Vísir - 18.07.1981, Side 6
6
Laugardagur 18. júli 1981
$æmir ekki
siduóum
— segir Ragnar Halldórsson
um vinnubrögð i súrálsmálinu
..\ iö greiöum ekki hærra verð tvrir súrál en tið
kast annars staðar i Evrópu”, segir forstjóri ál
versins
Álviðskipti eða öllu
heldur súrálsviðskipti,
eru óneitanlega það
sem verið hefur hvað
fréttnæmast undan-
farna daga. Iðnaðar-
ráðherra, Hjörleifur
Guttormsson, hefur nú
opinberaö niðurstöður
rannsóknar breska
endurskoðunarfyrir-
tækisins Coopers & Ly-
brand á hráefnisvið-
skiptum ísals og Alu-
suisse. Þar kemur
fram að íslendingar
hafi greitt rúmlega
sextán milljón dollur-
um of mikið fyrir súrál
á siðustu fimm árum.
Er þvi ennfremur
haldið fram að Alu-
suisse hafi með þessu
viljað lækka hagnað af
álverksmiðjunni til að
halda niðri eigin
skattagreiðslum og
raforkuverði hér inn-
anlands.
Einn er sá maður sem ekki
hefur verið mikið áberandi i
þessum umræðum, en er þó
óneitanlega mikið tengdur
málinu, nefnilega Ragnar
Halldórsson, forstjóri islenska
álfélagsins. — Viö beindum
nokkrum spurningum til hans:
Nú ert þú væntanlega búinn
að kynna þér niðurstöður
rannsóknar Coopers & Lybrand.
Geturðu fallist á að þarna séu
um samningsbrot af hálfu Alu-
suisse að ræða?
,,Nei,ég tel alfarið að þetta sé
misskilningur. Ég hef rætt þetta
við nokkra af minum nánustu
samstarfsmönnum og við litum
alls ekki svo á að þarna sé um
neitt misferli að ræða.”
Liturðu svo á að rannsókn
þessa máls sé lokið?
,,Mér finnst furðulegt ef hægt
er að gera einhverja endurskoð-
unarskrifstofu i London að alls-
herjardómstóli i máli sem
þessu. Þetta er dómstóll, sem er
án dómara og kviðdóms. Þarna
eru engar vitnaleiðslur við-
hafðar og alls ekki hægt að
áfrýja úrskurðinum, þvi nú er
ráðuneytið búið að draga strik
undirmálið ogsegir: Þvi er lok-
ið. Ég skil ekki svona vinnu-
brögð.”
Borgar isal hærra súrálsverð
heldur en tiðkast annars staðar
milli óskyUlra aðila?
,,Við borgum ekki meira en
tiðkast hér i Evrópu”.
Hvað með 26 milljón dollar-
ana sem Alusuisse segist hafa
greitt hærra fyrir afurðirnar.
Eiga þær að bæta upp súráls-
verðið?
„Menn geta haft mismunandi
skoðanir á þvi hvernig flokka
eigi „verö milli óskyldra aöila”,
en það er ekki þar með sagt að
þetta sé það eina i málinu sem
vert sé að skoða. Þegar
ráðherra bannar Coopers & Ly-
brand að athuga hvernig okkar
álsölur séu út frá þessari
verðmiðun, þá tel ég þetta mjög
undarlega ogeinhæfa málsmeð-
ferð.”
Kaupir isal súrál á sama
verði og aðrar álverksmiðjur i
eigu Alusuisse?
„Við kaupum súrál á algjör-
lega samb.ærilegu verði, ef eitt-
hvað er þá borgum við ivið
minna en aðrir”.
f fréttatilkynningu Alusuisse
kemur frain að þeir hafi á þess-
um fimm árum keypt 880
þúsund tonn súráls af óháðum
aðilum á hærra verði en tsal
greiðir. Fenguð þið einhvern
hluta þessa og var hann þá
niöurgreiddur af hálfu þeirra?
„Við fengum um 8 þúsund
tonn af þessu en þeir hafa ekki
niðurgreitt neitt súrál til okkar.
Þetta bara undirstrikar það, að
á umræddum tima hefur ekki
verið á markaðnum ódýrara
súrál, en við höfum keypt, nema
siður væri. Það hefur verið
heldur dýrara.”
Nú kaupið þið rafskaut frá
verksmiðju i Rotterdam sem
einnig er i eigu Alusuisse. Er
rétt að þar sé um of dýr innkaup
að ræða?
