Vísir - 18.07.1981, Blaðsíða 14

Vísir - 18.07.1981, Blaðsíða 14
14 Laugardagur 18. júll 1981 VÍSIR og fCTöctmda Boeing 747 þotur frá Lufthansa á flugveHinum viö Frankfurt. Skoóanakönnun um flugfélög og flughafnir: Flestir mæltu með Lufthansa Meðhvaða þremur flugfélögum heims viltu mæla með við annað fölk sem stundar viðskipti? Hvaða flughöfn veitir besta þjón- ustu að þinum dómi? Hefur þú ánægju af þvi að fljúga? Þessar spurningar og margar fleiri voru lagðar fyrir starfs- matn 20 þúsund stórfyrirtækja i Bandarikjunum, Evrópu og Austurlöndum fjær. Hér var um að ræða starfsmenn sem þurfa að ferðast mikið og að lokum voru 1.181 fyrirtæki tekin út og niður- staða könnunarinnar birt, en hún var gerð á vegum The Annual In- vestment File. Tilgangurinn var að kanna viðhorf manna til þjón- ustu flugfélaga og flughafna. Af þeim fyrirtækjum sem valin voru i endanlegt úrtak voru 43,9% i evrópskri eigu, 41,3% amerisk og 14,8% frá Austurlöndum fjær, einkum Japan. Ef fyrst er litið á niðurstöður svara við spurningunni um hvaða þremur flugfélögum menn vildu mæla með kom i ljós að flestir völdu þyska félagið Lufthansa eða 317. Næst kemur Swissair með 270 og American Airlines var i þriðja sæti og mæltu 249 með þvi. Síðan var röðin þessi: Singa- pore Airlines 181, Japan AirLines 175, Air France 156, Delta Air Lines 138, United Airlines 131, Gistiverd í Færeyjum Samkvæmt yfirliti sem Ferða- málaráð Færeyja hefur gert eru samtals 825 rúm i hótelum og öðr- um gististöðum i Færeyjum. Telja Færeyingar þetta allt of lítið gistirým i og takmarki komur ferðam anna. Ódýrast er að gistaá Farfugla- heimilum, en þar kostar rúmið 30- 40krónur yfir sólarhringinn. Eitt farfuglaheimili býður tjaldstæði á 15 krónur. A gistiheimilum kostar 70-80 krónur á sólarhring að búa fyrir einn, en um 100 krónur i tveggja manna herbergi. A sjómanna- heimilum er verðið afar mismun- andi eða frá 55-150 krónur fyrir einn og er þá reiknað með snyrt- ingu og baöi þegar verðið er orðið svona hátt. Tveggja manna herbergin kosta frá 95 krónum og upp i' 200. Hótelin eru svo dýrust, en þá er yfirleitt morgunverður innifalinn i verði og herbergi með baði og. snyrtingu. Eins manns herbergi kosta frá 120 og upp I 275 krónur og tveggja manna frá 120 og allt upp I 420 krónur. Fram til þessa hefur ekki verið um aö ræða nein skipulögð tjald- stæði I Færeyjum, en útlendingar mikið sóst eftir að fá að tjalda. Bæjaryfirvöld I Þórshöfn eru nú að koma upp tjaldstæði. United Airlines 131, British Air- ways (BA) 119 og í 10. sæti var hollenska félagið KLM með 105 meðmælendur. Þess má geta að SAS lenti í 16. sæti og að samtals níu bandafísk voru nefnd meðal þeirra 20 sem fengu flesta með- mælendur. Af flughöfnum hlaut Frankfurt 344 atkvæði, næst kom Charles de Gaulle við Paris með 268 og i þriðja sæti Schipol við Amster- dam með 231. Heathrow við London var i' niunda sæti og Kennedy i New York i 11. sæti. Af úrtakinu sögðust 65,4% njóta þess að fljúga meðan 34,6% gera það ekki. Ennfremur kom fram, að 38,4% töldu þjónustu um borð i flugvélum ágæta, 48,1% töldu hana góða og 16,2% sögðu