Tíminn - 13.11.1969, Side 13
FIMMTUDACrUR 13. nóvember 1969.
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Austurríkis-
menn koma
annað kvöld
Alf — Reykj avík. — Annað
Ikvöld, fostudagskvöld, er aust-
urriska landsliðiS í handknatt
leik væntanlegt til íslands, en
um belgina fara fram tveir
land'sleikir miiti f s-lands og
Austurríkis og er fyrri leikur-
inn, sem fram fer á lauigardag-
inn, liður í undanrásum heims-
cneistarakeppninnar.
Bíða handlknatitleiksunnend-
ur spenntir eftir uppgjörinu
við Austurrikismenn. f upp-
hafi var lið Austurríkis ekki
álitið sterkt, en að undanförnu
hafa Austuriúkismenn æft af
kappi og leikið fjölmarga lands
leiki, þ.á.m. tvo við Hollend-
inga og unnið þá báða. Þeir
eru því til alis vísir.
Forsala aðgöngumiða er haf
in og fást miðar í bókabúðum
Lárusar Blöndai í Vesturveri
eg Skólavörðustíg.
Stofna FRAM og VALUR
körfuknattteiksdeildir?
Hugsanlegt, að KFR flytji í heilu lagi yfir til Vals
Aif.-Reykjavík. — Svo kann að
fara, að stofnaðar verði körfu'
knattleiksdeildir innan Fram og
Vals innan tíðar, en á undanförn
Hi3 nýja íþróttahús við Álftarmýrarskólann.
(Tímamynd GE).
Fram fær inni í nýju íþróttahúsi
Alf-Reykjavík. — Þessa dagana
er langþráður draumur handknatt
leiksfólks Fram um bætta æfinga-
aðstöðu að rætast. Verið er að
taka fþróttahús Álftamýrarskóla
í notkun, en skólinn er við hið
nýja íþróttasvæði Fram og mun
Ifélagið hljóta séretaka aðstöðu
þar, líkt og Víkingur hefur við
Réttarholtsskólann.
St j órn Handknattleiksdeildar
Fram hefur skipulagt starfsemina
í vetur. Allir flokkar félagsins fá
aðstöðu í nýja íþróttahúsinu. Þá
er gömlum félögum ekki gleymt,
því að þeir fá einnig sinn tíma.
Einnig veður frúarleikfimi fyrir
eldri félagskonur, svo og konur í
hverfunum umhverfis skólann.
Hér á eftir fer æfingataflan:
Handknattleiksdcild Fram
Ný æfingartafla fyrir veturinn
1969—1970.
Alftamýrarskóli við hið nýja fé-
lagssvæði Fram.
Mánudagur:
18—18.55 III. fl. karla.
18-55—19.50 II. fl. karla
19.50—20.45 Mfl. og I. fl. karla.
20.45—21.45 M.fl. og 1. fl.
kvenma.
Þriðjudagur:
19.40—20.30 II. fl. kvenna.
20.30—21.20 Markmanns- og
skotæfingar.
21.20—22.10 Leikfimi kvenma
Miðvikudagur:
20.30—21.20 Handbolti Olds
boys.
Fimmtudagur:
18.00—18.50 IV. fl. karla.
18.50— 20.30 III. fl karla
20.30—21.20 II. fl. kvenna.
Sunnudagur:
10.20—12.00 IV. fl. karla.
13.00—14.40 byrjendafl.
stúlkna.
Hálogalandi.
Þr.iðjudagur:
18.50— 20-30 IV. fl. karla.
íþróttahöllin.
Föstudagur:
18.00—18.50 Byrjendafl.
stúlkna.
18.50—19.40 M.fl. og 1. fl.
kvenna.
19.40—20.30 M.fl. karla.
20-30—21.20 I. og II. fl. karla.
Ath. æfingartaflan tekur gildi frá
og með 12.11 ‘69.
Stjórnin.
um árum hefur oft verið rætt um
slíkt, en það aldrei komizt til
framkvæmda, sumpart af því, að
félögin, sérstaklega Fram, hafa
ekki talið sig hafa aðstöðu til að
auka íþróttastarfið.
Eftir því, seni íþróttasíðan hef-
ur frétt, er hugsanlegt að KFR
(Körtfu'kn attleiiksf élag Reyk javík-
ur), verði lagt niður og félags-
menn gangi yfir í Val og stofni
þar nýja körfuknattleiksdeild. —
Aðaldriffjöðurinn í KFR, Þórir
Magnússon, landsliðsmaður, er
Valsmaður í aðra röndina og leik-
ur knattspyrnu með Val.
Verði stofnuS körfuknattleiks-
dieild innan Fram, mun hún byrja
smátt, en rætt er um það, að ungt
körfuiknatfjleiksfélag, sem hefur
aðsetur í Laugarnesi og stjórnað
er af Eirfki Björgvinssyni, muni
ganga í heilu lagi yfir í Fram.
Eins og stendur hefur félagið í
Laugarnesi aðeins einum flokki
á að skipa, 4. flokki, en sá flokkur
er mjög efnilegur.
Vitað er, að hin nýskipaða
stjórn Körfuknattleikssambands
fslands, hefur mikinn áhuga á að
málin skipist á þessa leið, enda
eiga litlu körfuknattleiksfélögin
ó'hægt með að starfa sjálfstætt og
yrði betur sett sem sérstafcar deild
ir innan stóru félaganna.
