Morgunblaðið - 22.03.2004, Page 2

Morgunblaðið - 22.03.2004, Page 2
ÍÞRÓTTIR 2 B MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf. INGA Rós Gunnarsdóttir úr Gerlpu í Kópavogi var aldurs- forseti í kvennaflokki á Íslandsmótinu í fimleikum. Hún verður 19 ára í apríl en helstu keppinautar hennar á mótinu voru hin 12 ára gamla Kristjana Sæunn Ólafsdóttir og Sif Pálsdóttir sem er 16 ára. „Ég er orðin vön því að vera elst á mótum sem þessum. Því fylgja bæði kostir og gallar en ég tel mig hafa það umfram aðra þátttakendur að hafa mikla reynslu þar sem ég tók þátt í mínu fyrsta móti þegar ég var 7 ára gömul,“ sagði Inga Rós en þegar hún tók þátt í sínu fyrsta móti var Íslands- meistarinn núverandi á sínu fyrsta aldursári. „Það er margt sem verður til þess að stelpur hætta svona snemma, bæði er að þegar við stækkum þá verða hlutirnir miklu erfiðari og svo krefst skólinn tíma og við getum ekki æft eins mikið og við þurfum til að halda í við þær sem yngri eru.“ Árangur þinn núna er með því besta sem þú hefur náð á Ís- landsmótinu, ertu ekki sátt við mótið? „Nei ég er ekki nógu sátt við laugardaginn, þá heppnuðust æfingarnar mínar á jafnvægisslánni ekki nógu vel og það varð til þess að ég náði ekki sigri í samanlögðu og það er mjög sárt að missa af titlinum með þessum hætti,“ sagði Inga Rós og vildi ekkert gefa upp um það hvort hún mætir til leiks á ný að ári. Aldursforsetinn aðeins 18 ára Inga Rós Gunnarsdóttir STJARNAN úr Garðabæ hafði mikla yfirburði á laugardaginn er Íslandsmótið í hópfimleikum fór fram, en keppt var í Laugardalshöll. Á föstudag fór fram keppni á einstökum áhöld- um þar sem Stjarnan sigraði með nokkrum yf- irburðum í öllum þremur keppnisgreinunum. Það sama var upp á teningnum í úrslitakeppn- inni á laugardaginn þar sem Stjarnan sigraði á ný með 51,20 stig samanlagt. Gerpla P1 varð í öðru sæti með 46,40 stig og Grótta varð í þriðja sæti með 45,70 stig. Með sigrinum tryggði Stjarnan sér þátt- tökurétt á danska meistaramótinu sem fram fer dagana 3.–4. apríl og að auki mun liðið taka þátt í Evrópumóti í hópfimleikum sem fram fer í Dornbirn í Austurríki í október á þessu ári. Í hópfimleikum eða trompfimleikum er keppt í stökki af trampólíni, æfingum á dýnu og dansi. Stjarnan var í sérflokki Á laugardag var keppt í fjölþraut.Karlarnir kepptu í gólfæfing- um, á bogahesti, í hringjum, stökki, tvíslá og á svifrá. Það kom ekki á óvart að Viktor Kristmannsson úr Gerplu skyldi bera sigur úr býtum þar sem Rúnar Alex- andersson og Dýri Kristjánsson voru ekki meðal keppenda að þessu sinni en þessir þrír hafa verið í nokkrum sérflokki undanfarin ár. Viktor átti frábæra æfingu á boga- hesti þar sem hann fékk einkunnina 9,10 og hann var einnig fremstur meðal jafningja á tvíslá þar sem hann fékk 7,90 í einkunn. Samanlögð einkunn Viktors var 47,85 og dugði það honum til sigurs. Jónas Val- geirsson úr Ármanni veitti Viktori harða keppni en hann sigraði í gólf- æfingum, í hringjum og í stökki. Jónas varð annar með einkunnina 46,35. Anton Heiðar Þórólfsson, sem einnig er í Ármanni, varð þriðji í samanlögðu með einkunnina 45,05 en hann sigraði á svifrá þar sem hann fékk einkunnina 7,50. Svipað var uppi á teningnum á sunnudag þegar keppni í einstökum áhöldum fór fram. Viktor sigraði í æfingum á gólfi, bogahesti, hringj- um og á tvíslá, varð annar á svifrá og þriðji í stökki. Viktor var líka kátur með niðurstöðuna í mótslok. „Ég hef æft mjög vel og reiknaði alveg eins með því að ná góðum ár- angri á þessu móti. Ég hef hins veg- ar átt við að stríða nokkur meiðsli í öxl og á síðasta móti meiddi ég mig í hælnum svo að ég hef ekki getað æft stökkin sem skyldi,“ sagði Viktor. „Það hefði verið gaman að hafa Dýra með núna og sjá hvernig stað- an á okkur er. Síðast þegar við kepptum þá vann ég hann en æf- ingaaðstæður okkar hafa verið mis- munandi, ég hér heima og hann í Bandaríkjunum.