Vísir - 15.04.1981, Side 24

Vísir - 15.04.1981, Side 24
24 VÍSHl Miðvikudagur 15. aprll 1981 lesendur hafa oröiö Fokker- flugvélarnar: Er manns' Iffum teflt (hættu? „Kennari" hringdi: Standast Fokker-flugvélar Flugfélagsins ekki lengur ströng- ustu öryggiskröfur sem geröar eru til flugvéla? Miðaö viö tiöni bilana i þessum flugvélum uppá siðkastið hlýtur þessi spurning að vera býsna áleitin. Siðustu mán- uðina hefur hver bilunin rekið aðra i innanlandsfluginu og um þerbak hefur keyrt siðustu vik- umar. Getur virkilega veriö að fdlki sé boðið uppá farkosti, sem eru svo lasnir að mannslifum sé teflt f hættu? Ég vil i lengstu lög vona að svo sé ekki, en bilana- titnin siðustu vikurnar gefur sið- ur en svo fyrirheit um að allt sé i stakasta lagi. Ég leyfi mér að skora á VIsi að rannsaka þetta mál ofan i' kjölinn. Allir vita að Fokkerflugvélarnar eru komnar nokkuð til ára sinna og það getur auðvitað, enginn við það unað, að Islendingum sé boðið uppá annars flokks flugvélar. „Hvers vegna eru nær engin tvö umferðarljós I höfuðborginni eins?” spyr varkár vegfarandi. Umferðin i hðiuðborglnni: Af hverju margar gerðlr af gang- brautaljðsum? »Varkár vegfarandi" sendi þessar linur: „Mig langar til þess að varpa fram þeirri fyrirspurn til ráðandi manna I umferðarmálum i höfuð- borginni, hvers vegna nærri engin tvenn gangbrautaljós i borginni eru eins, né eins fyrir komið. Þessi ljós eru breytileg og afar mislangt er frá þeim að gang- brautunum. Þetta er ruglandi. Ef 16 ára norsk i lelt að pennavini Elisabeth Ninaus Store Reistad 3425 Reistad Norge Erl6 ára yngismær, sem hefur mikinn áhuga á hestamennsku. HUn óskar eftir pennavini, stelpu eða strák á aldrinum 16-18 ára, sem helst er skrifandi á einhverju Norðurlandamálanna eða ensku. ég man rétt, er einnig munur á gangbrautaljósum i Reykjavik og nágrannabæ junum. Að sumu leyti má segja það sama um gatnamótavitana fyrir akandi umferð, þar er misræmi, t.d. hvað snertir vinstri beygjur. Hvers vegna er ekki samræmi i þessu, sem i fljótu bragði virðist vera ein forsenda þess að ljósin komi að réttum notum og valdi ekki i staðinn slysahættu? Bannið popp- kornið Guðbjörg skrifar: Farðu heldur upp á mæni og gaiaðu par Árrisull hringdi: Mér fannst með öllu órétt- mætt að veitast að einum besta útvarpsmanni okkar Valdimar ömólfssyni á Lesendasiðu Visis fyrir nokkrum dögum. Morgunhani telur þar miður æskilegt að /aldimar söngli i morgunleikfhninni, sem mér finnst á hinn bóginn mjög hress- andi og skemmtileg tilbreyting sem er góðra gjalda verö. Við eigum of fáa góða út- varpsmenn til þess aö réttlæta að veitast að þeim á þennan hátt. Ég hef aðeins eitt ráð til morgunhanans, ef honum finnst þrengt að sönghæfni sinni i morgunleikfiminni, en það er aö hann fari bara upp á mæni og gali þar. ER EKKERT HÆGT A0 GERA UIH PáSKANA? S.T. skrifar: NU nálgast sá timi óöum, sem fjölskyldan hefur það náðugt, en mér sýnist að um þessa páska sé ekkert hægt að gera i borginni. Ef frá eru talin bióin, þar sem maður er búinn aö sjá flestar myndimar áður en páskafriið kemur, sömu dansstaðimir