„Ekki að minu áliti. Þessi
verksmiðja i Rotterdam fram-
leiðir rafskaut fyrir niu álverk-
smiðjur, þar af eru fjórar dótt-
urfyrirtæki Alusuisse, sem
einnig á helming á móti italska
rikinu i þeirri fimmtu. En f jórar
verksmiðjur eru algjörlega
óháðar, þar á meðal Alcan.
Þetta er selt til átta landa. Ég
hef enga ástæðu til að ætla
annað en að við kaupum raf-
skaut á sambærilegu verði við
hina aðilana.”
Er raunhæft að framleiða raf-
skautin hér á landi?
„Ég held að það sé alveg á
mörkunum, þvi okkar verk-
smiðja er svo litil miðað við þær
verksmiðjur sem eru reistar i
dag. Þetta tal um aðalls staðar i
heiminum nema hjá verk-
smiðjum Alusuisse séu raf-
skautinframleiddá staðnum, er
aðeins enn einn misskilningur-
inn að minu mati. Við getum
varla farið að taka upp ein-
hverjar úreltar aðferðir eins og
tiðkast i Noregi, þaðan sem
mest af þeirri speki sem sett
hefur verið fram, viröist vera
komin.”
Nú hyggjast stjórnvöld taka
upp samninga við Alusuisse.
Attu von á að þeir séu tiibúnir i
slikar viöræður?
„Þvi get ég ekki svarað fyrir
þeirra hönd.”
Telurðu að þeir muni leysa
málið með þvi að bjóða hærra
raforkuverð eins og gerðist
1974?
„Þeir burðu aldrei hærra raf-
orkuverð. Það var hins vegar
samið um breytingar á skatta-
kerfinu, sem var ófram-
kvæmanlegt eins og það var
áður, gegn greiðslu hærra raf-
orkuverðs. Þetta voru bara
kaup kaups.
Hvað með aðrar kröfur sem
rikisstjórnin hyggst setja fram,
munu þeir ganga að þeim?
„Ég hef ekki heyrt aö Alu-
suisse fallist á ennþá, að þessar
niðurstöður séu réttar og á
meðan ganga þeir ekki að nein-
um kröfum. Það er nú venjan að
ef annar aðili kemst að ein-
hverri niðurstöðu um samstarf
sem þetta, þá sé hinum aðilan-
um gefinn kostur á að segja álit
sitt á þvi. Það var ekki gert.
Skýrslunni var einfaldlega
varpað inn á borð hjá Alusuisse
án þess að nokkurt fylgibréf eða
beiðni um skýringar kæmi þar
með. Þeir gáfu ákveðnar
upplýsingar og skýrslur i
febrúar, en hafa aldrei fengið
neinar móttökukvittanir fyrir
þvi, fyrr en þessi skýrsla er
send allt i einu.”
Mun þetta valda miklum
skaða i samstarfinu við Alu-
suisse?
„Ég er ekki i nokkrum vafa
um það. Það hefur aldrei verið
talið til bóta i mannlegum sam-
skiptum að byrja á að ráðast á
annan aðilann með einhliða
ásökunum um svindl og svik,
jafnvel þó aö það væri rétt.
Þetta er bara ekki siðaðra
manna háttur.”
Heldur þú aö þeir séu áfram
til umræðu um stuðning við
stækkun verksmiðjunnar?
„Ég get að sjálfsögðu ekki
svaraö fyrir þá, en það eru
miklar efasemdir i minum huga
hvað þetta varðar”.
Finnst þér aö rikið eigi að
eignast meirihluta i isal?
„Það hefur alltaf verið min
skoðun að Islendingar ættu að
eignast þessa verksmiðju með
timanum. Spurningin er aðeins
hversu ört menn kæra sig um að
fjárfesta i þessu landi.
Hvaða skýringar átt þú á þvi
að þetta mál var tekið upp svo
snögglega i desember siðast-
liðnum?
„A þvi eru einhverjar
pólitiskar skýringar, sem mál-
svarar Alþýðubandalagsins
geta gert betri grein fyrir en
ég.”
En hvernig leið svo forstjóra
islenska álfelagsins á meðan
fyrirtæki hans var rannsakaö,
án þess að hann væri með i
ráðum eða fengi nokkrar
upplýsingar?
„Mér leið nú ekki sem verst.
Ég var þess alveg fullviss að
þar sem svo furðulega var að
þessu staðið, þá hlyti málið að
springa i loft upp fyrr eða siðar.
Égerekkertmóðgaður, þetta er
bara i samræmi við annað i allri
meðferð þessa máls”.
— JB.