Morgunblaðið - 18.02.2004, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 B 7
bílar
SMART, dótturfyrirtæki Daimler-
Chrysler, hefur sent frá sér teikningar
af næsta bíl sínum og þeim fjórða í
Smart-línunni. Bíllinn á að koma á
markað 2005 í Evrópu, þar sem fyrir
eru þrjár gerðir bílsins, og í fyrsta sinn
einnig í Bandaríkjunum.
Bíllinn kallast Smart Formore og
verður ætlaður jafnt fyrir ut-
anvegaakstur sem malbikið og á að
bjóða upp á spennandi aksturseig-
inleika. Andreas Renschler, stjórn-
arformaður Smart GMbH, segir að
Formore sé ákjósanlegur bíll til þess
að kynna á Bandaríkjamarkað.
Formore verður framleiddur í verk-
smiðju DaimlerChrysler í Juiez de Fora
í Brasilíu, þar sem framleiðslugetan er
60.000 bílar á ári.
Þar af reiknar Smart með að selja
30.000 bíla í Bandaríkjunum en það
sem eftir stendur verður sent sjóleið-
ina til Evrópu.
Formore verður framleiddur í verk-
smiðju DaimlerChrysler í Brasilíu.
Nýr Smart-smájeppi
RÚMLEGA 1,1 milljón lesenda Guter Rat, helsta tímarits neyt-
enda í Þýskalandi, kaus Touran-fjölnotabílinn „skynsamlegasta
valið árið 2004“ í flokki skutbíla og fjölnotabíla. Touran hlaut hin
eftirsóttu „Auto-bílaverðlaun 2003“ og „Gullna stýrið 2003“ og
heldur áfram mikilli sigurgöngu sinni með þessum verðlaunum.
Einkum er tekið tillit til þriggja þátta við val á skynsamleg-
asta bílakosti hvers árs; öryggis, hagkvæmni í rekstri og þess
hve umhverfisvænn hann er. Hægt er að hafa Touran ýmist
fimm eða sjö sæta, vélar eru hagkvæmar og í honum er mjög
víðtækur öryggisbúnaður þannig að hann er afburðabíll í öllum
flokkum. Touran fékk til dæmis fimm stjörnur í árekstra- og ör-
yggisprófuninni víðfrægu Euro NCAP.
Staðalbúnaður í Touran er ESP-búnaður sem bæði felur í sér
spólvörn og skrikvörn sem meðal annars grípur inn í við hlið-
arskrið og eykur veggrip.
Touran kom fyrst á almennan markað í mars 2003 og var ekki
lengi að verða sá mest seldi í flokki fjölnotabíla á Þýskalands-
markaði. Á aðeins tíu mánaða tímabili voru framleiddir rúmlega
51.000 Touran-bílar sem þýðir 16,4% markaðshlutdeild. Hægt
er að fá Touran með alls sjö mismunandi samsetningum vélar
og gírkassa. Hér á Íslandi er það nýja 1.6 FSI-vélin sem notið
hefur mestra vinsælda.Volkswagen Touran kostar frá kr.
2.290.000 krónum.
Touran kjörinn „skynsam-
legasta valið“ árið 2004
Touran-fjölnotabíllinn frá VW.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Smári Guðjónsson og Freyr Friðriksson hjá Vélaverkstæði Egils.
EGILL vélaverkstæði ehf. hefur um
árabil boðið upp á góða þjónustu við
upptekningu véla. Verkstæðið er á
Smiðjuvegi 9a í Kópavogi og það
annast allar almennar og sérhæfðar
viðgerðir á vélum og búnaði tengd-
um þeim. Jafnframt hefur Egill véla-
verkstæði nýlega byrjað að útvega
vélapakkningar og fleira í flestar
tegundir véla. Verkstæðið er búið
fullkomnum tækjum til að taka upp
vélar, t.d. borun á blokkum, sveif-
arásslípun, taka upp hedd og fleira.
Nýverið festi Egill vélaverkstæði
kaup á þrýstiprófunarvél sem þrýsti-
prófar hedd af bílvélum, bátavélum
og fleiri tegundum véla.
Þrýstiprófunarvélin er nýjung á
markaðnum, en hún þrýstiprófar
heddin undir álagi og hita og líkir
eftir því umhverfi sem er í vélinni
undir álagi.
Heddin eru þrýstiprófuð undir
þriggja til tíu bara þrýstingi ásamt
því að vera þrýstiprófuð í 70–90
gráða heitu vatni.
Það vill oft gerast með hedd að það
myndist sprungur í þeim vegna of-
hitnunar eða tæringar í efni. Svona
sprungur í heddum lýsa sér best
þegar vatn kemur saman við olíuna,
olía fer saman við vatnið og vatn
hverfur af vatnsforðabúri.
Það getur sparað mikla vinnu og
peninga að þrýstiprófa hedd, vegna
þess að oft er ekki vitað hvort hedd
eru sprungin eða ekki. Þegar hedd
er þrýstiprófað undir álagi og hita er
komist næst því sem gerist í vélinni
og þannig getur sá sem skiptir um
hedd, heddpakkningu o.fl. fullvissað
sjálfan sig og sinn viðskiptavin um
það að heddið sem er sett á vélina er
í lagi, og þannig er hægt að fyrir-
byggja hættuna á því að sprungið
hedd sé aftur sett á vélina.
Ný þrýsti-
prófunarvél