Vísir - 15.04.1981, Side 16
16
m S KU R
óskor eftir 2ja-0ja herbergja
íbúð fyfif starfsmann sinn
Æskileg staðsetning í HóQleitishverfi
Tilboð sendist ougld. Visis fyrir
24. opríl merkt „íbúð 37571"
vism
islensk fyrirtækl 1981:
Miklar og ftarlegar
upplýsingar í bókinni
' Uppsláttarbókin tslensk fyrir-
tæki er komin út i ellefta sinn,
meö itarlegri og meiri uppiýsing-
um en nokkru sinni.
í bókinni finnast upplýsingar
um fyrirtæki, sveitarfélög, stofn-
anir og félög, sendiráð og fjölda
margt annað.
Bókin er unnin i samstarfi við
stjórnendur fyrirtækjanna, sem
skráð eru i fyrirtækjaskrá og
ferðuðust starfsmenn útgáfunnar
um allt land meðan bókin var i
undirbúningi.
Bitstjóri bókarinnar er Marta
Eiriksdóttir, en Erla Einarsdóttir
hafði umsjón með vinnslu.
Bókin er 880 bls. að stærð i
vönduðu bandi. Frjálst framtak
gaf út. SV
Miðvikudagur 15. áBrí> l981-
Umsjónarmenn bókarinnar ,,ts-
iensk fyrirtæki 1981”, Erla
Einarsdóttir og Martha Eiriks-
dóttir, ritstjóri.
Smokey and the Judge
Smokey og dómarinn
Splunkuný frá USA
M ökkur Kökkur og Dalli dómari eiga í erf iðleikum
með diskótríó litla bæjarins. Eltingarleikur um holt
og hæðir með „Bear in the Air" Hound on the
Ground.
Ef þú springur ekki úr hlátri grípur músíkin þig
hel jartökum.
Sýnd kl. 5-7-9 og 11 skírdag/ laugardag og 2. páska-
dag
Undrahundurinn
Sýnd kl. 3-2. páskadag
Hótel Loftleiðir
Óskum eftir að ráða strax röska
konu til starfa við uppþvott.
Upplýsingar veittar á skrifstofu
hóte/stj'óra.
SÍMINN
34420
Opið mánud.-föstud.
kl. 9-18
Opið laugardaga
hárgreiðslumeistari ^
Hárgreiðslustofan Gígja
Stigahlíð 45 - SUDURVERI
2. hœð - Sími 34420
Efla parf
Brunamála-
stofnunina
- seglr l nefndarálitl
Lög um brunavarnir og bruna-
mál hafa verið til endurskoðunar
I nefnd, sem félagsmálaráðherra
skipaði i mars i fyrra. Nefndin
hefur nú skilað áliti og eru helstu
niðurstöður hennar þessar:
Brunamálastofnun rikisins er
með núverandi starfsskiptingu og
starfsmannafjölda ekki nægilega
öflug til að rækja iögboðin verk-
efni sin svo viðunandi sé.
Nefndin telur að stofnunin eigi
að starfa áfram á sama grund-
velli og hingað til og að hún verði
efld með hæfum mannafla.
Nefndin telur fráleitt að fella
starfsemi stofnunarinnar undir
Vinnueftirlit rikisins, en að stofn-
unin eigi að hafa náið samstarf
viðaörar stofnanir.sem um skyld
mál fjalla. _sv
Félag stjúrnenda
I ðldrunarpjónuslu
Stofnað hefur verið félag
stjórnenda i öldrunarþjónustu og
er félagið landsfélag. Tilgangur
félagsins er að berjast fyrir
starfslegum hagsmunum félags-
manna svo þeir geti orðið hæfari
til að gegna starfi sinu. Þá mun
félagið berjast fyrir markandi
stefnu i starfsemi heimilanna,
hagsmunum þeirra og vistfólks-
ins.
Þá er það hlutverk félagsins að
gæta launalegra hagsmuna
félagsmanna og aðstoða þá innan
viðkomandi launþegasamtaka
sem fara með samningsmál
þeirra.
A stofnfundinn mættu tuttugu
og niu manns, en mun fleiri hafa
óskað eftir aðild að félaginu.
Stjórn félagsins var kjörinn á
stofnfundinum, en formaður
hennar er Pétur Sigurðsson, al-
þingismaður.
Sparlslóður R.vlkur:
umsvlfin
aldrei meiri
Umsvif Sparisjóðs Reykjavikur
og nágrennis jukust meira á
siðastliönu ári en nokkru sinni
fyrr i 49 ára sögu sparisjóðsins.
Fjöldi viðskiptavina sem erindi
áttu i afgreiðslu sjóðsins, meira
en tvöfaldaðist á árinu. Af þeirri
ástæöu hefur sparisjóöurinn tekifi
tileigin afnota aðra hæð i húseign
sinni að Skólavörðustig.
Eignaliðir á efnahagsreikningi
sjóðsins jukust um 38 milljónir á
árinu eða um 75 prósent. Inni-
stæðuaukning varð 32 milljónir,
eða 65 prósent aukning og námu
innistæður I árslok rúmum 80
milljónum króna.
Heildarútlán sjóðsins jukust
um 62 prósent á árinu, þar af voru
ibúðalán 71 prósent.
Lausaf járstaða gagnvart
Seðlabankanum var góð, en inni-
stæða á viðskiptareikningi i árs-
lok var 6,47 milljónir króna.
Stjórn Sparisjóðs Reykjavikur
og nágrennis skipa Jón G.
Tómasson, sem er formaður,
Agúst Bjarnason og Sigursteinn
Arnason. Sparisjóðsstjóri er
Baldvin Tryggvason. —ATA
Steingrímur
sýnir í Eflen
Steingrimur Sigurðsson list-
málari, opnar sina 44. einka-
sýningu i Eden i Hveragerði i
kvöld.
A sýningunni eru 35 myndir,
allar nýjar. Þetta eru einkum
vatnslita- og oliumyndir og svo
teikningar. Viðfangsefnið er af
ýmsu tagi, svo sem myndir frá
sjónum, blóma-, andlits- og
hestamyndir og fantasiur alls
konar. Sýningunni lýkur á annan
dag páska.
Vill dragnót I
Faxaflóa
Bæjarstjórn Njarðvikur sam-
þykkti á fundi i siðustu viku
áskorun til Alþingis um að sam-
þykkja takmarkaðar dragnóta-
veiöar i Faxaflóa. Benti bæjar-
stjórnin á, að slikar veiðar hefðu
tvö siðustu ár veitt um 60 manns
atvinnu i Njarðvik yfir sumar-
mánuðina, þegar flest fólk er á
vinnumarkaðnum. HERB
Punktur punktur komma strik...
Á breiðskífu
Svart á hvítu
Vesturgötu 3 — Sími 13339