þjón- ustu slæma. Mikill meirihluti sagði það ekki svara aukakostn- aði að ferðast með hljóðfráum farþegaþotum, flestir kusu að ferðast á Business Class farrými en aðeins 11,7% á afsláttárfar- gjöldum með félögum eins og Laker. Sæmundur Guðvinsson skrifar Gód þjónusta gcgn þjórfé? Fram til þessa hefur yfirleitt ekki tiökast aö gefa þjórfé hér- lendis og hafa flestir veriö þvi fegnir, aö minnsta kosti þeir sem veröa þjónustu aönjótandi. Vlöast hvar erlendis er hins vegar til siös aö gefa þjórfé á veitingahúsum og viöar, enda reiknaö meö þvi þegar launa- kjör fólks sem þjónustu veitir eru ákveöin. Tilefni þess aö á þetta er drepiö hér, er klausa i annars ágætum bæklingi, Around Ice- land 1981 — á hringvegi — sem er nýkomin i 6. útgáfu. Þar er að finna nytsamar upplýsingar um land og þjóð á ensku og islensku, en smáklausa á ensku um þjórfé vakti með mér nokkra furðu: „Most travel-guides will ad- vise you not to tip. Indeed, this is the general rule.H iwever, yoi may find yourself ge ting better service if you tip yo r regular waiter”. Þótt alltaf sé eitthvað um þaö að erlendir gestir sem hingað komi gefi þjórfé af gömlum vana hefi ég ekki áður séð þvi haldið fram opinberlega, aö þjórfé sé forsenda þess að fá góöa þjónustu á veitingahúsum hér á landi. i Swissair Flugfélagið Swissair heldur I nú upp á hálfrar aldar afmæli I sitt, en það var stofnað árið I 1931. Fyrsta árið flutti félagið 10 I þúsund farþega en á siðasta ári I voru farþegar félagsins 6,9 I milljónir talsins. | Swissair hefur ekki fremur en t önnur f lugfélög farið varhluta af ■ þeim erfiðleikum sem nú steðja j að flugrekstri.En þrátt fyrir tap ! á flugrekstri Swissair á siðasta ári varð nokkur tekjuafgangur i ára heild hjá félaginu vegna hagn- aðar á ýmsum öðrum rekstri en sjálfu fluginu svo og sölu flug- véla. Góð nýting var á flugleiðinni yfir Norður Atlantshaf i fyrra, eða 70%, en Armin Baltensweil- er, stjórnarformaður Swissair, segir, að engu að siður hafi ekki orðið nokkur hagnaður af þessu flugi þar sem fargjöld hafi ekki staðið undir kostnaði. Hjá Swissair starfa nú 16.000 manns. 1 I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I Jónas lóssar menn um Kaupmannahöfn Margt gott er að segja um leiö- sögurit Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra, um Kaupmannahöfn, sem Fjölvi gaf út á dögunum. Bókin er vel skrifuð, full af gagn- legum upplýsingum og fróðleik auk þess sem hún er i handhægu broti. Það er fengur að þessari bók og vonandi fylgja fleiri I kjöl- fariö með leiðsögn um aðrar þekktar borgir heims. Ritið skiptist i átta kafla auk al- mennra upplýsinga og borgar- korta. Kaflaheitin gefa nokkra hugmynd um innihaldið: Gisting, matur, uppskriftir, verslun, skemmtun, göngur, útrás, íslend- ingaslóðir. Sem fyrr segir er mikinn fróð- leik að finna i bókinni sem er tæp- ar 100 blaðsiður. Er ég sannfærð- ur um, að með þessa bók i hendi fá ferðamenn góða leiðsögn um borgina og skiptir þá engu hvort menn hafa komið þangað áður eða ekki. Kaflinn um tslendinga- slóðir er til dæmis afar fróðlegur og ég hvet alla þá sem fara til