Morgunblaðið - 22.03.2004, Síða 16

Morgunblaðið - 22.03.2004, Síða 16
DAGLEGT LÍF 16 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kynningarvika 23. - 27. mars! Ný og spennandi verslun með ATSON leðurvörur - ókeypis nafngylling fylgir - Claudio Ferrici töskurnar komnar aftur 15% afsláttur af öllum vörum í tilefni opnunarinnar... Atson, Brautarholti 4 - 105 R Ertu að leita þér að nýjum skóm? 1 4 4 4 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Það fer vel á með okkur ogég er mjög ánægð meðþetta fyrirkomulag. Viðeigum það síðan sameig- inlegt að koma úr norðlenskum sveitum,“ segir Hólmfríður Jóhann- esdóttir, sem hefur fengið vikuleg- ar heimsóknir frá heimsóknavini frá því í nóvember síðastliðnum. Hólmfríður er 85 ára gömul og býr í þriggja herbergja íbúð í Sunnu- hlíð við Kópavogsbraut. Eftir að sjóninni hrakaði snögglega fyrir um ári, treysti hún sér ekki lengur til að fara ein út úr húsi og bauðst því þessi þjónusta. Í gegnum tíðina hefur ganga verið áhugamál hjá sjálfboðaliðanum Margréti Gísla- dóttur, sem sjálf er 75 ára, enda er hún sögð þekkja hvern einasta kattarstíg í Kópavogi. „Sjónin dapraðist skyndilega. Vandamálið er í augnbotnunum og við því er bara ekkert að gera. Við hjónin vorum svolítið dugleg við að ganga saman á meðan maðurinn minn lifði, en eftir að ég varð ekkja fyrir tíu árum hef ég lítið gert af þessu. Verra er að ég treysti mér ekki lengur í stóru sundlaugina í Kópavogi en þar var ég fastagestur klukkan sjö á hverjum morgni í mörg ár. Hinsvegar fer ég í vatns- leikfimi hér í Sunnuhlíð einu sinni í viku. Ennþá get ég horft á sjón- varpið með því að hafa það nógu nálægt mér, en ég á orðið bágt með að lesa. Fyrirsagnirnar sé ég nokkuð vel og smáa letrið með stækkunargleri, en svo vill það renna saman þegar á líður. Ég hlusta aftur á móti mikið á útvarp og fylgist þá gjarnan með þjóð- málaumræðunni á Útvarpi Sögu,“ segir Hólmfríður, sem er Skagfirð- ingur að ætt og uppruna, frá Þor- leifsstöðum í Blönduhlíð. Hún bjó lengi vel og stundaði búskap á Bárustöðum við Hanneyri, þar sem eiginmaðurinn Ellert Finnbogason var íþróttakennari, en fluttist til Kópavogs árið 1970. Þá tók hún m.a. að sér saumaskap af ýmsu tagi og ræktaði garðinn sinn við Kastalagerði 9 enda bera við- urkenningar, sem hanga uppi á veggjum hjá Hólmfríði, þess vott að þar hafi verið vandað til verka. Sjálfboðaliðinn Margrét segist hafa hætt á almennum vinnumark- aði um sjötugt eða fyrir fimm árum og örugglega gefi þessi samvera henni jafnmikið og Hólmfríði. Mar- grét, sem á rætur sínar að rekja í Húnavatnssýsluna, hefur búið í Kópavogi í 25 ár og segist hafa fengið þá hugdettu að líta við hjá Kópavogsdeild Rauða krossins síð- astliðið haust eftir að hún rak aug- un í litla auglýsingu þar sem verið var að óska eftir sjálfboðaliðum. „Maðurinn minn nennir ekkert að labba úti. Hann fer út að keyra þegar ég fer út að labba. Ég er á því að mín aðferð sé mun heilsu- samlegri.“ Þær stöllur Hólmfríður og Mar- grét hittast á fimmtudögum og eru saman í um klukkutíma í einu. „Annars erum við ekkert svo ná- kvæmar á tímanum. Þetta getur allt eins dregist eitthvað hjá okkur. Við notum okkur gönguleiðirnar í nágrenninu, en annars liggja göngustígar héðan út um allt, allt vestur á Nes og svo upp í Breið- holt, þó við séum nú almennt ekki svo stórtækar.