Morgunblaðið - 26.01.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.01.2004, Blaðsíða 16
UMRÆÐAN 16 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 339 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2004 Pilot Super Grip kúlupenni Verð 75 kr/stk NOVUS B4 FC heftar 50 blöð. Verð 1.798 kr NOVUS B 90 Rafmagnsheftari 25 blöð. Verð 7.485 kr Borðmotturnar frá Múlalundi Geisladiskar í miklu úrvali DÓMUR Hæstaréttar í máli Jafnréttisstofu gegn Leikfélagi Ak- ureyrar sem féll í gær, fimmtudag- inn 22. janúar, er afar þýðingarmik- ill af a.m.k. tvennum ástæðum. Annars vegar skýrir hann á nýjan leik línur hvað varðar túlkun jafn- réttislaga og eyðir óvissu sem upp kom eftir hina furðulegu niðurstöðu kærunefndar og stað- festingu Héraðsdóms Norðurlands þar á. Í því sambandi er mik- ilvægt að dómur Hæstaréttar er af- dráttarlaus. Ekki er síður ástæða til að fagna niðurstöðunni fyrir hönd Valgerðar H. Bjarnadóttur fyrrv. formanns leikhúsráðs Leikfélags Akureyrar sem jafnframt gegndi á sama tíma starfi framkvæmdastýru Jafnréttisstofu. Nærri má geta að Valgerði féll þungt að vera sökuð um aðild að broti á jafnréttislögum. Í reifun málsins kemur skýrt fram að það var einmitt af virðingu fyrir jafnréttislögum og vilja til að rétta hlut kvenna í leikhúsheiminum sem eini kvenkyns umsækjandinn um stöðuna var tekinn til viðtals þó aðr- ir umsækjendur, og fleiri en sá einn sem var ráðinn, teldust nokkuð aug- ljóslega fremri einkum hvað varðar sérmenntun og reynslu á sviði leik- listar. Engum kunnugum Valgerði H. Bjarnadóttur, yfirburða þekk- ingu hennar og brennandi áhuga á jafnréttismálum, kemur þessi nið- urstaða á óvart. Hitt hefðu mátt teljast undur og stórmerki ef hún, í því starfi sem hún gegndi, með sinn feril að baki á vettvangi kvenfrels- isbaráttunnar og með sína miklu reynslu og hæfni, hefði gerst sek um mistök af því tagi að láta konu gjalda kynferðis síns við stöðuveit- ingu. Að Valgerður H. Bjarnadóttir hefði gert slíkt af ásetningi ætti engum lifandi manni að detta í hug. Hlutur félagsmála- ráðherra Þá víkur að þeirri hlið þessa máls sem varðar félagsmálaráðherra Árna Magnússon og er ófögur. Rétt er að rifja það upp að fyrir nokkrum árum var Jafnréttisstofu komið á fót með nýjum lögum og staðsetning hennar jafnframt ákveðin á Akureyri. Stóð um það mál nokkur styr en þáver- andi félagsmálaráðherra Páll Pét- ursson hélt sínu striki og hafði af fullan sóma sem og því að vera áhugasamur um jafnréttismál og vinna þeim málaflokki vel sem fé- lagsmálaráðherra. Hann réð Val- gerði H. Bjarnadóttur til að veita hinni nýju stofnun forustu og stýra uppbyggingu hennar. Sú ráðstöfun var farsæl, til starfa kom hæfi- leikamikið fólk og Jafnréttisstofa tók að blómstra. Svona stóðu mál þegar sú at- burðarás hófst sem tók enda innan réttarkerfisins með dómi Hæsta- réttar í gær og óþarft er að rekja. Félagsmálaráðherra brást harla lít- ilmannlega við þegar undirmaður hans, framkvæmdastýra Jafnrétt- isstofu, fór á hans fund til að fá því svarað hvort hún nyti áfram trausts hans til að gegna starfinu. Strax í upphafi þess fundar lagði hann til endanleg starfslok. Það var nú allur hinn drengilegi stuðningur ráð- herrans við sinn undirmann, konuna Valgerði H. Bjarnadóttur, sem stödd var mitt í erfiðri atburðarás vegna félagsmálastarfa á óskyldum vettvangi. Lái hver sem vill Val- gerði að treysta sér ekki til að gegna starfinu áfram úr því ráð- herra sá ekki einu sinni sóma sinn í að leggja til að hún færi í leyfi frá störfum uns niðurstaða lægi fyrir í málinu. Síst batnar svo hlutur Árna Magnússonar þegar kemur að þeim skilmálum sem hann taldi sér sæm- andi að bjóða Valgerði í tengslum við starfslokin. Sex mánaða laun, sem ljóst mátti vera að Valgerður myndi enda með að vinna fyrir að þó nokkru leyti hvort sem er vegna frágangs mála. Rétt er að hafa í huga að Valgerður hafði í þrjú ár unnið hörðum