Morgunblaðið - 18.02.2004, Page 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
480 8000
SELFOSSI
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000
Opel Vectra CD L/B
2,0, árg. 2000, sjálfsk., ek.
62 þús. Áhv. 900 þús. Afb.
21 þús. Verð 1.390 þús.
Toyota Landcruiser
100 TDI, árg. 1999, sjálf-
sk., ek. 125 þús., TEMS.
Verð 4.150 þús.
Mitsubishi Pajero 3,2
DI-D GLS, árg. 2000,
sjálfsk., ek. 129 þús.
Verð 3.450 þús.
Toyota Camry LE 2,2
árg. 1995, sjálfsk., ek. 158
þús., dráttarkr., sumar- og
vetrardekk. Verð 650 þús.
Toyota Landcruiser
90 LX New 35", árg.
2004, sjálfsk., ek. 7 þús.,
leður, box, fjarstart o.fl.
Verð 5.350 þús.
Ford F 250 Lariat 7,3
TDI 35", árg. 2000,
sjálfsk., ek. 156 þús.,
leður o.fl. Verð 3.390 þús.
Borgartúni, Reykjavík
Bíldshöfða, Reykjavík
Dalshrauni, Hafnarfirði
Hrísmýri, Selfossi
Dalbraut, Akureyri
Grófinni, Keflavík
Lyngási, Egilsstöðum
Álaugarvegi, Hornafirði
Smiðjuvegi, Kópavogi
RSH.is
Dalvegi, Kópavogi
M
argir jeppar eru búnir driflæsingum í aft-
urdrifi. Breyttir jeppar hafa auk þess
gjarnan læsingu í framdrifi sem kemur
þá í stað venjulegs mismunadrifs.
Stundum er sagt að alvörujeppi sé ekki fullklár-
aður nema hann hafi læsingu í fram- og afturhás-
ingu sem tryggi að tiltækt afl berist til allra hjóla í
einu. Nokkrar gerðir driflæsinga eru til en í gróf-
um dráttum má segja að þær séu tvenns konar:
Handstýrðar og sjálfvirkar.
Handstýrðar driflæsingar
Nokkrar gerðir driflæsinga eru til sem hægt er
að tengja og aftengja að vild. Eru þær kallaðar
handstýrðar driflæsingar. Þær hafa einungis tvær
stillingar. Annars vegar venjulegt ólæst mis-
munadrif og hins vegar læst, þar sem hjól á sömu
hásingu snúast alltaf jafn hratt.
Allar gerðir handstýrðra driflæsinga virka í
grundvallaratriðum á sama hátt, þ.e. þegar læs-
ingin er sett á fasttengjast afturöxlarnir við mis-
munadrifshúsið og geta hjólin á þeirri hásingu þá
alls ekki snúist á misjöfnum hraða.
Munurinn á handstýrðum driflæsingum felst í
þeirri aðferð sem notuð er við að læsa og aflæsa.
Rafmagnslæsing
Lítill rafmótor, sem festur er utan á drifið, er
tengdur við færslugaffla inni í drifinu. Gafflarnir
tengja og aftengja öxlana við mismunadrifshúsið.
Kostir rafmagnslæsinga eru að þeir eru auðveldir í
notkun. Öryggisbúnaður sér til þess að læsingin sé
notuð rétt. Gaumljós sýnir hvort læsingin hafi náð
gripi. Ókostirnir eru þeir að gæta þarf að tæringu
á húsi utan um rafmótorinn.
Barkalæsing
Færslugafflar inni í drifinu, sem tengja eða af-
tengja öxlana við mismunadrifshúsið, eru færðir til
með handfangi inni í bílnum. Milli handfangsins og
driflæsingarinnar er barki svipaður handbremsu-
barka. Kostir barkalæsingar eru þeir að þetta er
traustur og einfaldur búnaður. Ókostirnir eru þeir
að barkar og færslubúnaður geta hætt að virka í
miklu frosti þegar krapi og ís hleðst á undirvagn-
inn.
Loftlæsing
Loftlæsing tengist á sama hátt og barka- og raf-
magnslæsing nema hvað notaður er loftþrýstingur
við sjálfa tenginguna. Kostirnir eru þeir að loft-
læsingar fást í margar gerðir jeppa og eru einfald-
ar í notkun. Ókostirnir eru þeir að loftkerfi þarf að
halda raka- og lekafríu. Enginn öryggisbúnaður
tryggir rétta notkun né sýnir gaumljós hvort læs-
ingin hafi gripið.
Handvirkar driflæsingar eru ekki notaðar í
venjulegum akstri, einungis við mjög erfiðar að-
stæður þar sem hætta er á spóli og stöðvun af
þeim sökum. Hana skal setja á ef bíllinn festist, við
akstur upp hála brekku, í ósléttu landi og á snjó.
Skynsamlegt er að tengja læsinguna áður en bíll-
inn festist þannig að hann komist frekar yfir
hindrunina.
Tenging og aftenging driflæsingar
Þegar setja skal driflæsingu á er best að stöðva
bílinn og kúpla frá, tengja læsinguna og aka síðan
af stað. Alls ekki má tengja læsinguna í átaki eða á
mikilli ferð. Þá skapast hætta á að skemma drif-
læsinguna. Eftir að læsingin hefur náð gripi má
aka eins hratt og aðstæður leyfa.
Athugið þó að aksturseiginleikar jeppa breytast
við læsingu; bíllinn verður stífari í stýri, varasamur
í beygjum á hálum vegi þar sem hann á til að skríða
út úr hjólfari ef ekið er með fullu átaki í beygjuna.
