Morgunblaðið - 26.01.2004, Page 29

Morgunblaðið - 26.01.2004, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 29 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert metrnaðarfull/ur og góðum gáfum gædd/ur en gætir átt erfitt með að velja þér braut í lífinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Mundu að það geta orðið miklar og góðar breytingar í vinnunni hjá þér á þessu ári. Settu markið hátt og þá muntu ná miklum árangri. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þetta ætti að verða þér gott ár. Það er hugsanlegt að þú verðir ástfangin/n á næstu mánuðum og samvistir við börn ættu einnig að verða sérstaklega gefandi. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Árið ætti að verða þér hag- stætt í fjölskyldu- og einkalíf- inu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ert sérstaklega jákvæð/ur og það er langt síðan þú hef- ur verið jafn bjartsýn/n og þú ert nú. Samskipti þín við systkini þín eru sérlega upp- örvandi og gefandi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ættir að geta aflað meiri tekna á þessu ári en á því síð- asta. Þú munt sennilega taka að þér aukastarf eða fá launa- hækkun. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Hinn heppni Júpiter er í merkinu þínu og því leikur lífið við þig. Þú átt auðvelt með að vera bjartsýn/n og já- kvæð/ur enda hafa hlutirnir sannarlega breyst til batn- aðar síðustu fjóra mánuðina. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að þiggja öll heim- boð sem þér berast því sólin og Neptúnus eru í merkinu þínu og það gerir þig sér- staklega félagslynda/n. Á sama tíma er sköpunargáfa þín sterk og því þarftu einnig að gefa þér tíma til að hlúa að henni. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Vinir þínir og fjölskylda sýna þér óvenjumikinn stuðning á þessu ári. Hikaðu ekki við að notfæra þér það. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Júpiter er í merkinu þínu og því ætti þetta að verða þér hagstætt ár. Afstaða stjarn- anna gerir að verkum að hin jákvæðu áhrif Júpiters eru hvað mest á starfsframa þinn. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú munt fá mörg tækifæri til að ferðast og mennta þig á þessu ári. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú gætir notið góðs af auði annarra á þessu ári. Maki þinn mun hugsanlega fá arf eða kauphækkun. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nánasta samband þitt hefur batnað svo mikið að und- anförnu að það er lyginni lík- ast. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. AUGUN ÞÍN Hvað gerðist? Það hafð’ ekki skapaður hlutur skeð. Þó skilst mér hversvegna ég fékk þér aldrei gleymt: Í fegurstu augum, sem ástfanginn mann hefur dreymt, þú áttir þér tærasta himin, sem ég hafði séð. En margoft síðan við minningu eina ég dvel. Það var morgunn og vorið í augum þér heillandi bjart. Í svipulli andrá sem elding sú hugsun mig snart, að einnig hin dimmasta sorg mundi fara þeim vel. Og seinna eitt haustkvöld ég horfði í augun þín. Ég hafði reynzt sannspár, en þagði og blygðaðist mín. Tómas Guðmundsson. LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 50 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 26. jan- úar, er fimmtugur Gísli Sveinn Loftsson, mann- fræðingur. Gísli stundar nú framhaldsnám við Univers- ity of Oxford í Bretlandi. Hann verður með heitt á könnunni á afmælisdaginn, að Wolfson College, Linton Road, Oxford, og bendir áhugasömum afmæl- isgestum á Iceland Express. BANDARÍSKI spilarinn David Berkowitz var með spil vesturs í vörn gegn þremur spöðum dobluðum. Hann lenti í erfiðri stöðu og fann ekki réttu lausnina. Getur lesandinn gert betur? Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠G10973 ♥73 ♦K52 ♣G62 Vestur ♠K4 ♥G42 ♦Á1074 ♣9854 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 spaði Pass 3 spaðar* Dobl Pass Pass Pass * hindrun Spilið er frá síðasta heims- meistaramóti í tvímenningi. Makker Berkowitz er Larry Cohen, en þeir félagar eru kunnir fyrir að endurvekja gamla hugmynd sem kölluð er „lögmálið um heild- arfjölda slaga“. Sú regla seg- ir að lögmálsbundið sam- ræmi sé á milli trompfjöld- ans og slagafjöldans. Eitt orðalag „lögmálsins“ er þannig: „Heildarfjöldi slaga sem taka má í báðar áttir í besta tromplit er jafn heild- arfjölda trompa.