höndum að uppbygg- ingu Jafnréttisstofu og átti tvö ár eftir af skipunartíma sínum. Er hér ólíku saman að jafna og millj- ónatuga starfslokasamningunum sem ríkisstjórnin hefur gert við marga karlforstjóra á undanförnum misserum. Rétt er að taka fram að um þennan þátt starfsloka Val- gerðar er ekkert samkomulag þó ráðherra reyni endurtekið að halda hinu gagnstæða fram. Nú liggur fyrir að félagsmálaráð- herra Árni Magnússon hrakti Val- gerði H. Bjarnadóttur úr starfi sínu að ósekju og bauð henni til viðbótar starfslokakjör til mikilla muna lak- ari en mörgum karlmönnum hafa boðist að undanförnu. Fer þá að verða áleitin spurning hver þurfi að lesa betur jafnréttislögin. Hæst ber þó þessa spurningu: Ætlar félagsmálaráðherra Árni Magnússon að biðja Valgerði H. Bjarnadóttur afsökunar og gera sitt ýtrasta til að bæta henni það sem á henni var brotið? Verður hann af því maður að meiri, eða er hann of mikill Framsóknarmaður til þess? Biðst ráðherra jafnréttis- mála afsökunar? Steingrímur J. Sigfússon skrif- ar um dóm Hæstaréttar ’Ætlar félagsmálaráð-herra Árni Magnússon að biðja Valgerði H. Bjarnadóttur afsök- unar?‘ Steingrímur J. Sigfússon Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs Skjalastjórnunarstaðallinn ISO15489 kom nýlega út á al- þjóðavettvangi. Verið er að ganga frá ís- lenskri þýðingu hans hjá Staðlaráði sem birt- ast mun okkur nú á nýju ári. Þetta eru tímamótaviðburðir fyr- ir íslenskt athafnalíf og stjórnsýslu enda hag- ræði af skjalastjórnun vel þekkt. Kíkjum að- eins á helstu þætti stað- alsins og skoðum mik- ilvægi hans til að efla innri þekkingu ís- lenskra vinnustaða. Hvað er skjalastjórnun? ISO15489 skýrir og skilgreinir skjalastjórnun á vinnustað og lýsir helstu þáttum hennar. Staðallinn leggur fyrst áherslu á að taka þurfi tillit til gildandi lagaumhverfis í hverju landi við stjórnun skjala á vinnustað. Hér á landi skipta t.d. lög um persónuupplýsingar, upplýs- ingalög og stjórnsýslulög miklu máli. Staðallinn lýsir síðan því hagræði sem hafa má af því að taka upp skjalastjórnun og hvernig fyrirtæki með skjalastjórnun fær samkeppn- isforskot fram yfir önnur sem ekki hafi skipulagt skjöl sín. Skjalastjórn- un er nátengd vinnustaðnum, skrif- stofunni, í daglegri önn. Skjalastjórnun er hag- nýt stjórnunargrein og á það leggur staðallinn sérstaka áherslu. ISO15489 afmarkar og skýrir t.d. muninn á skjalastjórnun (Re- cords Management) og skjalavörslu (Archival Manage- ment) sem er stjórn skjalasafna. Rugl- ingur með íslensk hugtök sem tengjast skjalastjórnun hefur einmitt verið vandamál og þann vanda mun íslenska útgáfa staðals- ins væntanlega laga. Skjalastjórnun er fræðigrein Skjalastjórnun er nú orðin að við- urkenndri fræðigrein. Jóhanna Gunnlaugsdóttir lektor í skjalastjórn- un við Háskóla Íslands og Þjóð- skjalasafn Íslands og undirsöfn þess hafa átt stóran þátt í þróun grein- arinnar hér á landi. Skjalastjórnun þróast áfram sem fræðigrein og mót- ar jafnvel nýjar fræðigreinar líkt og þekkingarstjórnun (knowledge ma- nagement). Þekkingarstjórnun snýst um innri þekkingu vinnustaðar. Skjalastjórnun skipuleggur hluta af þessari þekkingu, formlega þekkingu vinnustaðarins sem finna má í skjöl- um. Hví viljum við staðal? Það er mjög mikilvægt að íslenskir vinnustaðir taki upp skjalastjórnun í samræmi við ISO15489. Kröfur um hagræði, skilvirkni og bætta þjónustu koma úr öllum áttum. Alþjóðavæð- ingin gerir kröfur um bestu mögu- legu vinnubrögð ef íslensk fyrirtæki eiga að standast samkeppni. ISO15489 felur í sér einfaldar skýrar leiðbeiningar um hvernig taka á upp skjalastjórnun á sérhverjum vinnustað. Staðallinn lýsir meg- inþáttum skjalastjórnunar, en þessa þætti vantar stundum alveg á ís- lenska vinnustaði. Alþjóðlegur skjalastjórn- unarstaðall fyrir okkur Sigmar Þormar skrifar um skjalastjórnunarstaðalinn ISO15489 og gildi hans fyrir íslensk fyrirtæki ’Skjalastjórnun er núorðin að viðurkenndri fræðigrein.