Morgunblaðið - 18.02.2004, Page 8

Morgunblaðið - 18.02.2004, Page 8
8 B MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ bílar ÞÁ er hann kominn til landsins, fyrsti jepplingurinn frá BMW sem kallast X3. Við fyrstu kynni lítur hann út eins og smækkuð mynd af stóra bróð- ur, X5, en við nánari kynni kemur í ljós að þótt ytra formið sé líkt eru þeir um margt annað ólíkir. BMW- menn kveðast hafa skapað nýjan flokk bíla með X3, það sem þeir kalla lúxusjeppling. Svipaðir bílar eru þó til, eins og t.a.m. Lexus RX300, sem þó er nokkuð stærri bíll en X3. Í síð- ustu viku var X3 prófaður í þaula og eknir á honum nálægt 1.000 kíló- metrar og fékkst því af honum nokk- ur reynsla. Bíllinn er laglegur á að líta og ber strax með sér að hér er um meiri akstursbíl að ræða en títt er um í flokki jepplinga. Hann situr á breið- um lágbörðum á 17 tommu álfelgum og hjólabilið og hjólhafið er mikið. Bara það að líta á bílinn gefur til kynna mikið veggrip og annað kæmi náttúrlega á óvart þegar BMW á í hlut. Einn hlaðinn Bíllinn sem var prófaður er sá eini sem enn er kominn til landsins. Hann er með 3ja lítra, V6 vél, sjálfskiptur með handskiptivali, með sóllúgu, leð- urklæddur með rafstillingum og minni í sætum, sex diska magasíni, hita í sætum, fjölrofastýri með hraða- stilli og hljómtækjastillingum, sjö tommu skjá, sjónvarpi og innbyggð- um síma fyrir blátannartækni, loft- kælingu og tölvustýrðri miðstöð og xenon-framljósum, svo fátt eitt sé nefnt. Þetta er lúxusbíll og það kemur strax í ljós og sest er inn í hann. Efn- isval er af háum gæðastaðli og sömu- leiðis frágangur og vinna. Þetta finnst glöggt þegar tekið er á hlut- unum, eins og t.a.m. hirslunni á milli sætanna, þar sem geisladiskamagas- ínið er geymt. Það er draumur að aka Prófunarbíllinn var klæddur ljósu leðri og mælaborðið er tvílitt. Það finnst samt að hér er talsvert minni bíll á ferð en X5; hann er þrengri til hliðanna en engu að síður fer ágæt- lega um tvo fullorðna í aftursætum. Það kemur síðan á óvart hve mikið farangursrýmið er. Það er reyndar nokkru stærra en í X5. Þessi bíll er sem draumur fyrir þá sem hafa gaman af því að keyra. Þarna fer saman frábær vél með öfl- ugu upptaki og mikilli vinnslu, mögn- uð sjálfskipting og svo þessi full- komnun í undirvagni sem gerir mönnum kleift að fara út á ystu brún í akstri án þess að vera fífldjarfir. Fjöðrunin er stíf án þess að vera höst og bíllinn er alltaf eins og límdur við veginn. Reyndar minna aksturseiginleik- arnir meira á BMW X5 en 3-línuna, því bíllinn er auðvitað hábyggðari en fólksbílarnir og fjöðrunin lengri. Hann er 10 cm styttri en X5 en hjól- hafið er samt ekki nema 2,5 cm styttra. Þá vegur hann um 200 kg minna en samsvarandi gerð X5. Það er virkilega gefandi að aka X3 á þjóðvegum. Stýringin er nákvæm og ökumaður hefur mikla tilfinningu fyrir veginum undir stýri. Það er ekki millikassi í X3 frekar en X5 og fyrir vikið má tala um þeir séu báðir borg- arjepplingar og síður ætlaðir til akst- urs utan vega. Í X3 er splunkunýtt fjórhjóladrifskerfi BMW sem kallast xDrive. Þetta er rafeindastýrt kerfi sem er aftan við sjálfskiptinguna og stýrir átakinu til öxlanna eftir þörf- um hverju sinni. Í