Sjálfvirkar driflæsingar
Sjálfvirkum driflæsingum má skipta í tvo
flokka; diskalæsingu og tannhjólalæsingu. Diska-
læsing, stundum kölluð tregðulæsing, leitast ávallt
við að halda hraða hjólanna sem jöfnustum en gef-
ur þó eftir við mikið álag og einnig of lítið álag. Til
að diskalæsingar virki sem skyldi er nauðsynlegt
að nota sérstaka smurolíu. Diskalæsingar geta
verið varasamar í hálku.
Tannhjólalæsing heldur hins vegar alltaf fullu
átaki á hjólunum. Hún er alltaf tengd en til að vega
upp mismun hraða milli hjóla sleppir hún því hjóli
sem snýst hraðar en drífur hitt. Dæmi um slíkar
læsingar eru NoSpin og LockRight. Kostir tann-
hjólalæsingar eru þeir að ekki þarf að hafa áhyggj-
ur af því hvort læsa eigi drifi eða ekki. Ókostirnir
eru þeir að hún er alltaf tengd, líka þegar ekki
hentar að hafa drifið læst, t.d. við akstur á hálum
vegi eða innanbæjar. Tannhjólalæsing í framdrifi
getur reynst hættuleg í hálku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Driflæsingar að framan og aftan eru nauðsynlegar í
fjallamennsku. Fjallasport breytti þessum Trooper.
Mismunandi
gerðir
driflæsinga
Úr Jeppabók Arctic Trucks.
FREYR Jónsson, tækni-
sérfræðingur hjá Arctic Trucks og
pólfari, er einn mesti sérfræð-
ingur landsins í driflæsingum.
Hann segir að flestir nýir jeppar
komi með driflæsingu að aftan.
„Þörfin fyrir driflæsingar er meiri
hérna en annars staðar og flestir
framleiðendur bjóða því upp á
100% læsingar að aftan sem
staðalbúnað. Í Patrol eru það vac-
um-læsingar, í Toyota er það raf-
magnsmótor. Allt byggist þetta á
sama lögmálinu en útfærslurnar
og stýringarnar eru mismunandi.“
Freyr segir að það megi líkja
driflæsingum við annað fjór-
hjóladrif í fjórhjóladrifnum bíl.
„Ökumaður setur bílinn í fjór-
hjóladrif og hann drífur 100% bet-
ur. Svo er driflæsing sett á að aft-
an og þá bætist við 50% meira
drif og önnur 50% þegar fram-
læsingin er sett á. En þó fer þetta
auðvitað eftir aðstæðum,“ segir
Freyr.
Hann segir að kostur driflæs-
inga komi gleggst í ljós þegar mik-
ill þungi er á fáum hjólum og lítill
þungi á einhverjum hjólum. Þá sé
gripið mjög mismunandi.
En þegar jafnt grip er á öllum
hjólum, eins og oft er t.d. í sandi,
þá skipti þær minna máli.
Freyr hefur reynslu af slíkum
aðstæðum síðan hann ók í eyði-
mörkum í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum á Pólbílnum,
þ.e.a.s. breytta Toyota Land
Cruiser jeppanum sem notaður
var við heimskautarannsóknir á
Suðurskautslandinu og Toyota á
Íslandi breytti.
„Þarna ók ég í sandinum án
þess að vera með læsingarnar á
en samt tók hann á yfirleitt á báð-
um hjólum. Hérna erum við hins
vegar yfirleitt að eiga við snjó og
hálku og afar mismunandi grip og
þá kemur kostur driflæsinganna í
ljós.“
Freyr segir að við íslenskar að-
stæður dugi sjálfvirkar læsingar
hins vegar engan veginn. Þegar
gripið er mismunandi svíkja þær
yfirleitt en þegar ekki þarf á þeim
að halda þá virki þær. Sjálfvirkar
læsingar séu jafnvel betri í sand-
inum en þær læsingar sem við
kjósum helst hér á landi.
Toyota og fleiri framleiðendur
taka sjálfvirku læsingarnar úr bíl-
unum áður en þeir eru sendir
hingað til lands og settar eru í
staðinn handvirkar læsingar.
Margar af þeim framdrifslæs-
ingum sem notaðar eru hérlendis
eru innlend smíði, t.a.m. svokall-
aðar algripslæsingar sem hafa
reynst ágætlega. Freyr segir að
framleiðendur driflæsinga úti í
heimi, eins og t.d. ARB í Ástralíu,
séu dálítið seinir til þegar nýir
jeppar komi á markaðinn. „Við
viljum fá allt strax hérna. Þá er
bara farið á verkstæðið og nýjar
læsingar smíðaðar. Í nýja Land
Cruiser 90 og Patrol líka eru al-
gripslæsingar. Í eldri Land Cruiser
90 smíðuðum við rafmagns-
stýrða læsingu sem þjónaði líka
þeim tilgangi að styrkja drifið en
það er minni þörf á því í nýrri bíl-
unum,“ segir Freyr.
Algripslæsing í framdrif Land
Cruiser 90 kostar ísett nálægt
200.000 krónum og segja má að
þetta sé nauðsynlegur búnaður
fyrir þá sem fyrir alvöru stunda
fjallaferðir.
Freyr segir að miklu meira álag
verði á öxlana þegar búið er að
læsa þeim. Af þeim sökum þurfa
menn að læra að nota læsing-
arnar. Dæmi eru um að öxlar og
öxulliðir hafi brotnað vegna
rangrar notkunar læsinga. Stund-
um hafa menn gleymt að aflæsa
og tekið skarpa beygju á föstu
undirlagi og brotið öxul. „Það þarf
að læra inn á að nota læsingarnar
en grunnurinn er sá að vita hvern-
ig búnaðurinn virkar, hvað það er
sem gerist þegar bílnum er læst.
Þegar menn hafa einu sinni brotið
öxul kunna þeir þetta líka.“
Driflæsingar
smíðaðar hérlendis