Vísir - 18.07.1981, Blaðsíða 12

Vísir - 18.07.1981, Blaðsíða 12
vism Laugardagur 18. júll 1981 „Skvís” í 4 þáttum Nick Lowe vildi ekki gerast upptökustjóri þeirra þvi honum fannst þeir of góöir og taldi aö þeir þyrftu ekkert á sér að halda. Dave Edmunds langaöi til aö slá til en varð aö hella sér úti samstarf viö Stray Cats. Inn á sviðið kemur þriöji aðdáandinn: Elvis CostellO/ fer úr útískón- um, smellir sér i inniskóna og sest við stjórnborðið i hljóðrásaveri nokkru í riki Engla austur þar. Hinum megin við glerið standa 5 skrýtnir kappar og kreista hljóðfærin sveittir um lófana. Þessir 5 eru félagar í hljómsveitinni Squeeze. Tjaldið upp — fyrsti þáttur Chris Difford textasmiður og annar helsti lagasmiður Squeeze segir um þessa fyrstu stund þeirra fimmmenninga með „textaguöinum” Elvis Costello, eins og Difford kallar hann: „Ég var áhyggjufullur i fyrstu. Ég vonaðist til að hann færi ekki að setja Ut. á gömlu textana mlna og leggja til að ég endursemdi þá. Ég sá hann fyrir mér, sitjandi með spekingssvip „Jæja vinur, ef þú vilt hafa þá svona!!! ” En hann snerti ekkert við þeim. Ég er feg- inn að honum fannst ekki neitt at- hugavert við þá. Ég er i rauninni mjög stoltur af þessum textum og hann kunni að meta það sem ég var að gera. Ég dái Elvis alveg geysilega og þegar hann þrykkti þessum lögum upp á við, fannst mér eins og ég hefði öölast eitt- hvað.” Þaö er ekki aö ósekju að leiðir þeirra Squeeze-manna og Elvis Costello lágu saman. Elvis og þeir Rockpile kappar Nick Lowe og Dave Edmunds hafa um langt árabil verið einskonar krónprins- ar hins breska popps. I hertogasveitinni, sem stendur rokk-krónprinsunum næst eru þeir Chris Difford og Glenn Tilbrook tvimælalaust. Þess vegna var það mjög eðlilegt þeg- ar Jake Riviera hringdi I for- sprakka Squeeze, er undirbúning- ur siðustu Bandarikjafarar Rockpile og Elvis Costello stóð fyrir dyrum. Squeeze komu fram sem upphitunaratriöi á undan tónleikum Costello og vinskápur tókst með þessum köppum. Skilnaður — annar þáttur Frá upphafi haföi Squeeze haft Miles Copeland, bróöir Steve Copeland I Police, sem umboðs- mann. Miles trúir þvi að stöðug ferðalög og endalausir tónleikar geti rutt góöum hljómsveitum brautina til frægðar. Þetta hefur hann sannað með Police, en Squeeze kvintettinn var ekki alveg á sama máli. Þeim drengj- um þótti nóg um ferðalög og sögðu sem svo, að ekki væri allt fengið með spiliriinu einu saman. Þeir vildu hafa næði til að semja ný lög og móta nýjar hugmyndir. Þá greindi þvi verulega á við um- boðsmanninn og fór svo að lokum að skilnaður var óumflýjanlegur. Það sem meira var, þá kom i ljós að Jools Holland, hljómborðsleik- ari og einn tónsmiðanna innan Squeeze átti ekki heldur samleið með hinum fjórum svo að hann tók hatt sinn og staf og kvaddi i vinsemd. Segir ekki meira af hon- um i þessum þætti. Saga úr austurbænum — þriðji þáttur Jake Riviera heitir maður nokkur, skaphundur og slags- málagaur sem fer meö umboð Elvis Costello og Nick Lowe ásamt umboði annara minna þekktra listamanna. Hann tók upp umboðsstörf fyrir Squeeze um tima og vegnaði þeim nú vel og allt lék i lyndi. Jake skaut þeirri hugmynd að Difford og Tilbrook að þeir gerðu tveggja plötu albúm og notuðust við 4 upptökustjóra. Elvis Costello átti að stjórna á