Thaksin Shinawatra, hefur við- urkennt að stjórnina hafi grun- að í tvær vikur að fuglaflensa væri þar landlæg en hafi ekki viljað skýra frá því af ótta við að ofsahræðsla myndi grípa um sig. Stjórnvöld hafa verið gagn- rýnd fyrir viðbrögð sín við sjúkdómnum og sökuð um að reyna að leyna ástandinu. Nú síðast í gær var tilkynnt að flensan væri landlæg í Indónesíu, milljónir fugla væru smitaðar en ekki væri vitað um tilfelli í mönnum. STUTT Kerry gæti sigrað John Kerry STJÓRNVÖLD á Kúbu hafa frestað áætlunum um að takmarka net- notkun landsmanna en samkvæmt nýjum lögum sem koma áttu til framkvæmda á laugardag var flest- um Kúbverjum gert ókleift að nota Netið heima hjá sér. Ríkissímafyrirtækið tilkynnti í gær að það hefði frestað því að framfylgja lögunum um óákveðinn tíma. Kúbustjórn hefur sagt að til- gangurinn með lögunum sé sá að tryggja að Netið sé eingöngu notað til góðs fyrir samfélagið, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Amn- esty International gagnrýndi að- gerðirnar og sögðu að stjórnvöld væru að reyna að stjórna því hvaða efni og hugmyndum landsmenn hefðu aðgang að. Stjórnin brást harkalega við þeim ásökunum og sagði að eingöngu væri verið að forða því að fólk sem braski með aðgangsorð stíflaði nettenging- arnar. Með nýju lögunum átti að- eins að vera hægt að komast inn á Netið í gegnum símalínur sem greitt er fyrir með dollurum en út- lendingar eru nánast þeir einu sem mega nota slíkar línur. Kúbustjórn frestar banni við netnotkun Havana. AFP. BANDARÍSKA könnunarfarið Opp- ortunity lenti á Mars aðfaranótt sunnudagsins á svonefndri Meridi- ani-sléttu um 10.600 km frá þeim stað sem Marskanninn Spirit lenti 3. janúar. Vísindamenn reyna nú að gera við Spirit en samband við kannann rofn- aði í liðinni viku. Eru þeir sagðir hóf- lega bjartsýnir um að takast muni að koma Spirit aftur í gang en samband náðist við hann um tíma á föstudag. Óttast þeir að margar vikur kunni að líða þar til farið kemst aftur í lag og sumir sérfræðingar telja að tölvu- búnaður kannans hafi af einhverjum óþekktum orsökum orðið fyrir var- anlegum skaða. Spirit og Opportunity eru á hjól- um og eiga þeir að aka um Mars og taka myndir og rannsaka sýni. Fyrstu myndirnar frá Opportunity bárust í gær til jarðar. Á myndunum getur að líta slétt landslag og er jörð- in dökkrauð á sumum stöðum en þakin ljósum berggrunnsbrotum annars staðar. För eftir loftpúða sem notaðir voru við lendingu könnunar- farsins sjást greinilega í forgrunni myndarinnar. Lenti á ókunnu og undarlegu svæði „Ég er orðlaus. Ég er hissa. Ég er alveg steinhissa. Könnunarfarið Opportunity hefur lent á ókunnu og undarlegu landsvæði. Ég veit ekki enn hvað það er sem við sjáum á myndunum,“ sagði Steven Squyres, sem verið hefur í forsvari vísinda- manna sem tekið hafa þátt í þessu verkefni NASA. Fyrstu myndirnar frá Opport- unity bárust um klukkan níu í gær- morgun að íslenskum tíma, aðeins fjórum klukkustundum eftir að kanninn lenti á Mars. Þriðja könnunarfarið, Beagle 2, er á Mars. Evrópska geimferðastofn- unin sendi farið þangað en ekkert hefur heyrst frá Beagle 2 frá því hann lenti á Mars um jólin. Reuters Mynd frá Meridiani-sléttunni á Mars sem Opportunity sendi frá sér í gær. Annað könnun- arfar lent á Mars Pasadena. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.