Morgunblaðið - 26.01.2004, Side 31

Morgunblaðið - 26.01.2004, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 31 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.  EPÓ kvikmyndir.com „Besta ævintýramynd allra tíma.“ HJ MBL „Besta mynd ársins.“ SV MBL Yfir 80.000 gestir VG. DV Sýnd kl. 5 og 9. Mögnuð mynd frá leikstjóra Amores Perros Þrjár sögur tvinnast saman á ótrúlegan hátt í einstakri mynd Með Sean Penn, Benicio Del Toro og Naomi Watts Missið ekki af þessu margverðlaunaða meistarastykki 21GRAMM Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14ára. Svakalegasti spennutryllir ársins frá leikstjóra Face/Off og Mission Impossible 2. Nýr og betriHverfisgötu  551 9000  EPÓ kvikmyndir.com „Besta ævintýramynd allra tíma.“ HJ MBL  ÞÞ FBL „VÁ. Stórfengleg mynd.“ „Besta mynd ársins.“ SV MBL Yfir 80.000 gestir Frábær rómantísk gamanmynd með ótrúlegum leikkonum Sýnd kl. 6. B.i. 16.Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 10 ára. Besta myndin Besti aðalleikari Russell Crowe Besti leikstjóri Peter Weir 3 Tilnefningar til Golden Globe verðlauna 8 Tilnefningar tilBAFTA verðlauna meðal annars besta myndin Mögnuð mynd frá leikstjóra Amores Perros Þrjár sögur tvinnast saman á ótrúlegan hátt í einstakri mynd Með Sean Penn, Benicio Del Toro og Naomi Watts Missið ekki af þessu margverðlaunaða meistarastykki 21 GRAMM www .regnboginn.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. VG. DV Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 8.30. B.i. 12. ÍT ferðir, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, sími 588 9900 -itferdir@itferdir.is - www.itferdir.is Frábær skóli fyrir alla unga knattspyrnumenn, 12-17 ára, stelpur og stráka, einstaklinga, hópa og lið. Áratugs reynsla íslenskra ungmenna – nýr staður frá 2002. Varist eftirlíkingar! Upplýsingar og skráning: KNATTSPYRNUSKÓLI BOBBY CHARLTON Næsta hraðlestrarnámskeið hefst þriðjudaginn 3.febrúar. Skráning er í síma 565-9500 Hraðlestrarnámskeið Viltu margfalda afköst í námi? Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð? Skráðu þig strax. HRAÐLESTRARSKÓLINN w w w. h . i s ÞÝSKI ljósmyndarinn Helmut Newton er látinn, áttatíu og þriggja ára að aldri. Hann lést í bílslysi í Hollywood á föstudag. Newton varð bæði frægur og fyr- irlitinn fyrir djarfar og ögrandi myndir af nöktum konum í keðjum og böndum í anda sadó-masók- isma. Newton er talinn hafa misst stjórn á Cadillac bifreið sinni þeg- ar hann var að keyra út úr bíla- stæði við Chateau Marmont hótelið í hádeginu á föstudag, með þeim afleiðingum að hann ók á vegg. Var Newton fluttur á Cedars Sinai sjúkrahúsið þar sem hann lést af áverkum. Newton var af gyðingaættum og ólst upp í Berlín. Hann varð lær- lingur ljósmyndarans Yva árið 1936, flúði Þýskaland árið 1938 til Singapore og settist síðan að í Ástralíu þar sem hann gekk í her- inn og vann sem tískuljósmyndari áður en hann hvarf aftur til Evr- ópu árið 1957. Newton viðurkenndi að hann væri litblindur og grínaðist með að hann tæki góðar litmyndir vegna þess að hann ætti erfitt með að greina gulan frá grænum og græn- an frá bláum. Hann var frægastur fyrir sláandi og kaldan stíl mynda