fyrstu hlið plötunnar, Nick Lowe annari hliöinni, Dave Edmunds þeirri þriðju og Paul McCartney fjórðu. Nú, nú,. Hafist var handa. Elvis byrjaöi, lauk sinu og við tók Dave og stjórnaði einu lagi áður en hann hljóp á braut með flækingsköllunum i Stray Cats. Nick vildi ekki stjórna svona góðum gæjum og aldrei kom til þess að Paul McCartney yrði kvaddur á staðinn. Samt var lokið við gerð plötunnar með að- UB 40 — Present Arms DEP. Int/EPIC EPC 85126 Júbi Forti eöa UB 40, er ein þeirra reggae hljómsveita sem Bretar kunna cinna best að meta núna. Fyrsta plata þeirra „Signing Off” vakti verðskuldaða athygli i fyrra. Bæði tónlistin og þá sérlega textarnir, féllu I góðan jarðveg og með „Present Arms” inn- siglar UB 40 stöðu sina i innsta hring þeirra bestu. Tónlist UB 40 er liðandi reaggae sem leik- iö er á gitara, trommur, bassa, hljómborö og blásturs- hljóðfæri. Lögin 8 fjalla öll um pólitiska stöðu iitilmagnans I Bretlandi, umfjöllunarefni sem mjög ofarlega er á baugi hvarvetna i hinum vestræna heimi núna. Tónlistin er mjög vel leikin, lögin gripandi og þægileg á- heyrnar. Þó er ekkert eitt lag jafn gripandi og „Food for Thought”, en þaö lag geröi þá vinsæla i fyrra. ..Present Arms” er jafnari og heilsteyptari plata en „Signing Off” var og fær hún min bestu meðmæli. Jg Jónatan Garðarsson skrifar.. PETER UB40 Peter Tosh — Wanted Dread & Alive CUNS 39113 Satt best að segja átti ég von á mun betri plötu frá Peter Tosh, þvi hann hefur sýnt að tónlistarmaður er hann góður. Siðustu plötur hans hafa verið mun betri en þessi er. Ekki skortir hann góða aðstoðar- menn þvl hér eru Robbie Shakespeare og Sly Dunbar á meöal spilara einu sinni enn. Þeir eru þekktir fyrir að fremja yfirleitt góða tónlist. Maöur hefði vel getað i- myndað sér að Peter Tosh tæki við sem fánaberi regga- esins við fráfall Bob heitins Marley, en þessi plata gefur ekki slik fyrirheit. Tosh er i greinilegri lægð. Það er nokkur ágætis lög að finna á þessari plötu en ég er þeirrar skoðunnar að lögin .JVothingButLove” og „Fools Die” eigi ekkert erindi á þess- ari plötu. Heildarsvipurinn hefði orðið betri ef þau hefðu verið látin liggja um kyrrt i ruslakistunni. Ekki er þó öll nótt úti enn og vonandi tekur Tosh sig saman i andlitinu áður en hann leggur i aðra plötu. jg stoð Elvis Costello. tJtkoman var 14 sögur úr austurbænum sem fjalla um fólk og vandamál þess i einkalifinu á mjög eftirtektar- verðan og skemmtilegan hátt. Allt er þetta fært i hinn smekkleg- asta tónlistarbúning á plötunni East Side Story. Tjaldið fellur — fjórðiþáttur Aður en gerð East Side Story lauk höfðu fjórmenningarnir I Squeeze elt uppi og fest hljóm- borðsleikarann Paul Carrack á bak við stæðu af hljómgerflum og öðru sliku. Jake Riviera lét af umboðsstörfum fyrir Squeeze vegna anna, svo að það starf er trúlega laust núna ef einhver vill bregða undir sig betri fætinum og fást við spennandi starf.Squeeze er á góðri leið með að mála nafn sitt meö stórum stöfum á efri sæti vinsældalistanna um leið og þeir klifra upp á hinn hála topp hæg- um skrefum. Eins og Chris Gifford sagði i hinni dramatisku lokasenu: „Þegar þú ert kominn á bólakaf I skitinn, skaltu loka munninum og leika á liðið.” Tjaldið. Ákaft lófatak. — jg

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.