Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 21

Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 21
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 21 Það eru harðir kostir fyrir fjöl- skyldu og vini að standa frammi fyrir orðnum hlut. Við vitum þó að jarð- vistin er takmörkuð gæði og þrátt fyr- ir allt kom Steini miklu í verk og naut lífsins ríkulega þann tíma sem honum var gefinn, eignaðist góða fjölskyldu og vini. Að leiðarlokum þökkum við fé- lagarnir og fjölskyldur okkar sam- fylgdina og vitum að minningin um góðan dreng verður Helgu og krökk- unum huggun. Héðinn og Jason. Þegar hringt var í mig og Kolla dóttir þín sagði mér að pabbi sinn hefði dáið í morgun var mér öllum lokið. Ég sagði eitthvað á þá leið að það gæti ekki verið og þurfti að láta segja mér tíðindin aftur og aftur. Hugsunin var alltaf sú að hér væri um einhvern misskilning að ræða, svo fjarlægt var það skilningi mínum að þetta gæti hent. Þá daga sem liðnir eru síðan hefur hugsunin um þig blossað upp í hug- ann nokkrum sinnum á dag og hef ég þá vart getað tára bundist. Þú varst minn besti æskuvinur frá því foreldrar okkar byggðu í Álfheim- unum, þ.e. frá 5-6 ára aldri og langt fram á unglingsár. Mér finnst eins og við höfum alltaf verið saman í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur á þess- um árum og aldrei borið skugga á þá vináttu. Margar stundirnar fóru í fót- bolta niðrá hestatúni, hjólreiðaferðir um nágrennið, og ýmsa leiki með öll- um þeim krakkaskara sem átti heima þarna í hverfinu. Upp úr stendur hvað þetta voru skemmtilegir tímar og þú varst alltaf traustur og skemmtilegur vinur. Á unglingsárum skildu svolítið leið- ir. Þú eignaðist nýja vini og ég mína. Alltaf vissum við nú hvor af öðrum og hittumst nokkuð oft. Svo kom að því að þú hittir stóru ástina í lífi þínu, hana Helgu og varst fljótlega fluttur til hennar niður á Ránargötu. Er mér minnisstætt hvað var gaman að heim- sækja ykkur þangað, fyrst í herbergið á fyrstu hæðinni og síðar í íbúðina á hæðinni fyrir ofan. Þú stofnaðir þína fjölskyldu og eignaðist þrjá yndislega krakka og alltaf fann ég hvað þú varst hamingjusamur og ánægður með þitt hlutskipti. Meðan mest var að gera við barnauppeldi og einnig vegna þess að ég flutti búferlum út á land, strjál- uðust nokkuð okkar samverustundir. Nú hin síðari árin vorum við hinsveg- ar farnir að eiga meira saman að sælda. Ofarlega er mér í huga hvað það var gott að leita til þín ef vantaði hjálp eða ráðgjöf varðandi smíða- vinnu. Þú alltaf boðinn og búinn og nákvæmnin og vandvirknin slík að ekki var á betra kosið. Steini minn, mig langar að þakka þér innilega fyrir saman gengin spor og ég mun minnast þín um ókomna ævidaga með trega og virðingu. Djúp samúð með Helgu, Kollu, Hildi og Helga, ættingjum þeirra og vinum í djúpri sorg. Blessuð sé minn- ing Steina og megi guð og gæfa líkna þeim sem lifa. Árni Valgeirsson, Stykkishólmi. Þorsteinn, bekkjarbróðir okkar úr Rafiðnaðarskólanum, varð bráð- kvaddur 14. janúar sl. langt fyrir ald- ur fram. Á haustdögum 2001 mættu ellefu kennarar í eins vetrar tölvu- kennaranám í Rafiðnaðarskólanum, kennarar með mismikla tölvureynslu og kunnáttu að baki. Á örskömmum tíma var kominn samhljómur í hóp- inn, þar sem samvinna og jafningja- fræðsla var í hávegum höfð. Námið var krefjandi og reyndist mörgum, sem litla eða enga tölvu- kunnáttu höfðu, ærið erfitt. Þorsteinn var einn af þeim sem höfðu ekki mikla reynslu af tölvum en hann hélt ávallt ró sinni og lét ekkert koma sér úr jafnvægi