sinna, sem prýddu síður Vogue, Elle og annarra frægra tísku- og lífsstílstímarita. Newton sérhæfði sig í skörpum nektarmyndum af konum, gjarnan valdmiklum stríðs- konum sem báru með sér vott af kynferðislegum afbrigðileika, hættu og munalosta. Hann tók gjarnan myndir af konum í hunda- ólum, keðjum, spelkum, hjólastól- um og jafnvel söðlum. Ein alræmd taka Newtons hneykslaði eigendur ítalska skart- gripafyrirtækisins Bulgari. Þar tók hann myndir af demöntum fyrir- tækisins og safírum á höndum módels sem var að afhausa kjúk- ling. Karlmenn léku yfirleitt þjóna- rullur í ljósmyndum Newtons, sem þjónar, bílstjórar eða áhorfendur. Verk Newtons hneyksluðu marga og mótmæltu femínistar einni af sýningum hans með því að fleygja málningu á myndir hans. Í viðtali við netmiðilinn Salon árið 1998 sagði Newton þó að hann væri hættur að taka myndir af nöktum konum, hann hefði fengið nóg af slíku fyrir lífstíð. Helmut Newton látinn Reuters Ljósmyndarinn Helmut Newton á blaðamannafundi í nóvember á síðasta ári. KVIKMYND Hilmars Oddssonar Kaldaljós var opnunarmynd Gauta- borgarhátíðarinnar á föstudags- kvöld. Að sögn viðstaddra var myndinni afar vel tekið og mikil stemning í salnum, enda er Kalda- ljós tilfinningaþrungin mynd. Hilmar Oddsson leikstjóri var að vonum afar ánægður með viðtök- urnar. „Þetta var bæði troðfullur og góður salur. Maður er nú búinn að horfa svo oft á myndina, en það var mjög gaman að sjá hana í þessum fallega sal. Það var mjög falleg og góð stemning allan tímann, sem er ekki sjálfsagt mál á svona hátíðum. Þetta var boðssýning, þar sem var mikið af fyrirfólki, sem maður veit ekki hvort var komið af einskærum kvikmyndaáhuga eða af einhvers konar skyldurækni. Ef þetta er venjuleg sýning, þá veit maður að allir eru komnir til að sjá myndina,“ segir Hilmar og bætir við að mynd- in hafi haft áhrif á áhorfendur. „Margir þurftu að koma að máli við okkur eftir myndina til að óska okk- ur til hamingju og tjá sig um mynd- ina. Þau viðbrögð sem ég fékk í lok- in voru að það hefði verið gífurleg stemning.“ Hilmar segir áhorfendur hafa klappað mikið eftir myndina og sér- staklega þegar feðgarnir Ingvar og Áslákur stigu upp á svið og hneigðu sig. „Þá ætlaði allt um koll að keyra. Það sem var ánægjulegast er að ég fékk sterk viðbrögð hérna og það var gott að sjá að myndin virk- ar líka í útlöndum. Ef maður er að fjalla um stórar mannlegar tilfinn- ingar, eins og ást og kærleika og líka grimmd, veit maður að mann- eskjan er alls staðar söm. Það var gott að fá staðfestingu á því,“ segir Hilmar. Uppselt er á allar sýningar á Kaldaljósi á hátíðinni og viðtökur hafa, að sögn Hilmars, verið afar góðar. „Maður vonar að það viti á gott. Það er líka gaman að geta þess að það er verið að sýna hér Nóa alb- ínóa í almennum sýningum og fólk fer heilmikið á þær. Það er einmitt ár síðan Nói fékk verðlaun hér, svo þetta er góður punktur til að byrja.“ Kaldaljós sýnd við upphaf Gautaborgarhátíðina Ingvari og Ásláki vel fagnað Áslákur Ingvarsson þykir hafa staðið sig sérstaklega vel í hlutverki sínu í Kaldaljósi og var þeim feðgum vel fagnað í Gautaborg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.