Tíminn - 13.11.1969, Page 2
2
TÍMINN
Flestir, sem einhvern tíma hafa
legið á sjúikrahúsi, kannast við,
hvernig það er, að láta vekja sig
eldsnemma á morgnana til að
mæla hitann. Nu ætti þetta bráð-
lega að tilheyra fortíðinni því i
komið er á markað tæki það,!
|
sem þessi mynd er af. Tækið mæl-
ir hita sjúklinganna eftir inn-'
rauðum geislum, sem húðin stafar
frá sér. Þannig á ekki einu sinni,
að þurfa að vekja sjúklinga til að
mæla hita þeirra. (mynd UPI)
Loks fá Sunnlendingar þurrkinn
STJAS-Vorsabæ, miðvikudag.
Hér er heiður himinn og sól-
skin flesta daga, en sá er munur-
inn, á þessum ágæta norðan-
þurrki, sem bændur á Suðurlandi
biðu eftir í mieira en fimm mán-
uði s.l. sumar, að nú kemur mik-
ið frost með norðanáttinni og skaf
renningur hið efra í héraðinu. Þar i
er viðast hvar jafnfallinn snjór |
og haglaust með öllu.
Hlér í Gaulverjarbæjarhreppi
er auð jörð og sauðfé iétt á fóðr-
um, þótt víða sé það haft við
hús og gefið með beitinni. Mikil
hálika hefur verið á ökuleiðum hér
um slóðir að undanförnu og éhopp
í umferðinni af þeim sökum.
Vegna rigninganna í haust og
frostanna að undanförnu hefur
jarðvinnsla og önnur útivinna
verið erfið að þessu sinni. Alis
staðar er hieyforði með minnsta
móti og því uggur í bændum og
búaliði ef veturinn er setzt-ur að
án þess að gefa grið.
Búnaðarfélag Gaulverjabæjar-
hrepps keypti 30 tonn af heyi að
norðan í haust. Bætir það úr brýn
ustu þörf, þar sem verst er ástatt.
Þó er fjárhagur sumra bænda slík
ur, eftir langvarandi óheillaþróun
í verðlagsmálum, að þeir geta
ekki keypt hey.
Félagslíf hér í sveitinni er að
færast í vetrarhorfið. Kvenfélagið
hélt fyrsta fund vetrarins í gær,
og skipulagði vetrarstarfið. Ung-
mennafélagið efnir til samgleði
með Baldri og Vöku í Þjórsár-
veri þann 22. þ.m., og kirkjukór
inn hefur verið athafnasamur að
undanförnu, söng m.a. ásamt
kirkjubór Stokkseyrarkirkju við
útvarpsmessu á Stobkseyri s. 1.
sunnudag. Næsta verkefni kórsins
er að æfa lög eftir söngstjórann,
Pálmar Þ. Eyjólfsson og koma
þeim í góða geymslu, en Pálmar
er mikill lagasmiður, og sum söng
lög hans þekkt víða um land.
FIMMTUDAGUR 13. nóvember 1969.
Sinfóníuhljóms veit
íslands / Mégarói
Fyrstu tónleikar Tónlistarfélags
Mosfellssveitar á þessu starfsári
verða í Hlógarði föstudaginn 14.
nóvember n.k. kl. 21:00. Flytjend
ur verða SinfóníulHjómsveit ís-
lands undir stjóm Alfreds Walter.
Einleikarar með hljómsveitinni
verða Jón SLgurðsson og Lárus
Sveinsson. Á efnisskránni verða
verk eítir Rossini, Vivaldi, Bizet,
De Falla, J. Strauss, Sibilius og
Árna Thorsteinsson.
Tónlistarfélagið var stofnað fyr
ir þremur árum og er hugisað sem
máttarstoð að rekstri Tónlistar-
sikóla Mosfellssveitar. Stjórn fél-
agsins annast rekstur skólans
ásamt skólastjórnnum Ólafi V.
Albertssyni.
Starfsgrundvöllur Tónlistarfél-
agsins er því tvíþættur, að reka
tónlistarskóla og koma til móts
við unnendur góðrar tónlistar með
því að halda tómleika.
Styrktarfélagar eru um 140 og
greiða þeir kr. 150.00 árlega og
fá í staðinn tónleika vor og haust.
Ný Ijóðabók:
TQFUGRÖS
Út er komin bjá Hörpuútgáf-
unni ný Ijóðabók eftir Ref bónda
(Braga Jónsson frá Hoftúnum á
Snæfellsnesi).
Refur bóndi er löngu landskunn
•ur fyrir kveðskap sinn, einkum
þó ferskeytlurnar. sem floigið hafa
víða og hlotið mi'klar vinsældir.
Hann er í hópi snjallari núlifandi
hagyrðinga.
Áður hafa komið út eftir hann
eftirtaldar bæbur: Neistar, 1951
— Hnútar o.g hendingar I., 1952
— Hnútar og bendingar II., 1953
— Neistar, nýtt safn, 1955 —
Hnútar og bendingar III., 1957 —
Neiistar, úrval, 1960 — Mislitar
lfnur 1.‘ 1966 o>g Mislitar línur II.,
1967. Allar þessar bækur eru nú
uppseldar og. ófáanlegar.
Fyrsta kvæðið eftir Ref bónda
var prentað, þegar hann var 14
ára. Þessi nýja lóðabók er gott
sýnishom af kveðskap hans og
mun mörgum þykja hún kærkom-
in viðbót við fyrri bæfkur höfund-
ar.
Prentverk Akraness h.f. prent-
aði bókina.
