Morgunblaðið - 22.03.2004, Side 5
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 B 5
EVRÓPUMEISTARALIÐ AC
Milan virðist vera á góðri leið með
að tryggja sér 17. meistaratitilinn í
ítölsku deildinni en Milan er með 67
stig í efsta sæti deildarinnar. Á
laugardag vann Milan lið Parma á
heimavelli sínum, 3:1, og skoraði
danski landsliðsframherjinn Jon
Dahl Tomasson tvívegis fyrir Mil-
an. Carlo Ancelotti, þjálfari Milan,
valdi að hvíla framherjann Filippo
Inzaghi, og ætlar líklega að nota
hann í leik liðsins á miðvikudaginn í
Meistaradeildinni gegn Deportivo.
JUVENTUS, sem á titil að verja
á Ítalíu, gerði markalaust jafntefli
við Udinese en Juventus hefur unn-
ið ítölsku deildina tvö sl. keppn-
istímabil. Juventus er ellefu stigum
á eftir Milan þegar aðeins 11 um-
ferðir eru eftir af keppnistíma-
bilinu. David Trezeguet lék með
Juventus á ný en franski landsliðs-
framherjinn hefur verið meiddur að
undanförnu. Yfirburðir Juventus
voru miklir í leiknum en meistar-
arnir náðu ekki að brjóta varnar-
múr Udinese á bak aftur. Tékk-
neski landsliðsmaðurinn Marek
Jankulovski, í liði Udinese, átti
hörkuskot sem small í þverslánni í
síðari hálfleik.
LIVERPOOL hefur áhuga á að
kaupa franska framherjann Djibril
Cisse frá Auxerre en Cisse segir
við enska fjölmiðla að hann hafi
hafnað tveimur tilboðum frá
spænska liðinu Real Madrid til þess
að geta leikið í ensku úrvalsdeild-
inni. Cisse segir að hann vilji leika
með Liverpool, og hann vonast til
þess að Gerard Houllier verði
áfram knattspyrnustjóri liðsins, en
staða franska knattspyrnustjórans
þykir völt þrátt fyrir að liðið hafi
unnið Wolves, 1:0, á laugardag.
ÞAÐ gekk mikið á í grannaslag
Millwall og West Ham í ensku 1.
deildinni í dag, þar sem Millwall
hafði betur, 4:1, á heimavelli sínum
New Den. Stuðningsmenn West
Ham reyndu að komast inn á völl-
inn er Millwall fékk vítaspyrnu í
stöðunni 3:1 og markverði West
Ham, Stephen Bywater, var vísað
af leikvelli í kjölfarið.
STUÐNINGSMENN Millwall
hafa í gegnum tíðina verið þekktir
fyrir ólæti og voru um 1000 lög-
reglumenn til staðar á meðan leik-
urinn fór fram. Millwall er í sjö-
unda sæti deildarinnar en West
Ham er í fimmta sæti.
GIOVANE Elber, framherji
Lyon í Frakklandi og áður liðs-
maður Bayern München, segir það
hafa verið mikil mistök að yfirgefa
Þýskaland. Elber, sem fór frá Bæj-
urum til Lyon fyrir sjö mánuðum,
segir vel mögulegt að hann snúi aft-
ur í þýsku knattspyrnuna á næstu
leiktíð. Elber lék 169 leiki með Bay-
ern og skoraði í þeim 92 mörk.
FÓLK
EIÐUR Smári Guðjohnsen og fé-
lagar hans hjá Chelsea mæta Ars-
enal í fjórða skipti á leiktíðinni á
miðvikudagskvöldið en þá etja
Lundúnaliðin kappi í átta liða úr-
slitum Meistaradeildarinnar.
Chelsea hefur ekki lagt Arsenal að
velli í síðustu 17 leikjum og í þrem-
ur leikjum á yfirstandandi leiktíð
hefur Arsenal unnið alla leikina og
það með sömu markatölu, 2:1.
„Þetta verða engir smáleikir og
vissulega ríkir mikil spenna í borg-
inni fyrir þessa leiki. Það hlýtur að
fara að koma að því að okkur tak-
ist að leggja Arsenal að velli og
ekki væri leiðinlegt að slá það út í
Meistaradeildinni. Það eru allir hjá
okkur mjög vel stemmdir fyrir
leikinn á miðvikudag og okkur
þyrstir í að koma fram hefndum,“
segir Eiður.
Þú ert búinn að skora í síðustu
þremur deildarleikjum sem þú hef-
ur spilað, þar á meðal gegn Arsen-
al. En ekki geturðu bókað það að
verða í byrjunarliðinu gegn Arsen-
al á miðvikudaginn þrátt fyrir góða
frammistöðu í síðustu leikjum?
„Nei, það er ekki hægt að bóka
neitt þessa dagana. Ég vona nú
samt að ég hafi ýtt undir það að fá
að byrja með þessu marki sem ég
skoraði á móti Fulham og eins það
að ég fann mig mjög vel í leiknum.
Ég náði að skapa nokkur fín færi
fyrir félaga mína og vonandi fæ ég
að spreyta mig á móti Arsenal.“
Þyrstir í að koma fram
hefndum gegn Arsenal
verði að teljast góður árangur. Ég
sá einhverja tölfræði hjá okkur og
þar kom fram að ég er með besta
markahlutfallið hjá Chelsea miðað
við spilaðar mínútur,“ sagði Eiður.
Hann er næstmarkahæsti leikmað-
ur Chelsea á leiktíðinni með 12
mörk en Jimmy Floyd Hasselbaink
er markahæstur með 13 mörk.
Þið eruð fjórir framherjarnir hjá
Chelsea. Þú, Mutu, Hasselbaink og
Crespo. Með hverjum finnst þér nú
best að spila í framlínunni?
