Morgunblaðið - 26.01.2004, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 33
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Enskt. tal.
ÁLFABAKKI
kl. 3.50. Ísl. tal.
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan
heim.
Tom Cruise hefur
aldrei verið betri!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
ÁLFABAKKI
kl. 3.40. Ísl. tal.
Kvikmyndir.is
DV
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Stórskemmtileg og sprenghlægileg gamanmynd með Eddie
Murphy sem kemst í hann krappann ásamt fjölskyldu sinni
þegar þau gista á gömlu draugasetri!
Stórskemmtileg og sprenghlægileg gamanmynd með
Eddie Murphy sem kemst í hann krappann ásamt fjölskyldu
sinni þegar þau gista á gömlu draugasetri!
ÓHT. Rás2
ÁLFABAKKI
EINGÖNGU SÝND Í LÚXUS VIP KL. 4 og 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
HÁTÆKNITRYLLIRINN „Primer“ hlaut aðalverðlaunin á
Sundance-kvikmyndahátíðinni á laugardagskvöld. Myndin
„One point O“ eftir Martein Þórsson og Jeff Renfroe keppti
til úrslita í keppninni en náði ekki verðlaunum.
„Primer“, sem var skrifuð og leikstýrt af Shane Carruth,
fjallar um tvo uppfinningamenn sem gera líf sitt erfitt með
tímavél sem þeir finna upp. Hlaut myndin einnig sérstök
verðlaun fyrir að fjalla um tækni og vísindi.
Aðalverðlaun fyrir heimildarmynd fékk myndin „DIG!“ eft-
ir Ondi Timoner, en hún fjallar um vináttu og samkeppni milli
tónlistarmannanna Antons Newcombes í Brian Jonestown
Massacre og Courtney Taylor í Dandy Warhols.
Myndin „Maria full of grace“, eftir Joshua Marston, hlaut
verðlaun hátíðargesta fyrir dramatíska mynd, en myndin seg-
ir frá raunum kólumbískrar konu sem gerist burðardýr fyrir
eiturlyfjasmyglara. Áhorfendur verðlaunuðu einnig myndina
„Born into brothels“ í flokki heimildarmynda, en í henni fjalla
Ross Kauffman og Zana Briski um hlutskipti fátækra barna
vændiskvenna í Kalkútta.
Meðal annarra sem unnu til verðlauna voru Morgan Spur-
lock sem fékk verðlaun fyrir leikstjórn heimildarmyndar fyrir
myndina „Super Size Me“ þar sem hann kafar ofan í skyndi-
bitamenningu Bandaríkjamanna með því að nærast á engu
öðru en McDonalds-hamborgurum í einn mánuð, en við það
fitnaði hann um 13 kíló og líkamsástand hans versnaði til
muna.
„Primer“ tók aðalverðlaunin á Sundance-hátíðinni
Tímavél gerir mönnum lífið leitt
AP
Shane Carruth tók hress í bragði við verðlaunum dómnefndar
Sundance-kvikmyndahátíðarinnar fyrir mynd sína „Primer.“