Vísir - 25.07.1981, Qupperneq 2
2
♦ * \ í ( l
i , 1 i 4.
VÍSIR
> 14 . » ' 1 1 ^ J .
Laugardagur 25. júli 1981
a
um
Georg kemur
Björgvin Guðmundsson hefur
heldur betur fengiö að vera i
sviðsljósinu síðustu vikurnar.
Þessi frásögn tengist honum er
höfð eftir mjög áreiðanlegum
heimildum. Þegar Björgvin
tekur við starfi forstjóra Bæjar-
útgerðarinnar losnar staöa hans
i viðskiptaráðuneytinu. Þar er
Björgvin skrifstofustjóri. Vist
er talið, að í það starf verði ráð-
inn Georg ólafsson núverandi
verðlagsstjóri....
Félagsstofnun
vill leigja
Félagsstofnun stúdenta mun
nú hafa mikinn áhuga á húsnæði
sem næst Háskólanum. Hug-
myndin er að nota húsið fyrir
stúdentagarða. Skotspónn heyr-
ir, að ákveðið hús sé nú i sigtinu,
nefnilega hús Landssmiðjunnar
við Sölvhólsgötu hversu ótrú-
legt, sem það kann nú að virð-
ast.Gera má ráð fyrirað miklar
breytingar þurfi á húsinu til að
það geti þjónað nýjum tilgangi
og vi'st er að ieigutiminn hlýtur
að verða langur....
Álforstjóri i
Argentinu
Þau gerast nú tiðindin i ál-
málunum. Skotspæni er sagt, að
sitthvað sé á skjön i þeim efn-
um.Tildæmis hefur honum ver-
ið bent á það, að einn þeirra
manna, sem lét Cooper og Ly -
brand endurskoöendunum uppi
álit I tengslum viö vinnu þeirra
hafi verið fyrrverandi forstjóri
álvers i Argentinu. Þvi er bætt
við, að innkaup hans á sUráli á
þeim tima sem hann var for-
stjóri hafi verið mun óhag-
kvæmari og dýrari en innkaup
ísal á sama ti'ma. Þykir þeim,
sem telja illa farið með álverið i
þessu máli ekki vera um ýkja
trausta heimild að ræða þar
sem þessi maður fer...
Hinrik gerist
brautrydjandi
NU eru Utvarps- og sjónvarps-
menn glaðir. Sjónvarpið er nú I
friieins og gera má ráð fyrir að
mönnum sé orðið nokkuð ljóst.
Einn þeirra, sem þar af leiðandi
er i frii er Hinrik Bjarnason,
deildarstjóri lista- og skemmti-
deildar sjónvarpsins. SU saga er
sögð, að Hinrik hafi farið I fri
nokkru áöur en hið reglulega fri
sjónvarpsins hófst. Segir að
hann hafi talið sig eiga inni fri-
daga vegna yfirvinnu, sem hann
hafði unnið á ferðum sinum
erlendis fyrir sjónvarpið. Ekki
mun vani aö greiða fyrir yfir-
vinnu i Utlandsferðum. Þvi er
það, aö Utvarps- og sjónvarps-
menn eru kátir og telja Hinrik
hafa unnið gott brautryðjenda-
starf i þeirra allra þágu.
Sendiráðs-
klúbburinn
Eitt blaðanna skýrði frá þvi
um daginn og haföi frásögn sina
úr timaritinu SamUel, að rekinn
væri sérstakur klúbbur á vegum
starfsmanna Bandariska sendi-
ráðsins i Reykjavik. KlUbbur
þessi er viö Þingholtsstræti og
hafa íslendingar sem til þekkja
getað komið þar siðla nætur til
skemmtanahalds. Á skotspón-
um heyrist, að i frásögn
SamUels, sem ekki er enn kom-
inn Ut sé forstöðumaður Menn-
ingarstofnunar Bandarfkjanna
nafngreindur og greint frá ýms-
um ófögrum sögum af honum.
Forstöðumaður þessi og
reyndar flestir yfirmenn sendi-
ráðsins eru nU á förum til starfa
annars staðar þött ekki sé það
talið tengjast þessum frásögn-
um á nokkurn hátt....
