Vísir - 11.04.1981, Page 3
Laugardagur 11. aprll' 1981
3
>xx
VÍSIR
Dægurflugur
Ingþór Sigurbjörnsson hefur
sent okkur safn af stökum úr sinni
áttinni hverja sem hann hefur
gefið yfirskriftina Dægurflugur.
Ýmislegt er þar gamalt og gott
þrátt fyrir breyttan tiöaranda. Nú
er t.d. mikið fjasað um sima og
skrefatalningu en i eina tið nægði
tólið eitt til að koma hagyrðingum
I ham:
„Þegar simatólin með þessum
gataskifum voru nýkomin, varð
mörgum á fingrafeill I fyrstu og
fór svo einu sinni fyrir Jónasi
Jónssyni, sem kenndur var við
Grjótheim. Hann hringdi i rangt
númer og frúin sem svaraði varð
ókvæða við lét skammir svo
dynja að Jónas kom engum af-
sökunarorðum að, en notaði þeim
mun betur timann fram að and-
hléi frúarinnar og varð þá hrað-
mæltur:
Ef ég stæli annars mat,
ei mér stæði á sama,
en nú hef ég villst i
vitlaust gat.
Veriö þér sælar dama”.
Brennivinið hefur verið yrkis-
efni liklega frá þvi það gerði fyrst
vart við sig. Um það segir m.a.:
„Þótt alkahólið væri þá (þ.e. á
4. tug aldarinnar) aðeins farið að
sina aðvörun sina miöað við það
sem nú er, varð orðið einum
snjöllum hagyrðingi að leikfangi
likingamáls:
Óskasteinn er strjálastur
steina á mannlifs heiöum,
en Alkahóll er hálastur
hóla á flestra leiðum.
Þessi visa mun talin vera eftir
Gunnlaug Pétursson, Selhaga.
Annar hagyrðingur var harð-
orðari og lét svo mælt eitt sinn er
hann gekk fram hjá barnum i
Hafnarstræti:
Bakkus rotar börnin sin
bólgnar þroti i sárum.
Flöskuhrot og fyllisvin
faðmast votum tárum.
Höfundur visunnar er Guðjón
B. Guðlaugsson trésmiður.
Annars er þaö svo sem upp og
niöur hvað fólki finnst um bless-
aðann dropann:
Brennivin er besti matur
bragðið góða svikur eigi.
Eins og hundur fell ég flatur
fyrir þvi á hverjum degi.
orti Haraldur frá Kambi og bætti
við:
Barist er við breiska menn
bæði kvölds og morgna.
Sumir blautir eru enn,
aðrir að byrja að þorna.
Sjón er sógu ríkari
Myndir í smáauglýsingu
Sama verð
Shninn er 86611
Lítið inn og skoðið
nýjasta afkvæmið
JÆusturstrœU 6 &
inu 22955
Nýjasta Konica-n
loksins komin
ANGLO-CONTINENTAL EDUCATIONAL GROUP
Lærið ensku í Englandi
Um 200 manns sóttu ACEG-skólana i Bournemouth á
Suður-Englandi, frá íslandi á siðastliðnu ári.
Nú bjóðum við enn 5 ferðir á Novaschool, 31. mai-21. júni..l3.
júli-2. ágúst og 6. sept.
Flogið er með þotum Flugleiða til London.
Nemendum ekið til Bournemouth.
Gist hjá enskum fjölskyldum, hálft fæði virka daga, en fullt
fæði um helgar.
15 tima kennsla á viku og góð aðstaða til sjálfsnáms á skólan-
um.
Hægt að taka þátt i alls kyns iþróttum og leikjum á staðnum.
Auk þess farnar skoðunaferðir.
Alltaf eitthvað að gerast á hver jum degi á vegum skólans — og
allt i þágu námsins.
Lágmarksdvöl eru 3 vikur, en hægt að dveljast 4 vikur, og svo
framlengja um 3 vikur i senn.
Pantið timanlega, þvi við sendum takmarkaðan fjölda i hverja
ferð.
Við sendum ykkur bæklinga og umsóknareyðublöð.
Fyrir þá sem hyggja á meira sérhæft nám, þá eru á ACEG, 16
skólar og um 40 námskeið, sem rekin eru samtimis. Skólinn
undirbýr einstaklinga og hópa undir framhaldsnám, undir-
stöðunám, en einnig nám i sérhæfðri ensku, svo sem banka-
menn, viðskiptamenn, flugmenn, visindamenn svo nokkuð sé
nefnt.
Einnig eru svokailaðir Junior-Sphools, sem byggðir eru á
heimavist og reknir aðeins yfir sumarið. Þá er hægt að taka
orlof og samhæfa það enskunáminu.
Dragið ekki
að panta
Allar
upplýsingar
hjá