Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 4
Bjarni er sem stendur í meistaranámi í Maid- stone á Englandi við Kent Institute of Art and Design. Námsbrautin hæfir svona fjölhæfum listamanni, „Media Arts“ heitir það sem Bjarni helgar sig núna. Þar er áherslan á myndlist þar sem notað er hljóð, vídeó, ljós- myndun og fleira þannig að margir miðlar vinna saman. Aðeins tíu eru í hóp og aðhaldið er mikið. „Maður þarf reglulega að standa fyrir máli sínu. Þetta snýst mikið um að vinna verkefni og kynna þau hópnum. Svo les- um við líka fræðilegar kenningar til að skilja betur hvað maður er að gera. Maður lærir að skilgreina, lesa og hugsa betur,“ segir Bjarni sem telur þetta heppilega viðbót við það nám sem hann hefur nú þegar lokið. Bjarni, sem er 27 ára, útskrifaðist af mynd- listarbraut FB árið 1998, lauk BA-námi í graf- ískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og starfaði eftir það sem grafískur hönn- uður, bæði sjálfstætt og hjá auglýsingastofum. Hann valdi myndlistartengt framhaldsnám til að víkka sjóndeildarhringinn og fá hlé frá hönn- unarbransanum á Íslandi þótt hann hafi ekki sagt skilið við hann. ÞÖGNIN ER EKKI TIL Bjarni byrjaði í framhaldsnáminu í haust og hefur að miklu leyti verið að einbeita sér að hjóðinnsetningum. „Þegar ég fór upphaflega í námið ætlaði ég að vinna með vídeó, gera eitt- hvað sem kæmi sér vel í sambandi við mynd- böndin. En þetta þróaðist þannig að ég fékk áhuga á þessu,“ segir hann og bætir við að þetta tengist að einhverju leyti því að hann hafi verið í tónlist. „Ég var í mörg ár í barhljómsveit sem heitir Úlrik og spilaði á gítar. Ég hef verið að semja tónlist síðustu ár og er í hljómsveit sem heitir Uzi Jakapi. Þetta er svona til- raunakennd spunatónlist.“ Þó er það ekki beint tónlistin sem Bjarni leggur áherslu á í hljóðinnsetningunum heldur þögnin. Verkin ganga út á að magna þögnina og hafa yfirskriftina „Mögnuð þögn“. „Upp- sprettan að þessu hugmyndafræðilega séð gengur út á það að þögnin sé ekki til. Það er aldrei til algjör þögn heldur samanstendur þögnin af mörgum hljóðum í umhverfinu,“ segir Bjarni og útskýrir að kenningin sé upprunnin hjá bandarískum listamanni, John Cage, en þekktasta verk hans er 4:33. „Það er tónverk sem hann samdi fyrir píanó sem er algjör þögn.“ Samhliða þessu vinnur Bjarni með aðra miðla eins og ljós- myndun og vídeó. Þögnin er til á fleiri stöðum. „Ég er að vinna með þögnina á þess- um sviðum líka. Þetta eru alls konar tilraunir sem verða vonandi að einhverju,“ segir Bjarni sem er ánægður með að fá tækifæri til að gera svona tilraunir í náminu. „Það er gott að vera ekki háður yfirmönnum eða kúnnum.“ VINNA MEÐ HUGMYNDIR Takmarkið er því að nást og Bjarni er að víkka sjóndeildarhringinn. Hann heldur þó að mynd- listin verði alltaf áhugamál. „Ef maður vinnur sem myndlistarmaður að atvinnu þarf maður að hugsa um markað og fá styrki,“ segir hann og bætir við að þá verði starfið meira eins og hver önnur vinna. „Þetta nám tengist grafískri hönnun líka á ákveðinn hátt. Maður lærir að lesa í hlutina, skilgreina og vinna með hugmyndir. Þetta hjálp- ar manni alveg jafn mikið og að fara í fram- haldsnám í grafískri hönnun.“ HÚMOR OG BOÐSKAPUR Myndböndin hans hafa vakið athygli og Bjarni hefur skapað sér ákveðinn stíl, bæði hugmyndafræðilega og útlitslega. „Hugmynd- irnar eru léttar þótt undirtónninn sé alvarlegur,“ segir Bjarni en honum er fátt heilagt; húmor og boðskapur eru lykilorð. „Þetta eru mínar skoðanir sem koma þarna fram frekar en hljómsveitarinnar. Þau verkefni sem ég hef verið að taka að mér hef ég ekki gert beint fyrir peninga heldur ánægjunnar vegna. Þá fæ ég líka að ráða þessu sjálfur. Þetta er gott tækifæri til að fá reynslu og þróa hugmyndir og stíl.“ Hann notar mikið klippimyndastíl. „Ég nota fundið efni og vinn svo í því. Þetta er spurning um að setja saman og láta hreyfast. Ég hef ekki mikið verið að teikna sjálfur.“ Bjarni hefur hug á að halda áfram í mynd- bandagerð þegar færi gefst. „Mig langar að gera myndböndin betri þótt ég sé þokkalega ánægður. Mig langar að gera flóknari mynd- bönd, skemmtilegri og stærri.