og sagði oftar en ekki: „Já, þetta verður allt í lagi. Þetta kemur allt“ þegar samnemendur hans lýstu áhyggjum og efasemdum um að þeir myndu nokkurn tíma ná þessu eða hinu. Þorsteinn var fljótur að tileinka sér námsefnið og var alltaf boðinn og búinn að rétta hjálparhönd. Hann átti afar auðvelt með að útskýra hlutina þannig að upp rynni ljós, sem er að- alsmerki góðs kennara. Þegar Þorsteinn kom á fyrsta degi í skólann var ekki útséð um að hann yrði með okkur þennan vetur, því hann hafði mörg járn í eldinum og ætlaði svo sannarlega að nýta orlofs- árið sitt, frá kennslu, eins vel og hann gæti. Hann ákvað sem betur fer að vera með okkur og hella sér út í tölvu- námið, og guði sé lof fyrir það. Hann var yndislegur félagi og skemmtileg- ur á sinn rólega og yfirvegaðan hátt. Í hópvinnu, þar sem samvinna er mik- ilvæg, var vart hægt að hugsa sér þægilegri og ljúfari samverkamann. Við erum slegin yfir því hvað við er- um öll „blaktandi strá sem fallið geta á einni hélunótt“. Það er sárt að missa góðan félaga og unga kynslóðin miss- ir frábæran kennara. Fyrst og fremst er þó missir fjölskyldunnar mestur og viljum við votta þeim okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Þorsteins Sveinssonar. Dóra, Einar, Erla, Ingibjörg, Sigríður, Soffía, Stefanía, Vala, Þórunn og Örlygur. Við sitjum hljóðar vinkonurnar. Hann Steini hennar Helgu er látinn. Æðri máttarvöld grípa inn í fyrir- varalaust, kippa honum burt frá fjöl- skyldu og vinum, bráðkvaddur í blóma lífsins. Sorg og söknuður fylla hugann. Hann átti svo margt eftir ógert hann Steini. Kvöldið fyrir fráfall sitt hafði hann verið í fótbolta með Helga syni sínum, allt eins og venjulega. Framundan voru bjartir tímar hjá þeim hjónum. Mikil plön í gangi um ferðalög og veisluhöld, þar sem þau gátu nú farið að leyfa sér meira eins og gjarnan vill verða þegar börnin eru vaxin úr grasi. En nú er hann horfinn frá fjölskyld- unni sem alltaf hefur verið svo sam- heldin og Helga vinkona okkar búin að missa sinn besta vin og lífsföru- naut. Í okkar huga var Steini „maðurinn hennar Helgu“ æskuvinkonu okkar. Þau kynntust um tvítugt og voru alla tíð hamingjusöm og samrýnd. Þau stóðu þétt saman í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Steini var traustur, rólegur og þægilegur í viðmóti. Hann var laginn í höndunum og var sífellt að dytta að á heimilinu. Síðastliðið haust sýndi hann okkur stoltur pallinn sem hann hafði smíðað við húsið. Nú átti að njóta hans næsta sumar í „stóra sum- arbústaðnum þeirra í borginni“ eins og Helga átti til að kalla heimili þeirra. Stórt skarð er nú höggvið í fjöl- skylduna í Jakaselinu. Elsku Helga, Kolla, Hildur, Helgi og systur Steina. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Drífa, Erla, Erna, Hilda og Ólöf. Sjaldan, ef nokkurn tíma, hefur mér orðið eins illa við og þegar konan mín sagði mér er ég kom heim úr vinnu miðvikudaginn 14. janúar að Þorsteinn Sveinsson vinur minn væri látinn. Ég hafði skilið við hann fyrir utan heimili hans mánudagskvöldið áður hressan og kátan eins og hann átti að sér, en svo var þetta bara skyndilega búið. Á leiðinni heim af fundi þetta kvöld hafði hann sagt mér hvað þau Helga Björg hefðu hugsað sér að gera í vor og sumar; fara til Prag um páskana og til einhvers sól- arlands í sumar. Þau voru á góðum stað í lífinu og 25 ára brúðkaupsaf- mæli framundan í apríl. Nú voru bestu árin framundan. Svo, skyndi- lega, var klippt á þetta allt saman. Kynni okkar Þorsteins hófust er ég hóf störf sem kennari við Hóla- brekkuskóla