Vísir - 17.09.1981, Page 5
Frjálslyndir i Bretlandi sam-
þykktu á landsþingi sinu i gær að
taka upp kosningasamstarf við
Lýöræöisjafnaðarflokkinn, enda
spá allar skoðanakannanir sliku
kosningabandalagi sigri i næstu
þingkosningum (i siðasta lagi
1984).
Slikt kosningabandalag er þó
ekki þar með orðið að veruleika,
þvi að framundan eiga báöir
flokkar erfiðar viðræður um sam-
eiginlega stefnuskrá, sem báðir
geti sætt sig við.
David Steel, formaöur Frjáls-
lyndra, og William Rodgers, einn
af áhrifamestu fjórmenningunum
úr Lýöræðisjafnaðarflokknum,
höfnuðu alfarið þeim möguleika,
Fpjálslynfljp sampykklu
að flokkarnir yrðu sameinaðir.
En Steel sagði i sjónvarpsviðtali,
að það mundi áreiöanlegt, að
samvinna yrði tekin upp fyrir
næstu þingkosningar.
Rodgers sagði: „Enginn hefði
trúað þessu fyrir hálfu ári, en nú
höfum við tekið saman höndum i
von og vissulega fullum ásetningi
um að mynda næstu rikisstjórn”.
Skoðanakannanir hafa bent tii
þess, að kosningabandalag frjáls-
lyndra og lýðræðisjafnaðar-
manna mundi njóta meira fylgis
en Ihaldsflokkurinn eftir
stjórnarsetu Thatchers, en
Verkamannaflokkurinn stefnir i
klofning vegna uppgangs vinstri-
sinna i flokknum.
llggvænleg flkni-
efnaneysla í
Bandarlklaher
Notkun fikniefna hefur veriö mjög almenn innan herliðs Banda-
rikjamanna i Evrópu, en þó hefur dregið úr neyslu heróins og hörð-
ustu eiturlyfja.
Nær helmingur bandariskra
hermanna og sjóliða, sem stað-
settir eru i Evrópu, hafa neytt
Tpeqða í stiórnar-
mvnúunapviðpæð-
fikniefna eða áfengis við skyldu-
störf, eftir þvi sem fram kemur i
rannsóknarskýrslu einnar þing-
nefndar i Bandarikjunum.
Könnun meðal nær 2000 lægra
settra hermanna leiddi i ljós, að
43% hermannanna og nær 50%
sjóliða höfðu neytt fikniefna eða
áfengis við skyldustörf einhvern
timann i mánuðinum, áður en
þeir voru spurðir.
Athugunin leiddi einnig i ljós,
að 60% óbreyttra um borð i flug-
móðurskipinu „Forrestal” höfðu
neyttfikniefna viö skyldustörf, og
nær þriðjungur sjóliðsins hafði
notað amphetamin.
Nær 40% hermanna reyktu
stöku sinnum kannabis og þá að-
allega hass frá austurlöndum og
um 16% reyktu kannabis daglga.
— Þykja þessar upplýsingar ugg-
vænlegar.
A hinn bóginn gaf könnunin til
kynna, að neysla heróins hefði
minnkað um 4%, en kannanir
fyrir þrem árum gáfu til kynna,
að þá neyttu um 10% slikra
haröra eiturlyfja.
Könnunin var gerð um borð i
herskipum og i herstöðvum á
Italiu, og i Vestur-Þýskalandi, og
var það ályktun rannsóknar-
manna, að ráðstafanir hersins
gegn fikniefnavandanum væru ó-
fullnægjandi.
um í Noreqi
Fóstureyðíngarlögin standa i
vegi þvi, að samkomulag náist
um myndun rikisstjórnar mið- og
hægri flokka, að þvi er Kaare
Willoch, leiðtogi Hægri flokksins i
Noregi, sagði i gær.
Willoch hefur átt viðræður við
Miðflokkinn og Kristilega þjóðar-
flokkinn og sagði við fréttamenn,
að skipst hefði verið a ákoðunum,
og viðræðum haldið áfram i dag.
— Hann sagði of snemmt að segja
nokkur fyrir um niðurstöður
þessara viðræðna, en til þessa
hefðu fóstureyðingarlögin staðið
fyrir samkomulagi.
