Vísir - 25.07.1981, Page 20

Vísir - 25.07.1981, Page 20
UTBOÐ Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir tilboðum i tengingu varma- skipta og frágang pipulagna á hrauni. Útboðsgögn eru afhent á bæjarskrifstofu Vestmannaeyja og verkfræðistofu Guð- mundar og Kristjáns Laufásvegi 12, Reykjavik, gegn 500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð i Ráðhúsinu Vest- mannaeyjum, þriðjudaginn 4. ágúst n.k. kl. 16.00. Stjórn veitustofnanna Vestmannabæjar. Frá Fjórðungs- sjúkrahúsinu Neskaupstað Sjúkraþjálfara vantar að Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað Upplýsingar gefur forstöðumaður í símum 7402 og 7565 Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað ^ Fjölbrautaskóli Suðumesja Unnt er að bæta við nokkrum nemendum í vélstjóranám 1. stigs á komandi vetri Umsóknarfrestur er til 7. ágúst Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Halldórsson Skólameistari Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Melabraut 41, kjallari, Sel- tjarnarnesi, þingl. eign Huld Árnadóttur, fer fram á eign- inni sjáifri miðvikudaginn 29. júli ’81 kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. AKRANES Könnun fer nú fram á þörf á byggingu verka- mannabústaða á Akranesi. Eyðublöð liggja frammi á Bæjarskrifstof- unni, fyrir þá, sem eru i húsnæðishraki og hafa rétttil kaupa á ibúð i verkamannabústað, en þeir eru: 1. Eiga lögheimili i sveitarfélaginu B. Eiga ekki íbúð fyrir, eða ófullnægjandi íbúð. C. Hafa haft í meðaltekjur sl. 3 ár kr. 59.520.- og kr. 5.260,- fyrir hvert barn á framfæri innan 16 ára aldurs. Byggingarsjóði verkamanna er heimilt að lána allt að 90% af kostnaðarverði og eru þau lán að fullu verðtryggð. Skilafrestur ertil 10. ágúst 1981. Stjórn Verkamannabústaða Akranesi vtsm Laugardagur 25. júlf 1981 Starfsmenn og keppendur mótsins fyrir keppni: f.v. Ólafur Stefánsson, ónefndur biaðamaður, Gisli Jónsson, Gisli B. Hjartarson, Sigbjörn Gunnarsson, Gunnar Sólnes.Friðjón Karlsson, Birgir Björnsson, Jón Steinbergsson, Ragnar Lár, Hreiðar Jónsson, Einar Páimi, Gunnar Gunnarsson, Magnús Gisiason, Ólafur Ásgeirsson, Árni Ingimundarson og Pétur Antonsson. ,,Þar skiluöu sér þrotlausar æfingar Jóns á erlendri grund” — Hörkuspennandi golfkeppni hjá riddurum hringborðsins á Akureyri „Riddarar hringborðsins” á „Terlunni” á Akureyri héldu ný- leea sina árlegu golfkeppni. Tókst hún i alla staði mjög vel og prúð- mannlega fram, að þvi er tiltölu- lega áreiðanlegari heimildir herma. Umrætt hringborö er nánar til tekið á Matstofu Kaupfélags Ey- firðinga, Súlnabergi, eins og staö- urinn heitir á mjög finu máli. Fastagestir þar tala þó vart um annað en „Teriuna”. Þar er að- eins eitt hringborð, þó fleiri séu raunar hringlaga. Fyrstu fasta- gestirnir koma að þessu borði kl. 8, strax og staðurinn hefur verið opnaður, gott ef þeir allra hörð- ustu eru ekki komnir i biðröö viö dyrnar skömmu fyrr. Siðan eru menn að koma og fara allt fram undir 10. 1 slðdegiskaffinu hefur borðið einnig sina fastagesti og er kjarninn sá sami og um morgun- inn. Hafa þessir fastagestir með sér óformlegan félagsskap, nokkurs- konar leynifélag, sem af og til heldur leynifundi. Færri komast i félagið en vilja, enda eru inntöku- skilyrði mjög ströng og engum lausagöngumönnum er hleypt inn i það allra heilagasta. Fara margar sögur af þessum leyni- fundum, sem stundum hafa oröiö óþarflega opinberir. Þrotlausar æfingar Jóns Stein- bergsson á erlendri grund skiluðu sér. Við látum liggja á milli hluta hverju hann heldur fyrir aftan bak. En þetta er nú önnur saga, snú- um okkur að golfinu. Keppnin fer þannig fram, að tveir spila saman og slá til skiptis. Er þá ætlast til að annar aðilinn sé viðvaningur, allavega hálfgerður viðvaningur, en hinn þaulæfður golfleikari. A finu máli riddaranna er þetta fyr- irkomulag nefnt „Pró-Am”. Það hefur hins vegar viljað bregða viö, að áhöld séu um hvor aðilinn sé betri. Þetta var þriðja slika golfmót- iö, sem hringborösmenn halda. ■ Hafa umsvif þessara móta stöð- ugt farið vaxandi. Þannig var nú i fyrsta skipti skipaður sérlegur keppnisstjóri. Þótti þá ekki koma annar til greina en Mikael Jóns- son. Þá var einnig skipaður veit- ingastjóri. Þar kom heldur ekki nema einn til greina, sem sé Frið- jón nokkur Karlsson. Þá var i fyrsta sinn keppt um verðlauna- skjöld, sem Sporthúsið gaf til keppninnar. Verður hann hengd- ur upp við hringboðrið. Sigurvegarar i keppninni að þessu sinni urðu þeir Jón Stein- bergsson og ónefndur blaðamað- ur. Réðust úrslitin ekki fyrr en á siðustu holunni, þegar Jón setti niður langt pútt meö stórkostleg- um tilþrifum. Þar skiluðu sér þrotlausar þriggja vikna æfingar Jóns á erlendri grund fyrir örn Ragnarsson var liðsstjóri og burðarmaður hjá sigur- vegurunum. Notaði hann rúss- neskar leikaðferðir i finnskri út- gáfu. keppnina. í 2. sæti urðu Gisli Jónsson og Gunnar Gunnarsson, en jafnir i 3. - 4. sæti urðu Pétur Antonsson ásamt Arna Ingi- mundarsyni og Gunnar Sólnes ásamt Ólafi Stefánssyni. Akureyrarblaðið Dagur lét að þvi liggja i frétt frá mótinu, að umræddur blaöamaöur hefði siglt undir fölsku flaggi I keppninni, þar sem stórkarlalegar sveiflur hans hafi ekki verið með neinum „viðvanings”-brag. Þessi að- dróttun er svo sem skiljanleg, þegar til þess er litið, að iþrótta- fréttaritari Dags er Ólafur nokk- ur Asgerisson, sem lenti i neðsta sæti i keppninni. Besti drengur hann Ólafur, en það var hans ólán aö misskilja reglurnar. Hann hélt sem sé að sá yrði sigurvegari, sem flest notaði höggin. Hins veg- ar sýndi hann marga fallega takta og þykir kunnugum nokkuð vist, að eftir nokkurra ára þrot- lausar æfingar, verði ólafur bú- inn að ná ónefndum blaðamanni aö getu! Það skal tekið fram til að fyrir- byggja misskilning hjá viðkvæm- um sálum, að flest af þvi sem hér hefur verið skrifað er stórlega ýkt, jafnvel hrein lygi. Annað er uppspuni frá rótum. G.S./Akureyri. Ekki kom annar til greina en Mikael Jónsson til að ‘vera keppnisstjóri.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.