“ Þetta þýðir á mæltu máli að ef NS eiga 8 spil saman í hjarta, en AV 9 spil saman í spaða, þá er heildarfjöldi slaga 17 (8+9). Ef NS vinna til dæmis þrjá spaða (fá 9 slagi), þá ættu AV að fara einn niður á þremur hjörtum (fá 8 slagi). Lög- málið er ekki algilt eins og náttúrulögmál, en hjálplegt tæki í sögnum. Sem er skýr- ingin á því það Berkowitz passar niður úttektardobl makkers. Honum leist ekki á þrjú grönd og taldi óvíst að geim myndi vinnast í láglit. En nóg um það. Berkowitz kom út með hjartatvist, drottning frá makker og sagnhafi tók með ás. Suður hugsaði sig um í þrjár sek- úndur, en spilaði svo litlum spaða. Hvað myndi lesand- inn gera – fara upp með kónginn eða setja lítinn spaða? Norður ♠G10973 ♥73 ♦K52 ♣G62 Vestur Austur ♠K4 ♠8 ♥G42 ♥KD86 ♦Á1074 ♦D9863 ♣9854 ♣ÁK3 Suður ♠ÁD652 ♥Á1095 ♦G ♣D107 Eftir nokkrar sálarkvalir lét Berkowitz lítinn spaða, því hann óttaðist að makker ætti ásinn blankan. Þar með vannst spilið og Svíinn Tommy Bergdahl uppskar sanngjarnan topp. Á morgun sjáum við annað dæmi um blekkispila- mennsku af þessum toga. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Bd2 De7 5. a3 Bxd2+ 6. Rbxd2 d6 7. Dc2 c5 8. dxc5 dxc5 9. Re5 Rbd7 10. Rdf3 Rxe5 11. Rxe5 Dc7 12. Da4+ Ke7 13. f4 Rd7 14. Rd3 b6 15. g3 Bb7 16. Hg1 Hhd8 17. Rf2 Rf6 18. Dc2 Hd7 19. Bg2 Bxg2 20. Hxg2 Had8 21. Hd1 Hxd1+ 22. Rxd1 Dc6 23. Hg1 Dd6 24. Hf1 Dd4 25. e3 De4 26. Hf2 Dc6 27. Hg2 Rg4 28. De2 Staðan kom upp í C-flokki Corus skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu. Norska undrabarnið Magn- us Carlsen (2484) hafði svart gegn Tea Lanchava-Bosboom (2322). 28... Hxd1+! 29. Kxd1 Rxe3+! 30. Dxe3 Dxg2 31. De5 Dh1+ 32. Kc2 Dxh2+ Í kjölfar leik- fléttunnar í 28. leik vinnur svartur hvert peðið á fætur öðru en engu að síður hélt hvítur til- gangslausri baráttu sinni áfram í tæpa tuttugu leiki í viðbót. 33. Kb3 Dxg3+ 34. Ka2 Dd3 35. Dc7+ Dd7 36. De5 f6 37. Dh5 Dd3 38. b3 Dc2+ 39. Ka1 Dxb3 40. Dxh7 Dxa3+ 41. Kb1 Db3+ 42. Ka1 Dd1+ 43. Kb2 Kf7 44. Ka3 Df3+ 45. Ka4 a6 46. f5 Dxf5 47. Dh2 e5 48. Dg2 e4 49. Dh2 De5 50. Dh1 e3 51. Db7+ Kf8 og hvítur gafst upp saddur líf- daga. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. H rin gb ro t       MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík MEÐ MORGUNKAFFINU Í ávarpi forsætisráðherrans í dag kom fram að allir fyrri pólitískir óvinir væru nú vinir, og öfugt! Bridgefélag Siglufjarðar Milli jóla og nýárs var haldið minning- armót um Benedikt Sigurjónsson. Mótið var nú haldið í annað sinn og spilað um veglegan farandgrip, auk kvöldverðlauna. Spilaður var tvímenningur tölvugefin spil „barometer“ Til leiks mættu 16 pör og urðu úrslit þau að Sigurður Hafliðason og Sigfús Steingrímsson sigruðu með nokkr- um yfirburði og eru því handhafar farand- bikarsins næsta árið. Úrslit urðu annars þessi: Sigfús Steingríms. – Sigurður Hafliðas. 81 Ólafur Jónsson–Ari Már Arason 48 Anton Sigurbjörns.–Bogi Sigurbjörns. 42 Jóhann Jónss.–Gottskálk Rögnvaldss. 22 Hreinn Magnúss.–Friðfinnur Haukss. 22 Mánudaginn 5. og 12. janúar var Siglu- fjarðarmót í einmenningi haldið með þátt- töku 32 spilara. Eftir jafna og harða bar- áttu urðu lokaúrslit þau að Siglufjarðarmeistari í einmenningi varð Hreinn Magnússon sem hlaut 177 stig. Guðlaug Márusdóttir 168 Bogi Sigurbjörnsson 160 Kristín Bogadóttir 159 Anna Lára Hertervig 158 Birkir Jónsson Íslandsmeistari í ein- menningi var meðal þátttakanda, en vegna óveðurs komst hann ekki í bæinn seinna kvöldið og því reyndi ekki á hvort einhverjir líklegir Íslandsmeistarar væru í hópnum, með því að verða ofan við hann í mótinu, en eftir fyrri umferð var hann í 4 – 5 sæti. Átta sveitir taka þátt í Siglu- fjarðarmeistaramótinu í sveitakeppni sem hófst 19. janúar s.l. Spilaðir eru 24 spila leikir allir við alla. Eftir 1. umferð er staðan þessi: sveit Guðlaugar Márusdóttur 25 sveit Íslandsbanka 23 sveit Þorsteins Jóhannssonar 17 Staða efstu spilara í bronsstigakeppn- inni er nú þessi: Anton Sigurbjörnsson 165 Ólafur Jónsson 151 Bogi Sigurbjörnsson 148 Hreinn Magnússon 148 Stefán Benediktsson 142 Slemmukóngar berjast nú sem aldrei fyrr, því óvissuferðin er í augsýn með vor- inu. Nú stendur næst henni Ólafur Jóns- son með 14 slemmur, Guðlaug með 12 og þeir Sigfús og Sigurður með 11 það sem af er spilavertíðinni. Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar vann svæðamótið á Króknum Um síðustu helgi var haldið svæðamót í sveitakeppni á Sauðárkróki sem jafn- framt var undankeppni fyrir Íslandsmót- ið. Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar var öruggur sigurvegari mótsins og verður því fulltrúi félagsins í undanúrslitum Ís- landsmótsins í sveitakeppni sem haldið verður helgina 26-28 mars. Í sveitinni spila Ólafur Jónsson (sveitaforingi) og Ari Már Arason, ásamt Boga Sigurbjörnssyni og Birki J. Jónssyni. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.