Vísir - 29.05.1981, Síða 8

Vísir - 29.05.1981, Síða 8
vfsm Föstudagur 29. mai, 1981 VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjbri: Sæmundur Guðvinsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Arni Sigfússon, Friða Astvaldsdótt- ir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjóns- son, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaður á Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. Iþrótt- ir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. Utlitsteiknun: Magnús Ölafsson, Þröstur Haraldsson. Safnvörður: Eiríkur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611, 7 linur. Auglýsingarogskrifstofur: Siðumúla8, símar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, sími 86611. Askriftargjald kr . 70 á mánuði innanlands og verð i Iausasölu4 krónur eintakið. Vísir er prentaður i Blaðaprenti, Síðumúla 14. VANTRU A VERÐSTOBVUN Samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar, sem Visir gerði nýlega, og skýrt er f rá hér í blaðinu í dag, telja fæstir sig hafa fundið, að hér hafi átt að ríkja verðstöðvun síðustu mán- uðina. Þessi niðurstaða þarf engum að koma á óvart. í fyrsta lagi hafa verulegar verðhækkanir orðið á þessu síðasta svonefnda verð- stöðvunartímabili, og hefur hið opinbera á mörgum sviðum gengið fram fyrir skjöldu í verð- hækkununum. Það þarf því engan að undra, þótt almenning- ur finni fyrir hækkandi verðlagi, og þá ekki síst húsmæðurnar, sem annast hin daglegu innkaup heimilanna. í öðru lagi er vantrú á slíkum aðgerðum í efnahagsmálum eins og verðstöðvunaraðgerðum orðin landlæg hér. Að nafninu tii hef ur samfelld verðstöðvun verið hér á landi í meira en heilan áratug. Þó hafa verðhækkanir aldrei verið meiri en einmitt á þessu sama tímabili. Þessi reynsla leiðir það af sjálfu sér, að almenningur í landinu getur enga trú haft á hin- um svokölluðu verðstöðvunarað- gerðum, enda verður hver ný verðstöðvunin aðeins tilefni til gamanmála. Af því er orðin löng reynsla, að lög og aðrar reglur opinberra aðila um verðstöðvun duga skammt i baráttunni gegn verðhækkunum. Er raunar óhætt Verðhækkanirnar hafa haldiö áfram þrátt fyrir svokallaöa veröstöövun undanfarna mánuöi. Þetta finna engir betur en húsmæöurnar, sem annast hin daglegu innkaup heimilanna. að fullyrða, að venjulega verði áhrifin þveröfug við það, sem ætlast er til. Þegar óhjákvæmi- legum verðhækkunum er haldið niðri um eitthvert skeið, er í raun og veru aðeins verið að safna i sarpinn fyrir enn meiri verðhækkanir síðar. Aðgerðir núverandi ríkis- stjórnar í verðlagsmálum, sem ætlað hefur verið að halda verð- lagi niðri, eru einmitt með því marki brenndar, að þar er verið að safna saman vandamálum til síðari tíma. Það er ekki einungis verið að búa ti! vandamói, sem mun erfiðara verður að greiða úr síðar, heldur er jafn- framt verið að leiða til ýmiss konar ranglætis. Gott dæmi um slíkt ranglæti er sementshækkun- armálið, sem bar sem hæst fyrir skömmu. Fyrir sl. áramót var talið, að hækka þyrfti sementsverðið um tæplega 20%, til þess að tryggja hallalausan rekstur Sements- verksmiðju ríkisins. Þessi hækk- un var þó ekki látin ná fram að ganga fyrr en rekstur Sements- verksmiðjunnar var að stöðvast, en þá var ástandið orðið þannig, að hækkunarþörfin var orðin 30%. Alla þá mánuði, sem ekki var leyft að hrófla við sements- verðinu, höfðu sementskaupend- ur fengið keypt sement langt undir raunvirði. Og hverjir ætli komi til með að borga kostnaðinn af því? Jú, það eru þeir, sem kaupa sement eftir að rétt verð er komið á það, þ.