Vísir - 10.11.1981, Page 8
8
VÍSIR
Þriöjudagur 10. nóvember 1981
Fréttastjóri: Sæmundur GuövinSon. Aöstoöarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammen-
drup, Arni Sigfússon, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna
Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdi-
marsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaður á Akureyri: Gísli
Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, SigmundurO. Steinarsson. Ljósmynd-
ir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés^on.
utlitsteiknun: Magnús Olafsson, Þröstur Haraldsson.
Safnvöröur: Eiríkur.Jónsson.
Útgefandi: Reykjaprenth.f.
Ritstjóri: Ellert B. Schram.
Auglýsingastjóri: Páll Stetansson. _ 1
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Ritstjórn: Siðumúli 14, simi 86611, 7 linur.
Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúia á; simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2—4, simi 86611.
Askriftargjald kr. 8,5 á mánuði innanlands
og verð i lausasölu 6 krónur eintakið.
Visir er prentaður í Blaðaprenti, Siðumúla 14.
Hversvegna gengisfelling?
Er nú íhaldspressan enn einu
sinni farin af stað og heimta
gengisfellingu? var spurt, þegar
bæði Vísir og Morgunblaðið slógu
því upp, að gengislækkun væri í
farvatninu. Dagblaðið bættist í
hópinn í gær. Því er til að svara,
að gengisskráning er ekki ákveð-
in á síðum dagblaðanna. Hún er
ekki hugarfóstur stjórnarand-
stöðunnar og það heimtar enginn
lækkun gengis til að gera stjórn-
völdum bölvun.
Spádómar dagblaða og al-
mennings um gengisfellingar eru
því aðeins tii komnir, að þær
blasa við, eru orðnar óhjákvæmi-
legar vegna stöðu atvinnuveg-
anna og þróunar efnahagsmála.
Ríkisstjórnin hefur gert
virðingarverða tilraun til að
halda genginu föstu frá áramót-
um. Hún hefur að vísu tvívegis
lækkað gengið, en þá aðeins
vegna mikilla breytinga og rösk-
unar á gengi erlends gjaldmiðils
sin í milli, en ekki sem efnahags-
ráðstöfun af innanlandsástæð-
um. Fast gengi hef ur ýmsa kosti
og er skynsamlegt í sjálfu sér,
einfaldlega vegna þess, að
gengisfellingar lækna ekki verð-
bólgu. Þvert á móti stuðla þær að
henni, eru bæði orsök og af leiðing
verðbólgu.
Á hinn bóginn er öll viðleitni til
fasts gengis dæmd til að mistak-
ast, ef öðrum þáttum efnahags-
lífsins er ekki haldið í skef jum á
sama tíma. Þetta hefur ríkis-
stjórninni mistekist hrapallega.
Ráðherrar viðurkenna, að
kostnaðarhækkanir atvinnuveg-
anna hafi verið á bilinu 30-40%.
Hér er hóflega reiknað, við-
skiptaráðherra hefur raunar
upplýst, að verðbólgunni hafi
verið haldið niðri með erlendum
lántökum. Afborganir og vextir
af lánum eru einnig útgjöld fyrir
atvinnulífið, enda er f jármagns-
kostnaður viðurkenndur sem
einn helsti vandi fyrirtækjanna.
Á sama tíma og kostnaðar-
hækkanir hafa þannig farið úr
öllum böndum, hafa atvinnu-
fyrirtækin ekki fengið að hækka
verð framleiðslunnar að sama
skapi. Það er fljótt í taprekstur,
þegar þannig er haldið á málum,
enda er nú svo komið, að út-
f lutningsatvinnuvegirnir eru
komnir á heljarþröm. Þeir vilja
fá sinn hlut réttan.
Ríkisstjórnin hefur gert til-
raunir til að bjarga málum með
ýmsum millifærslum úr einum
sjóði til annars, hún hefur slegið
lán og segist vilja draga úr
vaxtakostnaði, en allt kemur
fyrir ekki.
Það er af þessum sökum, sem
formaður Framsóknarf lokksins
lýsir því yfir á alþingi, að fast
gengi sé honum ekki sáluhjálpar-
atriði. Þessi yfirlýsing er gefin í
framhaldi af næturfundi í þing-
flokki Framsóknar, þar sem
hugsanleg gengislækkun var
ítarlega rædd. Sagt er að Alþýðu-
bandalagið hafi einnig rætt um
sama efni.
Ekki fara hinsvegar sögur af
fundarhöldum hjá sjálfstæðis-
ráðherrunum. Þeirra er hvorki
valdið né mátturinn, þegar kem-
ur að stórum málunum.
Fullyrt er að ekki dugi minna
en 20% gengisfelling. Hvort sem
gengið verður fellt meira eða
minna þá eru þetta alvarleg
tíðindi, ef sönn reynast. Þau lýsa
best hvernig efnahags- og at-
vinnumálunum er komið og er
gífurlegurósigur fyrir núverandi
ríkisstjórn. Umtalsverð gengis-
felling gengur að niðurtalningar-
leiðinni dauðri, ef ekki ríkis-
stjórninni einnig. Er þá ekki spáð
í niðurstöður kjarasamninga og
afleiðingar þeirra. Ekki koma
þær til-að bæta stöðuna.
„íhaldspressan"biður ekki um
gengisf ellingu. Stjórnarand-
staðan sér engan hag i því að
kynda undir verðbólguna. Hún er
aðeins að skýra frá óumflýjan-
legum staðreyndum, sem ríkis-
stjórnin sjálf hefur skapað.
