Tíminn - 06.12.1969, Blaðsíða 1
)
A yf í
1
Af K ’
<$>
fnmni
271. fbl. — Laugardagur 6. des. 1969. — 53. árg.
!
ífU.
r $ 1
Æ SAMVTNNUBANKINN -7
% rTWINN BANKI jf
\ ^
^^castr.7 ^
Olafur
umEFTA
tillöguna
EJ—Reykjavík, föstudag.
f fréttaauka í útvarpinu í
kvöld var rætt við forystumenn
stjórnmálaflokkanna um afstöð-
una til EFTA.
Ólafur Jóhannesson, formað-
ur Framsóknarflokksins, var
spurður um þaið, hvernig hon-
um finndist að unnið hefði verið
að undirbúningi þeirrar tillögu
um aðild Islands að EFTA, sem
lögð var fyrir Alþingi í dag.
Sagði Ólafur, aið það hafi
ekki verið vel unnið að. Hefði
þurft að marka heildarstefnu
í málefnum iðnaðarins, og jafn
framt gera ýmsar ráðstafanir
hér innanlands, áður en tekin
væri afstaða til aðildar.
Aðspurður um afstöðu þing-
manna Framsóknarflokksins,
sagði Ólafiur, að þingfflokk-
urinn hefði enn ekki tekið af-
stöðu, en myndi fjalla um mál-
ið nú þegar tillagan væri kom-
in fram ásamt öMum gögnum,
sem fyrir lægju í málimu.
Minkurinn
tollfrjáls
til landsins
TK—Reykjavík, föstudag.
í dag gaf Magnús Jónsson,
fjármálaráðheiTa, væntanlegum
loðdýraræktarmönnum fyrirheit
um það, að tollur af innfluttum
minkum, lífdýrum, verði afnum
inn í vetur og lífdýr verði flutt
inn tollfrjáls að vori. Skv.
núgildandi tollskrá er 50% toll
ur af innfluttum lífdýrum.
Yfirlýsingu þessa gaf Magnús
Jónsson fulltrúum Loðdýrs h.f.
í Reykjavík og Reykjaneskjör-
dæmi og loðdýraræktarmönn-
um frá Húsaví'k á fundi í dag.
Á morgun munu sömu aðilar
eiga viðræður við yfirdýralækni
um væntanlega loðdýrarækt en
gerðar eru strangar kröfur til
heilbrigðis dýranna í þeirri
reglugerð, sem sett hefur verið
um loðdýrarækt. Fyrir liggur
nú staðfesting frá dýralæknis
yfirvöldum í Noregi, að þau
lífdýr, sem keypt verði þaðan
til íslands muni vera fullkom-
lega heiibrigð. Forráðamenn
Loðdýrs eru nú, er þetta liggur
fyrir, að hefja rekstur loðdýra
bús þegar á næsta vori.
í blaðinu á morgun verður
birt frétt frá síðasta hluthafa-
fundi í Lofdýr h. f. þar sem
þessi mál voru til umræðu.
Þingflokkur Framsóknarflokksins hóf að ræða EFTA-tillögu ríkisstjórnarinnar sfðdegis f gær, þegar titlagan ásamt fylgiskjöium lá fyrtr. Myndin
sýnir hluta þingmanna á þingflokksfundinum í gær og er Ólafur Jóhannesson, formaður flokksins, fyrir miðju. (Tímamynd—QE)
Alþingi hefur fengið aðild íslands að EFTA til meðferðar:
Tillagan um aðildina að
EFTA rædd á mánudag
LL—Reykjavík, föstudag.
í dag var þingsályktunartiUaga
ríkisstjórnarinnar um aðild fs-
lands að EFTA lögð fram á Al-
þingi. Er tillagan sjálf mjög stntt
og fjallað aðeins um það, að Al-
þingi álykti að fela ríkisstjórn
inni að gerast fyrir íslands hönd
aðili að Fríverzlunarsamtölaim
Evrópu, EFTA. Mun málið tekið
til fyrstu umræðu á Alþingi á
mánudaginn.
Með tillögunni er fjöldi fylgi-
skjala og skýringa á samningunwm
og er það 196 blaðsíðna bók.
Tillagan sjálf er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að heimila ríkis-
stjórninni að gerast fyrir íslands
hönd aðili að Frfverriunarsamtök
um Evrópu, þ. e. European Free
Trade Association."
f greinagerðiinni segir m. a. um
toUamál.