haustið 1986. Við urðum fljótt vinir og vinátta okkar óx og dafnaði með árunum. Áður en ég hóf sambúð með Helgu minni 1991 var ég eins og einn af fjölskyldunni og kíkti við í tíma og ótíma. Ég fylgdist með börnum þeirra vaxa úr grasi og við Helgi sonur hans urðum mjög góðir vinir á þessum tíma. Seinna fórum við svo nokkrar ferðir saman til útlanda, m.a. til Krítar síðastliðið sumar, þar sem við vorum fjögur saman í viku. Það var yndisleg ferð sem á eflaust eftir að leita á hugann, nú þegar Þor- steinn er farinn frá okkur. Þorsteinn var bóngóður maður. Hann var boðinn og búinn að hjálpa vini sínum með tíu þumalputta við að leggja parket og annað slíkt. Ná- kvæmni hans og natni við smáatriði var með ólíkindum og lét hann ekki slá sig út af laginu þótt aðrir vildu kannski gera hlutina eitthvað öðru- vísi. Hann stóð þá fastur á sínu. Við Helga söknum Þorsteins vinar okkar og erum kannski fyrst nú að átta okkur á að hann er horfinn okk- ur. Elska Helga, Kolla, Hildur og Helgi. Sorg ykkar er mikil, en minn- ingin um góðan eiginmann og föður lifir áfram og yljar ykkur í framtíð- inni. Þið eigið alla okkar samúð og vit- ið að við Helga erum til staðar fyrir ykkur hvenær sem er. Björgvin Þórisson. Skyndilegt fráfall félaga okkar úr gamla R-bekknum er óvænt og svip- legt. Einmitt þegar minningin frá 25 ára stúdentsafmælinu er fersk og við vinirnir að átta okkur á því að hrina fimmtugsafmæla bekkjarfélaganna sé að byrja. Tímamót til að hittast og gleðjast og rifja upp bernskubrek mótunaráranna í Menntaskólanum við Tjörnina. Enginn bjóst við að sá fyrsti í hópnum félli frá. Þorsteinn Sveinsson var einn hinna góðu félaga sem fylltu þá lífsglöðu bekkjardeild sem kennd var við R. Af henni fór nokkuð misjafnt orð, en lognmolla ríkti aldrei í okkar stofu, lífsglaður fyrirgangur var á göngum og meinlítil gamansemi einkenndi bekkjarfélaga hvar sem fóru, fleiri eða færri. Steini féll vel í þennan hóp og var félagi í þess orðs bestu merk- ingu. Íþróttir og önnur athafnasemi fóru honum vel en ljúfmennskan ein- kenndi hann ef til vill okkur öðrum fremur, okkur hinum sem stundum þóttu full atgangsharðir í uppátekt og fyrirferðarmiklir úr hófi. Hann var því vel liðinn af öllum, nemendum og kennurum og kom sér alltaf vel. Skömmu fyrir jól hittumst við tveir gömlu félaganna og tókum tal sem var nokkuð ólíkt þeirri léttúð sem oft einkennir góðra vina fundi á förnum vegi. Spáðum aðeins í hvernig lifið hefði gengið síðan í þá gömlu góðu daga. Það var uppörvandi að heyra hve vel lá á Steina. Ánægður í starfi sem kennari í Hólabrekkuskóla, en þar kvaðst hann una hag sínum vel. Sáttur og upplitsdjarfur, glaður með sitt. Líkur sjálfum sér. Örstutt samtal sem nú er miðlað til allra gömlu félag- anna í MT, sem minnast þessa ljúfa og góða félaga sem við þökkum allar góðar stundir. Fyrir hönd félaganna í R-bekkn- um, Stefán Jón Hafstein. Við ótímabært fráfall Steina setur mann hljóðan. Þetta skapar svo mikið tómarúm í þeirri tilveru sem við þekkjum. Allar minningar tengdar Steina eru góðar minningar. Steini var um margt einstakur maður, góður vinur og bjó yfir ýmsum skemmtilegum sérkennum. Frábær fjölskyldumaður og á heimili þeirra Helgu og barnanna hefur alltaf verið mjög gott að koma. Við höfum þekkt Steina frá unga aldri og fylgst með lífshlaupi hans. Hann ólst upp í góðri fjölskyldu, þar sem honum lærðust þau lífsgildi sem mótuðu hann sem persónu. Fjölskyld- an átti fallegt heimili í Álfheimunum, en Vogahverfið einkenndist á þessum tíma af miklu lífi og