Vísir - 12.11.1981, Síða 5
5
Fimmtudagur 12. nóvember 1981
VÍSIR
Qræfldu dælu
(svkursjúkllng
Fimmtiu og tveggja ára gömul
nunna i Miinchen er fyrsti sykur-
sýkissjúklingurinn, sem gengur
með sjálfvirka insúlin-dælu, ör-
tölvustýröa, inni i sér.
Þessi dæla er árangur af sam-
starfi Mflnchen-Schwabing-
héraðssjúkrahússins og stórfyrir-
tækisins Siemens.
Dr. Helmur Mehnert, sem
stjórnar sykursýkisrannsóknum
á vegum spitalans, skar nunnuna
upp á brjósti og kom dælunni,
sem er á stærð við vindlinga-
pakka fyrir á bak við viðbeinið.
Insúlinið dælist stöðugt beint i æö
eftir svo þröngripipu, að blóö nær
ekki að renna til baka eftir henni.
Dælan er knúin rafhlöðum, sem
endast i eitt ár, og þarf minni-
háttar skurðaðgerð til þess að
skipta um þær. En fylla þarf á in-
súlingeyminn fimmtán sinnum á
ári, og er það gert með sprautu.
Það tók átta ár að hanna þessa
dælu og verður séð til fyrst i eitt
ár, hvernig nunnunni reiðir af,
áður en tilraunir verða gerðar
með dæluna á öðrum sjúklingum.
Fjöldaframleiðsla á dælunni hefst
naumast fyrr en tveim árum eftir
það.
Brooke i hlutverki barnaskækju i kvikmyndinni „Pretty baby”.
Ekki bæði haldið
og sleppt...
Dómari i New York hefur
úrskurðað i máli, sem höfðað var
vegna nektarmynda, sem teknar
voru af hinni frægu fyrirsætu og
leikkonu, Brooke Shields, þegar
hún var aðeins tiu ára gömul.
Skal ljósmyndaranum leyfilegt
að nota myndirnar að vild, nema
til birtingar i klámtimaritum.
Brooke er nú sextán ára, en
móðir hennar, Teri Shields, sem
er hennar umboðsmaður, reyndi
að sýna fram á, að dreifing á
þessum myndum af leikkonunni
ungu gætu spillt fyrir henni. —
Myndirnar sýna telpuna i baði.
Brooke Shields er frægust af
auglýsingum fyrir niðþröngar
gallabuxur og táningakvikmynd-
ir eins og „The Blue Lagoon” og
„Endless Love”. Hún fór með
Tvær frægar ungstjörnur baða
sig I frægðarljóma hvor
annarrar fyrir blaðaljósmynd-
arana.
Mæðgurnar Brooke og Teri Shields, en móðirin vann markvisst að
þvi að gera dótturina að stjörnu.
hlutverk kornungrar vændiskonu
ifyrrimynd, sem „Pretty Baby”.
Dómarinn byggði úrskurð sinn
á þvi, að móðirin hafði veitt ljós-
myndaranum óskoraöan rétt til
þess aö dreifa myndunum, þegar
þær voru teknar. Enda vann
móðirin sleitulaust aö þvi þá
þegar, að gera hina tiu ára gamla
dóttur sina að stjörnu.
Ennfremur fannst dómaranum
fátt til um röksemdir móður-
innar, sem beðið hafði i sex ár
með að amast við myndbirt-
ingunum. Að visu væri Brooke
Shields kynnt i einkalifinu, sem
elskulegt, óspillt og eðlilegt barn,
en út á við sýnd i sjónvarps-
auglýsingum og kvikmyndum
sem kyntákn.
Móðirin heföi reynt að sýna
dóttur sina sem kynæsandi en þó
um leið saklausa, en þar yröi ekki
bæði haldið og sleppt.
„Hún er auðsjáanlega móðir,
sem ber umhyggju fyrir barni
sinu.enum leiö lifirhún i gegnum
dóttur sina,” sagði dómarinn.
■ ■
Timbur
• Flísar
• Hreinlætistæki
• Blöndunartæki
• Gólfdúkar
• Málningarvörur
• Verkfæri
• Baðteppi
• Baðhengi og mottur
• Harðviður
• Spónn
• Spónaplötur
• Viðarþiljur
• Einangrun
• Þakjárn
• Saumur
• Fittings
Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar
allt niður í
20%
útborgun og eftirstöðvar allt að
níu
mánuðum
Við höfum flutt okkur um set, að
Hringbraut 119,
aðkeyrsla frá Framnesvegi
eða inngangur úr Fatadeild JL-hússins
• Opió fimmtudaga til kl. 20, föstudaga
til kl. 22 og laugardaga kl. 9 til 12
ATH.: Við opnum kl. 8 á morgnana
— nema laugardaga kl. 9 —
byggingavörur_______________
Hringbraut 119 - Símar: 10600 og 28600