Morgunblaðið - 22.03.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.03.2004, Blaðsíða 24
UMRÆÐAN 24 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ HÚSNÆÐISMÁL eru sá mála- flokkur sem brennur á mörgum á efri árum. Sumir búa enn í því húsnæði sem fjöl- skyldan hefur átt lengi og þar sem börnin uxu úr grasi. Þegar árin líða og heilsunni hrak- ar vefst það þó fyrir mörgum að halda í horfinu og ekki síður vill fólk gjarnan minnka við sig og hafa örlítið meira fé milli handa til að njóta eft- irlaunaáranna. Í Garðabæ hefur húsagerðin einkennst af millistóru og stóru einbýli. Margir þeirra Garðbæinga sem komnir eru yfir miðjan aldur búa í sérbýli af þessu tagi og margir þeirra geta hugsað sér til hreyfings og að minnka við sig hús- næði. Ég hef orðið vör við, í samtölum mínum við íbúa bæjarins, að mörgum þykir skorta nægilega fjöl- breytni í húsnæðisvali. Má þar nefna að margir hafa sýnt áhuga á litlu sér- býlisformi og þá gjarnan í nánu sam- býli við þjónustukjarna, en mikill skortur er á slíku húsnæði í bænum. Nú á sér stað uppbygging á Sjálandi þar sem m.a. er gert sérstaklega ráð fyrir fjölbýlisíbúðum ætluðum eldri borgurum. Allar íbúðir í því hverfi verða reyndar í fjölbýli. Í þeim hug- myndum sem fram hafa komið í tengslum við endurskoðun að- alskipulags Garðabæjar er gert ráð fyrir þéttingu byggðar með háu hlut- falli fjölbýlis á kostnað sérbýlis. Lítið er vitað um þarfir og vilja þessa ald- urshóps í bænum, þótt vitanlega megi gera ráð fyrir því að væntingar og þarfir séu ólíkar eftir einstaklingum og ekki er við því að búast að öllum hugnist samskonar húsnæðisform. Æskilegt er að húsnæðisþarfir þessa aldurshóps verði greindar áður en nýtt aðalskipulag fer í almenna kynn- ingu út til bæjarbúa. Hinn 1. des sl. voru Garðbæingar 60 ára og eldri 1.416 talsins eða 16% íbúa bæjarins og það hlutfall slagar hátt upp í fjölda allra grunn- skólabarna í bænum. Könnun meðal 60 ára og eldri Það er því brýnt að gerð verði könnun á húsnæð- ishögum Garðbæinga eldri en 60 ára. Markmið með slíkri könnun væri að fá fram afstöðu eldri borgara og þeirra sem nálgast lífeyrisaldur á eigin húsnæðismálum þar sem leitað verði eftir væntingum þessa hóps til búsetuforms og hús- næðisgerðar. Nið- urstaða slíkrar könn- unar getur komið að góðum notum í þeirri vinnu sem nú á sér stað við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar. Æskilegt væri að Félag eldri borgara í Garðabæ verði til ráð- gjafar þegar könnunin verður gerð, og einnig nefnd um málefni eldri borgara. Tillaga í þessa veru var lögð fram í bæjarstjórn Garðabæjar fyrir skemmstu og er óafgreidd. Það hlýtur ávallt að vera metn- aðarmál hvers bæjarfélags að búa vel að öllum sínum íbúum, bæði ungum og öldnum, og bjóða upp á fjölbreyti- legan húsakost. Því er full ástæða til að taka húsnæðismálin föstum tökum og gera fólki sem komið er á efri ár kleift að finna sér húsnæði við sitt hæfi í bænum. Þörf á fjöl- breyttu húsnæði í Garðabæ Sigurlaug G. Viborg skrifar um húsnæðismál Sigurlaug G. Viborg ’Það hlýturávallt að vera metnaðarmál hvers bæj- arfélags að búa vel að öllum sín- um íbúum …‘ Höfundur er bæjarfulltrúi af B-lista óháðra