Vísir - 25.05.1981, Page 32
VtSXB
Mánudagur 25. maí 1981
síminner 86611
Veöurspá
úagsíns
Vestur af Skotlandi er nærri
kyrrstæð 995 mb lægð og
grunnt lægðardrag fyrir suð-
vestan land, þokast suður.
Yfir norðaustur-Grænlandi er
1027 mb hæð. Hiti breytist lit-
ið.
Suðurland: Austan- og norð-
austangola, dálltil rigning og
silld fram eftir morgni, siðan
heldur bjartara, en liklega
skUrir með kvöldinu.
Faxaflói og Breiðafjörður:
Austangola, viða dálitil rign-
ing fraraeftir morgni, en siðan
skýjað meö köflum.
Vestfirðir: Norðaustan gola
og skyjað meö köflum.
Strandir og Norðurland
vestra: Hægviðri, viða þoka i
fyrstu, en bjart með köflum,
þegar kemur fram á daginn.
Norðurland eystra: Hægviöri
og bjart meö köflum. Þykknar
liklega upp 1 nótt.
Austurland að Glettingi og
Austfirðir: Austangola og viða
þokuloft eða sUld fram eftir
degi, en noröaustan kaldi og
þokusUld eða rigning i nótt.
Suöausturland: Austangola
eða kaldi, en norðaustlægari i
nótt, dálitil sUld austan tál,
skjfjað að mestu vestan til, og
liÚega skUrir siðdegis.
VeöPiö hér
og Dar
Akureyri léttskýjaö 8, Bergen
alskýjað 11, Kaupmannahöfn
hálfskýjað 12, Osló þokumóða
14, Reykjavik rigning 8,
Stokkhólmur þokumóða 10,
Þórshöfn rigning 8.
Aþena alskýjaö 15, Berlfn
rigning 13, Feneyjar alskýjaö
20, Frankfurt léttskýjað 17,
Nuuk slydda 0, London létt-
skýjað 14, Luxemhurg létt-
skýjað 14, Las Palmas létt-
skýjaö 22, Mallorcaskýjað 20,
Paris skýjað 13, Róm skýjað
21, Malaga heiðskirt 20, Vfn
rigning 16.
Belgar Dverbrlóta samninga um borskveiðar í landhelgi
og fara langt upp fyrir leyfileg mörk:
KRAFIST FIINDAR
OG STÖÐVUNAR VEIÐA
„Viö erum ergilegir yfir þessu
og við erum að senda Belgum,
gegnum utanrikisráðuneytið,
kröfu um fund og stöðvun veiða,
þar til þetta veröur leiðrétt og
tryggt á einhvern máta.” Þetta
sagði Steingrimur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra, þegar
fréttamaður spurði hann um,
hvað gert verði vegna samnings-
brota Belga i veiðum I landhelg-
inni.
Þaö upplýstist, mest fyrir at-
beina Jóns Olgeirssonar i
Grimsby, að hlutfall þorsks i afla
belgiskra togara, sem hafa land-
að I Bretlandi, hefur oft farið
langt yfir hin umsömdu 15%,
jafnvel allt upp i 90%.
Svo virðist sem breskir fisk-
kaupendurhafi aðstoðað Belgana
með þvi að gefa upp rangar tölur,
að þvi er Steingrimur sagði. Jón
Olgeirsson lét fylgjast með lönd-
unum togaranna og nánast telja
upp úr þeim, en það passaði ekki
við uppgefnar tölur. Nú mun hins
vegar orðin breyting þar á, og þá
um leið varð upplýst, svo að ekki
er um að villast, að þorskaflinn er
meirienum varsamið, „Það var
erfitt fyrir okkur að gripa i taum-
ana fyrr,” sagði Steingrimur,
„þvi að skýrslunum, sem okkur
bárust, bar ekki saman. Nú ber
þeim saman, að þvi marki, að það
verður ekki véfengt, að þeir eru
með miklu meiri þorsk en þeir
hafa gefið upp. Enda geta þessi
skip ekki verið að veiðum hér inn-
an um okkar skip, þar sem mok-
þorskveiði er, og fengið bara 15%
þorsk. Það er bara ekki hægt,”
sagði ráðherrann.
Hann taldi óvist, að belgiskum
stjórnvöldum væri kunnugt um
þessisamningsbrot skipanna, þar
sem þeim hefði trúlega einnig
verið gefnar upp hinar röngu töl-
ur.
SV
Það var fullt út 'úr dyrum I reisugilli hjúkrunarhcimilisins og gestir gæddu sér á kleinum meö kaffinu. Taliö er að um þrjú þúsund manns hafi
komiö I veisluna. (Visism.: ÞL).
Hjúkrunarheimíli aldraðra í Kópavogi:
UIH 130 ÞUSUND KRONUR
UARUST f REISUQILLIB
Reisugilli hjúkrunarheimilis
aldraðra I Kópavogi var haldiö
um helgina, og rikti þar meiri-
háttar stemmning með kaffi og
kleinum, ásamt ávaxtasafa fyrir
yngstu velunnara heimilisins.
Forseti íslands, ráðherrar og
þingmenn létu sig ekki vanta.
I hinu nýreista húsi verða rúm
fyrir 38 sjúklinga. Fyrsta skóflu-
stungan var tekin i janúar 1980 og
ráðgert er að taka húsið i notkun
á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
Búið er að láta i húsið 3,8 milljón-
ir eins og það stendur i' dag og þar
af eru 60% frá bæjarbúum og vel-
unnurum framkvæmdarinnar.
Rikið sleppur slétt úr dæminu
með 20% gjöf, sem er sama
upphæð og greiða verður til þess
með aðflutningsgjöldum og sölu-
skatti, og 20% koma frá Kópa-
vogsbæ. Aætlaður heildarkostn-
aður við bygginguna er 7—8
milljónir. Enn bættist heimilinu
styrktarfé i reisugillinu, alls 130
þúsund, og þar gaf Gisli Sigur-
björnsson á Grund 100 þúsund
krónur.
— AS.
Lokl
UNGIR PILTAR ALVARLEGA
SLASAÐIR EFTIR BÍLVELTU
segir
Mér er sagt, að álskýrslan,
sem Hjörleifur átti von á frá
London, hafi týnst I hafi.
Tveir piltar á aldrinum 14 og 15
ára slösuðust alvarlega i umferö-
inni á Garðvegi um klukkan 2 á
aðfararnótt sunnudags.
Piltarnir tveir, sem eru frá
Keflavik og Njarðvik, höfðu tekið
bil ófrjálsri hendi og ekið eftir
Garðvegi. Við Golfskálann við
Leiru viröist billinn hafa kastast
út af veginum og stungist niður á
framendann. Piltarnir köstuðust
báðir út úr bilnum og var annar
um 30metra frá honum, er að var
komið, svo aö höggiö virðist hafa
veriö gifurlegt. Þeir voru báðir
fluttir á Borgarsjúkrahúsið, á
gjörgæsludeild, þar sem þeir voru
i gærkvöldi, er Visir spurðist fyrir
um þá.
—AS