„Ég held að ég verði að segja
Hasselbaink. Við náum vel saman
en það er orðið svolítið langt síðan
við höfum verið saman í byrjunar-
liðinu. Ranieri er sífellt að skipta
leikjunum á milli okkar framherj-
anna og eins ogþetta hefur þróast
hef ég mest spilað með Mutu enda
hefur hann fengið að spila mest af
okkur.“
Er ekki svolítið pirrandi að geta
aldrei verið öruggur með að halda
sæti sínu í liðinu?
„Jú og sérstaklega þegar maður
býst við að vera í byrjunarliðinu
eftir að hafa spilað fínan leik á und-
Þetta var tólfta mark EiðsSmára á leiktíðinni og það
þriðja í jafnmörgum deildarleikjum
sem hann spilar en
hann var einnig á
skotskónum í leikj-
unum gegn Arsenal
og Manchester City
í lok febrúar en fékk hvíld í leiknum
gegn Bolton 13. mars þar sem hann
tók út leikbann
„Ég smellhitti tuðruna og það
var ansi gaman að sjá boltann fara í
netið. Þetta var ágætasta mark og
örugglega eitt af þeim betri sem ég
hef skorað,“ sagði Eiður Smári við
Morgunblaðið í gær en hann var þá
nýkominn af léttri æfingu hjá
Chelsea sem hóf í gær undirbúning
fyrir fyrri leikinn gegn Arsenal í
Meistaradeildinni sem fram fer á
Stamford Bridge á miðvikudags-
kvöldið.
Sáttur við tímabilið
„Ég er bara nokkuð sáttur við
tímabilið hjá mér. Ég er búinn að
byrja inná í 16 leikjum og skora 12
mörk á tímabilinu og ég held að það
an en svo fær maður það í andlitið
fyrir leikinn að maður sé ekki í lið-
inu. En vonandi breytist þetta núna
í ljósi þess að ég hef verið á góðu
róli í síðustu leikjum hvað marka-
skorun varðar.“
Chelsea er í öðru sæti úrvals-
deildarinnar, níu stigum á eftir
Arsenal, og segir Eiður Smári að
vissulega bendi nánast allt til þess
að Arsenal hampi titlinum í ár.
„Við ætlum að reyna að setja eins
mikla pressu og við getum á Arsen-
al og um leið vonumst við eftir því
að Arsenal-liðinu fari að fatast flug-
ið. Ég trúi því ekki að það fari tap-
laust í gegnum mótið en við getum
víst ekkert gert annað en að vinna
þá leiki sem við eigum eftir og sjá
svo til hverju það skilar.“
Ekkert á förum
Enskir fjölmiðlar virðast óþreyt-
andi að tala um að þú kunnir að yf-
irgefa Chelsea í sumar. Stendur
það eitthvað til?
„Ég er ekkert að fara frá
Chelsea. Ég er ánægður hjá félag-
inu og það er ekkert í spilunum um
að ég sé að fara eitthvað annað.“
Þið leikmennirnir hafið verið iðn-
ir við að koma fram í fjölmiðlum og
lýsa yfir stuðningi við knattspyrnu-
stjóra ykkar.
„Við viljum bara að hann fái
vinnufrið, alla vega á meðan hann
er við störf hjá félaginu. Við lesum
um í blöðunum dag eftir dag að hin-
ir og þessir stjórar séu á leiðinni til
að taka við af Ranieiri en satt best
að segja erum við orðnir mjög
þreyttir á þessum sögum.“
Ert þú ekki klár í landsleikinn
gegn Albönum í næstu viku?
„Jú ég býst ekki við öðru en að
ég verði með. Það er hins vegar
mjög stíft leikjaplanið hjá Chelsea
næstu vikurnar og ég held að við
spilum fimm leiki á tólf dögum.
Tímasetning á landsleikjunum í
næstu viku er því frekar slæm fyrir
lið eins og okkur og Arsenal. Það
kæmi mér ekkert á óvart ef einhver
kurr myndi gera vart við sig hjá
forráðamönnum Chelsea út af
leiknum en þeir hafa ekkert rætt
um þetta ennþá enda snýst allt um
leikinn við Arsenal á miðvikudag-
inn. Ég vil að sjálfsögðu vera með í
leiknum gegn Albönum en ég ætla
samt ekki að útiloka það að ég missi
af honum.“
Eiður segist hafa meiri áhyggjur
af leiknum við Albaníu vegna
ástandsins á þessu svæði en fyrir
helgi tóku sig upp á nýjan leik
skærur og stríð á milli Albana og
Serba. „Menn hljóta að kanna
ástandið vel í vikunni og ef öryggi
leikmanna verður ekki alveg 100%
þá sé ekki ég annað en að leikurinn
verði blásinn af.“
Reuters
Hernan Crespo og William Gallas fagna Eiði Smára eftir mark hans, sem var hans tólfta á leiktíðinni.
Örugglega eitt
af þeim betri
EIÐUR Smári Guðjohnsen skoraði stórkostlegt mark fyrir Chelsea í
sigurleik liðsins gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
á laugardaginn. Eiður skoraði fyrra mark Chelsea á 7. mínútu með
vinstrifótarþrumufleyg sem söng í netinu með viðkomu í stönginni
og átti Edwin Van der Saar, landsliðsmarkvörður Hollendinga, enga
möguleika á að verja skotið.
Eiður Smári Guðjohnsen lætur
skotið ríða af með vinstri fæti í
leiknum gegn Fulham og skömmu
síðar lá knötturinn í netinu.
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði frábært mark fyrir Chelsea gegn Fulham
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar