Morgunblaðið - 26.01.2004, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.01.2004, Blaðsíða 15
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 15 Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is • Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16. GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ! Tilboðsdagar hefjast ÞRIÐJUDAGINN 27. JANÚAR TIL 7. FEBRÚAR 10-60% afsláttur Rúmfatnaður, barnasett, sloppar, dúkar o.fl. 10% afsláttur af öllum öðrum rúmfatnaði Í virðingarskyni við lista- manninn og til þess að auðvelda samskipti okkar í millum, ákvað ég, ásamt samstarfsmönnum mínum og formanni stjórnar safnsins, að læra að tala íslensku,“ sagði Gunnar Kvaran, forstöðumaður Astrup Fearnley safnsins í Ósló, í upphafi ávarps síns við opnun viðamikillar sýningar á verkum Ólafs Elíassonar í safninu. Þó orð hans hafi af augljósum ástæðum vakið kátínu opnunargesta, var einnig í þeim beinskeytt vísun til þess hversu „tungtak“ listar Ólafs er óvenjulegt og sjaldgæft. Þrátt fyrir þá eiginleika er inntak verka hans þó þeim eiginleikum búið að höfða til óvenjulegra margra – burt séð frá uppruna þeirra eða bakgrunni í menningarlegum og félagslegum skilningi, eins og reynslan hefur sýnt. Ögrandi víddarrannsókn Sýningin í Astrup Fearnley safninu ber yfirskriftina Litaminni og aðrir óformlegir skuggar, eða Colour memory and other in- formal shadows, og eiga öll verkin það sameiginlegt að meg- inefniviður þeirra er ljósið. Um er að ræða tíu verk, þar á meðal nokkur stór verk frá þessu ári, sem ekki hafa verið sýnd áður. Ólafur nýtir sér vísindi, tækni og heimspekilega nálgun til að sýna margvíslega eiginleika ljóssins; með einföldum og áhrifaríkum hætti afhjúpar hann eðli þess og af hverju það birtist okkur stund- um eins og hreinar og klárar sjón- hverfingar. Seim heild er sýningin einkar áhrifamikil upplifun lita, ljóss og skugga sem renna saman í óvenjulega og ögrandi vídd- arrannsókn – heillandi heim hreyf- ingar er vísar langt út fyrir sig bæði hvað varðar sameiginlegan reynsluheim og minni áhorfenda. Tengsl byggjast á tilfinningum Í kynningu sinn að verkunum sagði heiðursgesturinn við opn- unina, Hans Ulrich Obrist, sýning- arstjóri við Nútímalistasafnið í París, að „með þessari sýningu [...] væri Ólafur Elíasson að sýna afrakstur tímabils þar sem hann þróaði verk sem miðuðu að því að ögra skilningi okkar á rýminu með því að nota ljós og liti sem sinn meginmiðil.“ Obrist lagði út af leik Ólafs við áhorfandann og tengslum hans við umhverfi sitt og vísaði til samtals sem þeir áttu fyrir skömmu. „[Ólafur] ítrekar þetta sjónarhorn alltaf og segir: „Tengsl okkar byggjast á tilfinn- ingum. Það er ekki til samband sem er ekki tilfinningalegt. Ég held að jafnvel þótt ég aðhyllist pólitíska þætti í list, þá finnist mér felast mótandi hætta í við- horfum sem eru svo stöðluð að þau útiloka skoðanir sem byggjast á tilfinningum“.“ Obrist telur þetta vera ástæðuna fyrir því að „hvert einasta verk eftir Ólaf er manni ofarlega í huga í vikur, mánuði og jafnvel árum saman. Í gegnum verkefni hans er hægt að stunda þátttöku – teygja hana og móta – auk þess sem mat [áhorf- andans] er kynnt til sögunnar sem virkur hluti af þátttöku hans.“ Umhugað um að brjóta sig frá hefðinni Í sýningarskránni fjallar Gunn- ar Kvaran um stöðu Ólafs í lista- sögunni, notkun hans og rannsókn á náttúrulegum fyrirbrigðum, svo sem ljósi, vatni, þoku og ís, í list- sköpun sinni. Hann segir Ólaf ekki vera „umhverfisfræðing í hefð- bundnum skilningi, hann er ný- módernisti sem færir náttúruna inn í listheiminn og leggur á hana nýtt félagslegt og menningarlegt mat.“ Er það álit Gunnars að Ólaf- ur sé mjög meðvitaður um sögu- legt samhengi listar sinnar, en um leið mjög umhugað um að brjóta sig frá hefðinni. Hann „end- urbyggir sýn er byggir á samruna í nýju félagslegu rými, þar sem hann býður almenningi að taka þátt í huglægum tengslum er skarast með margvíslegum hætti; einskonar fyrirbrigðatengdum samskiptum.“ Fáséð fyrirbrigði ljóssins Gestir Astrup Fearnley-safnsins í Ósló rifjuðu upp „litaminni“ sitt og tengsl við „aðra óform- lega skugga“ á sýningu Ólafs Elíassonar um helgina. FRÍÐA BJÖRK INGVARS- DÓTTIR brá sér á opnun og skoðaði afhjúpun listamannsins á eðli ljóssins ogþeim fáséðu fyrirbrigðum sem í því eru fólgin og tengjast sjónhverfingum minnisins. Ljósmynd/Örn E. Borgen/Scanpix Ólafur Elíasson og Gunnar Kvaran á opnunardaginn, inni í verki Ólafs; The inverted shadow tower, eða Skugga- turn á röngunni (2004). Turninn er búinn til úr ljósum er í samspili við skugga mynda þvívíddarform. Ljósmynd/Örn E. Borgen/Scanpix Verkið Your yellow versus purple versus blue, eða Blái liturinn þinn á móti fjólubláum á móti bláum (2004) byggist á speglun og skuggavarpi glerja sem vísa til hringhreyfinar sólkerfis á veggjum sýningarsalarins. fbi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.