Morgunblaðið - 18.02.2004, Síða 15

Morgunblaðið - 18.02.2004, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 B 15 bílar Ljósmynd/Guðrún B. Guðmundsdóttir Agnes K. Sigurðardóttir teymdi Súkkuna hennar Láru Kristjánsdóttur yfir einn af stærstu krapapyttunum svo hún myndi ekki bara sigla í burtu! „VIÐ erum orðnar öllu vanar og ætl- um því að þessu sinni að fara í Setrið, flottasta fjallaskála á landinu,“ segir Soffía Eydís Björgvinsdóttir, einn af skipuleggjendum hinnar árlegu Kvennaferðar 4X4 klúbbsins sem farin verður helgina 26.-28. mars. Þetta er þriðja ferð þeirra að þessu sinni en fyrri ferðir hafa verið til Hveravalla og Landmannalauga. „Við fórum í krapaferðina miklu í Landmannalaugar fyrsta árið,“ segir Soffía. „Það var mikil eldskírn enda við óvanar að þurfa að bjarga okkur alveg sjálfar. Þarna þurftum við að glíma við slæmar festur, affelganir, hliðarhalla og aka upp á hóla til að reyna að finna bestu leiðina. Sem betur fer hafði maðurinn minn laum- að vöðlum í bílinn enda fór aðstoðar- ökumaðurinn minn ekki úr þeim alla helgina.“ Soffía sagði að þarna hefðu þær fengið meira sjálfstraust til að gera það sem þurfti, sem sést best á leið- arvali þeirra í ár. Endurvakning í kvennastarfinu Kvennaferðir voru farnar á vegum klúbbsins á árum áður og segja má að það sé mikil endurvakning í kvennastarfi 4X4. Nú sitja sex konur þar í stjórn og í undirbúningsnefnd kvennaferðarinnar eru átta kraft- miklar konur. Það er margt á döfinni hjá þeim, svo sem námskeið og kennsla í því allra nauðsynlegasta og mun einhver hluti í undirbúningnum m.a. eiga sér stað á verkstæði. „Við fáum að rifja upp hvernig við hnýtum hnúta, hleypum úr, lesum á GPS tækið o.fl., ásamt því sem við fáum nokkur góð ráð frá þaulreynd- um jeppamönnum. Stór hluti þátt- takenda hefur reynslu úr fyrri kvennaferðum,“ segir Soffía. Það má geta að nú þegar eru 14 bílar skráðir í kvennaferðina og skráning nýhafin. Með bílum undir- búningsnefndarinnar stefnir þetta í 20 bíla eða um 50-60 konur. Tilfæringar við affelgun. Það leit ekki vel út til að byrja með hvort dekkinu yrði reddað, en það hafðist að lokum. Affelgun hjá Stínu í Fjallasport. Reynt var að rifja upp hvern- ig strákarnir fara að og svo var það bara framkvæmt. Orðnar færar í flestan snjó Bíldshöfða 10, 110 Reykjavík, sími 587 8888, www.bilasalarvk.is Toyota Landcr. 100 VX V-8 New 03/03, ek. 18 þ. km, einn með öllu, 7 manna. Nýr Toyota Landcr. 90 VX D4D New, 01/04, ssk., einn með öllu, 7 manna. Lán kr. 3.500,000. Mmc Pajero GLS GDI 3500 06/02, ssk., ek. 45 þ. km, einn með öllu, 7 manna á 32“ dekkjum. Volvo XC 90 2,5 Turbo 09/03, ssk., ek. 10 þ. km, einn með öllu, 7 manna. 7 manna lúxusjeppar eru til sýnis og sölu Höggdeyfar í hæsta gæðaflokki Borgartúni, Reykjavík Bíldshöfða, Reykjavík Dalshrauni, Hafnarfirði Hrísmýri, Selfossi Dalbraut, Akureyri Grófinni, Keflavík Lyngási, Egilsstöðum Álaugarvegi, Hornafirði Smiðjuvegi, Kópavogi RSH.is Dalvegi, Kópavogi Kauptu næsta bílinn þinn beint frá Kanada - Pallbílar á tilboði www.natcars.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.