fjöri, og óhætt að segja að þar hafi verið gott að vaxa úr grasi. Leiðir Steina og Helgu lágu saman á árinu 1976 og hefur þeirra samband æ síðan einkennst af mikilli væntum- þykju og virðingu, sem hefur lagt grunninn að hamingjusömu hjóna- bandi þeirra. Börnin þeirra þrjú, Kol- brún Björg, Hildur Inga og Helgi Már, hafa öll notið þessara góðu skil- yrða heima fyrir, og eru stolt foreldra sinna og að mörgu leyti lifandi eft- irmyndir þeirra. Þegar hugsað er til baka koma ótal atvik upp í hugann sem sýna okkur hversu frábærum persónutöfrum Steini bjó yfir. Kannski var hógværð hans aðalmannkostur, hann hafði það aldrei í sér að hreykja sjálfum sér, heldur leið honum alltaf best þegar hann gat orðið öðrum til hjálpar og átti einkar auðvelt með að samgleðj- ast öðrum á góðri stundu. Heiðarleiki og samviskusemi var Steina í blóð borið, allt sem sagt var skyldi standa og átti Steini mjög erfitt með að sætta sig við ef hlutir gengu ekki upp eins og um hafði verið talað. Steini var mjög nákvæmur í öllum sínum gerð- um og vildi helst leysa öll sín verk á fullkominn hátt. Steini var umburðarlyndur og ótrúlega þolinmóður í samskiptum við fólk og virti skoðanir annarra, þó ekki væri hann endilega sammála. Steini hafði nefnilega mjög fastmótaða lífs- sýn og hún einkenndi skoðanir hans á flestum hlutum sem máli skipta í dag- legu lífi. Hann gat því oft verið býsna fastur fyrir og þeir sem hann þekktu best fundu fljótlega hvenær Steini stæði á sannfæringunni, því þá varð hans skoðunum ekki haggað. Áhugamálin tengdust öll fjölskyld- unni. Mikill áhugi á öllum íþróttum, stundaði sjálfur knattspyrnu sér til ánægju og studdi Helga son sinn af alefli þegar hann var í knattspyrn- unni með ÍR. Steini hafði mikinn áhuga á tónlist og var músíkalskur í meira lagi. Var nánast alæta í þessum efnum, en þó voru róleg melódísk lög með gítarundirspili honum hugleikn- ust. Hann var reyndar sjálfur liðtæk- ur á gítarinn og spilaði og söng sér og öðrum til ómældrar gleði þegar svo bar undir. Áhugi Steina á ferðalögð- um fór vaxandi hin síðari ár. Eftir að hann eignaðist jeppann fóru þau Helga að ferðast á nýjar slóðir hér innanlands. Þau voru einnig farin að ferðast víðar erlendis og ljóst var að þar voru þau í essinu sínu. Það er því sannarlega kveðinn harmur að nú við fráfall Steina. Steini hafði svo einstaklega góða nærveru, því hann hafði þann fágæta eiginleika að leyfa öðrum að njóta sín. Þá leið honum best. Við hittumst öll á góðri kvöldstund í október sl., þar sem Steini var að venju hrókur alls fagnaðar. Þar var Steini eins og við þekkjum hann best og minning okkar um þennan ljúfa fund á eftir að verða okkur mjög dýr- mæt. Við vottum Helgu, Kollu, Hildi og Helga okkar innilegustu samúð á þessari sorgarstundu. Guð veri með ykkur öllum. Þorgeir og Halla, Sigurður og Þórhildur, Stefán og Kristín. Það er erfitt að missa góðan og traustan vin í blóma lífsins. Steini var 48 ára þegar hann lést. Minningarnar koma fram í hugann og kalla fram hlýjar tilfinningar, þakklæti og sökn- uð. Snemma lágu leiðir okkar Steina vinar míns saman. Þegar ég kynntist honum var hann aðeins 8 ára dreng- ur. Við vorum mikið saman, lékum okkur saman og nutum félagsskapar hvor annars. Og árin liðu og seinna varð hann mágur minn. Vináttan sem við eignuðumst í byrjun hefur haldist alla tíð síðan. Við ferðuðumst mikið saman og áttum margar góðar stund- ir saman í þeim ferðum og líka annars staðar við önnur tækifæri. Steini var mér mjög hjálplegur. Hann aðstoðaði mig við mörg verk og eins rétti ég honum hjálparhönd þeg- ar hann þurfti á að halda. Við áttum gott með að vinna saman. Nú er hann farinn. Ég þakka Guði fyrir þennan góða dreng og allt það sem hann veitti mér til að auðga lífíð og gera það bærilegra. Ég sendi eftirlifandi eig- inkonu hans og börnum þeirra inni- legar samúðarkveðjur og bið góðan Guð að hugga þau og styrkja í sorg- inni. Hjálmar Kristinsson. