Morgunblaðið - 18.02.2004, Síða 22

Morgunblaðið - 18.02.2004, Síða 22
MICHELIN DEKK Til sölu nýleg 16", 205/55 negld vetrardekk. Upplýsingar í síma 892 6787/893 3434.   MAGIRUS DEUTZ 168M11FAL 4x4m dísel, árg. 1983, ekinn 128.000 km frá upphafi. Frekari upplýsingar og mynd- ir á www.buvelar.is og í síma 480 0400. FEBRÚAR-TILBOÐ - SAVAGE 25 RTR Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík höggdeyfar eru orginal hlutir frá USA og E.E.S. Aisin kúplings- sett eru orginal hlutir frá Japan varahlutir í miklu úrvali KIA Í S L A N D FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 555 6025 • WWW.KIA.IS B í lar sem borga s ig! SJÁLFSKIPTINGAR Ertu búinn að skipta um olíu og síu í sjálfskiptingunni nýlega? Hvernig væri að skipta reglulega og forðast dýrar við- gerðir! TIL SÖLU HONDA SHADOW, 1100 CC, ÁRG. 1985, ekið 22 þús. mílur. Glæsilegt hjól. Upplýsingar í síma 853 6071, 865 8886 eða 464 1721. Óska eftir 7 manna bíl, station bíl eða jeppa í skiptum fyrir Opel Astra 1.6 ek. 70 þús. Árg. 99. Skipti og/eða yfirtaka á láni. Áhugasamir sendi tilboð á stefan@nh.is.     FEBRÚAR-TILBOÐ - SAVAGE 25 RTR Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 22 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR sleðaframleiðendur voru fyr- ir réttum tveimur árum að keppast við að kynna 2003-árgerðina litu ýms- ir áhugaverðir sleðar dagsins ljós. Við skulum muna að þetta var árið sem Ski-doo kom með REV á almennan markað og Arctic Cat með Firecat; hvort tveggja sleðar sem hlotið hafa verðskuldaða athygli og lof. Einnig kynnti Arctic Cat tveggja strokka 900-vélina á þessum tíma. Enginn þessara sleða varð þó þess heiðurs að- njótandi að hljóta nafnbótina „Sleði ársins“ hjá hinu virta tímariti Snow Goer. Sá titill var þegar frátekinn fyr- ir eina mestu sprengju sem komið hefur inn á vélsleðamarkaðinn hin síð- ari ár, RX-1 frá Yamaha. Með RX-1 gerði Yamaha það sem ýmsir höfðu spáð að myndi ekki verða raunveruleiki fyrr en eftir mörg ár. Þeir komu fram með fullskapaðan fjórgengissleða, sambærilegan að afli við öflugustu tvígengissleða og innan þeirra þyngdarmarka sem hljóta að teljast vel viðunandi. Með því er þó á engan hátt verið að draga úr þeirri staðreynd að RX-1 er þungur sleði í samanburði við þá tveggja strokka tvígengislínu sem verið hefur nær allsráðandi hjá öðrum sleðaframleið- endum síðustu ár. En er RX-1 sleði fyrir íslenskar aðstæður? Eða er þetta einfaldlega nökkvaþungt skrímsli með vonlausa aksturseigin- leika? Fyrir milligöngu Toyota á Ak- ureyri, umboðsaðila Yamaha, var ákveðið að taka RX-1 til reynsluakst- urs og freista þess að dæma hvers konar sleði væri hér á ferðinni. Byrjað var á stuttum sleða á 121 tommu belti. Einstök vél Kynning Yamaha á RX-1 kom nán- ast eins og þruma úr heiðskíru lofti því ótrúlega lítið hafði lekið út um áformin. Það sem Yamaha gerði var að taka vélina úr hinu vinsæla R1- mótorhjóli og laga hana að notkun í sleða. Þetta er fjögurra strokka 998 cc línuvél með fimm ventlum á hverjum strokk og fjórir 37 mm blöndungar sjá um að fæða græjuna þannig að öll 145+ hestöflin fái notið sín. Eitt af þeim vandamálum sem menn sáu fyr- ir sér var að vélsleðakúpling myndi aldrei virka á þeim snúningshraða sem litlar en kraftmiklar fjórgengis- vélar þurfa. Þetta leysir Yamaha snilldarlega með einföldum niðurgír- unarbúnaði. Útkoman er einstök vél, gríðarlega aflmikil en mun sparneyt- nari en sambærilegar tvígengisvélar. Yamhaha gefur upp allt að 30% minni eyðslu en sambærileg tvígengisvél og prófanir Maximumsled.com hafa staðfest þær tölur. Þessi stóra vél gerir það að verkum að RX-1 er engin léttavara. Hins veg- ar finnst ótrúlega lítið fyrir þyngdinni í öllum venjulegum akstri. Vélinni er komið fyrir eins neðarlega og hægt er og leitast við að sem mest af þyngd- inni sé sem styst frá driföxlinum og ökumanninum. Í hefðbundnum „trail- akstri“ virkar RX-1 ekkert þyngri en hefðbundnir stuttir sleðar, nema síð- ur sé. Það er fyrst og fremst þegar þú festir þig að öll 300 kílóin verða að veruleika. Hins vegar er vélarorkan af þeirri stærðargráðu að festur eru nokkuð sem ekki þarf að hafa miklar áhyggjur af. Þá má minna á að sleðinn hefur verið léttur verulega frá fyrstu árgerðinni og mun þannig léttast um heil 15 kg á næsta ári. Það er alveg sama hvort menn hugsa notkun sleðans fyrir styttri eða Yamaha RX-1 reynsluekið RX-1 er sleði sem fer mjög vel með mann í öllum venjulegum akstri. Framfjöðrunin kom vel út þótt hún sé ekki sú lengsta í bransanum. Flott útfærsla en krefst nýrrar hugsunar við að koma fyrir farangursgrind. Vélin er einstök í sinni röð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.