Myndað sér
skoðun
Og aðeins meira um sendi-
ráðsklUbbinn. Timinn i gær
hefur viðtal viö aðstoðarsendi-
herra Bandarikjanna til að
kanna hvort veriö geti að ólög-
leg vinsala fari fram i klUbbi
þessum. Sendiherrann svarar
þvi til að þeir sem sæki sendi-
ráðsstarfsmennina heim leggi
fram fjárframlög svo gestgjaf-
arnir þurfi ekki að bera fjár-
hagslegt tjón af heimsóknum.
Siðan segir hann orðrétt:
„öryggisverðirnir hafa
myndaö sér nokkuð ákveðnar
hugmyndir um það hver sé hin
sanngjarna upphæð fyrir hvern
drykk”. Skotspónn bætir þvi
við, að ekki er mikill vandi að
mynda sér skoðun um það þvi
upp á vegg i' klUbbnum hangir
nefnilega spjald þar sem skýrt
er frá þremur megindrykkjar-
tegundum og verði hvers um
sig. Þetta spjald mun sjást á
mynd sem SamUel hefur Ur
klUbbi þessum....
Kvenna-
framboð
hrellir
Mikill titringur fór um Þjóð-
viljann og bræðrabúðir hans i
Alþýðubandalaginu þegar af
kvennaframboðinu heyrðist.
Skotspónn heyrir að allt hafi
verið sett á fullan kraft til að
koma i' veg fyrir slik framboð
viðar enda telja kommUnistar
(eða eru þeir kratar?) sig helst
mundu verða fyrir barðinu á
slíkum framboðum. Á Þjóðvilj-
anum hafa tveir aðilar fengið
þetta sem sérlegt verkefni, þau
Alfheiður Ingadóttir og Þor-
bjiá-n Broddason (sá sem mest
hefur á móti Andrési önd).
Hreyfing
á Einari
Enginn hörgull hefur verið á
yfirmönnum á Þjóðviljanum
undanfarin ár en nú er von aö
fækki. Hvfslað er að Einar Karl
Haraldsson sé farinn að lita I
kringum sig og hugsa sér til
hreyfings. Þetta sagði „góður”
og gegn kommUnisti..
Löggan
vinsæl
Lögreglan á Seltjarnarnesi
hefur tekið upp þá háttu að
keyra sifellt um byggðarlagið,
margar eftirlitsferðir á dag. Sú
siöasta mun farin um ellefu
leytið á kvöldin. Ef lögreglu-
menn sjá i þeirri ferð eitthvað
vafasamt við hús Seltirninga
svo sem opnar svalahurðir,
grátandi barn eða þess háttar,
þá gera þeir Ibuum viðvart.
Þetta hefur mælst svo vel fyrir,
að bæjarstjórn Seltjarnarness
hefur sent lögreglunni sérstakt
þakkarbréf fyrir þessa starfs-
hætti. Lögreglan á Seltjarnar-
nesi mun siðan hafa smellt þvi I
ljósritunarvél og sent öðrum
lögreglustöðvum á höfuð-
borgarsvæðinu eintak til
fagurrar eftirbreytni.
Blöndal
þingmaöur
Nýlega lét Kristinn G. Jó-
hannsson af störfum ritstjóra
Islendings. Við höfum heyrt aö
illa hafi gengið að finna mann i
hans stað af hvaða ástæðum
sem það kann nU að vera. Fyrir
norðan segja þeir bara: Getur
ekki Blöndal þingmaður bara
tekið þetta aö sér...
Vænlegar
horfir
Sjálfstæðismenn tala nU um
að vænlegar horfi um samein-
ingu flokksins eftir að sUráls-
málið kom upp. Bent er á, að þá
mættu i fyrsta skipti á þing-
flokksfund ráðherrarnir þri,
Gunnar, Friðjón og Pálmi. Enn
fremur og enn frekar er bent á
það, að i' ræðu sinni á þessum
þingflokksfundi lagði Gunnar
Thoroddsen einmitt til, að skip-
I* yröi sérstök fagleg nefnd til
viðræðna um málið. Þetta atriði
var einmitt áberandi I ályktun
þingflokksins sem samþykkt
vareftiraðGunnar vék af fundi.
Alyktunin mun að visu hafa ver-
ið tilbUinn fyrir þingflokksfund-
inn...