og sömu sýningarn- ar, þá er ekkert nýtt um aö vera um páskana. Svo eru menn að tala um aö það sé einkennilegt þótt margir lendi á heljarinnar fyllerii i friinu sinu. Hér á landi eru engir tennisvellir, erfitt er aö komast i' golfið og allir iþróttasal- ir uppteknir af þrautþjálfuðum iþróttamönnum, sem bundnir eru i félögum, svo litið er eftir fyrir okkur hina, sem vilja svona rétt halda sér viö I sportinu. Þá tekur ekki betra viö ef mað- ur ætlar að fara i billiard, allt er yfirfullt af unglingum svo maöur hefur enga ánægju af leiknum, og bowling geta þeir bara stundað á Keflavikurflugvelli, og þangað fer ég nií sjaldnast. Er ekki hægt að gera verulegt átak i þessum málum? Er ekki hægt að bjóða uppá fleiri mögu- leika i' þessu þjóöfélagi. Mér sýn- ist sifellt vera minna hugsað um þetta sérstaklega nú þegar menn eru alltaf aö tala um þéttingu byggðar og að planta húsum þar sem hefðu getað veriö skemmti- legir tennisvellir, eða önnur að- staða til leiks og útiveru. Hvenær ætla borgararnir að fara að segja eitthvað og krefjast þess sem löngu þykir sjálfsagt erlendis. Við höfum þetta daglega fyrir augum okkar þegar við förum til sólar- landa. Og það þarf enginn að segja mér að ekki sé hægt að koma upp svipaðri aöstöðu hér, ef við gerum ákveðnar ráðstafanir til þess að verjast veðri. Ég geri nií ekki mikiö af þvi að fara i kvikmyndahús og hef reyndar ekki gert þaö árum sam- an. Ég brá þó út af vananum fyrir skömmu, aldrei þessu vant, þvi það var kvikmynd i einu kvik- myndahúsanna hér i borg, sem ég hafði augastaö á. En svei, betur hefði ég setið heima. Þegar ég kom inni húsið sá ég, aö ungir sem-aldnir þustu að einhverju boröi þar i anddyrinu. Þegar ég gáði að, sá ég, aö þar var selt sæl- gæti og gaf ég þvi ekki frekari gaum. NU, þegar myndin átti um það vilaö hefjast, settist ég i sæti mitt og myndin var vart byrjuð fyrr en þessi óskapar læti upphóf- ust, svo varla heyrðist mannsins mál af hvita tjaldinu. Ég fór að lita i kringum mig og sá ég þá mér til skelfingar, að allt i kring- um mig voru menn og konur með fangið fullt að þessu viðbjóðslega hænsnafóðri, sem gengur vist undir nafninu poppkorn eða eitt- hvaö álika. Og annar eins hávaði. Menn bruddu þetta og jöpluðu á þessu af öllum lifs og sálarkröft- um með slfkum tilburðum að mér var bara ekki vært. Ég reyndi að sussa á menn, en það var eins og að tala við steinvegg. Það var ekki hlustað á mig, bara brosaö með tUlann fullan af þessum hrotta. Það var farið aö siga ofur- litið I mig, svo þetta fór kannski meira i taugarnar á mér en ella. Ég lét samt sem ekkert væri. En þegar fór að halla undir hléið versnaði ástandið. Sátuekki fyrir aftan mig einhverjir unglingar og þeir voru ekki betur uppaldir en það, aö þeir hentu alltaf yfir mig tómu hænsnafóðurpokunum jafn- skjótt og þeir luku úr þeim og þá var ég bUin að fá nóg og stóð upp og fór heim. Þvi segi ég þetta: banniö popp- kornið og það strax, fyrr fer ég ekki i kvikmyndahús. Hringið i síma 86611 millí kl. 14 og 16 eða skrifið tii biaðsíns

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.