Tíminn - 30.11.1969, Side 3
SUNNUDAGUR 30. nóvember 1969.
TIMINN
3
TVÆR PLOTUR TEKNAR UPP
MEÐ QÐMÖNNUM ILONOON
Shady syngur fyr'tr íslondinga f
„Höfn‘ í kvöld.
ÓÐMENN HÖFNUÐU
ÍSL. UPPTÖKUTÆKNI.
Eins og lesendur muná, var
greint frá því hér í þættinum
ekki alls fyrir löngu að Óð-
menn væru önnum kafnir við
að vinna að tveggja laga hljóni
plötu fyrir Fálkann í hljóð-
upptökustúdíói sjónvarpsins.
Hér var um að ræða tvö
lög, sem Fálkinn ætlaði að
setja á markaðinn á undan
plötu Trúhrots. Upptakan á
þessum tveim lögum varð
hin sögulegasta, því eftir að
hafa reynt til þrautar upp-
tökutækni sjónvarps og hljóð-
varps, voru piltarnir hinir
óánægðustu með útkomuna, og
fóru fram á það við Fálkann
að platan væri tekin upp í Bret
landi, en Fálkinn taldi alltof
kostnaðarsamt að senda þá út
fyrir eina tveggjalaga hljóm-
plötu.
Óðmenn höfðu ekki undirrit-
að neins konar samning við
Fálkann, og þeir tóku nú að
greimslast fyrir um það, hvort
einhver önnur hljómplötuút-
gáfa hefði áhuga á að senda
þá utan til plötuupptöku.
Nú standa málin þannig, að
piltarnir fara til Lundúna n.k.
þriðjúdag á vegum SG-hljóm-
platna. Hljóðritaðar verða
Björgvin var einn þeirra er söng
inn á „pop festival'* plötuna.
Óðmenn eru á förum til London, í plötuupptöku etv. koma þeir fram í brezka sjónvarpinu.
tvær tveggjalaga plötur í
stereo. Lög og textar eftir Jó-
hann Jóhannsson söngvara og
bassaleikara hljómsveitarinn-
ar. Fyrirhugað er að setja aðra
plötuna á markað fyrrililuta
árs 1970, en hina síðar. Til
athugunar er að setja tvö lag-
anna á brezka hljómplötumark-
aðinn, og eru enskir textar til
reiðu í því skyni. Ef aðstæður
og tími leyfa, eru sterkar lík-
ur á að Óðmenn komi fram í
brezka sjónvarpinu í þessari
Lundúnaför sinni.
Þremenningarnir í Óðmönn-
um hafa farið sínar eigin göt-
ur, og flutt svo til eingöngu
blues músík, en þó blues eigi
hér allstóran aðdáendahóp, þá
á þessi tegund tónlistar ekki
almeunum vinsældum að
fagna, þetta hefur óncitanlega
bitnað á Óðmönnum, sem með
þrautseigju og þrákelkni hafa
ismnið algert brautryðjenda-
starf í að kynna blues á dans-
stöðum.
Þetta hefur mælzt mjög mis-
jafnlega fyrir, þeir hafa verið
marglofaðir fyrif góðan hljóð-
færaleik, samtímis því að full-
yrt hefur verið að þeir verði
ekki Ianglífir í „bransanum“.
En Óðmenn hafa þraukað og
þó , leiðin hafi oft verið grýtt,
þá hafa þcir líka vakið verð-
skuldaða athygli.
Það er alla vegá niiluð gleði-
efiíi fyrir aðdáendur Óðmanna
að fyrstu plötur hljómsveitar-
innar skuli vera unnar við
fullkomin tæknileg skilyrði,
þannig a i ástæða er til að ætla
að geta þeirra njóti sín til
fulls.
ítsl. pop festival“platan
VERÐUR EKKI Á
JÓLAMAKAÐINUM.
Um alllangt skeið hefur stað
ið yfir hljóðritun á all sér-
stæðri LP hljumplötu í útvarp-
inu, á vegum Tónaútgáfunnar.