Sé hagnaður af tónleikum rennur
hann í rekstur skólans. Það er þvi
mikið í hú'fi að auka mcðlimatölu
styrktarfélaga og hefur verið góð-
ur skilningur og velvilji fólks til
þessara mála, enda em flestir
S'tyrktarfélagar úr hópi aðstand-
enda nemenda skólans.
í vetur eru 80 nemendur í Tón
listarsbó'lanum. Kennt er á píanó,
fiðlu og blásturhljóðfæri, þ.á.m.
fá nemendur lúðrasveitar barna-
skólans að Varmá kennslu í skól-
anum.
Kenarar í vetur eru auk sk>a-
stjórans, Ólafs V. Albertssonar:
Gunmar R. Sveinsson, Birgir D.
Sveinsson, Lárus Sveinsson og
Anna Rögnvaldsdóttir. — Nemend
•um Gagnfræðaskólans að Brúar-
landi verður boðið á tónleikana
næstkomandi föstudagskvöld.
UPPRUNI
ÍSLENDINGA
FB-Reykjavík, miðviikudag.
Fyrsti fundur vetrarins í ís-
lenzka Mannfræðifélaginu verður
haldinn á morgun, fimmtudag, í
Ifyrsitu bennislustofu Hás'kólans,
og hefst hann kl. 20.30. Magnús
Már Lárusson, háskólarektor,
flytur erindi um kenningar við-
víkjandi uppruna íslendinga.
Um vetrarstarf félagsins er það
að segja, að Skúli Þórðarson og
Björn Þorsteinsson munu 27. nóv
Framnala a bls. 14
Borgarfjörður eystri:
Horft á norska
sjónvarpið
SA-þriðjudag.
Mikið brim var hér í gær og
fyrradag, eitt það mesta, sem
komið hefur hér á Borgarfirði
eystra. Ekki urðu þó teljandi
skemmdir, nemia hvað einn blóma
garður varð fyrir einhverjum
skakkaföllum. Sjómenn fóru á
stúfana og björguðu bátum sín-
um á þurrt og fluttu þá hér langt
upp fyrir kaupfélagshús.
Atvinnulífið er fremur dauft,
menn binda helzt vonir við nýja
bátinn, Gletting, ef hægt verður
að fcoma honum á troll. Félags-
lífið hér er fjömgt. Til dæmis er
bvenfélagið méð þriggja kvölda
keppni í félagsvist.
Mikill snjór er hér, en færð er
upp að Vatnsskarði, en skarðið
sjálft ófært.
Merkilegt má telja, að hér sátu
menn í gærkvöldi og horfðu á
norska sjónvarpið í þrjá klukku
tíma og voru skilyrðin svo góð,
að það gaf sjónvarpinu í Reyfcja
vik ekkert eftir. Hljóðið heyrðist
lí'ka mjög vel. Það eru tveir menn
hérna, sem hafa komið sér upp
geysistórum stöngum og öllum út-
búnaði og þeir hafa séð þýzka
sjónvarpið líka.
Nú bíða allir eftir íslenzka sjón
varpinu, en við vitum ekki ena,
hvernig það verður. Menn hafa
verið að kaupa sér tæki, því stilli
myndin er væntanleg fyrir mán-
aðamótin. Svo þykir um að gera
að kaupa þau sem fyrst vegna
hinnar árvissu gengisfellingar.
Stokkseyri:
Nýtt salthús
fyrir vertíð
HS-þriðjudag.
Hér á Stokkseyri er nóg atvinna
og er enn meiri þegar gefur á sjó.
Af byggingarframkvæmdum er
nú ekki mikið, en helzt er að nefna
salthús, sem verið er að byggja
við frystihúsið. Verkið hófst seint
í sumar og er gert ráð fyrir, að
húsið, sem nú er kornið undir
þak, verði komið í gagnið fyrir
vertíð. Er mikil bót að þessu húsi,
því ekki var pláss fyrir aflann,
sem hér barst á land í fyrra og
þurfti að flytja hann víðs vegar
um nágrennið til að koma honum
fyrir. Nýja salthúsið er byggt úr
strengjasteypu og er 630 ferm. að
stærð.
Reyðarfjörður:
Unga fólkið
farið
MS-þriðjudag.
Hér á Reyðarfirði eru menn að
moka snjó af flötum þökum, til
öryggis, því hér hefur kyngt niður
bleytusnjó, sem er um hálft ann-
að fet.
Verið er að fara um fjöllin og
leita að afgangskindum, _sem ebki
eru komnar á sinn stað. í dag var
vegurinn til Fáskrúðsfjarðar opn-
aður, svo þangað er öllum bílum
fært. í gær fór mjólkurbíllinn okk-
ar án aðstoðar yfir Fagradal.
Atvinnulífið er í millibilsástandi
því ekki er farið að vinna atfur
í frystihúsinu eftir sláturtíð, en
þó má segjd, að atvinna hérna sé
næg.
Dauft er yfir félagslífinu, það
vantar allt unga fólkið, það er
farið til Reykjavíkur eða annað
í skóla.
Áhugamannafélag um sjón-
varp er að koma hér upp endur-
varpsstöð fyrir sunnan fjörðinn
við Borgargerði. Framkvæmdum
miðar vel og vænzt er, að stöðin
verði tilbúin, þegar útsendingar
hefjast frá Fjarðarheiði. Menn
eru að huga að tækjakaupum, en
þótt nóg úrval sé hér af sjónvarps
tækjum á boðstólum, þá vantar
heldur peninga til að kaupa þau.