“ Frumlegur fjöllistamaður „KLAPP“. LJÓSMYNDIR, AKRÝLMÁLNING, LÍM OG LAKK Á TRÉ. 2003. BJARNI TÓK SJÁLFUR MYND AF SÉR FYRIR FÓLKIÐ. Bjarni Helgason er enginn venjulegur listamaður. Bjadddni Hell, eins og hann kallar sig, lætur til sín taka á mörgum sviðum. Hann hef- ur gert myndbönd sem hafa vakið athygli, þeirra á meðal eru „Brighter“ með Ensími, „Homo Sapiens“ með Dr. Gunna og „Má ég sparka“ með Bent og 7Berg. Hann er líka í hljómsveit, tekur LOMO-myndir, hannar lógó, málar málverk og ótalmarga hluti til viðbótar eins og sjá má á vef hans this.is/herrahelviti. Við Íslendingar eigum besta vatnið. Sterkustu karlmennirnir eru okkar, ekki má gleyma besta jarðhitanum, grænasta grasinu og fal- legustu fjörðunum. Við erum best í flestu, eig- um flest af öllu, hvort sem það er gott eða slæmt, og allir kunna að lesa. Svo sem ekki skrýtið þar sem við fengum nauðug heila mat- skeið af lýsi upp í munninn frá því á barns- aldri. Madrídarbúar hafa ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Mikil sorg hefur legið yfir borginni, bílstjórar í umferðarteppum liggja ekki á flautunni, bíða bara rólegir líkt og mið- jarðarhafsblóð renni hægar þessa dagana. Samferðamenn mínir í lestinni segja varla orð ... horfa beint fram fyrir sig hugsandi. Trufla þá ekkert þegar ég reyni að troða mér inn eða út og rekst á gjörsamlega alla. Það er meira en vika síðan ég hef vaknað við hróp og köll frá götunni og karlarnir á kaffihúsinu mínu hafa ekkert rifist um fótbolta. Madríd er að jafnaði mjög fjörug og hávaðasöm borg, full af orku og yfirgangi sem oft einkennir stórborgir. Fólk veður áfram og baðar út höndum ef ein- hver þvælist fyrir því og blótar þér í sand og ösku ef þú ert ekki lagður af stað á gulu. Rétt um það leyti sem ég var farin að hafa áhyggjur af því að borgin myndi ekki ná að jafna sig, gerðust undur og stórmerki, sólin skein! Fyrsta vorsólin sýndi sig um helgina og hitaði göturnar upp í 25 gráður. Við skriðum út úr íbúðum frá fréttunum og pólitískum rök- ræðum, nudduðum augun og horfðum undr- andi til himins. Jú, lífið heldur áfram, sólin kemur aftur upp og það er víst hægt að gera annað en horfa á CNN, drekka rauðvín og ræða í hringi um afleiðingar kosninga, aft- urkall hermanna og hvar þessi og hinn var staddur 11. mars síðastliðinn kl. 7.30 að morgni. Stoltir kaffibarþjónar, með svartar þverslaufur, í vestum, röðuðu út borðum og stólum, gítarleikarar dustuðu af nótunum og stilltu fram dós undir peninga og ég, ég skellti mér í einu mussuna sem ekki var krumpuð of- an í kassa og fann opnu skóna frá því í fyrra- sumar. Fylgihlutir voru fleiri og stærri en venjulega, eins og vani er í sólríku veðri. Í hin- um fullkomna vorbúningi þrammaði ég borg- ina fram og aftur, brosti mínu breiðasta. Varla heyrði ég minnst á þann hræðilega dag, 11. mars, en þessi dagsetning hefur ómað um borgina síðastliðnar 2 vikur. Mest heyrðust yf- irborðskenndar ferðasögur frá síðasta páska- fríi og fullkomin ferðaplön fyrir það næsta. Flott tískulína í þessari búð og ný jarðarber í hinni. Kossar og bros flugu um allar götur sem og pils og kjólar í björtum litum og alls staðar sást fólk með rjóð andlit, tapas á borð- inu og kaldan bjór í hönd. Eftir því sem dagurinn leið hugsaði ég til þess að það er eitt enn sem ég hef hingað til haldið að Íslendingar ættu einkaleyfi á; ís- lensku kýrnar hoppa hæst út úr fjósinu á vor- in, rétt eins og íslenska fólkið í fyrstu kvöld- sólinni þegar kaffihúsunum virðist aldrei lokað og við sitjum með bláar tær í afrískum sandölum og sötrum rauðvín. En um helgina komst ég að því að spænsku kýrnar hoppa líka ofurhátt. Sólin gleður þær alveg jafn mik- ið og okkur Íslendingana, og sérstaklega ef tíðin er búin að vera erfið. Kannski eiga þeir líka til orðið „sólskinsbros“ eins og við? Ætli það sé ekki bara komið úr spænsku … LÍFIÐ Í MADRÍD KRISTÍN AGNARSDÓTTIR 4 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 26|3|2004 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.