‘ Sigmar Þormar TVÖHUNDRUÐ-fertugasti og átt- undi afmælisdagur Mozarts verð- ur haldinn hátíðlegur hér á landi eins og undanfarin ár, þegar vinir Mozarts, með Laufeyju Sigurð- ardóttur fiðluleikara í far- arbroddi, halda honum afmæl- istónleika. Tónleikarnir verða á Kjarvalsstöðum á þriðjudagskvöld og hefjast kl. 20, en Reykjavík- urborg styrkir tónleikana. Þorsteinn Gylfason prófessor hefur það hlutverk með höndum á tónleikunum að segja frá Mozart og verkunum sem leikin verða, en þau eru Sónata í D-dúr K29, Stef og tilbrigði K360, og Sónata í e- moll K304, öll fyrir fiðlu og píanó, en þar leikur Krystyna Cortes með Laufeyju. Eftir hlé leika Laufey, Krystyna og Richard Tal- kowsky sellóleikari Píanótríó í C- dúr K548 og að lokum verður leikinn Oktett fyrir 5 trompeta, tvær flautur og pákur K187, en þar leika trompetleikararnir Ás- geir Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson, Einar St. Jónsson, Guð- mundur Hafsteinsson og Sveinn Birgisson; Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau flautuleikarar auk Eggerts Pálssonar pákuleik- ara. Þorsteinn Gylfason er í miðju kafi að undirbúa tónleikaspjallið þegar blaðamaður hringir til að forvitnast um það sem þarna á að fara fram, og það sem hann ætlar að segja um Mozart. „Um sérkennilegasta verkið á tónleikunum eru eiginlega engar heimildir,“ segir Þorsteinn, og á þar við oktettinn, sem hefur afar óvenjulega hljóðfæraskipan. „Ok- tettinn er víst ekki að öllu leyti eftir Mozart, heldur er hann sam- tíningur, frá Gluck og fleirum, og svo er að sjá sem Leopold faðir hans hafi haft eitthvað að gera með þetta líka.“ Verkin á tónleikunum eru frá öllum æviskeiðum Mozarts. Hann var tíu ára þegar hann samdi D- dúr sónötuna, um tvítugt þegar hann samdi e-moll sónötuna og til- brigðin, og þrjátíu og tveggja ára þegar hann samdi tríóið. Oktett- inn hefur þá orðið til á unglings- árum tónskáldsins. „Ég sit núna yfir bréfasafni Mozarts að skoða hvað þeir feðg- ar, Wolfgang og Leopold, hafa að segja – ekki endilega um verkin – þeir tala sjaldan um einstök verk.“ Í bréfum Mozarts skín víða í gegn að Leopold var strangur fað- ir, og stundum er eins og Wolf- gang Amadeus setji upp sérstakt andlit þegar hann skrifast á við pápa sinn. „Hann var strangur, – bæði í veraldlegum efnum og and- legum; – og í hjúskaparefnum. Mozart kom ekki alveg til dyranna eins og hann var klæddur í sam- skiptum við pabba sinn í bréfum, en þar fyrir er hann þó frír af sér stundum. Það er dálítið merki- legur munur á bréfunum. Þeir skrifast gífurlega mikið á ef Moz- art er í útlöndum, og þeir eru ber- sýnilega mjög ólíkir persónu- leikar.“ Þorsteinn er ekki búinn að fara á æfingu hjá hljóðfæraleik- urunum, en segist ætla gera það, því honum leikur forvitni á að heyra þar verk sem hann hefur ekki heyrt áður; þar með talinn oktettinn. „Það er alltaf gaman að heyra verkin sem Mozart samdi sem barn, því þau eru að mörgu leyti mjög lygileg. Svo er það þessi auka uppákoma – oktettinn. Laufey kallar þetta hestaballett, – ég á eftir að spyrja hana að því hvort það sé hennar nafngift eða hvort hún hefur þetta einhvers staðar að. En af því að við vitum að Vínarbúar hafa haft spánskan reiðskóla ábyggilega síðan á 18. öld, með fótfimum hestum sem stíga dans, þá er það jafngott og hvað annað – ef það er tilgáta Laufeyjar, – að þetta sé músík samin fyrir hestana til að dansa við. Það var ekki hægt að nota nema blásara á útisamkomum ef músíkin átti að heyrast,“ segir Þorsteinn og hlær. Morgunblaðið/Ásdís Hljóðfæraleikarar í Oktettinum sérkennilega: Eggert Pálsson, Ásgeir Steingrímsson, Martial Nardeau, Guðrún Birgisdóttir, Guðmundur Haf- steinsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson. Á myndina vantar Svein Birgisson. Æskuverk og hestaballett á afmæli Mozarts LISTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.