á.m. sá hluti verðsins, sem til er kominn af taprekstri Sementsverksmiðj- unnar undanfarna mánuði. Þannig verða það kannski húsbyggjendur í sumar eða haust, sem verða látnir borga hluta steypukostnaðarins fyrir þá, sem hafa verið að byggja á fyrri hluta þessa árs! Eðlilegu ástandi í verðlags- málum verður aldrei komið á nema með frjálsræði í þessum málum. Þetta eru stjórnmála- menn hjá f lestum nágrannaþjóða okkar fyrir löngu búnir að upp- götva, enda er verðbólga þar ekki nema lítill hluti af þeirri verðbólgu sem við búum við. Þrákelkni stjórnmálamanna og stjórnvalda hér á landi er vægast sagt furðuleg. Allir eiga fyrir löngu að vera búnir að sjá, að svokallaðar verðstöðvanir gera lítið annað en skapa aukna verð- bólgu. Að minnsta kosti er það óumdeilanleg staðreynd, að verðstöðvun er gagnslaus meðal gegn verðbólgunni. Er nokkru hætt, þótt við reynum ein- hverntíma a.m.k. hvernig gagn- stæð stefna, frjálsræði í verð- lagsmálum, gagnar okkur? Amnesty international 20 ára: Viöa er barist hart gegn rétti manna til andófs. Þess vegna munu mannréttindi eiga undir högg aö sækja á niunda áratugn- um, segir i grein frá Amnesty International. A morgun 28. mai er 20 ára afmæli samtakanna og á þeim timamótum kalla þau eftir alþjóöasamstarfi i baráttunni fyrir mannréttindum. Beinist sú barátta aö þvi um allan heim aö byggja upp almenningsálitiö og stuöla aö bættri lagasetningu vegna mannréttindamála. Heita samtökin þvi aö efla enn sitt eigiö starf og vonast eftir þvi aö tala þeirra sem taka ákveöiö meö i blokkina til varnar mannréttind- um tvöfaldist á næstu tveimur ár- um. Pyndingar og morö, mannrán og fangelsanir án dóms og laga eru skipulega iökuö i fjölmörgum löndum, segir i grein Amnesty. Dauöatölur af þessum orsökum fara ört hækkandi. Viöa um heim er ekki aöeins samvizkufrelsiö undir hæl stjórn- valda, lif samvizkufanganna eru einnig i hættu. Amnesty tekur örfá dæmi af þeim langa lista yfir riki þar sem ofbeldi er beitt af opinberum aöil- um. Þar kemur m.a. fram aö þús- undir hafa látiö lifið fyrir hendi erindreka stjórnvalda i Guate- mala. t Argentinu og Filippseyj- um hafa öryggissveitir rænt fólki sem siðan hefur horfið sporlaust, i Suöur Afriku og Malasiu er fólki haldiö langtimum i fangelsum án réttarrannsóknar, og andófs- menn eru dæmir i þrælkunar- vinnu i Sovétrikjunum. Stofnun Amnesty International má rekja til greinar sem birtist i breska blaðinu The Observer 28. maí 1961 þar sem var höföað til almennings að starfa saman að þvi aö þeir fangar yröu leystir úr haldi sem fangelsaöir voru ein- vöröungu vegna skoöanna sinna eöa uppruna. Amnesty byggir á starfi og fjárstuöningi hins al- menna borgara 20 ára reynsla samtakanna sýnir glögglega aö viðbrögö almennings viöa um heim geta orðið samvizkuföngum til bjargar. Sjálfstæöi Amnesty gagnvart stjórnvöldum byggist ennfremur á fjárhagslegu sjálfstæöi samtak- anna. Fjárframlög einstaklinga greiöa reksturskostnaö samtak- anna. Rúmlega 250 þúsund karlar og konur eru nú virk i starfi á vegum Amnesty International.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.