Morgunblaðið - 22.03.2004, Side 35
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 35
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
NÝLEGA var undirritaður sam-
starfssamningur milli Tæknihá-
skóla Íslands og Marorku. Mark-
mið samningsins er að örva
rannsóknir og virkja frum-
kvöðlakraft kennara og nemenda í
tæknideild THÍ við beitingu
reiknitækni á hagnýt verkefni á
orkutæknisviði í samstarfi við
MarOrku. Marorka er hátækni-
sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í
orkustjórnunaraðferðum fyrir
sjávarútveg.
Samningurinn felur í sér að
Marorka leggur skólanum til hug-
búnað sem nemendur og kennarar
THÍ hafa aðgang að. Einnig mun
Marorka koma með tillögur að
nemendaverkefnum í tengslum við
starfsemi sína.
Samstarfssamningur
milli THÍ og Marorku
Frá vnstri: Bjarki A Brynjarsson, deildarforseti tæknideildar, Baldur Jón-
asson, sviðsstjóri vél- og orkutæknisviðs Tækniháskólans, Kristinn A.
Aspelund, þróunarstjóri Marorku, og Jón Ágúst Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Marorku.
Afríka 20:20 heldur málstofu um
stjórnmál í Kamerún, á morgun,
þriðjudaginn 23. mars kl. 20–22 í Al-
þjóðahúsinu, Hverfisgötu 18, 3. hæð.
Lárus Valgarðsson heldur erindi um
staðbundin stjórnmál í Tibati í Norð-
ur–Kamerún, með áherslu á fylgi
hefðbundins leiðtoga. Fjallað verður
um stöðu leiðtogans í lýðræðislegu
fjölflokkakerfi með hliðsjón af sögu-
legu samhengi.
Fyrirlestur um táknmál Fyrirlestur
á vegum Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur í erlendum tungumálum
verður á morgun, þriðjudaginn 23.
mars kl. 12.15 í stofu 103 í Lögbergi.
Rannveig Sverrisdóttir, lektor í tákn-
málsfræði við HÍ, heldur erindið:
Hvenær verður táknmál mál? Um
muninn á táknmáli og táknum með
tali, myndlíkingar og próformasagnir
í (íslensku) táknmáli.
Í fyrirlestrinum verður gerð grein
fyrir því af hverju táknmál og er ekki
það sama og táknuð íslenska eða tákn
með tali. Einnig verður ákveðinn
orðaforði í táknmáli, próformasagnir
og myndlíkingar, skoðaður og sýnt
fram á að þessi myndræni orðaforði
er ekki alltaf tilviljanakenndur og oft
búa flóknar reglur að baki honum.
Fyrirlesturinn verður túlkaður yfir á
táknmál. Sjá einnig. www.vigdis.hi.is
Á MORGUN
Opinn fundur hjá VG Opinn fundur
verður haldinn í kvöld klukkan átta
með forystu Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs á Akureyri. Á fund-
inum verða Steingrímur J. Sigfússon,
formaður VG, Katrín Jakobsdóttir
varaformaður og Drífa Snædal ritari.
Allir eru velkomnir og nánari uppl. er
að finna á heimasíðunni www.vg.is
Í DAG
Morgunblaðinu hefur borist
svohljóðandi ályktun um raf-
orkukerfið frá Heimdalli, félagi
ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík:
„Heimdallur telur að ný-
framlagt frumvarp iðnaðarráð-
herra um jöfnun kostnaðar við
dreifingu raforku sé ekki fólk-
inu í landinu til framdráttar.
Iðnaðarráðherra skipaði nefnd
sem ætlað var að gera tillögu
um fyrirkomulag flutnings raf-
orku, þannig að öryggi, skil-
virkni og hagkvæmni kerfisins
yrði sem best tryggt. Samhliða
því var nefndinni ætlað að móta
leiðir við jöfnun kostnaðar.
Undirmarkmið nefndarinnar
um jöfnun raforkukostnaðar
stangast algerlega á við aðal-
markmið. Mikilvægt er að raf-
orkukerfið verði markaðsvætt
sem fyrst. Einungis þannig
verður markmiðum um skil-
virkni og hagkvæmni náð.
Kerfi sem rekið er af ríkinu og
ætlað að ná vafasömum mark-
miðum verður ávallt kerfi sóun-
ar. Fólkið í landinu velur ekki
þingmenn með það að augna-
miði að minnka velferð sína.