Stimpil-
kortín
Timinn fann hjá sér sérstaka
hvöt til að spyrja hvort Sigur-
geir Jónsson aðstoðarbanka-
stjóri I Seðlabankanum hefði
stimplað sig Ut i bankanum
þegar hann sat þingflokksfund
hjá Sjálfstæðisflokknum um
daginn. Skotspónn vill læöa þvi
að Ti'manum að fá má fleiri
fréttir með þessum hætti.
Hvernig væri aö huga að
stimpilkortinu hans Inga R. hjá
Brunabót? Eða það sem stendur
Timanum kannski nær, korti
Helga Bergs bankastjóra
Landsbankans þegar Hann situr
miðst jórnar- eða þingflokks-
fundi hjá Framsóknarflokkn-
um?
r-
Kobbi & Meyvant kanna stofnun !
pappirsverksmiöju fyrir Pottorm i
L
„Það er misskilningur
að ég sé á móti stóriðju.
Ég vil bara hafa hana í
smáum stíl", sagði Pott-
ormur Fjör-Leifsson í
viðtali við fréttaskugg-
ann.
Pottormur sagði, að
hann gæti vel hugsað sér
litla og heimilislega stór-
iðju í vinalegum gömlum
húsum, ,,þú veist eins og
þessum sem standa fyrir
ofan símaklefann niðri í
bæ", sagði hann orðrétt.
Hann kvaðst hafa stof nað
fjörtíu nefndir til að
vinna að þessu máli og
yrði fluttur inn slatti af
Ástralíumönnum vegna
mannfæðar hér til að
vinna nef ndastörf in.
„Annars hef ég mestan
áhuga á pappírsverk-
smiðju", sagði Pottormur
þegar við ætluðum að
þakka honum fyrir
spjallið. „Jú sjáðu til, ég
hygg að það myndi spara
verulega ef ráðuneyti
í frétta-
SKUGGANUM:
Láki L.
skrifar
mitt hefði yfir slikri
verksmiðju að ráða. „Ég
ætla að fá einhverja út-
lenda sérfræðinga til að
rannsaka hvort ekki sé
hægt að setja slíka verk-
smiðju upp hér. Eins og
þú veist þá er ég lærður
amöbufræðingur og ég
hef grun um að það megi
framleiða pappír úr þess-
um frumverum", sagði
Pottormur Fjör-Leifsson.
Hér ætluðum við aftur
að slá botninn í samtalið
en Pottormur hélt áf ram:
„Ég hef nefnilega komist
mjög nærri amöbunum og
alla tíð átt mjög auðvelt
með að umgangast þær. I
æsku gerði ég mikið af
því að ráfa um f jörurnar
fyrir austan og þú veist
hvað maður kemst f gott
samband við kjósendur á
þann hátt." Hér ætlaði
blaðamaður að skjóta því
inn hvaða endur, þessar
kjósendur væru, hvort
þær væru ekki bara í
Kjósinni en komst ekki að
því Pottormur hélt‘
áfram: „Nú svo eftir að
ég kom hingað í ráðu-
neytið hef ég kynnst
möppudýrum sem eru
ekki alveg óskyld amöb-
unum en þau eru stærri
og meðfærilegri, einkum
fara þau betur í hillu".
Og nú kom allt í belg og
biðu: „Annars getur ver-
ið að ég láti íslenska end-
urskoðendur annast
rannsókn á pappirsmál-
inu f yrir mig. Ég hef þeg-
ar haft samband við
Kobba og Meyvant h/f á
Neskaupsstað og þeir
hafa tekið vel í að senda
mér hagstæðar niðurstöð- ■
ur. Nú svo er alltaf til í
dæminu að fá margar g
endurskoðunarskrifstof-
ur og nota þá skýrslu sem
hagstæðust verður", *
sagði Pottormur. Nú var |
blaðamaður alveg orðinn i
síðustu stundu að skila .
rnikilvægri frétt en hann 1
heyrði í fjarska rödd I
Pottorms þegar blaða- |
maður var að leggja tólið ■
á: „Oh ég gleymi aldrei i
gömlu góðu dögunum 1
fyrir austan þegar fugl- I
arnir sungu fallega við |
gluggann minn, ég heyrði i
lækinn sytra milli stein-
anna og gæla við iðja- '
grænan bakkann. Og svo I
kom Lúlli frændi kannski |
og fór með mig niður .í i
fjöru. Þá var dagurinn
fullkominn".