Morgunblaðið - 18.02.2004, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 B 17
bílar
FYRSTA vélsleðakeppni vetrarins
var haldin á Húsavík sunnudaginn
8. febrúar. Keppt var í þremur
flokkum; unglinga, sport open og
pro open. Maður mótsins var 16
ára kappi frá Húsavík, Eyþór
Hemmert Björnsson, sem mætti á
nýjum Ski-doo 440 Racing og
skákaði gömlu jöxlunum, Alexand-
er Kára og Helga Reyni Árnasyni,
sem hafa verið mjög áberandi und-
anfarin ár. Eyþór ekur í sport-flokki
og var í unglingaflokki síðasta vet-
ur. Alexander og Helgi Reynir voru
einu keppendurnir í pro-flokknum
og voru því sport- og pro-
flokkarnir sameinaðir og eknir
saman og vann Eyþór síðasta og
næstsíðasta hítið með tilþrifum og
stóð uppi sem sigurvegari móts-
ins.
Einnig má geta þess að Eyþór
hefur ekið á torfæruhjólum í um
tvö ár og setti Íslandsmet í lang-
stökki á torfæruhjóli síðastliðið
sumar. Stökkið mældist 35 metrar.
Eyþór Emmert í háloftunum.
Eyþór stal senunni
UM þessar mundir er verið að kynna
nýja kynslóð Audi A6, sem vænt-
anlegur er á markað í Evrópu á næstu
mánuðum. Óhætt er að tala um mikl-
ar breytingar á bílnum sem núna
skartar stóru og krómslegnu grilli
sem er ólíkt því sem áður hefur sést
hjá Audi. Nýi bíllinn er sömuleiðis
talsvert stærri en fyrri árgerð, eða
4,92 cm, en var áður 4,80 cm. Þar
með verður nýr A6 10 cm lengri og 4
cm breiðari en Mercedes-Benz E.
Bíllinn verður boðinn með þremur
gerðum af bensínvélum og tveimur
dísilvélum. Bensínvélarnar verða ekki
fáanlegar með forþjöppu og eru í
stærðunum 2,4, 3,2 og 4,2 lítra. Dís-
ilvélarnar eru 2,0 og 3,0 lítra.
Eins og sést eru aðrar línur ríkjandi í nýjum A6.
Fyrstu myndir
af Audi A6
A6 er lengri og breiðari og með breyttu grilli.
- Það borgar sig að nota það besta w w w . f a l k i n n . i s
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.2
6
6
Bílavarahlutir
Ásþétti
Hjólalegusett
Hjöruliðir
Kúplingar og
höggdeyfar
Viftu- og tímareimar
Kúlu- og rúllulegur
Hemlahlutir
Kúluliðir
Keilulegur
http://www.gnyr.is
Ómissandi
í fjallaferðirnar!
Athugið!
ALÞRIF
- Pækilinn af -
Kostar lítið meira
að þrífa bílinn að innan
TOPP 20 mbl.is