Vísir - 10.11.1981, Qupperneq 3
Þriðjudagur 10. nóvember 1981 vism
Fiskitnng selt i gær’
.fkken kvótakern nema
með víðlækn samstððu”
- sagöl stelngrfmur Hermannsson sjávarútvegsrá ðherra
„Ég mun ekki taka upp kvóta-
kerfi við þorskveiðar, nema um
það sé viðtæk samstaða og út-
gerðarmenn komi sér saman um
skiptingu,” sagði sjávarútvegs-
ráðherra, Steingrimur
Hermannsson, í ræðu sinni á
Fiskiþingi, sem var sett i gær.
Þingið sitja 33 fulltrúar, viðs-
vegar að af landinu og ræða
stefnumörkun hinna ýmsu þátta,
sem fiskveiðar og vinnsla saman-
stendur af.
Már Elisson. fiskimálastjóri,
setti fiskiþingið, en siðan tók ráð-
herra til máls. Ræðu hans var
beðið með nokkurri eftirvænt-
ingu, þvi að hann hafði látið að
þvi liggja fyrir skömmu, að til
þess gæti dregið innan tiðar, að
hann þyrfti að marka stefnu, sem
ekki er „viðtæk samstaða um.”
Ráðherrann sagði: „Ég er
þeirrar skoðunar, að mörgu sé
ábótavant i stjómun fiskveiða.
Ég tel, að við séum ennþá viðs-
fjarri þvi að ná þeim mark-
miðum, sem ég hef nefnt (fisk-
vernd, gæði og hagkvæmni). Eitt
hið mikilvægasta tel ég vera stór-
aukna samræmingu á veiðum og
vinnslu.”
Siðan vék ráðherrann að hug-
myndum sinum um landshluta-
kvóta frá i fyrra og undirtektum
við þeim. Þeim var hafnað og
menn kusu að viðhalda skrap-
dagakerfinu. Siðan sagði hann:
„A þetta féllst ég, enda hef ég
ætiö lýst þviyfir, að ég muni ekki
þvinga fram róttækar breytingar
á stjórnun fiskveiða. Slikt verður
að gerast með viðtæku samkomu-
Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra á Fiskiþingi: „Ég er
þeirrar skoðunar að mörgu sé ábótavant i stjórnun fiskveiöa.” (VIsis-
m. ÞL)
lagi, ef tilskilinn árangur á aö Að þessu leyti hefur afstaða
nást. min ekki breyst.” —SV
Fást í helstu leikfangaverslunum
og flestum
kaupfélögum um land allt
Heildsölubirgðir:
Ingvar Helgason
Vonarlandi v/Sogaveg - Sími 33560
Níðsterku
EXQUIS/T
þríhjólin
þola slæma meðferð
L
m
Smurbrauðstofan
BJORIMIISJN
Njálsgötu 49 — Simi 15105
Bakarí I Kaupgarðshúsinu:
Kornið færir út kvíar
Bakariið Kornið hefur nú opnað
útibú i Kaupgarðshúsinu við
Engihjalla i Kópavogi, en fyrir-
tækið hóf rekstur fyrir ári i
Hjallabrekku 2, þar sem bæði er
bakað og selt.
Nýju verslunina innréttuðu
Hlynurog Valdór hjá samnefndri
trésmiðju, eftir kerfi frá
Zweitser, en Rögnvaldur Þor-
kelsson, verkfræðingur, var
hönnuður. Eigendur Kornsins eru
Jón Rögnvaldsson og Kári Ey-
þórsson.
Báðar verslanir Kornsins eru
opnareins og verslanir almennt á
virkum dögum og til kl. 16 á
helgardögum.
HERB
■- ** <•«
L__] l
, m
1 hinu nýja bakariisútibúi Korns-
ins I Kaupgarðshúsinu. (VIsis-
mynd: GVA).
Deilurnar um Bæjarútgerð Hafnarfjarðar:
„Mál forstjðrans ekki
afgreltt sem hefð”
Bæjarfulltrúarnir, Árni Grétar
B’innsson og Einar Þ. Mathiesen i
Hafnarfirði, hafa sent félags-
málaráðuneytinu kæru, vegna
meðferðar bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar á reikningum Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar fyrir árið
1980.
Reikningar BÚH ollu miklum
deilum á fundi i bæjarstjórninni
þriðjudaginn 27. október s.l. eins
og Visir greindi frá daginn eftir.
Bæjarfulltrúarnir, sem fyrr eru
nefndir, lögðufram tillögu um, að
reíkningarnir yrðu skoðaöir
nánar, en henni var visað frá og
reikningarnir samþykktir til
annarrar umræðu. Þeir lýstu þvi
þá yfir, að þeir mundu kæra með-
ferð málsins til félagsmálaráðu-
neytisins og hafa nú látið verða af
þvi.
I kærunni eru helstu atriði
málsins rakin, svipað og gert var
i grein i Visi fimmtudaginn 29.
október. Siðan er vikið að stað-
hæfingu þess efnis, að áratuga
hefð hafi skapast um, að starfs-
fólk skuldaði fyrirtækinu um ára-
mót og hún sögð vera röng nema
hvað snertir sjómenn á skipum
útgerðarinnar. Siðan segir orð-
rétt i kærunni: „Um annað
starfsfólk hefur þessi regla aldrei
gilt og allra sist um forstjóra
fyrirtækisins. Hans mál verður
þvi ekki afgreitt með tilvisun til
einhverrar hefðar, sem aldrei
hefur myndast.” _sy
Fyrir veturinn
w ’
Dúnjakkar
Litir: Ijósblátt og
Ijósbrúnt
Stærðir: S, M.
Verð kr. 695.-
Skíðahúfur.
Verð kr. 69.-
Lúffur.Verð kr. 65.-
Barnalúffur.
Verð frá kr. 34-65
GRENSÁSVEGI50 108 REYKJAVÍK SÍMI: 31290
Miðvangi 41 —Hafnarfirði—Sími 52004