Vísir


Vísir - 17.09.1981, Qupperneq 7

Vísir - 17.09.1981, Qupperneq 7
Fimmtudagur 17. september 1981 V/StB Pétur skoraðl í Póliandi - og Ásgeir tók stöðu Breitners í Svípjóö Pétur Pétursson skoraði eitt af fjórum mörkum Anderlecht i 4:1 sigri liðsins yfir Lotz i Póllandi i Evrópukeppni meistaraliða. Skoraði Pétur siðasta markið á siðustu minútu ieiksins. Arnór Guðjohnsen var með Lokeren i Nantes i Frakklandi, þar sem Lokeren gerði jafntefli 1:1 I UEFA-keppninni. Asgeir Sigurvinsson fékk það vandasama hlutverk að taka stööu Paul Breitners I liði Bayern Munchen á móti gamla liðinu hans Teits bórðarsonar, Oster, I meistarakeppni meistaranna. Bayern sigraði i leiknum, sem fór fram i Sviþjóð 1:0 og skoraði Karl-Heinz Rummenigge markið úr vitaspyrnu. — klp — Ellert vill kæra Willy Reinke til UEFA og FIFA - fyrír að laumast til islands. til að fá knattspyrnumenn til að koma til V-Þýskalanús ATLI EÐVALDSSON... mikið I fréttum i V-Þýskalandi. Vestur-þýski umboðsmaðurinn Willy Reinke, var hér á islandi fyrir stuttu tii að fylgjast meö Is- lenskum knattspyrnumönnum i landsleik lslands gegn Tyrklandi og hafði hann samband við tvo landsliðsmenn eftir leikinn — Pétur Ormslev, Fram, og Lárus Guðmundsson, Vikingi. og bauð þeim að koma til V-Þýskaiands til að æfa þar meö Fortuna Dussel- dorf, eins og Visir hefur sagt frá. Forráðamenn Fram og Vikings eru óhressir með að Reinke hafi rætt við leikmenn sina, áöur en keppnistimabiliö var búiö hér á landi og án þess að ræða viö félög- in. I reglum UEFA og FIFA segir skýrum stöfum, að útsendarar fé- laga og umboösmenn megi ekki setja sig i samband viö leikmenn annarra félaga á yfirstandandi keppnistimabili og án þess aö ræöa viö forráðamenn félaganna. — Þessi vinnubrögð Reinke er fyrir neðan allar hellur og það er óþolandi aö Reinke skuli koma hér ár eftir ár til að reyna aö fá Þýsku blððin komast í feitt: 11 Þræiasala hjá Dortmund - og annað í beim dúr aðalfyrirsagnir beirra eilir sðluna á Alla Eðvaldssynl Allt fór á annan endann hjá Borussia Dortmund/ þegar fréttist um að félag- ið hefði selt Atla Eðvalds- son til Fortuna Dusseldorf. Var Atli sjálfur ekki að skafa neitt utan af hlutun- um í viðtölum við blöð í Þýskalandi og eru stórar fyrirsagnir með ummæl- um hans þvert yfir síður blaðanna þar. Þar má sjá fyrirsagnir eins og ......Þrælasala!” — Dortmund selur leikmann án þess að tala við hann fyrst”, og annaö i þeim dúr. Atli er ómyrkur I máli um þessa söiuog framkvæmdina á henni og sendir stjórnarmönnum i Dort- mund heldur betur tóninn. Eftir að fréttist um söluna, hafa einir fimm ieikmenn Dortmund óskað eftir að vera seldir frá fé- laginu. Er það ekki gert til að standa með Atla i þessu máli — þeir vita að hann er ánægður með að fá að fara frá Dortmund — heldur nota þeir tækifæriö til að koma með sinar kröfur i öllum látunum og umtalinu, sem er i þýskum blöðunum út af sölunni á lslendingnum. — klp — MA6NUS NÆSTUR - Irá Borussia Dortmund? Víkingar mæta Bordeaux - á Laugardaisvellínum í dag. íekst peim að fylgja sigri Fram eftir? Eftir söluna á Atla Eövaldssyni til Fortuna Diisseldorf er næsta öruggt, að hinn islendingurinn hjá Borussia Dortmund, Magnús Bergs, verði seldur þaðan. Dortmund er með tvo útlend- inga i sigtinu um þessar mundir, rúmenskan flóttamann og Júgó- slava. Magnús hefúr ekkert feng- ið aö spreyta sig meö aðalliðinu i haust og er orðinn þreyttur á aö dóla með varaliöinu.svo hann fær sjálfsagt að fara innan skamms. — klp — leikmenn til V-Þýskalands, án þess aö hafa samband við félögin, sem leikmennirnir eru hjá, sagöi Ellert B. Schram, formaður K.S.I., þegar Visir spurði hann I gærkvöldi, hvort K.S.Í. hygöist gripa i taumana. — Ég mun leggja fram tillögu á fundi hjá stjórn K.S.I., aö Willie Reinke verði kærður til UEFA og FIFA fyrir þau vinnubrögð, sem hann hefur tamið sér. Þaö er ó- þolandi, að Pétur eða Páll komi hingaö til landsins i tima og ótima — hljóölaust, til a ná I knatt- spyrnumenn til að versla meö er- lendis, sagði Ellert. — SOS Celtic lagði Juventus - og naumt h]á Liverpool CELTIC lagði Juventus frá ttaliu að velli i Glasgow — 1:0. Pat Bannar, markvörður, var hetja Celtic, varöi livaö eftir annað glæsilega — t.d. skot frá Bettega og Liam Brady. 