Vísir - 11.04.1981, Blaðsíða 13
Laugardagur 11. april 1981
13
i þessa veru, — um slíkt verða
menn að velta eigin vöngum.
Loverboy
Rokk og ról, það eru ær og
kýr kanadisku hljómsveitar-
innar Loverboy. Fyrir hálfum
mánuði vissi tæpast nokkur hér
heima um tilvist þessarar
hljómsveitar, en svo er ekki
lengur. Þungarokkið er eins og
allir vita nokkurskonar tisku-
fyrirbæri þessa stundina og
Loverboy eru svo heppnir að
vera á réttum stað á réttum
tima með rétta tónlist. Arið 1978
voru lögð drög að stofnun
hljómsveitarinnar með þvi að
gitarleikarinn Paul Dean og
söngvarinn Mike Reno lögðu
hausinn i bleyti. 1 tvö ár unnu
þeir að hugmyndum sinum og
veiddu hljóðfæraleikara i net sin
og á siðasta ári gáfu þeir tóninn.
Fyrst veiddu þeir Matt
Frenette, trommuleikara, sem
hafði leikið talsvert i hljóðver-
um. Þar næst kom Doug John-
son, álitlegur hljómborðsleikari
og textasmiður. Siðasta fórnar-
sychedelic
urs
overboy
ellow Magic
rchestra
lambið var Scott Smith bassa-
leikari, þaulæfður hljóðfæra-
leikari.
Þegar hópurinn var allur
kominn i eina kippu hófust æf-
ingar og siðan hljómleikar sem
gáfu hljómsveitinni grænt ljós
hjá Columbia um plötugerð. í
hljóðverinu unnu þeir að breið-
skifunni „Loverboy” sem hefur
verið tekið frámunalega vel,
bæði I Kanada og Bandarikjun-
um. A þeirri plötu er meðal
annars að finna lagið „Turn Me
Loose” melódiskan rokkara af
bestu gerð, sem þungarokksað-
dáendur hafa hvarvetna tekið
og hampað.
Þrjár hljómsveitir frá þremur
löndum, allar á þröskuldi
frægðarinnar þó ólikar séu. Ef
til vill heyrir þú þær aldrei
framar nefndar framar, lik-
legra er þó að þú munir ein-
hvern tima kaupa þér plötu með
þeim.
— Gsal.
B.A. Robertson —
Bully For You
Elektra/Asylum
K52275
A siðasta ári naut platan
„Initial Success”mikilla vin-
sælda hér heima, lög eins og
„Bang Bang” og „Knocked It
Off” sungu i eyrum lands-
manna og B.A. Robertson var
orðinn „heimsfrægur” á
íslandi. Tónlist þessa breska
tónlistarmanns má ef til vill
kalla skallapopp, þ.e. létt
dægurtónhst til afþreyingar-
brúks. Mér þykir nafngiftin þó
of niðrandi fyrir B.A. Robert-
son þar eð mun meira er
spunnið i tónlist hans en
flestra annarra sem ástunda
popptónlist af léttustu gerð.
Hann hefur það meðal annars
fram yfir flesta aðra að vera
bæði fljúgandi lag- og hag-
mæltur, textar hans eru oftast
nær mjög áhugaverðir og
nægirað nefna „Flight 19” þvi
til staðfestu en þar segir af
Bermúdaþrihyrningnum al-
ræmda. Tónlist B.A. Rob-
ertson ristir ekki djúpt, en hún
er samt persónuleg og meló-
diurnar renna svo mjúklega
að i þeim efnum standast fáir
honum snúning.
GOODfÝEAR
viftureimar
í sérflokki
ódýrar og sterkar
Bygging
OOODfÝCAR
viftureimarinnar
1. Efsti burðarvefur reimarinnar, sem blandaður er gúmmíi,
hefur viðnám gegn olíu, ozoni og polychloropreni, sem
dregur mjög úr liðunarþreytu og úlilokar sprungur.
2. Afar sterkur polyesterþráður með mikið teygjuviðnám
tryggir vörn gegn skyndilegu álagi, gerir endurstrekkingu
óþarfa og gerir kleift að nota litlar reimskífur.
3. Trefjablönduð einangrun eykur stöðugieika reimarinnar.
4. Þriggja laga vefur, sem hefur rafleiðni og er blandaður poly-
chloropreni, gerir reimina einkar stöðuga og veitir vörn gegn
sliti og sprungum, jafnvel þótt notuð séu strekkingarhjól.
HEILDSALA - SMÁSALA
IhIhekla
J Laugavegi 170-172 Sír
HF
Sími 21240
Þurfir þú
nýja reim er
auðvelt að
finna
stærðina.
Þú kemur með
þá ónýtu
Stærðin ákvörðuð Eða afgreidd eftir
númeri
Við mælum hana
Ný reim afhent
Leitið upplýsinga
Sendum bœklinga
^ HÚSASMIÐJAN HP.
■ IhhI SÚÐARVOGI 3-5, REYKJAVfK SlMI: 84599