Vísir - 06.07.1981, Síða 28

Vísir - 06.07.1981, Síða 28
28 Höfundarréttur efstur á baugl Mikiis mlsskilnings gælir h|á almenningi um krðfur myndlistarmanna Fyrsta islenska myndlistar- þingiö var haldiö dagana 30.—31. mai s.l. öll félög myndlistar- manna héldu þingiö sameiginlega en þau eru: Félög islenskra mynd listarmanna, Hagsmunafélag My ndlistarmanna, islensk Grafik, Textilfélagiö og Mynd- höggvarafélagiö og Leirlistar- félagiö bættist einnig i hópinn. Samþykktir þingsins A þinginu voru hin ýmsu hags- munamál myndlista i landinu rædd og geröar fjölmargar álykt- anir, sem einkum beinast aö hinu opinbera. Lokaorö þeirra álykt- ana var tilvisun til opinberra skýrslna, sem sýna svo ekki verbur um villst að myndlistar- áhugi tslendinga er slikur, að hann á sér enga hliöstæðu i nágrannalöndum okkar. Eins og eðlilegt má teljast, voru hin ýmsu réttindi eða réttinda- leysi myndlistarmanna hérlendis ofarlega á baugi á þinginu. Ber þar eflaust hæst svonefnt höfundarréttarmál. Um þaö segir m.a. i ályktun þingsins: „Mikið skortir nú á, að mynd- listarmenn njóti réttar sins sam- kvæmt höfundarréttarlögum. Ýmis atriði þeirra laga eru orðin úrelt. — Þingiö bendir á og itrekar, að myndlistarmenn búa viö það óréttlæti, einir islenskra listamanna, að ekkert endurgjald kemur fyrir birtingu hugverka þeirra á opinberum vegum. Er slikt þó orðiö alsiða á öðrum Norðurlöndum og sums staðar lögfest. Þingið ályktar þvi að myndlistarmenn standi saman um þá sjálfsögðu kröfu að opin- berar stofnanir og aðrir opinberir aöilar sem birta verk listamanna, greiði ákveðna þóknun eða dag- leigugjald fyrir afnotarétt, á sama hátt og t.d. tónskáldum og rithöfundum”. Gætir misskilnings A blaðamannafundi, sem hald- inn var til að kynna ályktanir þingsins, var höfundarréttar- máliö mest rætt enda brennur það sárast nú. Komu þar fram ýmis dæmi um óréttlæti, sem mynd- listarmenn eru beittir, t.d. al- menn sala á póstkortum með myndum listamannanna án leyfis þeirra, eöa þóknunar til þeirra. Einnig kom fram aö fái t.d. sjón- varp listaverk ljósmyndaö vegna fýrirhugaðrar birtingar, fær ljós- myndarinn þóknun fyrir en höfundur sjálfs listaverksins enga, enda oft ekki óskaö eftir leyfi frá honum. Gylfi Gislason myndlistar- maður, sem var á blaðamanna- fundinum, sagði mikils misskiln- ings gæta meðal almennings vegna höfundaréttarmálsins. Mörgum virtist sem listamenn- irnir krefðust jafnvel greiðslu fyrir listaverk i einkaeign. Sú væri vitanlega ekki raunin. Hér er aðeins um aö ræða kröfur á hendur hins opinbera. Félagsmál myndlistarmanna Gylfi benti enn fremur á, að myndlistarmenn eru án efa rétt- lausustu listamenn hér á landi, og að þeir væru í raun aðeins að fara fram á að fá að standa jafnfætis tónlistarmönnum og rithöfundum hvað snerti greiðslu fyrir sköp- unarverk sin. Höfundamálið var aðeins eitt margra mála, sem rædd voru á þinginu eins og áður sagöi. Meðal annarra mála, sem snerta af- komu listamannanna beint, má nefna lifeyrissjóöamál, sjóði og launamál almennt og ekki hvað sist félagsmál þeirra. Vonir standa nú til að öll starfandi félög myndlistarmanna stofni með sér samband, enda „sjálfsagt fram- hald af myndlistarþingi.” Margar ályktanir voru einnig gerðar sem vinna að frekari framgangi myndlistar i landinu, svo sem myndlistarmenntun, list- miðlun, o.fl. Þingið fagnaði fram- komnu frumvarpi um listskreyt- ingar opinberra bygginga. Þingið bendir einnig á að aðeins eitt dag- blaöanna hafi til þess menntaðan mann sem fjallar um myndlist og að dagblöð og rikisfjölmiölarnir einskorði umfjöllun við sýningar- hald. A blaðamannafundinum, þar sem ályktanirnar voru kynntar var ljóst að myndlistarmenn töldu sig hafa haft mikið gagn af þinginu og er gert ráö fyrir að það veröi viss viðburður i framtiðinni. Ms Frá blaðamannafundinum. Björn Th. Björnsson listfræöingur og forseti fyrsta myndlistarþingsins er lengst til hægri. Hermann Gunnarsson dtvarps- maöurinn snjalli Útvarp Kl. 20.50 Hermann