Vísir - 15.04.1981, Side 13

Vísir - 15.04.1981, Side 13
vism Reynir Afialsteinsson situr stóöhestinn Gáska 915 frá Gullberastöðum, á sýningu á Melavellinum i Reykjavik. Visismynd EJ Miövikudagur 15. aprll 1981 Skípverjar og útgerð á Kap 2. VE: Gáfu 81 Hús. kr. lll verndaðs vlnnustaðar STÖDHESTURINN GÁSKI SELDUR FYRIR 80 ÞÚS. Stóðhesturinn Gáski 915 frá Gullberastööum hefur veriö seldur til Austurrfkis. Kaupand- inn er Islenskum hestamönnum vel kunnur, Johannes Hoyos. Seljandi hestsins fær 80.000 krónur fyrir hann, en auk þess þarf kaupandinn að greiða 20% álag á kaupverðið i Stofn- verndarsjóð og allan kostnað af flutningi hestsins til Austurrik- is. Heildarverðið er þannig rúmar 100.000 krónur. Stofnverndarsjóður hefur það hlutverk að auðvelda islenskum áhugamönnum að keppa við er- lenda kaupendur um stóðhesta, sem talinn er fengur i að halda i landinu og samkvæmt lögum eiga Islendingar forkaupsrétt- inn á jöfnu verði. Alla tið hafa verið nokkur skoðanaskipti milli manna um hvort rétt væri að flytja út fyrsta flokks kynbótahross, vegna hættu á að það auðveldaði útlendum að koma upp sinni eigin hrossarækt og útiloka okk- ur frá markaðnum. Þessi skoð- anaskipti hafa aukist i seinni tið og þykjast sumir menn sjá þess merki að Danir og Þjóðverjar séu að verða sjálfum sér nógir i uppeldi hrossa af islenskum stofni. SV Skipshöfnin á Kap 2. VE. Taliö frá vinstri: Hjalti Ellasson, Þorkell Arnason, Oddsteinn Pálsson, Rúnar Pálmason, Asgeir Sverrisson, Ægir Pálsson, Einar Ólafsson skipstjóri, Hallgrimur Tryggvason, Baldur Aöalsteinsson, og Helgi Hilmarsson. A myndina vantar þá Ingólf Grétarsson, Gisla Einarsson og meöeigandann Agúst Guömundsson. (Vlsismynd Guöm. Sigf.) Vélbáturinn Kap II. VE landaöi 28 tonnum af netafiski miöviku- daginn 8. april. Þaö er varla 1 frá- sögur færandi þótt netabátur landi 28 tonnum af fiski, en sjald- gæfara er aö útgeröarmenn og á- höfn gefi aflaverömætiö til liknarstarfa, eins og raunin varö á meö þennan afla. Að sögn Einars Ólafssonar skipstjóra og annars eigenda af Kap, kom upp sú hugmynd I ein- um róðri að gefa aflaverðmæti þess afla sem landað yröi mið- vikudaginn 8. apríl til styrktar byggingu verndaös vinnustaðar. Aformað er aö hefja byggingar- framkvæmdir á 504 fermetra húsi innan skamms I Vestmannaeyj- um, þar sem slik starfsemi mun fara fram. Aflaverðmætið sem rann óskipt til byggingar hússins, reyndist vera 81.100 krónur eöa 8.1 milljón gamalla króna, — þannig að hér er um höföinglega gjöf að ræða og sýnir hlýhug skipverja og út- gerðar til þeirra sem minna mega sín I þjóðfelaginu og þurfa á hjálp að halda til þess að geta unnið vinnu við sitt hæfi. A Kap II. eru 12 menn á sjó. Ef aflaverðmæti er deilt jafnt niður á þennan hóp, samsvarar það þvi að hver skipverji hafi gefið 6750 krónur. Þetta stórmannlega framtak skipverja á Kap er glæsilegt fordæmi sem vonandi á eftir aö veröa öðrum hvatning til þess aö leggja sitt af mörkum. AS.FR.VM. í Búlgarlu bjóðum við upp á eitt glæsilegasta hótel í Evrópu — Grand Hótel Varna. Almennt viðurkennt af þeim, sem gist hafa þar, sem það besta. A Hótelinu eru auk rúmgóðra herbergja og ,,svita”, þrir veitingastaðir, Cafe-teria, þrir barir, næturklúbbur, heilsuræktarstöð, bowling, billard, coreconbúðir og úti- og inni-sundlaugar, góð baðströnd og Sauna. Allt á sama stað. Auk þess bjóðum við fjögur 1. flokks hótel á sólarströndinni, öll með baði, WC og svölum. Ein stærsta baðströnd Evrópu. Við fljúgum i áætlunarflugi Flugleiða til Kaupmannahafnar og strax á eftir með þotum Balkanairlines til Sofiu. frá Sofiu til Rilaklausturs, Plovdiv Þar bjóðum við upp á vikuferð Gabrovov, Velikov, Turnevo og Varna. 7 daga ferð 1. flokks hótel fullt fæði. A baðströndunum bjóðum við 1-2-3 vikur og 4 vikur, ef ekki er farið í viku- ferðina. Vinsælt matarmiðakerfi, eins og peningur i vasa. Þú borðar hvar sem er, hvenær sem er og hvað mikið sem þú vilt. 50% uppbót á erlendan gjaldeyri, ef skipt er á hótelum. Iðandi baðstrandarlif, en einnig fjöldi tækifæra til að fara i skoðunarferðir um landið og á lystiskipum er tveggja daga ferð til Istanbul og þriggja daga ferð til Yalta — Istanbul og Odessa — Yalta. Skipsferðir greiðast hér heima. Flogið alla mánudaga frá 25. mai-14. sept. Hægt að stoppa i Kaupmannahöfn i bakaleið. Sumarferðir eru að fyllast. Bókið strax. Ekki missir sá sem fyrstur fær. ódýrasta og ein besta orlofsferð, sem völ er á hér á landi. Spyrjið þá sem hafa farið Ferðaskrifstofa KJARTANS HELGASONAR Gnoðavog 44 -104 Reykjavik - Simi 86255 íslenskir fararstjórar i Búlgariu, i Söfiu og á ströndinni

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.