Vísir - 25.07.1981, Qupperneq 6
6
Laugardagur 25. júli 1981
VÍSIR
Margir íslendingar
lifa á fíkniefnasölu
— bædi hér heima og erlendis
Þóröur Þóröarson, fulltrúi hjá fíknicfnadómstólnum: Ráöuneytiö
hefur sýnt okkur fullan skilning.
Öðru hverju gefur að
lita í blöðum f rásagnir af
uppljóstrunum á fikni-
efnasmygli og dreifingu.
Sérstök deild er innan
lögreglunnar i Reykjavik
sem annast rannsókn
þessara mála. Er það
ávana-og fíkniefnadeildin
en hún starfar svo aftur í
mjög nánum tengslum
við fíkniefnadómstólinn.
Fæst af þvi sem þar fer
fram kemur fyrir augu
almennings og umfang
rannsóknanna er meira
en flesta órar fyrir. En
eitt virðist þó að minnsta
kosti Ijóst að framboð og
neysla fíkniefna hér á
landi fer vaxandi.
Visir sneri sér til Þórðar
Þórðarsonar, fulltrúa hjá fikni-
efnadómstólnum til að forvitn-
ast um þróun mála og þá ekki
sist hvernig lögreglan er i stakk
búin til að mæta þessu aukna
framboði.
Neyslan úti á landi
alltaf að aukast
Er fíkniefnaneysla útbreitt
vandamál hér á landi?
,,Ég held að besti mælikvarð-
inn á það hversu viðtæk dreif-
ingin er orðin og neyslan al-
menn sé til dæmis i hve auknum
mæli lögreglumenn verða varir
við fikniefni við almenn lög-
gæslustörf. Það er oröið algengt
að fólk sem gisti fangageymslur
sé með fikniefni og þá aðallega
cannabisefni i fórum sinum.
Einnig er umferöardeildin að
finna efni á fólki sem lendir i
árekstrum og umferöarslysum.
Þá hefur framboðið aukist mjög
á götunum og einnig ákveðnum
veitingastöðum.
Gildir þetta þá eingöngu fyrir
Reykjavik eöa er landsbyggöin
aö færast meira inn i myndina?
Já, á ákveðnum stöðum úti á
landi virðist neyslan vera orðin
mjög almenn. Efni berast oftast
með aðkomufólki sem kemur til
vinnu á þessum stöðum, þannig
kemst heimafólk siðan á bragð-
ið.
Árangur lögreglunnar
hefur minnkað
En hvernig er árangurinn af
starfi fikniefnadeildarinnar?
Að mínu áliti verður lögregl-
unni ekki eins ágengt við störf
sin i dag eins og var fyrir nokkr-
um árum. Bæði er að framboðið
hefur aukist mjög og einnig
vantar meiri mannskap og betri
tæki. Þá hefur það einnig háö
okkur að óæskilega miklar
mannabreytingar hafa átt sér
stað innan deildarinnar af ýms-
um ástæöum.
En tæknilegur útbúnaöur
deildarinnar, hvernig er hann?
1 dag er útbúnaðurinn mjög
ófullnægjandi. Við lögðum i vor
fram tillögur fyrir dómsmála-
ráðuneytið um hvaöa tæki við
teldum brýnast aö fá til að upp-
fylltar væru lágmarkskröfur.
Ráðuneytið tók mjög vel i þess-
ar tillögur og samþykkti þær i
öllum atriöum. Við höfum loforð
um fjárveitingu fyrir öllu þvi
sem við teljum nauðsynlegt aö
fá. Af einhverjum ástæðum hef-
ur þó orðið dráttur á fram-
kvæmd þessa.
Er eitthvað eitt ööru fremur
sem ykkur finnst vanta?
,,Það er auðvitað margt sem
vantar en til dæmis má nefna
sjálfvirkan simsvara sem við
teljum mjög áriöandi að fá sem
fyrst. Slikt tæki er nauðsynlegt
til að auka upplýsingastreymi
til okkar. Fólk þarf aö geta
hringt i ákveðið númer og lesið
inn skilaboð án þess að þurfa að
gefa upp nafn eöa númer. Ég
held að þetta mundi skila
miklum árangri, þvi margir eru
tregir við að hringja þegar hægt
er að rekja simtölin, hvað þá
heldur að mæta niður á lög-
reglustöð til að gefa upplýsing-
ar.” _
,,í sambandi viö mannafla má
nefna að hér starfa átta manns
við rannsóknadeildina, þar af er
einn lögreglufulltrúi og svo sá
sem hefur umsjón meö leitar-
hundinum. Auðvitað væri æski-
legt aö fá fleiri menn til starfa,
en það sem okkur finnst þó mest
vanta, er aö hér sé hafður mað-
ur á bakvakt, einhver sem hægt
er að ná til utan venjulegs
vinnutima. Dómsmálaráðu-
neytið hefur einnig tekið mjög
jákvætt i þetta atriði.
Margir lifa alg.jörlega
á fíkniefnasölu.
Hverjir eru þaö sem standa i
innflutningi og dreifingu fikni-
efna.
Það má segja að þeir skiptist i
tvo hópa. Annars vegar eru
neytendur sem selja eingöngu
til að fjármagna eigin neyslu.