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höfundur ók.) Elsku Helga, Kolbrún, Hildur, Helgi og aðrir aðstandendur, guð gefi ykkur styrk til að standast þá miklu raun sem ótímabært og skyndilegt fráfall ástkærs eiginmanns, föður og vinar er. Hafsteinn Hreiðarsson, Valgerður Óskarsdóttir. Fyrir rúmlega tuttugu árum fluttu tvær ungar barnafjölskyldur með stuttu millibili í sömu blokkina við Kóngsbakka. Þessar fjölskyldur áttu það sameiginlegt að hafa eignast þrjú börn á fjórum árum, tvær dætranna voru alnöfnur, húsmæðurnar unnu heima og höfðu áhuga á barnafata- saumi. Þannig kynntist ég fyrst Helgu en síðar Steina í hússtjórn fyr- ir blokkina. Þau hjón voru samvalin. Þau urðu áhrifavaldar í lífi mínu er þau hvöttu mig til að sækja um kenn- arastöðu við Hólabrekkuskóla. Höf- um við Steini verið samstarfsmenn þar síðan. Árum saman sáum við um félagsstarf unglinganna. Mörg ferða- lög fórum við saman með nemendur. Minnisstæðust er þó ferð til London í fyrra á BETT sýninguna. Steini var þægilegur ferðafélagi og sá alltaf um að öll skipulagsatriði væru í lagi. Í þessum ferðum var að sjálfsögðu margt rætt og spjallað. Við hlógum mikið, deildum áhyggjum okkar og draumum og samglöddumst yfir börnunum okkar. Steini var stoltur af fjölskyldu sinni og ófá eru skiptin sem hann hefur dáðst að listrænum hæfi- leikum Helgu sinnar við mig. Steini var sérlega vandaður maður. Hann var hlýr, einlægur og opinn í samskiptum. Hann hafði skoðun á flestum málum og lá ekki á þeim en sýndi alltaf einstaka hollustu við þær ákvarðanir sem teknar voru. Hann var nákvæmur, einstaklega vandvirk- ur og mikill hagleikssmiður. Hann var félagslyndur og lífsglaður og alltaf mætti hann þegar eitthvað var um að vera hjá kennurunum, gjarnan með gítarinn með sér. Hann naut virðing- ar og sýndi mér vinarþel sem aldrei gleymist. Steini var góður kennari, rólegur og vinalegur í fasi en fastur fyrir þegar honum fannst þörf á og naut mikilla vinsælda á meðal nem- enda. Steina er sárt saknað. Mestur er þó söknuðurinn hjá fjölskyldunni og bið ég Guð að blessa ykkur, Helgu, Kollu, Hildi og Helga, og gefa ykkur allan þann styrk sem þið þarfnist núna. Magnea Einarsdóttir. Ótrúlegt er til þess að hugsa að hann Steini sé dáinn. Við sem erum enn á besta aldri og höldum að við eig- um fullt af tíma eftir. En lífið er óút- reiknanlegt og við vitum aldrei hve- nær kallið kemur. Við kynntumst Steina og Helgu þegar við bjuggum saman í Kóngs- bakkanum. Börnin okkar léku sér saman. Margt skemmtilegt var brall- að á þessum árum, farið saman í úti- legur og spilað og leikið sér langt fram á kvöld. Ófá voru ráðin sem við fengum hjá Steina varðandi garð- yrkju og aldrei stóð á aðstoð frá hon- um. Þó að við flyttum öll í burtu úr Kóngsbakkanum hélst samband okk- ar á milli, og áttum við ætíð góðar stundir og þá sérstaklega á gamlárs- dag og hugsa ég nú til baka og þakka fyrir þær. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku Helga, Kolla, Hildur, Helgi og aðrir aðstandendur, Guð blessi ykkur á þessum erfiðu tímum. Theódóra og Þórir (Dóra og Tóti).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.