Heimdallur hvetur því þing-
menn til að hætta við áform um
jöfnun á raforkuverði og leyfa
fólkinu að ákveða verð í frjáls-
um samskiptum sínum.“
Heimdallur
ályktar um
raforku-
kerfið
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Stanga-
veiðifélagi Reykjavíkur:
„Stjórn Stangaveiðifélags
Reykjavíkur skorar á borgaryfir-
völd, Vegagerðina og aðra þá sem
taka þátt í framkvæmdum við fyr-
irhugaða Sundabraut að haga þeim
þannig að þær hafi sem minnst
áhrif á lífríki Elliðaánna og göngu-
leið laxins upp í árnar.
Fram hefur komið í fréttum að
tekist er á um staðsetningu Sunda-
brautar. Stjórn SVFR blandar sér
ekki í þær deilur en skorar á hlut-
aðeigandi aðila að tryggja að í um-
hverfismati vegna framkvæmdanna
verði áhrif þeirra á gönguleiðir lax-
ins upp í árnar skoðuð sérstaklega.
Áreitið á laxastofn Elliðaánna er
nú þegar orðið gríðarlegt og ekki
er verjandi að auka það frekar.
Nýjar byggðir eru að rísa í Vatns-
endalandi og í Norðlingaholti í
næsta nágrenni Elliðavatns og
þeim mun óhjákvæmilega fylgja
einhver mengun. Á undanförnum
árum hefur tjöru- og saltmengað
vatn af götum borgarinnar í ein-
hverjum mæli hafnað í Elliðaánum,
klórmengað vatn frá Árbæjarsund-
lauginni hefur fyrir slysni komist
út í árnar og vitað er að rennsl-
istruflanir vegna raforkufram-
leiðslu í Elliðaárdalnum hafa spillt
hrygningu og drepið laxa og laxa-
seiði í ánum.
Á ósasvæði ánna er mengun frá
bílhræjum, sem urðuð voru við
gerð uppfyllingartanga, og greint
hefur verið frá því að þangað berist
mengandi efni frá iðnfyrirtækjum í
Höfðahverfi vegna ófullnægjandi
fráveitumála. Þá eru ótalin áhrif
frá smábátahöfninni í Elliðaárvog-
inum og ekki langt frá eru skipa-
félögin Samskip og Eimskip með
sín athafnasvæði.
Laxastofn Elliðaánna hefur átt
mjög undir högg að sækja og í ljósi
framangreinds væri e.t.v. skynsam-
legast fyrir eigendur ánna, Reykja-
víkurborg og Orkuveituna, að halda
áfram með heildstæða úttekt á
vandanum, sem að stofninum steðj-
ar og hraða sem kostur er leiðum
til úrbóta.“
Stjórn SVFR ályktar um Sundabraut
Hafi sem minnst áhrif
á lífríki Elliðaánna
„SKÓLAGJÖLD eru ekkert annað
en fjöldatakmarkanir, byggðar á
fjárhag, og til marks um innreið
frjálshyggju og markaðslögmála í
menntakerfi þjóðarinnar,“ segir í
ályktun flokksráðsfundar Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
sem haldinn var á föstudagskvöld.
Fundurinn skoraði á stjórnvöld að
leggja út í endurskoðun á íslensku
menntakerfi með það að markmiði
að skapa heildstæða menntastefnu.
„Stjórnvöld verða að hafa kjark til
þess að leggja af þá tilviljanakenndu
stýringu sem menntakerfið hefur
búið við til margra ára,“ segir í álykt-
uninni.
Sagt er að á sama tíma og Íslend-
ingar verji hlutfallslega mun minna
fé til háskólastigsins en gert sé ann-
ars staðar á Norðurlöndum skjóti
það skökku við að leysa eigi fjár-
hagsvanda opinberra háskóla með
því að velta honum yfir á nemendur.
Þar með sé gert lítið úr þjóðhags-
legum ávinningi þess að sem flestir
sæki sér nám á háskólastigi, og horf-
ið frá hugmyndinni um jafnrétti til
náms. Þá gildi einu hvort þau eigi að
vera á grunn- eða framhaldsstigi.
Flokksráðsfundur VG vill
endurskoða menntakerfið