Á þessari plötu áttu að koma
fram allar þær pop-hljómsveit-
ir og söngvarar sem eitthvað
kveður að um þessar mundir,
að undanskildum Óðmönnum
og Trúbroti.
í fimm laganna átti að hafa
sama háttinn á og í plötu
Björgvíhs Halldórssonar, þ.e.
a.s. kaupa undirleikinn áð ut-
an. Engilhert Jensen, Kristín
Ólafsdóttir, Rúnar Gunnarsson
Guðmundur Haukur og Bjarki
Tryggvason áttu að sjá um
sönginn í umræddum lögum.
En eitthvað hefur gengið úr-
skeiðis, því fyrir um það bil
mánuði átti að vera búið að
senda segulbandsspólurnar
með hinum umrædda brezka
hljómsveitarflutniiigi til Tóna-
útgáíunnar, en þær eru ókomn-
ar ennþá, þannig að það er
sama sem útilokað að þessi
sérstæða hljómplata komist á
markaðinn fyrir jól eins og
upphaflega var ráð fyrit gert.
„Pop-festival“plata Tónaútgáf-
unnar hefði orðið Trúbrots
plötunni skæður keppinautur,
ef allt hefði gengið samkvæmt
áætlun.
TRÚBROT f KAUP-
MANNAHÖ: \.
í kvöld leika Trúbrot fyrir
dansi í „Folkets hús“ í Kaup-
mannahöfn á fullveldisfagnaði
íslendingafélagsins. Þetta er
hin virðulegasta samkoma,
meðal ræðumanna er Gunnar
Thoroddsen sendiherra. í gær-
kvöldi áttu þeir að leika á al-
mennum dansleik í Lundi í
Svíþjóð. f dag var fyrirhugað
að hafa fund með dönsku „pop-
pressunni“, og skemmtistaða-
forstjórum, og meiningin var
að láta hljómsveitina flytja
nokkur lög fyrir gestina, þá
er tii athugunar að Trúibrot
komi bæði fram í útvarpi og
sjónvarpi í Danmörku, en það
var ekki endanlega ákveðið er
hljómsveitin hélt utan s. 1.
föstudag. Þessi Danmerkurför
er á vegum Skrifstofu skemmti
krafta, Péturs i’éturssonar.
Benedikt Viggósson.
Ný
þjónusta
Önnumst ísetningar á ein-
földu og tvöföldu gleri.
tJtvegum allt efni.
ÁkvæSis- eða tímavinna.
Upplýsingar í síma 26395
á daginn og 81571 á kvöld-
in.
i Geymið auglýsinguna.
MÁLVERK
Gott úrval Afborgunar-
kjör. Vöruskipti. — ÍJm-
boðssala
Gamlar bækur og antik-
vörur.
önnumst innrömmun mál-
verka.
MÁLVERKASALAN
TVSGÖTU 3.
Simi 17602.
Jón Grétar Sigurðsson
néraðsdómslögmaður
Austurstræti 6
■ '■ ' ' ‘ # . " . , ‘
Simi 18783
WmúRBANKlNN
er lianki íólksins
Loftpressur — gröfur — gangstétfasteypa
Tökum að okkur allt múrbrot. gröfi oc sprengingar I
húsgrunnum og holræsum. leggjum skoipleiðsiur. Steyp-
um gangstéttir og innkeyrslur Vélaleiga Símonar Símon-
arsonar. Alfheimum 28. Simi 33544.
Philips segulbandstæki
ÚTSÖLUSTAÐIR
PHILIPS
STEFÁN HALLGRÍMSSON, Akureyri
VERZLUNIN BJARG, Akranesi
HARALDUR EIRÍKSSON H.F., Vestmannaeyjum
K/F SKAGFIRÐINGA, SauSárkróki
K/F SKAFTFELLINGA, Hornafirði
STAPAFELL, Keflavík
RADIOVINNUSTOFAN, Keflavík
K/F ÞINGEYINGA, Húsavík
RADIO- OG SJÓNVARPSSTOFAN, Selfossi
Umboð HEIMILISTÆKI S/F.