venjulegum akstri er afldreifingin 60% til afturhjólanna og 40% til framhjólanna. Um leið og bíllinn sýnir tilhneigingu til að und- irstýra í beygju deilir kerfið meira afli til afturhjólanna á tíunda hluta úr sekúndu og áður en sjálf stöðugleika- stýringin og spólvarnarkerfið, DSC, byrjar að virka. Sama á við ef bíllinn sýnir tilhneigingu til að yfirstýra. Þá flytur kerfið meira afl til framhjól- anna og dregur úr hættunni á yfir- stýringu á örskotsstundu. Þrátt fyrir talsvert ruddalega keyrslu virkaði bíllinn aldrei laus á veginum og það var ekki fyrr en farið var að aka í hálku sem í fyrsta sinn kviknaði á lampa í mælaborðinu sem gaf til kynna að DSC-kerfið hefði gripið inn í. xDrive-kerfið sá um að halda bíln- um stöðugum og koma í veg fyrir yf- ir- og undirstýringu án þess að öku- maður yrði þess í raun nokkurn tíma var. Dýr og eyðslufrekur X3 hefur einhverja bestu alhliða aksturseiginleika sem undirritaður hefur reynt í jepplingi fram til þessa. Þar spilar allt saman; mikið vélarafl, framúrskarandi aksturseiginleikar, háþróað drifkerfi og lagleg, nútíma- leg hönnun. Það sem hann hefur á móti sér er talsverð bensíneyðsla í 3,0 lítra vélinni, (aksturstölvan sýndi að jafnaði um 14 lítra eyðslu í utanbæj- arakstri), og hátt verð. Bíllinn kostar nefnilega 5.120.000 krónur með 3,0 lítra vélinni, en að auki var með auka- pakka að verðmæti 730.000 kr. sem hleypir verðinu upp í 5.850.000 kr. Í þessum pakka er málmlitur, leður- áklæði, sjálfskipting, fjölrofastýri, leðurklætt sportstýri, álfelgur, sam- litur, viðarklæðning, hiti í sætum, loftkæling, hljómtæki og hvít stefnu- ljós. Að auki var annar búnaður sem verður boðinn með bílnum nema það sé sérpantað, s.s. panorama-topp- lúga, rafmagn í sætum, þvottur á framljósum, leiðsagnarkerfi, beygju- aðlagandi ljós, sjónvarp og xenon- ljós. Það stendur því eftir að bíllinn er stíft verðlagður og í raun of lítill verðmunur á X3 og X5. Ekki kæmi því á óvart þótt margir hölluðust fremur að stærri bílnum á þeim for- sendum að verðmunurinn sé svo lítill, þótt X3 höfði kannski til annars hóps kaupenda sem vilja sportlegri upp- lifun í akstri. Vél: 2.979 rúmsentimetr- ar, sex strokkar, 24 ventl- ar. Afl: 231 hestafl. Tog: 300 Nm við 3.500 snúninga á mínútu. Gírskipting: Fimm þrepa sjálfskipting með hand- skiptivali. Drifkerfi: xDrive, raf- eindastýrt fjórhjóladrifs- kerfi. Eyðsla: 11,4 lítrar í blönd- uðum akstri (skv. fram- leiðanda). Hröðun: 7,8 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km. Hámarkshraði: 210 km/ klst. Fjöðrun: Sjálfstæð gorma- fjöðrun. Hemlar: Diskar að framan og aftan, kældir, ABS, EBD. Lengd: 4.565 mm. Breidd: 1.853 mm. Hæð: 1.674 mm. Hjólhaf: 2.795 mm. Eigin þyngd: 1.835 kg. Farangursrými: 480– 1.560 lítrar. Verð: 5.120.000 kr. BMW X3 3.0i Morgunblaðið/Árni Sæberg Sportlegar línur og aksturseiginleikar á við það besta. Framúrskarandi akst- urseiginleikar í X3 REYNSLUAKSTUR BMW X3 3.0i Guðjón Guðmundsson Einn með öllu – meira að segja sjónvarpi og leiðsögukerfi. Eins og smækkuð mynd af X5 en samt með ólíkan karakter. gugu@mbl.is Prófunarbíllinn var með xenon-ljós með beygjuaðlögun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.