60.017. áKorfendur sáu Murdo Mac- Leon skora mark Celtic. LIVERPOOL vann nauman sigur (1:0) yfir Oulu I Finnlandi Kenny Dalglis skoraði sigur- markiö á 84. min. —SOS tslandsmeistarar Vikings verða i sviðsljósinu á Laugar- dalsvellinum idagkl. 17.30, þegar þeir leika gegn franska liðinu Bordeaux I UEFA-bikarkeppn- inni. Vlkingar eru ákveðnir að leggja hart að sér og leika til sigurs og væri gaman, ef þeim tækist að endurtaka leik Fram — og vinna sigur i Evrópukeppni. Það er valinn maður i hverju rúmi i franska liðinu — nánast Gotlhjá Toltenham Tottenham vann góðan sigur (3:1) yfir Ajax I Evrópukeppni bikarmeistara, þegar liðin mættust I Amsterdam. Mark Felco (2) og Ricardo Villa skor- uöu mörk liðsins, en Daninn Sören Lerby skoraöi fyrir Ajax, eftir að Tottenham hafði skorað ÖIl fyrri mörk sin. Swansea tapaði aftur á móti (0:1) fyrir Lokomotiv Leipzig, I Swansea. —SOS landsliðsmaður I hverri stöðu. A siðastliðnum tveimur árum hefur Bordeaux keypt sjö kunna leikmenn, þar á meðal ýmsa snjöllustu leikmenn franska landsliðsins. Fyrst er að nefna einn besta miðvörð i Evrópu, Marius Tresor. Hann var keyptur frá Bordeaux fyrir stórpening, enda lykilleikmaður I vörn franska landsliðsins. Tresor var keyptur til Bordeaux I fyrra- sumar. Jean Tigana, skærasta stjarna franskrar knattspyrnu i dag, var keyptur fyrir um 300 milljónir frá Lyon, sama pening og Bayern Munchen greiddi fyrir Asgeir Sigurvinsson. Bordeaux hefur að undanförnu átt fimm menn i franska landsliðinu en fjórir þeirra, Tresor, Tigana, Lacombe og Soler voru meiddir. Þá var fastlegareiknað með, aöþeir léku gegn Bastia á Korsiku um helg- ina. Fleiri snjallir leikmenn komu til Bordeaux i sumar. Júgóslav- neski landsliðsmaðúrinn Dragan Fantelic, sem valinn var i Evrópuúrval I vor, kom frá Radnicki. valsmenn voru auðveld bráð fyrir flston Vílla Attum erfitt með að Italda okkur pi vakanúi” - sagðl Ken Swain. varnarleikmaður Vilia Frá Eirfki Jónssyni á Vilia Park — Þetta var léttur leikur. Viö sóttum allan leikinn að marki ls- lendinganna, þannig að það var erfitt fyrir okkur varnarmennina að halda okkur vakandi — þ,.e.a.s., að leika á fullum dampi, sagði Ken Swanin, varnarleik- maður hjá Aston Villa, sem vann hér öruggan sigur (5:0) yfir Vals- mönnum I Evrópukeppni meist- araliða á Villa Park, þar sem 20.481 áhorfendur voru saman komnir. Tony Morley opnaði leikinn á 20. min. — skoraöi’þá beint úr aukaspyrnu og siöan bættu þeir Peter Withe (mark með skalla) og Terry Donovan mörkum við fyrir leikhlé og þeir Withe (skalla) og Donovan bættu siðan tveimur mörkum við l seinni hálf- leik. Aston Villa yfirspilaöi Val al- gjörlega og þaö mátti oft sjá varnarleikmenn liðsins i fremstu vlglinu hrella varnarmenn Vals- manna. Valur fékk aöeins eitt marktækifæri i leiknum — Jimmy Rimmer varði glæsilegt skot frá Guðmundi Þorbjörnssyni á 23. min. „Þá vantar úthald" Ron Saunders, framkvæmda- stjóri Aston Villa, sagðist vera á- nægöur með sigurinn gegn Val, þótt leikmenn hans hafi veriö ó- hressir með aö skora ekki fleiri mörk. Valsmenn eru ekki i nógu góðri likamlegri æfingu — þeir vöröust vel fyrstu 20 min. leiks- ins, en siöan ekki söguna meir. Saunders sagði, að Guömundur Þorbjörnsson og Hilmar Sig- hvatsson hafi verið bestu menn Vals — þeir einu, sem reyndu eitt- hvað. PETER WITHE .... var óá- nægöur með leikinn. — Við áttum að skora miklu fleiri mörk, en það var erfitt að fóta sig á hálum vell- inum. DENNIS MORTIMER.... fyrir- liði Aston Villa. sagöi, aö leikurinn hafi þróast eins og hann hefði átt von á. — Við þurftum lltiö að hafa fyrir þessum sigri. Fórum rólega á stað og siðan var látlaus pressa að marki íslendinganna. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur út af leiknum I Reykjavlk, sagði Mortimer. — EJ/—SOS

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.