með knatl- spyrnu- lýsíngu Eftir mikiö harmakvein Iþróttaunnenda, meö knatispyrnu sem séráhugasviö, hefur Utvarpiö loks tdiið við sér. Fyrsta lýsingin var i gær af leik Vals og Skaga- manna á Laugardalsvellinum. Hermann Gunnarsson Iþrótta- fréttamaöur útvarpsins mun lýsa öðrum leik i' kvöld kl. 20.50. Er það leikur Vikings og Breiðabliks á LaugardalsvelUnum. Ekki er að efa aö knattspyrnuáhugamenn sem ekki eiga heimangengt munu taka þessari lýsingu Hermanns með opnum eyrum enda svikja i- þróttalýsingarhans engan. Hefst lýsingin eins og áður segir kl. 20.50 og verður siðari hálfleik lýst. GPG Úr kvikmyndinni „The Midnight Express , Jhe Midnight Express” Raunlr hasssmygiara i tyrknesku tangelsl Hætt er viö þvi aö margir út- varpshlustendur limi eyrun viö útvarpstæki sin, ef svo má aö oröi komast, kl. 22.35. Þá byrjar Kristján Viggósson lestur sinn á þýöingu sinni á hinni æsispenn- andi sögu „Miönæturhraölestin” eftir þá kumpána Billy Hays og William Hoffer. Söguþráðurinn er i stuttu máli sá að Hasssmyglari á leiö frá Tyrklandi er gripinn glóðvolgur á flugvellinum við brottförina og stungiö i tyrkneskt fangelsi. Þau hafa löngum veriö talin frekar óheppileg til búsetu, og bötnuðu þau vist litið þegar herforingjar tóku völdin i sinar hendur, fyrir skömmu, svo eftir aö hafa gengiö i gegn um miklar þrengingar ákveður söguhetjan að flýja úr fangelsinu. Eftir það fer leikurinn að æsast og munum við ekki greina nánar frá þvi að sinni. Þessi saga er byggð á sann- sögulegum atburðum og var það Billy Hays, annar höfundurinn, sem lenti i þessari óskemmtilegu lifsreynslu. Columbia kvikmyndasam- steypan hefur gert kvikmynd eftir þessari gifurlega vinsælu sögu og var hún sýnd i Stjörnubiói hér um jólin. Aðdáendum þessarar sögu ætti ekki að leiðast i sumar þvi þetta er 24 lestra saga og veröur þvi siðasti lesturinn á dagskrá út- varpsins fimmtudagskvöldiö 6. ágúst. Þaö gæti þvi oröið ansi Halldór Blöndal alþingismaöur löng bið fyrir marga óþolinmóða útvarpshlustendursem lesa alltaf siðustu blaðsiðuna fyrst i saka- málasögum. Lesturinn hefst sem fyrr segir kl. 22.35 i kvöld og verður hann 25 minútur aö lengd eða til kl. 23.00. Þá tekur Sinfóniu- hljómsveit tslands við og byrjar að spila fiölukonsert i D-dúr op. 35... GÞG Útvarp kl. 19.40 Um daginn og veginn Halldór Blöndal alþingismaöur mun fjalla um daginn og veginn i útvarpinu i kvöld kl. 19.40. Búast má viö að ekki veröi töluö tæpi- tunga i þættinum i kvöld enda er Halldór ekki þekktur fyrir aö tala í hálfkveðnum visum. útvarp 12.20 Fréttir. Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Mánudagssyrpa — Ólafur Þórðarson. v 15.10 Miðdegissagan: „Praxis” eftirFay Weldon Dagný Kristjánsdóttir byrj- ar lestur þyðingar sinnar. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar Konél Zemplény og Ungverska rfkishljómsveitin leika Tilbrigöi um barnalag op. 25 fyrir pianó og hljómsveit eftir Ernö Dohnanyi: György Lehel stj./Fil- harmoniusveitin I Osló leik- ur Sinfóniu nr. 2 i D-dúr eftir Christian Snding: Kjell Ingebretsen stj. 17.20 Sagan: „Hús handa okkur öllum” eftir Thöger Birkeland Sigurður Helgason les þýðingu sina 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál Helgi J. Halldórsson flytur þattinn. 19.40 Um daginn og veginn 20.00 Lög unga fólksins Kristin B. Þorsteinsdóttir kynnir. 20.50 Vfkingur — Breiöablik Hermann Gunnarsson lýsir leiknum. 21.50 llljómsveit KjellKarlsen leikur létt lög 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 „Miðnæturhraölestin" eftir Billy Haves og William Hoffer Kristján Viggósson byrjar lestur þýöingar sinnar. I 23.00 Frá tónleikum Sinfóniu- I hljómsveitar tslands i' Há- . skólabiói 4. júni s.l. Stjórn- I ■ andi: Jean-Pierra Jacquill- I at Einleikari: Unnur Maria ! Ingólfsdóttir Fiðlukonsert i I D-dúr op. 35 eftir Pjotr | I Ilyitsj Tsjaikovský. — 1 Kynnir: Baldur Pálmason. | ^ 23.55 Frétt.ir. Dagskrárlok. j I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.