Fallizt var á þá ósk, að íslend
ingar njóti þegar við inngöngu í
samtökin þess tollfrelsis, sem þau
hafa komið á í viðskiptum sín á
milli, en íslendingar þurfi hins
vegar ekki að afnema verndartolla
sína nema í áföngum á tiu ára tfma
bili. Gert er ráð fyrir því, að Vernd
artollar verði lækkaðir um 30%
við inngöngu í Fríverzlunarsam-
tökin. Tollar höf ðu ekki verið lækk
aðir eftir gengikbreytinguna 1968
og raunveruleg tollvernd þess
vegna farið vaxandi. í kjölfar þess,
að fyrsta tollalœkkunin er svona
mikil, var hægt að ná samkomu
lagi um, að engin frekari tollalælkk
un ætti sér stað næstu fjögur ár-
in. En frá 1. janúar 1974 er gert
ráð fyrir 10% tollalækkun á ári,
þangað til verndartollar hafa verið
felldir niður að fullu 1. janúar
1980. Ákvœði um þessi atriði er
að finna í 1. og 2. Mð aðildarsam
þykktarinnar.
löja í Reykjavík
andvíg EFTA-aöild
EJ-Reykjavík, föstudag.
Á framhaldsaðalfundi Iðju,
félags verksmiðjufólks í
Reykjavík, sem haldinn var
í gær, var samþykkt ályktun,
þar sem andmælt er hugsan-
leg»-i aðild íslands að EFTA
og bent á, að afleiðing henn-
ar verði sennilega sú, að
„mikill fjöldi iðnverkafólks
missi atvinnu sína vegna
samdráttar í ýmsum iðn-
greinum".
Álykbunin hljóðar svo í heild:
„Vegna þeirra umræðna, sem
fram hafa farið að undaafömu
um EFTA-aðild íslands, lýsir
framhaldsaðalfundur Iðju, félags
verksmiðjufólks í Reykjavík,
haldinn 4. des. 1969 í Lindarbæ,
því yfir, að Hðja getur ekki mælt
með aðild Islendinga að EFTA
meðan engar staðreyndir liggja
fyrir um jákvæð áhrif slíkrar að-
ildar á efnahagslíf þjóðarinmar.
AHar líkur benda hins vegar til,
alð mikiM fjöldi iðnverkafólks
missi atvinnu sína vegna samdrátt-
ar í ýmsum iðngreinum.
Þá vekur fundurinn athygli á
þeriri framkomu stjórnvalda, að
kynna málið aðeins fyrir iðnrek-
endum og öðrum atvinnurekend-
um en ekki fyrir samtökum iðn-
verkafólks, þess fólks sem næst er
höggvið með EFTA-aðMd.
Slfk framkoma er sízt til þess
fallin, að vekja traust á baráttu
stjórnvalda fyrir þessu máli.“
Þótt aðild að EFTA skyldi ekki
til lækkunar á öðrum toHum en
verndartoHum, er engu að síður
augljóst, að iækka verður toHa
á hráefnum og vélum, sem notað
er eða yrði í íslenzkri iðnaðarfram
leiðslu, svo að bún verði ekki að
þessu leyti verr sett en iðnaðar
framleiðsla í öðrum aðildarríkj
um Fríverzlunarsamtakanna. Er
gert ráð fyrir, að tollar á hráefn
um lækki yfirleitt um 50% við
inngöngu í Fríverzlunarsamtökin
og toUar á vélum verði yfirleitt
7%. Þetta veldur því, að tollvernd
íslenzks iðnaðar sem heildar muni
ekki minnka fyrstu fjögur árin
eftir inngöngu í Fríverzlunarsam
tökin. Áætlað er, að þessar toUa-
lækkanir jafngildi nálægt 500
millj. króna tekjumissi hjá ríkis
sjóði. Er gert ráð fyrir hækkun á
söluskatti sem þessu svarar. Áihrif
toMalækkananna til lækkunar vísi
tölu framfærslukostnaðar eru
mjög svipuð áhrifum söluskatts-
hækkunarinnar til hækkunar á
vísitölunni, þannig að þessi breyt-
ing á tekjuöflunaraðferðum rfkis
sjóðs hefur ekki áhrif á fram
færslukostnað.
f 4. lið aðildarsamþykktarinnar
eru ákvæði, sem heimila íslandi
að hækka gildanci toUa eða leggja
á nýja tolla á fyrstu fimm árunum
eftir inngöngu, ef slíkt er talið
æskilegt eða nauðsynlegt tM að
stuðla að þróun nýrra iðngreina
í 5. lið aðildarsamþykktarinnar
eru ákvæði um afnám verndar,
sem falizt getur í fjáröflunartoll
um. f 3. lið aðildarsamþykktarinn-
ar er kveðið svo á, að sá grunn-
tollur, sem lækkanir íslenzkra tolla
Framh. á bls, 11.