Hvað er Multiple Sclerosis ?
Þessi greinarstúfur fjallar um
sjúkdóm sem er nefndur M.S.,
en þaö er stytting á fræöilega
heitinu MULTIPLE SCLEROS-
IS. Astæöan fyrir þvi aö ég ætla
aö kynna þennan súkdóm er sú,
aö mér finnst gæta misskilnings
og þekkingarskorts meöal al-
mennings og ráöamanna um
hann.
Veistu hvað M.S. er?
Mjög erfitt er aö greina þenn-
an sjúkdóm.þar sem hann getur
komiö fram á svo margvislegan
hátt. Hann getur t.d. lýst sér I
dofa, lömun, sjóntruflunum og
jafnvel blindu. Æ meira er hall-
ast aö þvi.aö þetta sé veirusjúk-
dómur. En þrátt fyrir langvar-
andi rannsóknir um heim allan,
er þó veiran enn ekki fundin.
Þaö sem gerist i miötaugakerf-
inu er, aö likaminn myndar
mótefni gegn þessari veiru,
hvort sem þær eru ein eöa fleiri.
Utan um veiruna er hjúpur og á-
litiö er aö brenglun veröi i mót-
efnastarfsemi likamans vegna
þess aö fituefniö i hjúp veirunn-
ar likist hjúpnum sem einangr-
ar taugaþræöi i miötaugakerfi
— mergsliörinu. Mótefniö ræöst
þvi á mergsliöriö i staö þess aö
ráöast á veiruna og þá koma
einkenni M.S. fram. En þessi
brenglun fer eftir þvi i hvaöa
vefjaflokki fólkiö er. M.S. herj-
ar á ungt fólk, algengast 20-40
ára (getur veriö yngra).
I Vestur-Evrópu eru um 200
manns af hverjum 100.000 meö
M.S., en á Islandi koma fram 4-6
ný tilfelli á ári hverju, sem er þó
nokkuö há tiöni.
Endurhæfing
Ekki er hægt aö endurhæfa til
fullnustu þá likamsparta sem
hlotiö hafa varanlega bæklun.
En markmiö endurhæfingar
M.S. sjúklinga er aö hindra
kreppu I vöövum, sinum og
böndum, aö styrkja vööva, æfa
jafnvægi og samhæfingu hreyf-
inga og þjálfa upp daglega
færni. Einnig er unniö aö ann-
arri endurhæfingu meö öörum
starfshópum, svo sem læknum,
félagsráögjöfum og hjúkrunar-
fólki I sambandi viö heimili,
vinnu, hjálpartæki o.s.frv. A
byrjunarstigi sjúkdómsins get-
ur þunglyndi sest aö sjúklingn-
um. Getur þaö veriö afleiöing
erfiöleika i vinnu, sambúö og á-
hyggjur út af öryrkju og meiri
hrörnun. Þannig þunglyndi er
aö nokkru leyti hægt aö koma 1
veg fyrir meö meöferö, þ.e.a.s.
hópmeöferö. Þá ræöa saman
sjúklingar meö sömu sjúkdóms-
greiningu og álika erfiöleika og
reynist þaö vel i mörgum tilvik-
um.
Þar sem þessi sjúkdómur
herjar eru starfandi M.S.-félög
og þá nær eingöngu i Vestur-
Evrópu. Eru þau mjög öflug,
t.a.m. á Noröurlöndunum. Gefa
þau út mánaöarlega rit og ann-
arskonar fræöslubæklinga og
hafa þau áorkaö aö uppfræöa al-
menning I viökomandi löndum
um sjúkdóminn. A Islandi er
starfandi félag M.S. sjúklinga
en þaö er þvi miöur ekki eins
öflugt og samskonar félög er-
lendis vegna fólksfæðar og
skilningsleysis almennings.
Skilningur fjölmiðia
Þessum orðum minum til rök-
stuönings ætla ég aö nefna
hljómleikasem voru haldnir hér
i Reykjavik i júnilok til styrktar
M.S. félaginu. Aætlaö var aö
halda blaöamannafund og voru
blaöamenn af öllum blööum
boöaöir á hann. Ekki vantaöi
loforöin upp I ermina. sem aö
sjálfsögöu voru ekki efnd, þvi
aöeins einn einasti blaöamaöur
mætti. En viti menn, um mán-
uöi siöar rak á fjörur blaða-
neöanmctLs
Hómfríður Bjarnadótt-
ir sendir blaðinu með-
fylgjandi grein um sjúk-
dóminn Multiple Scleros-
is. Hómfríði finnst mikið
á skorta að almenningur
viti hvers eðlis þessi al-
gengi og alvarlegi sjúk-
dómur í rauninni er.
manna Dagblaösins ameriska
unga stúlku, sem eftir öllum
sjúkdómslýsingum haföi þenn-
an umrædda sjúkdóm og var þá
rokiö upp til handa og fóta og
birt heilslöuviðtal viö hana.
Þótt þessi grein sé i marga
staöi ófullnægjandi, þá vona ég
þó að mér hafi tekist aö gefa
ykkur örlitla nasasjón af þess-
um sjúkdómi. Aö minnsta kosti
ættuö þiö aö vita núna aö
skammstöfunin stendur ekki
aöeins fyrir Menntaskólann viö
Sund eöa Mjólkursamsöluna
heldur einnig fyrir Multiple
Sclerosis.
Hólmfriöur Bjarnadóttir