“ Aðspurður sagðist Viktor vera að fara á Norðurlandamót í Malmö í Svíþjóð í vikunni og síðar í mánuðin- um fara fulltrúar Íslands á Evrópu- mótið í Slóveníu. „Ég vona að æfingar mínar muni skila sér þar. Ég hef verið sterkast- ur á bogahesti undanfarin ár og þeg- ar Rúnar er ekki með þá tel ég að ég eigi góða möguleika á að ná í verð- laun á Norðurlandamótinu. Rúnar hefur verið mér mikil hvatning og það hefur verið ómetanlegt að fá tækifæri til að æfa með honum bæði hér heima og í Svíþjóð,“ sagði Vikt- or. Hver er framtíðarsýn Viktors í fimleikunum? „Mig langar alveg hrikalega til að fara út og æfa við toppaðstæður með toppmönnum. Ég hef samt ekki áhuga á að fara út í skóla, líkt og Dýri er að gera, en þetta er draumur minn og ég myndi gera hvað sem er til að fá slíkt tækifæri,“ sagði Ís- landsmeistarinn í fimleikum 2004, Viktor Kristmannsson. Rafmagnað andrúmsloft í fjölþraut kvenna Í kvennaflokki sigraði hin 12 ára Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu. Er þetta í fyrsta sinn sem Gerpla eignast Íslandsmeistara bæði í karla- og kvennaflokki á sama árinu. Keppnin hjá stúlkunum var mjög hörð. Margir reiknuðu með að Sif Pálsdóttir úr Gróttu myndi ná að sigra fimmta árið í röð en á mótum vetrarins hafa þær Kristjana Sæunn og Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu sótt fast að henni. Sif hefur hins vegar verið lasin undanfarið og náði hún sér ekki á strik um helgina. Andrúmsloftið í höllinni á laugardag var rafmagnað, svo ekki sé meira sagt. Aðeins 0,6 stig skildu Krist- jönu, sem sigraði, og þær Ingu Rós Gunnarsdóttur og Sif Pálsdóttur sem höfnuðu í 2. og 3. sæti. Kristjana Sæunn sigraði í gólfæf- ingum með einkunnina 8,2 en hún deildi efsta sætinu í stökki með Tönju B. Jónsdóttur úr Björk en þær fengu báðar einkunnina 8,350. Inga Rós Gunnarsdóttir sigraði á tvíslá með einkunnina 7,7 og Hera Jóhannesdóttir úr Gróttu sigraði í æfingum á slá með einkunnina 7,625. Þar var keppni mjög hörð og hlutu sjö keppendur yfir 7 í einkunn. Sam- anlagt hlaut Kristjana Sæunn ein- kunnina 31,750, Inga Rós fékk 31,475 og Sif Pálsdóttir fékk 31,075. Kristjana Sæunn Íslandsmeistari í fyrsta sinn Á sunnudag var spennan ekki minni en á laugardaginn. Tanja Björk Jónsdóttir úr Björk kom sterk inn í fyrstu tvær greinarnar, stökk og tvíslá, þar sem hún skaut keppi- nautum sínum ref fyrir rass, en Kristjana Sæunn sigraði á jafnvæg- isslá og Inga Rós í gólfæfingum. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir á sannarlega framtíðina fyrir sér en hún er aðeins 12 ára gömul. Var mjög skemmtilegt að sjá hversu mikinn þroska stúlkan sýndi í æfing- um sínum, hvort heldur sem var á jafnvægisslá, gólfi, tvíslá eða í stökki. Íslandsmeistaratitill í full- orðinsflokki hjá 12 ára stúlku kemur þó ekki af sjálfu sér og Kristjana hefur æft af miklum krafti undanfar- in ár. „Ég hef æft fimleika í 5 ár, eða frá því ég var 7 ára gömul,“ sagði Krist- jana Sæunn. „Síðustu ár hef ég æft sex sinnum í viku, fjóra tíma á dag, svo þetta hefur tekið mikinn tíma. Ég hef verið mjög heppin með þjálf- ara og þau hafa hjálpað mér mjög mikið,“ sagði hin stórefnilega Krist- jana Sæunn sem einnig hefur lagt stund á ballett og jassballett ásamt fimleikunum. Fimleikaveisla í Laugardalshöll ÞAÐ var sannkölluð fimleikaveisla í Laugardalshöll um helgina þeg- ar Íslandsmótið í fimleikum fór þar fram. Keppt var í hópfimleikum, áhaldafimleikum og í fjölþraut. Íslandsmeistaramótið á 30 ára af- mæli en mótið var endurvakið eftir nokkurra ára hlé árið 1974. Að þessu sinni var mótið einstaklega glæsilegt, salurinn í Laugardals- höllinni fagurlega skreyttur og framkvæmd öll til mikils sóma fyrir Gerplu og Gróttu, sem var mótshaldari að þessu sinni. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Morgunblaðið/Árni Sæberg Bræðurnir Róbert og Viktor Kristmannssynir úr Gerplu voru heldur betur í sviðsljósinu. Viktor varð Íslandsmeistari í fjöl- þraut og saman stóðu þeir bræður á verðlaunapalli eftir æfing- ar á gólfi og á bogahesti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu varð Íslands- meistari í fjölþraut.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.