og framsóknar í Garðabæ. JÓN Aðalsteinn Jónsson ritar tvo langhunda um frímerki í Morg- unblaðið nú í mars. Ég geri varla ráð fyrir að margir hafi sökkt sér niður í lestur þeirra. Eigi að síður verður varla hjá því komist að gera við þá nokkrar athugasemdir. Fyrri greinin, sem birtist 11. mars, hefst á þeim orðum að höfundi hafi verið synjað um birtingu hennar í Frí- merkjablaðinu. Hér er hallað réttu máli. Höf- undur reyndi að vísu að fá inni fyrir skrif sín í blaðinu en hafnaði vin- samlegum tilmælum ritstjórnar um að stytta mál sitt þar sem hún taldi sig ekki hafa rúm fyrir grein upp á þrjár þéttskrifaðar síð- ur. En víkjum þá að tilgangi höf- undar. Hann virtist í stuttu máli vera sá að véfengja niðurstöður mín- ar, sem birtust í 5. tbl. Frímerkja- blaðsins 2001 um Yfirprentunina þrír frá 1897. Þar kem- ur fram að engin þörf hafi verið fyrir þá út- gáfu og sú tilgáta er sett fram að hún hafi tengst sjóðþurrð póst- meistaraembættisins sem fram kom í apríl sama ár. Þótt Jón teygi lopann fæ ég ekki séð að hann haggi á nokkurn hátt því sem fram kemur í grein minni. Frá mínum bæjardyrum séð eru skrif Jóns í Morgunblaðinu bjarn- argreiði við frímerkjaáhugamenn og þjóna fyrst og fremst lund hans. Þór Þorsteins svarar Jóni Aðalsteini Þór Þorsteins ’Frá mínum bæjardyrumséð eru skrif Jóns í Morg- unblaðinu bjarnargreiði við frímerkjaáhugamenn og þjóna fyrst og fremst lund hans. ‘ Höfundur er fv. verslunarmaður og áhugamaður um frímerki. Athugasemd um Yfir- prentunina þrír 1897 MENGUN Norður-Atlantshafs- ins er nú þegar orðin alvarlegt vandamál. Nú er svo komið að stuttur tími er þar til umheim- urinn allur er orðinn meðvitaður um vandann og í kjölfar þess hrynur sala fisk- afurða líkt og spila- borg. Mengun þessi er einkum vegna frá- rennslis frá stór- iðjuverum, þunga- málmsiðnaði, frá efnaverksmiðjum, ál- verum, kjarn- orkuúrvinnslu- stöðvum, súru regni, frárennsli frá þun- gaumferð stórborga og margt fleira veld- ur. Tíminn líður í þessu landi við rifrildi á þjóðarheimilinu. landsfeðurnir ganga í fararbroddi í þeim efnum. Lýðræðið leið undir lok við fráfall Bjarna Benediktssonar, svo einfalt er það mál. Hér á landi veður uppi sósíalismi andskotans og kallast nú frjálshyggja og því er það í raun fjármagnshandhafar sem ráða öllu svo sem lagagerð og hvers konar umsýslu og reglu- gerðum sem settar eru á í skyndi hverju sinni, gjarna til að setja fótinn fyrir einyrkjann á meðan t.d. Alþingi er í sumarfríi, sam- anber leikinn sem leikinn var frá 18. maí til 18. ágúst 1990 þegar mesta fúsk Íslandssögunnar í bátasmíði átti sér stað, og þeir sem kysstu vöndinn fóru í gegn en þeir illa séðu voru skornir niður við trog og látið blæða út. Á með- an þetta gerist í kjölfar jafnrar og stöðugrar slátrunar einyrkjanna og fækkun smábáta sem er stefn- an í raun, þá eykst og þenst út veldi stórútgerðar með þungatroll- um og ofurvélarafli allt upp í 10 þúsund hestöfl og upp að 3 sjómíl- um sunnan við landið. Þar innan við er nú notað minitroll (dragnót) á 250 tonna döllum alveg upp í þara. Ofan á allt þetta bætist rán- yrkja á líffæð lífkeðjunnar þ.e. óábyrgt dráp á uppsjávarfiski, svo sem loðnu, síld og