“  SAMVERA| Fara út að ganga vikulega Morgunblaðið/Árni Sæberg Margrét Gísladóttir og Hólmfríður Jóhannesdóttir: Þeim kemur vel saman og þær eiga það sameiginlegt að koma úr norðlenskum sveitum. SUMIR hafa þörf fyrir aðspjalla, láta lesa fyrir sig,fara í gönguferðir, fá að-stoð við innkaup eða tefla svo fátt eitt sé nefnt. Aðrir kjósa að fara í ökuferðir saman, skoða eitt og annað og skreppa svo kannski á kaffihús,“ segir Garðar Guðjónsson, formaður Kópavogs- deildar Rauða kross Íslands, sem rekur svokallaða heimsóknaþjón- ustu. Fólk óskar eftir heimsókna- vinum af ýmsum ástæðum og geta ábendingar um þörf þeirra fyrir heimsóknir sömuleiðis komið frá aðstandendum, vinum, fé- lagsþjónustu eða heilsugæslu. „Heimsóknavinirnir eru fólk í sjálfboðavinnu sem hefur bæði tíma og vilja til að gefa af sér í mannlegum samskiptum, en þau eru auðvitað öllum mönnum mik- ilvæg,“ segir Garðar. Heimsóknavinum Kópavogs- deildar Rauða kross Íslands hefur fjölgað mikið á undanförnum mán- uðum og eftirspurn eftir heim- sóknaþjónustu deildarinnar hefur einnig aukist talsvert. Sjálfboðin heimsóknaþjónusta á sér langa hefð í Kópavogsdeild Rauða kross- ins og er meðal áhersluverk- efna deild- arinnar. Um fjörutíu sjálf- boðaliðar taka nú virkan þátt í þessari þjón- ustu með heimsóknum á einkaheimili, í hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð og sambýlin Skjólbraut og Gullsmára. Talsverður hópur fólks hefur auk þess lýst yfir áhuga á að taka þátt í verkefninu. Heimsóknavinirnir eru á öllum aldri og af báðum kynjum, þeir yngstu á táningsaldri og þeir elstu á níræðisaldri. Konur eru þó í miklum meirihluta og karlar mættu gjarna gefa starfinu meiri gaum, að sögn Garðars. „Heimsóknavinir heimsækja að- allega eldra fólk og fólk sem á við sjúkdóma að stríða, auk annarra einstaklinga sem að öllu jöfnu fá fáar heimsóknir og búa við ein- semd og einangrun. Yfirleitt er um að ræða klukkustund í senn, gjarnan einu sinni í viku, og getur heimsóknin verið á virkum degi eða um helgi,“ segir Garðar. Gleði og lífsfylling Þjónustan er sjálfboðin og því án endurgjalds enda ber Kópa- vogsdeild Rauða krossins allan kostnað af öflun og þjálfun sjálf- boðaliða. Áður en heimsókna- vinur getur hafið störf fer hann á nám- skeið í heim- sóknaþjón- ustu og hann skuldbindur sig til að starfa sam- kvæmt starfsreglum um heimsóknaþjónustu og er bundinn þagnarskyldu um per- sónuleg málefni skjólstæðings. Að loknu námskeiði fer fulltrúi deild- arinnar með sjálfboðaliðanum til viðkomandi einstaklings og síðan tekur vinurinn við. Auk undirbún- ingsnámskeiðsins eru sjálf- boðaliðum boðin námskeið í al- mennri skyndihjálp og sálrænni skyndihjálp, án endurgjalds, auk annarrar þjálfunar og fræðslu. „Reynslan sýnir að heimsókn- irnar geta veitt sjálfboðaliðanum gleði og lífsfyllingu rétt eins og þeim sem fær heimsóknina. Sjálf- boðin heimsóknaþjónusta Kópa- vogsdeildar kemur ekki í staðinn fyrir þjónustu opinberra aðila né leysir hún þá á nokkurn hátt und- an skyldum sínum. Hún getur hins vegar verið kærkomin viðbót fyrir þann sem þiggur heimsóknina. Þjónustan eins og annað sjálfboðið starf hefur mikið gildi fyrir sam- félagið. Samkvæmt könnun, sem gerð var á síðasta ári með al- þjóðlega viðurkenndum mæling- araðferðum, skilar hver króna, sem Kópavogsdeild ver til sjálf- boðins starfs, sér áttfalt til sam- félagsins,“ segir Garðar. Þegar hann er að lokum spurð- ur hvert fólk eigi að snúa sér vilji það óska eftir heimsóknavini sér eða öðrum til handa svarar hann að áhugasamir geti snúið sér til sjálfboðamiðstöðvar Kópavogs- deildar Rauða krossins í Hamra- borg 11 í Kópavogi þar sem opið sé virka daga frá 12.00–14.00.  VINÁTTA| Kópavogsdeild Rauða krossins með heimsóknaþjónustu Heimsóknavinir rjúfa einsemd og einangrun Morgunblaðið/Árni Sæberg Kærkomin aðstoð: Könnun sem gerð var á síðasta ári sýnir að hver króna sem Kópavogsdeild ver til sjálfboðins starfs skilar sér áttfalt til samfélags- ins, segir Garðar Guðjónsson. Hlutverk heimsókna- vina hefur þýðingu fyrir þiggjendur jafnt sem sjálfboðaliða. Jóhanna Ingvarsdóttir kynnti sér starfið hjá Garðari Guð- jónssyni, formanni Kópavogsdeildar Rauða krossins. TENGLAR .............................................. Tenglar: www.redcross.is/kopavogur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.