Vr Mexikó sigraði B-elgíu, 1:0, í
landsleik í knattspyrnu, sem fram
fór á Azteka-leikvanginum í Mexi-
co City í síðastu viku. Báðar
þjóðirnar eiga lið í lokakeppn-
inni í HM í knattspyrnu, setn fram
fer í Mexikó á næsta ári.
★ Bergens-stúdentarnir töpuðu
síðari leik sínum í Evrópufceppn-
inni í handknattleik fyrir austur-
þýzka liðinu Dynamo Berlín, 25:
15, um helgina. í hálfleik var stað
an 12:7 Dynamó í vil. BSI tapaði
einnig fyrri leiknum sem fram fór
í Bergen, 24:20.
★ Kunstevo, Rússlandi, sigraði
Sittardia frá Hollandi með yfir-
burðum í síðari leik liðanna í
sömu keppni. Lokatölur urðu 31:
11, en í hálfleik var staðan 14:8.
-k Ásíralska hlaupadrottningin
Kilborn, setti 2 heimsmet í frjáls-
tum íþróttum um helgina. í 200 m.
grindahlaupi bætti hún sitt eigið
heimsmet verulega, með því að
hlaupa á 25,5 sek, og síðan var
hún í áströlku sveitinni, sem
bætti hið 11 ára gamla met A,-
Þýzklands í 4x220 yarda hlaupi.
k Evrópukeppni í handknattleik
kvenna er hafin. Fyrsti leikurinn
fór fram , Kiev í V.-Þýzkalandi
um helgina og léku þar Spartak
Kiev og Odela frá Tékkóslóvakíu.
Vestur-þýzíku stúlfcurnar sigruðu
með ótrúlegum yfirburðum eða
24:10, í hálfleik var staðan 14:5.
Dönsku meistararnir í handknatt-
leik kvenna, HG, leika fyrri leik
sinn í þessari keppni á laugardag-
inn, og mæta þær Sofia frá Búlg-
aríu.
★ Tvær danskar súlkur, Birthe
Jaeobsen og Maria Sivickowa, hef
ur verið boðið að skrifa undir at-
vinnusamning í knattspyrnu hjá
ítaliska liðinu Torino. Mikiil áhugi
er á kvenna-knattspyrny á Ítalíu,
og. löndunum þar í kring, og er
nú svo komið að um hreina at-
vinnumensku er að ræða hjiá mörg
um liðuim, og eru njósnarar á ferð
inni um flest lönd, þar sem
kvenna-knattspyma er leikin til
að kaupa „góðar“ knatt-spyraukon
ur.
★ Rússland sigraði USA í lands-
keppni í hnefaleikum (áhuga-
manna) í Las Vegas í síðustu
viku. í 11 leikjum sigruðu Rúss-
ar 10, og þykir þetta mikii sigur
fyrir Rússa.
Iþróttahátíð MR
í kvöld kl. 8 hefst að Háloga-
landi íþróttahátíð Menntaskólans
í Reykjavík.
Á dagskrá verður m.a.:
1. Handbolti stúlkur, MR:KÍ.
2. Pokahlaup.
3. Körfubolti MR:ML.
4. Fótbolti stúlkur:antisportistar
5. Handbolti MR:VÍ.
6. Fótbolti, MR:MH.
7. Handboiti, Nem.:Kennarar.
Komið og sjáið spennandi
keppni.
Hlaut útlegðardóm í Austurríki
- kemur hann til fslands aftur?
Svo kann að fara, að eitt af ís
lenzku 1. deUdar liðunum í
knattspyrnu ráði Walter Pfeiff
er sem þjálfara sinn. Pfeiffer
hefur ekki í mörg hús að
venda eftir að hann hætti hjá
Eisenstadt, því að hoiium er
bannað að þjálfa í Austurríki.
Ástæðan er sú, að íslenzkur að
ili kærði Pfeiffer a.m.k. tví-
vegis fyrir FIFA (Alþjóða-
knattspypnusamb.) vegna samn
ingsaðferðar hans við Her-
mann Gunnarsson. Íþróttasíðu
TÍMANS hefur verið kunnugt
um alla málavexti í margar
vikur, en taldi ekki rétt að
skýra frá þessu, en þar sem
eitt dagblaðanna hefur rofið
þögnina og birt bréf frá Her-
manni Gunnarssyni um þetta
mál, þá er engin ástæða til að
þegja um það lengur.
Hvaða aðili kærði Pfeiffer?
fliróttasíðan nefnir engin nöfn
að sinni, en kannski getur
stjórn KSÍ gefið upplýsingar
um það? Vel má vera, að frá
lagalegu sjónarmiði hafi mátt
kæra Pfeiffer — út af „prins-
ipp-atriðum“ — en í þágu
■hvers var slík kæra? Varla
Hermanns, því að þetta hefur
svo gott sem eyðilagt atvinnu-
mannsferil hans.
Að sinni verður ekki rætt
frekar um þessa hlið málsins,
en svo kanu að fara, aS*Pfeiff-
er, sem hlaut útlegoardóm i
heimalandi síku, snúi til fs-
lands og taki við þjálfim eins
1. deildar félagsins. Er íþrótta-
síðunni kunnugt um a.m.k. eitt
félag, sem hefur mikinn áhuga
á að fá Pfeiffer til sín.