Morgunblaðið - 22.03.2004, Side 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 B 3
Nú fer sumarið að koma – nú er tími fyrir takkaskó
Ármúla 36, 108 Reykjavík,
sími 588 1560.
Verð er birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
Adidas Predator
(takka og gervigras)
frá kr. 7.995.
Adidas Provider
(takka og gervigras)
kr. 3.990.
Nike Total 90 (takka og
gervigras) barna kr. 4.990
fullorðins kr. 5.990.
Adidas F30
verð kr. 9.500.
Mitre Hydro Pro
verð kr. 8.490.
Einstök bók!
Sportútgáfan
HEIMIR Jón Gunnarsson er meðal
reyndustu þjálfara og dómara sem
tóku þátt í Íslandsmótinu í fim-
leikum um helgina. Hann var sáttur
við árangur strákanna og sagði að
þeir sýndu nokkrar framfarir á
milli ára. „Það var engin spurning
að Viktor Kristmannsson myndi
standa sig vel þegar ljóst varð að
þeir Rúnar Alexandersson og Dýri
Kristjánsson yrðu utan borðs,“
sagði Heimir Jón. „Það hefði verið
mjög gaman að hafa Dýra með því
hann hefði veitt Viktori mjög harða
keppni. Rúnar hefur verið á heims-
bikarmóti þar sem hann endaði í 4.
sæti á bogahesti. Það er besti ár-
angur Íslendings hingað til í fim-
leikum. Dýri var að taka þátt í móti
í Bandaríkjunum og náði sínum
besta árangri á svifrá, fékk 8,65 í
einkunn. Það er nokkur munur á
því hvað strákarnir eru lengur í
íþróttinni en stelpurnar. Í raun
geta þeir haldið áfram framundir
þrítugt, svo fremi sem nám og
vinna standa ekki í vegi fyrir þeim.
Þessu er öðruvísi farið hjá stelp-
unum, sem eru margar hverjar á
hátindi ferils síns í kringum ferm-
ingu, það er þó sem betur fer að
breytast,“ sagði Heimir Jón Gunn-
arsson.
Framfarir hjá
strákunum
■ Úrslit/B11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Anton Heiðar Þorvaldsson úr Ármanni varð þriðji í fjölþraut og hann keppti til úrslita á öllum
áhöldum á Íslandsmótinu í Laugardalshöllinni. Hér er hann í keppni á tvíslá.
Íslandsmeistaramót í fimleikum varendurvakið eftir nokkurra ára hlé
í marsmánuði árið 1974. Þá voru
meðal keppenda stúlkurnar Berg-
lind Pétursdóttir, Kristín Gísladótt-
ir, Rósa Ólafsdóttir
og Ásta Ísberg og
sennilega hafa þær
tekið þátt í hverju
einasta Íslandsmóti
frá þessum tíma með einum eða öðr-
um hætti. Að þessu sinni voru þær
mættar til leiks og var í mörg horn
að líta hjá þeim.
Berglind Pétursdóttir, fyrrver-
andi Íslandsmeistari í fimleikum, er
án vafa einn fremsti fimleikadómari
heims um þessar mundir og hún mun
m.a. dæma á Ólympíuleikunum í
Aþenu næsta haust og á Evr-
ópumótinu í apríl.
„Það er stór munur á þeim
æfingum sem stelpurnar eru
að gera í dag og því sem við
gerðum í gamla daga. Fram-
farirnar hafa verið miklar.
Áhöldin eru t.d. orðin svo
miklu betri en þau voru. Það
var engin bólstrun á jafnvæg-
isslánni eða fjöðrun og gólfæf-
ingarnar fóru fram á júdódýn-
um þar sem þær voru til. Svo
var vitaskuld engin tvíslá til
og ég man eftir því þegar við
kepptum á tvíslá í fyrsta sinn.
Hún var heimatilbúin og
vaggaði óhugnanlega mikið.“
Vantar meiri skilning
skólayfirvalda
„Krakkarnir sem eru að
keppa hér í dag eru að gera
rosalega góða hluti og það
sem háir framförum hér
heima helst er að krakkarnir
æfa aðeins einu sinni á dag og
ná því ekki að halda í við
fremstu fimleikaþjóðir heims.
Það er alveg ljóst að til að ná
árangri á alþjóðlegan mæli-
kvarða þarf fimleikafólk að
æfa tvisvar á dag. Flest fim-
leikafélög hafa nú orðið ágæt áhöld
og aðstæður eru góðar, það sem
helst vantar upp á er meiri tími til
æfinga. Þar vantar helst meiri sam-
vinnu og skilning skólayfirvalda sem
mættu gjarnan sleppa fremsta fim-
leikafólkinu við sund, leikfimi,
handavinnu og smíðar, svo eitthvað
sé talið.“
Þú hefur náð langt sem dómari,
ert meðal fremstu dómara í heimi og
ert að fara að dæma á Ólympíuleik-
um og á Evrópumótinu, þetta hlýtur
að vera mikill heiður fyrir þig.
„Já ég verð yfirdómari á gólfi á
Evrópumótinu sem fram fer í Amst-
erdam um mánaðamótin apríl-maí
og svo var ég tilnefnd af Alþjóðafim-
leikasambandinu sem dómari á Ól-
ympíuleikunum í Aþenu í haust.
Þetta er vissulega mikill heiður fyrir
mig persónulega og ég lít svo á að ég
sé fulltrúi íslenskra fimleika og þetta
er ekki síður heiður fyrir þá í heild,“
sagði Berglind Pétursdóttir, fim-
leikadómari og margfaldur Íslands-
meistari í fimleikum á árum áður.
Mikill heiður
fyrir íslenska
fimleika
Hlín Bjarnadóttir, Kristín Gísladóttir, Berglind Pétursdóttir, Ásta Ísberg og Rósa Ólafsdóttir hafa allar
verið viðloðandi Íslandsmótið í fimleikum sl. 30 ár.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar