Vísir - 29.05.1981, Page 16

Vísir - 29.05.1981, Page 16
Föstudagur 29. mal, 1981 Viðamikil ráðstelna , 10 télaga i Reykjavík: A að varðveita Elliðaárdalinn? Elliðaárdalurinn verður til um- ræðu á ráðsteínu sem Framfara- félag Seláss- og Árbæjarhverfis gengst fyrir næstkomandi laugar- dag i Félagsheimili Rafveitunnar við Elliðaár. Umræðuefnið tengist Elliðaár- dalnum, sem náttúrufyrirbæri i borginni og hlutverki hans fyrir nærliggjandi byggðir, svo og þá starfsemi sem þegar er tengd Elliðaárdalnum, Elliðaánum og Elliðavatni ásamt Heiðmörk. Ráðstefnan er byggð upp á stutt- um og fræðandi erindum er spanna vitt svip þeirra þátta er varða Elliðaárdalinn. 15 fram- sögumgnn flytja þessi yfirlitser- indi en siðar um daginn verða pallborðsumræður þar sem niðurstöður þessara erinda eru dregnar saman, og velt upp spurningum Hvar hætturnar liggi i dalnum, til hvers og hvernig eigi að varðveita dalinn o.s.frv. Ráðstefnan er öllum frjáls meðan húsrúm leyfir, en einfald- ar veitingar verða bornar fram á staðnum. Tiu félög og stofnanir hafa komið til samstarfs um þessa ráðstefnu, og er þvi ein- stakt tækifæri fyrir áhugasama borgara um varðveislu og skipu- lag Elliðaárdalsins, að fá þá heildarmynd um hann sem veitt verður á ráðstefnunni. —AS Aðalfundur Blaðamanna félagsins Aðalfundur Blaðamannafélags Islands verður haldinn á morgun, laugardag i húsakynnum félags- ins að Siðumúla 23 og hefst klukkan 14. A dagskrá eru venju- leg aðalfundarstörf, þar á meðal kosning formanns. Kjararannsóknanelnd Kjðrin könnuð um lanfl allt * Þessar vikurnar stendur Kjararannsóknarnefnd fyrir eins konar hálkueyðingu vegna aðlið- andi kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum. Erhún i formi könnunar hjá 4.000 fyrirtækum innan VSl og'VMS á vægi eða þýð- ingu hvers starfs og á starfs- aldri. En ágreiningur um tölfræöi i þessum efnum olli miklu róti i siðustu kjarasamningum eins og oft áður. A fundi sem nefndin hélt i gær til þess að kynna fjölmiðlum þessa könnun, sögðu talsmenn VSt, VMS og ASt, að i rauninni væru þeir enn ósammála um niðurstöðu siðustu samninga að þessu leyti. bað voru þeir Þor- steinn Pálsson, Július K. Valdi- marsson og Ásmundur Stefáns- son, sem þetta sögðu, og skýröu mikilvægi þess aö fá nú botn i þetta mál, er. réttar upplýsingar um það lúta að réttlátri skiptingu þeirra launabreyinga, sem um er að ræða hverju sinni. Um leið og þessir aðalþættir eru kannaðir, er einnig spurt um tiðni hlutastarfa, kyn starfs- manna, fag- og sérhæfingu, stéttarfélög starfsmanna og loks vinnufyrirkomulag og launakerfi og tiðni vaktavinnu, ákvæöis- vinnu og bónusvinnu. Sem fyrr segir hefur um 4.000 fyrirtækjum verið sent bréf meö beiðni um aö gefa skýrslur um hvern starfsmann sinn. Þetta eru flest öll fyrirtæki i landinu. Úrvinnsla verður I tölvu og öll meöferð gagna trúnaðarmál. Er jafnvel ekki gert ráð fyrir þvi, að gefin séu upp nöfn starfsmanna á skýrslunum, ef ekki er vilji fyrir þvi, og þá látið nægja auðkenni eða númer, sem hægt væri að nota vegna frekari fyrirspurna hjá fyrirtækjunum út af einstök- um skýrslum. Þeir þremenningarnir, sem áð- ur voru nefndir, og Björn Björns- son og Sveinn úlfarsson, starfs- menn Kjararannsóknarnefndar, sögðu fréttamönnu, að góð og helst tæmandi þátttaka fyrirtækj- anna i þessari könnun, ásamt samstöðu aðila vinnumarkaðar- ins um hana, myndi að öllum likindum hafa ómetanlega þýð- ingu til þess að eyða ágreiningi og tortryggni við gerð næstu kjara- samninga og i allri samvinnu um kjör á vinnumarkaðnum. Stefnt er að þvi að vinna úr skýrslunum i sumar, en þeim var dreift um sið- ustu mánaðamót og eru nú sem óðast að berast útfylltar aftur. Loks kom fram á kynningar- fundinum að þær upplýsingar- sem nú yrði aflaö, ásamt upplýsingum um kjör i reglu- bundnum könnunum Kjara- rannsóknarnefndar, svo og upp- lýsingum byggðum á skattafram- tölum, gæfu heillega mynd af kjörum launþega i landinu, svo og margs konar skiptingu milli kynja, stétta og starfshópa. Einn- ig og ekki slður þess vegna væri þessi könnun ákaflega mikilvæg- ur áfangi. HERB Myndasagan Dallas í Heigar- blaöl Vísls Nú kemur hinn vinsæli „Dall- as” þáttur sjónvarpsins á siður Helgarblaða Visis i formi mynda- sagna sem blaðiö hefur fengið frá Bandarikjunum. Fyrirmyndirnar eru leiknarar þáttanna sem flestir sjá á skján- um á miðvikudagskvöldum og nú geta lesendur helgarblaðs Visis fylgst með ástum og sorgum Ewings fjölskyldunnar, góðum meðlimum og illum og séö hvernig lifið gengur hjá stórrik- um bandariskum oliufélögum og fjölskyldum tengdum þeirm. Birting myndasögunnar Dallas hefst i Helgarblaöi Visis á morg- un og þá birtum viö góöan skammt. Siðan veröur mynda- sagan fastur þáttur i Helgarblaö- inu á hverjum laugardegi. Nú er um að gera að fylgjast meö frá byrjun. Bandariski myndaflokkurinn Dallas hefur vakið mikla athygli i þeim löndum þar sem þátturinn hefur verið tekinn á dagskrá sjón- varpsstöðva. Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti þessara þátta, en þeir hafa þó öðlast traustar vin- sældir fjölmargra bæði vestan hafs og austan. tslenska sjónvarpið hefur fest kaup á góðum skammti af Dallas-þáttunum og nú geta lesendur Visis lika fylgst með þáttunum á prenti. hressir betur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.