kolmunna. Á þennan fisk er notuð ofurhringnót, sem þó er saklaus í samanburði við flottrollin miklu sem tortíma álíka miklu fiskmagni og því sem í lestar skipanna lendir. Með flottrollaaðferðinni kemur mikið magn annarra fisktegunda sem ekki er verið að sækjast eftir,einnig mikið magna fiskseiða og þar með grá- sleppuseiði. Allt fer þetta gjarna í bræðslu. Gæðarhrá- efnið síld, loðna og allar tegundir smá- fiskjar og seiða. Við þetta hefir sjáv- arútvegsráðherra, Fiskistofa, og veiðieftirlit ekkert að athuga. Kerfið er svo gott og sjálfbært. Svart er nefnilega hvítt nú til dags. Ef gamall og lúinn grá- sleppukarl kemur með fáeina fiska að landi er hann sviptur veiðileyfi. Hann er illa séður af LÍÚ. Þessi á að vera hættur, burt með svona þrákálfa. Skipstjórar sem notað hafa flot- troll á síld segja þetta ofurveið- arfæri helst líkjast djúpsprengju, því þessi gífurlega víðátta af neti sem dregið er með 7–10 þúsund hestöflum splundrar torfunni. Það sem utan við lendir missir hreistur og missir jafnvægið og drepst. Þetta er ekkert annað en hryðju- verk í lífríki hafsins. Ef fjárhags- legur ávinningur af þessum voða- verkum rynni nú í almannaþágu væri rányrkjan frekar ásættanleg í litlu magni, en svo er nú ekki. Hér á landi er rekið mest rík- isstyrkta útgerð veraldar og hing- að til hefir almenningur þurft að borga útgerðarmönnum skattfríð- indi sjómanna á LÍÚ hryðjuverka- flotanum. Stærstur hluti afrakst- urs útgerðar á Íslandi rennur í vasa sjálftökuliðs LÍÚ sem lét lög- gjafann slá eign þeirra á fiskimiðin á landgrunni Íslands á einu bretti sitjandi á stjórnarskrá lýðveld- isins, og með Jónsbók í efstu hillu bókaskápsins allan tímann. Loforð, svik og gulrætur Það sem að framan er sagt og er í fáum orðum og vel skiljanlegt er sannleikur. Á meðan almenningur á Íslandi skrimtir við hungurmörk og samneyslan dregst saman og heilbrigðiskerfið hrynur, þá fara landsfeður fram með leiftursókn rétt fyrir fæðingarhátið frelsarans og sjálftaka ofurábót á sína lífs- afkomu. Öll okkar skammarstrik gleymast fyrir næstu kosningar er haft eftir Einari Oddi. Við spilum bara nýja loforðasinfóníu sem verður látin ekki ganga eftir og við höldum enn velli með stuðningi peningavaldsins. Já, þeir halda það. En nú er mælirinn fullur. Þetta skot úr stjórnartvíhleypunni, hlaðinni gulrótum innvöfðum í peningaseðla, sem var skotið á stjórnarandstöðuna var hreint ekki út í loftið. Skotið hæfði nógu margar góða menn til þess að eyðileggja tiltrú almennings á lýð- ræðið, og nú erum við umbótasinn- ar munaðarlausir og verðum því að treysta á mátt okkar og megin með Guðs hjálp. Verkalýðsfor- ustan hefir legið undir sex fetum í 40 ár og þess vegna þýðir ekkert annað en að mála bæina rauða, stöndum saman. Á meðan mengun N-Atlants- hafsins eykst hröðum skrefum Garðar H. Björgvinsson skrifar um rányrkju ’Skotið hæfði nógumarga góða menn til þess að eyðileggja tiltrú almennings á lýðræðið …‘ Garðar H. Björgvinsson Höfundur er framkvæmdastjóri Framtíðar Íslands. MÁLFLUTNINGUR Íslenskrar erfðagreiningar í gegnum tíðina hef- ur verið með endemum þó ekki sé meira sagt. Í fyrstu var Íslend- ingum lofað ókeypis lyfjum sem yrðu