Þeir kaupa sér litið magn i einu,
taka hluta af þvi fyrir sjálfa sig,
en blanda svo afganginn með
einhverjum aukaefnum og
drýgja þannig til sölu. Aukaefn-
in geta verið margs konar, til
dæmis er Henna hárlitunarefni
mjög vinsælt um þessar mund-
ir. Þetta eru þeir sem eru á
ferðinni á götunum.
A hinn bóginn eru svo aðilar
sem lifa algjörlega af þessu.
Þeir gera þetta eingöngu i
ágóðaskyni, þó margir séu einn-
ig neytendur i einhverjum mæli.
Oft eru það nokkrir aðilar sem
taka sig saman og kaupa litið
magn i upphafi. Verðmunurinn
hér heima og erlendis gerir það
aö verkum að þessi fjárfesting
veltir mjög fljótt upp á sig og
innan tiðar eru þessir menn
komnir með milljóna veltu og
mikinn hagnað. Þetta eru menn
sem berast mikið á oft á tiðum.
Láta sig ekkert muna um tiðar
utanferðir til innkaupa á fikni-
efnum.”
Fékk þrjú ár fyrir
fimmtán kiló
Hvernig refsingu er beitt gegn
fikniefnabrotum?
„Það er mjög mismunandi
eftir eðli brotanna. Flestum
málum lýkur þó með dómssátt
sem felur i sér greiðslu sektar.
Hámarkssekt samkvæmt fikni-
efnalöggjöfinni er sextiu þúsund
krónur, en fangelsisdómur get-
ur orðið allt aö tiu árum.
Þyngsti fangelsisdómur sem
hér hefur verið kveðinn upp var
þrjú ár. Það var fyrir innflutn-
ing og dreifingu á rúmlega
fimmtán kilóum af hassi sem
náði yfir tveggja ára timabil. A
þessu ári hefur 160 málum lykt-
að með dómssátt en tólf með
fangelsisdómum.”
Geta menn komiö sér undan
dómum viö fikniefnabrotum?
„Nei, menn sleppa ekki við að
taka út sina refsingu ef til þeirra
næst. Margir áfrýja dómsúr-
skurðinum til hæstaréttar og
þar getur tekið nokkur ár að fá
máliö tekið fyrir. Sumir taka sig
á, en aðrir halda starfseminni
áfram, ýmist hér heima eða
erlendis. Fari þeir utan getur
oft verið erfitt að ná til þeirra,
þvi framsal er þungt i vöfum,
nema hér á milli Norðurland-
anna, þar sem samstarf er mjög
gott.”
Þú sagðir i viðtali um daginn
að vitað væri um fjölda Islend-
inga sem lifðu af fíkniefnasölu i
Kaupmannahöfn.
„Já, við vitum af þessum
mönnum, en þeir eru flestir
komnir með fast aðsetur i Dan-
mörku og heyra orðið undir
yfirvöld þar. Þeir eru oft hand-
teknir af þarlendri fikniefnalög-
reglu og einnig er ekki óalgengt
að mönnum sé visað úr landi.”
Er okkar refsilöggjöf sam-
bærileg við hin Norðurlöndin?
„Já, hún er það. Aftur á móti
hefur framkvæmdin orðið sú að
Danir taka mun vægar á brotum
heldur en við gerum, og Sviar og
Norðmenn eru lang harðastir.”
Nú hefur veriö rætt um að
Rannsóknarlögregla rikisins
yfirtaki fikniefnadeildina. Hver
er þfn skoðun á þvi.
„Samstarf fikniefnalögreglu
og fikniefnadómstóls þarf að
vera mjög náið og ég tel þvi
ágætlega fyrirkomið eins og það
er i dag. Það mundi ekki leysa
nein vandamál að flytja þessa
deild undir rannsóknarlögregl-
una”.
Samstilltur þjálfaður
kjami nauðsynlegur
Hvaöa ráöum er þá hægt aö
beita til aö virkja fikniefna-
deildina betur?
„Bætt aðstaða er að sjálf-
sögðu mikilvæg. En aðal atriðið
er að mynda samstilltan kjarna
sem býr yfir sérhæföri reynslu
og þekkingu i fikniefnarann-
sóknum. Við eigum slika menn
til og þurfum að þjálfa fleiri.
Mikilvægt er lika að þeir sem
þessum málum stjórna taki tillit
til ráðlegginga þeirra sem búa
yfir sérþekkingu á fikniefna-
rannsóknum.”
Hlutur Smyrils lltill.
Aö lokum Þóröur, undanfariö
hefur mikið veriö rætt um fíkni-
efnasmygl meö Smyrli. Telur
þú þá leið hættulegri en aðrar?
Nei, mér finnst fráleitt að ætla
Smyrli einhvern stóran hlut i
þessu. Allar skýrslur sýna að
meginstraumur fikniefna inn I
landiö er um Keflavikurflug-
völl, þó að hitt þekkist eflaust.
Ég vil þó taka fram að okkar
samstarf við tollgæsluna á
Keflavikurflugvelli hefur verið
mjög gott, en staðreyndin er sú
að mun meira magn kemur þar
i gegn heldur en annars staðar
frá.”