Kaupmannahafnar að lesa hann vel og vandlega og ganga með Jónasi um slóðir þekktra tslend- inga sem þarna höfðu lengri eða skemmri dvöl. Ekki er ég að öllu leyti sáttur við það hvernig Jónas ver þvi plássisem ekki stærri bók býður. Þau hjón, Jónas og Kristin Hall- dórsdóttir, kona hans, segja i for- mála: „...mikill hluti ferða- manna ver mestum hluta timans á hóteli og veitingahúsum og hefur þess á milli töluverðan áhuga á að skemmta sér og lita i bUðarglugga, en er ekki allan sólarhringinn að skoða söfn og merka staði”. Ekki get ég tekið undir fullyrð- inguna um löngun ferðamanna til að hi'ma inni á hótelherbergjum þarna i Höfn, en hins vegar get ég skrifað upp á hitt. En Jónas gengur Ut frá þvi sem visu að menn vilji búa vel og eyðir þvi miklu nimi i að lýsa dýrustu hótelum borgarinnar. Þótt gaman sé að búa á þessum finu hótelum tel ég þeim gjaldeyri illa varið, auk þess sem þeir eru kjósa sér næturstað i slikum hæg- Jónas Kristjánsson, ritstjóri. sæl- keri og férðalan^ur. indumvita yfirleittaðhverju þeir ganga. Það hefði verið nær að nefna fleiri hótel i styttra máli og gefa breiðari mynd af verði og gæðum. Sömuleiðis finnst mér of miklu rúmi eytt i að segja frá dýrum matstöðum og betra hefði verið að segja frá tveimur eða þremur slikum stöðum ítarlega og siðan stutta umsögn um marga. Kristin Halldórsdóttir er höf- undur ljósmynda, sem eru i lit- um, og eru þær flestar misheppn- aðar og sumar afleitar. Ef þau hjónætla að skrifaog ljósmynda i fleiri bækur af þessu tagi verður frúin að fá tilsögn hjá Bjarnleifi. Þá þótti mér vanta i bókina meiri upplýsingar um staði sem börn hefðu gaman af að heim- sækja. Til dæmis Sömods bolsiu- fabrikkuna á Nörregade, en þar geta börn fylgst með þvi hvernig karamellur verða til. Svo má ekki gleyma MarionbarnaleikhUsinu i Kongens Have, en þar eru sýn- ingar daglega yfir sumarið nema á mánudögum. Enhvað sem tina má til af að- finnslum af þessu tagi þá er bókin „Ómissandi ferðafélagi á Hafnarslóð” eins og segir á bókarkápu og vonandi fylgja leið- sögurit um fleiri borgir i kjöl- farið. Ferdamenn flýja verðbólgulöndin Ferðamálafrömuðir viða um heim hafa lengi velt þvi fyrir sér hversu mikil áhrif verðbólga hafi á komur ferðamanna til hinna ýmsu landa. í timaritinu World- press Review eru nefnd dæmi um samspil verðbólgu og fækkunar' ferðamanna. Þótt ferðamönnum hafi fækkað um 2% á Spáni á siðasta ári er Spánn engu að siður lang fjölsótt- asta ferðamannaland Evrópu. Það ár fjölgaði ferðamönnum i Sviss um 15% frá fyrra ári og er það þakkað litiUi verðbólgu og nokkurri gengisfellingu frankans. Stóra Bretland og írland áttu við 18% verðbólgu að striða á siðasta ári og þar fækkaði ferðamönnum um 5%. Veruleg fækkun.varð á komum ferðamanna til Tyrk- lands, en þar geisaði 94% verð- bólga. Mest var fjölgun ferðamanna i Kanada, Bandarikjunum, Astra- liu, Nýja Sjálandi og Japan, eða um 20%. Verðbólga i þessum löndum var minni en viða annars staðar. Hérlendis fækkaði ferða- mönnum um 15% enda var verð- bólga 56% og þetta segir sina sögu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.