Vísir - 15.04.1981, Page 1

Vísir - 15.04.1981, Page 1
Hálfsjötugur maður téll nlður um ís á Norðfjarðará: Miðvikudagur 15. apríl 1981 88. tbl. 71' árg. BJARGAO A SfDUSTU STUNUU urr OR ISKALDRI VðKINNI - Hafðl ðá haldið sér ð liotl l hálla klukkustund „Timinn var nokkuð lengi að liða þarna i vökinni meðan ég beið eftir hjálp, en það var allt gert sem hægt var. Það var hins vegar mjög af mér dregið enda áin köld,” sagði Stefán Þorleifs- son bóndi á Hofi i Noröfjarðar- hreppi i samtali við Visi. Hann lenti i þeirri miklu mannraun fyrir nokkrum dögum að halda sér uppi á isskör i hálfa klukku- stund i vök eftir að is á Norð- fjarðará brast undan honum. Stefán er 65 ára gamall bóndi á Hofi i Norðfjaröarhreppi og var á leið að heimsækja bróður sinn, sem býr hinumegin ár- innar. Um tiu minútna gangur er frá Hofi að ánni. Engin brú er á ánni, þarna i grenndinni, en hún var á is og snjór yfir. Oti á miðri ánni brast isinn undan Stefáni og hann náði ekki til botns. Hann gat náð tökum á is- brúninni og vegið sig upp á hana að þvi marki að hann kom hand- leggjunum uppá isinn og hélt sér þar. Þá brast isbrúnin undan þunga hans og aftur tókst hon- um að vega sig uppá á sama hátt. Þar beið hann svo, meiri hluti likamans á kafi i iskaldri ánni.i hálfa klukkustund, þang- að til hjálp barst frá næstu bæj- um. Þegar hann var dreginn uppúr ánni var hann svo mátt- farinn að hann gat ekki komið upp orði. Taldi Stefán að ekki hafi mátt dragast lengur að hjálp bærist, þrekið var búið. Stefáni varð ekki meint af þessari þrekraun, hann fór i fjósið að sinna gegningum kvöldið eftir. ,,Ég er stálhraustur og var ágætlega klæddur, i föðurlandi uppúr og niðrúr,” sagði Stefán, þegar fréttamaður spurði hann hverju hann þakkaði að hann gat haldið sér svona lengi uppi á skörinni. Hann fékk málið fljótlega aft- ur, eftir að hann var kominn i heita karið á sjúkrahúsinu og þaö fyrsta sem hann sagði var að spyrja hvort hann hefði týnt úrinu sinu. Það reyndist ekki vera, stúlkurnar á sjúkrahúsinu höfðu tekið það af honum. „Þær voru þrjár eða fjórar þarna og það má nærri geta að það er fljótur að koma ylur i kroppinn á manni þegar þær fara mjúk- um höndum um mann, blessað- ar. Það er voðalega gott að láta þær nudda sig.” Fannst honum ekki ganga seint að koma til hjálpar? „Jú, mér fannst það ganga heldur seint, en það var gert allt sem hægt var,” sagði Stefán og bað svo fyrir þakklæti til allra, sem að hjálpinni stóðu. SV Stefán Þorleifsson á Hofi. (Vísism. Kriöjón Þ. Neskaups- stað) Margir hyggja á ferðalög um páskana og þessir hressu Frakkar voru að leggja upp i ferð á Snæfellsnes i morgun og ætluðu aö ganga á jökul, ef veöur leyfir. (Visism. EÞS) Hrauneyjarfoss: urgur vegna vinnu Svía J á r n i ð n a ð a r m e n n við Hrauneyjarfossvirkjun eru ósátt- ir við atvinnuleyfi, sem Verka- lýðsfélagið i Rangárvallasýslu mælir með til handa sex Svium. Fjórir þessara Svia munu eiga að vinna við niðursetningu túrbinuhluta i stuttan tima eða um fjórar vikur. Ekki mun auðhlaupið að að fá Islendinga sem hafa reynslu i þeim verkum. öðru máli gegnir um hina tvo. Þeir munu vera r^önir sem sér- fræðingar i suðu á rústfrium rörum.og ergert ráð fyrir að þeir verði lengi, en um þaö verk munu islenskir járniðnaðarmenn fullfærir. Samkvæmt upplýs- ingum fráAsgeiri Magnússyni hjí Stálafl, sem vinnur mikið við Hrauneyjarfoss, biöa tugir járn- iðnaðarmanna eftir að komast í vinnu þar uppfrá. Svavar Gestsson ráðherra sagði fréttamanni að hann vissi litið um þetta mál, en venjan væri sú að atvinnuleyfi væru veitt, að fengnum meðmælum réttra aöila, þ.á m. viðkomandi fagfélaga. — SV. Metdagur á verlíð I Eyjum: Vinna nðtt og dag úr aflanum Einn allra stærsti afladagur á Vertlð Eyjabátanna var i gær, en þá bárust aö landi rúmlega 1170 tonn. Voru margir bátanna svo hlaðnir er þeir komu aö landi i gærkvöldi að þeir liktust fremur drekkhlöðnum loönuskipum, en neta- og trollbátum. Vegna hins mikla afla sem barst að landi, varð að taka þaö til bragðs að isa fiskinn á dekki bátanna. þar sem ekki reyndist unnt að landa úr þeim.Til þess aðhægt sé aö vinna úr öilum þessum afla er ljóst að nótt og dagur veröa lögð að jöfnu næstu daga, eins og þvi verður við komiö um hátiðarnar sem framundan eru. Allir sem mögu- lega geta kriað út fri úr störfum sinum i Eyjum hafa reynt að vinna i fiskvinnslustöðvunum til þess aö bjarga hinum miklu verðmætum sem I húfi eru. Asm.Fr. Vm. VÍSIR ÚSKAR LANDSMÖNNUM GLEÐILEGRA PASKA

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.