þróuð á vegum fyrirtækisins, fjármunir sem fengj- ust „færu alfarið í heil- brigðiskerfið“. Þegar lengra leið kom hver tilkynningin á fætur annarri um uppgötv- anir á genum tengdum hinum ýmsu sjúkdóm- um og að verið væri að þróa lyf sem byggðu á þeirri þekkingu. Marg- ir eru samningarnir sem gerðir hafa verið og áttu að gefa Í.E. mikið í aðra hönd. En þrátt fyrir þessa velgengni að eigin sögn er fyrirtækið alltaf rekið með tapi, en það er samkvæmt „okkar áætlunum“ segir forstjórinn. Allar þessar yfirlýsingar og tilkynn- ingar eru eins og gömul slitin plata. Undantekning er síðasta útspil um samning við lyfjarisann Merck. Það er hér sem Í.E. kastar sauð- argærunni. Í grein eftir undirrit- aðan sem birtist í Mbl. 23. apríl 1998 standa þessi spámannlegu orð: „ Líklegast er að það sé gagnagrunn- urinn sem lokkar þá, því lyfjafyr- irtæki vantar vel skilgreindan hóp fólks til að reyna á lyf, bæði gömul og ný. Ef íslenska þjóðin kýs að verða tilraunadýr, þá á hún að fá umbun fyrir slíkt en ekki einok- unarfyrirtæki“. Þessi spá er nú að rætast – Merck fær að gera lyfja- tilraunir með allt að fimm lyf næstu sjö árin. Getur Í.E. gert svona samning að til- raunadýrunum for- spurðum? Þeir sem hafa verið að draga fólk til Í.E. eru svokallaðir „sam- starfslæknar“ Í.E. Þetta eru að vísu menn með læknapróf en þessi iðja getur varla talist til lækn- inga. Þessir menn eru handbendi Í.E. og hafa komið hver með sinn hóp til blóðtöku hjá fyrirtækinu. Hóparnir eru orðnir býsna margir og stórir. Hvaða umbun handbendin hljóta er á huldu. Orðið mannauður hefur verið mikið í umræðunni á undanförnum árum en merkingin verið nokkuð óljós. Nú er merking orðsins algjörlega skýr: Það er auður sem fæst við til- raunir á mönnum. Mannauður er hópur manna sem gefur sig í lyfja- tilraunir svo aðrir geti orðið auð- ugir. Í þessu felst mikil góð- mennska, gjafmildi og fórnfýsi, eiginleikar sem ryð og mölur fá ekki grandað. Nú þegar hafa handbendin leitt mannauðinn í sýnatöku vegna erfða- rannsókna hjá Í.E. Þegar lyfja- tilraunir á vegum Merck hefjast þurfa handbendin aftur að koma að málinu, nú sem ábyrgir aðilar við lyfjatilraunirnar. Handbendi eru óeigingjörn og vinna eftir bend- ingum húsbóndans – þau fá umbun í velþóknun húsbóndans. Þau horfa í hrifningu á forstjórann í Norður- ljósunum, þau dást að aðstoðarfor- stjóranum á flugi með Icelandair. Handbendin hugsa: „Þessu komum við í kring“. Ef þetta er skoðað betur, þá vaknar sú spurning hvers vegna hef- ur Merck áhuga á Íslandi? Er ekki nær að gera þessi lyfjapróf heima hjá þeim sjálfum – á sínum eigin mannauði. Gæti hugsast að í þeirra landi væru færri handbendi og mannauðurinn óviljugri að gleypa lyf svo Merck verði ríkara? Muna þessir aðilar ef til vill eftir „thali- domide-ævintýrinu“ sem gaf af sér fjölda einstaklinga með vanskapaða útlimi. Íslendingar ættu að hugsa sig um tvisvar áður en þeir falbjóða fólk til lyfjaprófana. Handbendin og mannauðurinn Alfreð Árnason skrifar um lyfjaprófanir ’Íslendingar ættu aðhugsa sig um tvisvar áð- ur en þeir falbjóða fólk til lyfjaprófana.‘ Alfreð Árnason Höfundur er erfðafræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.