Rússarnlr fara
irá Kairð í dag
Þessir þrir flokkar ráða i sam-
einingu yfir meirihluta þingsæta
eftir kosningarnar i vikubyrjun.
En Kristilegi þjóðarflokkurinn
gerði það að skilyrði fyrir þátt-
töku i stjórn, að unnið yrði að þvi
aö herða ákvæðin um fóstureyð-
ingar. Flokkurinn hafði fyrir
kosningar látið i veðri vaka, að
hann kynni að slaka ögn á þeim
skilmálum til að hindra ekki
stjórnarmyndun.
1 kosningunum tapaði flokkur-
inn 7 þingmönnum og virðist sem
margir af fylgismönnum hans
hafi setið heima af óánægju með
þennan tilslökunartón.
Mðtmæli við nýtt klarnorkuver
Lögreglan varð að draga and-
stæðinga kjarnorku frá hliðum
kjarnorkuvers i Djöflagili á
Avila-strönd i Kaliforniu i gær-
kvöldi, eftir tveggja daga mót-
mælaaðgerðir, þar sem 600
manns voru handteknir.
Fólkið reyndi að tálma umferð
um aðalhlið orkuversins, svo að
starfsfólk og aðdráttur kæmist
ekki þar um. Höfðu menn i heit-
ingum um að loka hliðinu mánuð-
um saman, ef nauðsyn krefði, til
þess að hindra, að kjarnorkuverið
gæti farið að starfa.
Þegar flest var, höfðu safnast
um 2000 manns á staðinn, en
fólkið telur orkuverið óheppilega
staðsett, aðeins fimm km frá
jarðsprungu jarðskjálftasvæðis.
En eigendurnir, gasstöð og raf-
veita, segja, að orkuveriö hafi
verið sérstaklega styrkt með það
I huga aö þola öflugustu jarð-
skjálfta.
Kjarnorkuandstæðingar urðu
fyrir nokkrum vonbrigðum meö
þátttökuna I mótmælunum, þvi að
þeir höföu spáð þvi, að um 50 þús-
und manns mundu veita þeim lið.
Frá kjarnorkuverinu i Harris-
burg, þar sem siysiö varð 1978,
en siöan hefur verið megn and-
staða gegn kjarnorkuverum i
Bandarikjunum.
Sjö sovéskir diplómatar fara
frá Egyptalandi i dag og heim til
Moskvu. Fékk sendiherrann og
sex diplómatar aðrir tilkynningu i
gær um að verða á burt úr landi
innan tveggja sólahringa.
Sendiherrann er sakaður um að
vera potturinn og pannan i
sovésku samsæri, sem beindist
gegn Sadat forseta. Hinir dipló-
matarnir og tveir sovéskir blaða-
menn, sem sömuleiðis var visað
úr landi, voru sakaðir um að
reyna að ráða á mála hjá sér
egypska borgara til upplýsinga-
öflunar. Tólf Egyptar hafa verið
handteknir og sakaðir um hlut-
deild i samsærinu.
A næstu dögum munu meir en
1000 sovéskir sérfræðingar og
ráðgjafar fylgja i kjölfar dipló-
matanna og snúa heim frá
Egyptalandi, en þeir eru leifarn-
ar af þeim mikla fjölda Sovét-
manna, sem um hrið voru i
Egyptalandi, þegar vinátta rikj-
anna stóð sem hæst. — Sadat vis-
aði 17.000 hernaðarráðgjöfum
Rússa úr landi 1972.
Kreml hefur visað ásökunum
Egypta um samsærið á bug og
kaÚar þær hreina firru.
Egyptar hafa einnig krafist
þess, að Sovétmenn fækki dipló-
mataliðinu i sendiráðinu i Kairó
niður i sjö menn, eða jafnmarga
og Egyptar hafa i sendiráði sinu i
Moskvu. Einnig vilja þeir, að lok-
að verði hernaðarmiðstöð Rússa i
Kairó.
Halda yfirvöld þvi fram, að
fjöldi austantjaldssendiráða og
egypskra kommúnista hafi verið
bendlaðir við samsæri gegn
stjórninni i Kairó, og þykir hugs-
anlegt, að einhverjum diplómöt-
um austantjaldsrikja verði visað
úr landi eins og Rússum.