Vísir - 12.11.1981, Side 8

Vísir - 12.11.1981, Side 8
VÍSIR Fimmtudagur 12. ndvember 1981 útgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoðarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammen- drup, Arni Sigfússon, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanná Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdi- marsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaður á Akureyri: Glsli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmynd- ir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés?on, _ ___ utlitsteiknun: MagnúsÖlafsson, Þröstur Haraidsson. Safnvörður: Eiríkur.Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stetansson. “T Dreifingarstjori: Sigurður R. Pétur.sson Ritstjórn: Síðumútf44, simi 86611, 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8, símar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4—4, simi 86611. Askriftargjald kr. 85ájríánuði innanlands og verð i lausasöluölaónureintakið. Vísir er prentaður i Blaðaprenti, Síðumúla 14. Ævintýrið um Gulleyjuna Hver hefur ekki lesiö Gulleyj- una, þá f rægu ævintýrasögu, þar sem litli góði strákurinn slóst í för með ribböldum og ræningjum í leit að týnda f jársjóðnum. Þar koma við sögu, Ben Gunn, ein- yrkinn á eyjunni, sem fundið hefur fjársjóðinn og reynir að koma honum undan, og svo Long John Silver, sá alræmdi skúrkur, sem leitinni stýrði. Þessi heimsþekkta og sígilda frásögn kemur óneitanlega upp í hugann, þegar ríkisstjórnin skýrir frá nýjustu efnahagsað- gerðum sínum. Hún gerir sem minnst úr gengisfellingunni, en þykist hinsvegar hafa himin höndum tekið þegar sjóðir Seðla- bankans eru annarsvegar. Ríkisstjórnin hefur fundið sína Gulleyju, sinn fjársjóð. Að vísu þvælist Seðlabankinn fyrir og er þar mættur Jóhannes Nordal í hlutverki Ben Gunn. En hver skyldi þá vera í gervi Long John Silver? Fjársjóðir Seðlabankans eiga að vera lausn á öllum vanda. Helst er að skilja að þar séu allar hirslur fullar af gulli og ger- semum og ríkisstjórnin þurfi ekki annað að gera en taka lykla- völdin af seðlabankastjórum og 1 dreifa gullpeningum af örlæti sínu til þurfalinganna í atvinnu- f m j rekstrinum. „Hagnaður Seðlabankans mun verða notaður/' segir Svavar Gestsson í uppsláttarfrétt Þjóð- viljans, og Steingrímur Her- mannsson nefnir himinháar tölur um ofsagróða bankans. Sú mynd er dregin upp að í rauninni séu góðu strákarnir í ríkisstjórninni að leggja út í fífldjarfan leið- angur til að grafa upp f jársjóð- inn, sem ribbaldar bankakerfis- ins reyna að skjóta undan. Siglingin til Gulleyjunnar er hafin. En hverjir eru þá þessir földu sjóðir Seðlabankans? Hvaða fjársjóði er þar að finna? Gjaldeyrisforði þjóðarinnar er varðveittur af Seðlabankanum. Við hverja gengisf ellingu islensku krónunnar, hækkar bók- fært verð gjaldeyriseignarinnar. Gjaldeyrisforðinn er endur- metinn í samræmi við breytingar á genginu, og hefur aukist mjög vegna verulegs gengissigs á síð- asta ári. Ráðstöfun á bókhalds- legri hækkun gjaldeyrisforðans getur því aðeins átt sér stað með því að selja eða ganga á gjald- eyriseignina. Til einföldunar og útskýringar má taka dæmi af fasteign. Ein- staklingur festir kaup á íbúð. í vaxandi verðbólgu hækkar fast- eignamat íbúðarinnar, án þess þó að eigandi hennar hafi meira fé handa á milli. Á pappírnum er hann ríkari, en í raun stendur hann i stað. Ráðstöf unarfé hans eykst ekki nema því aðeins að hann selji eignina. Nákvæmlega þetta er skýring- in á sjóðamyndun Seðlabankans. Hið bókfærða verð gjaldeyris- forðans hækkar án þess að pen- ingar saf nist í hirslur. Með því að „nota hagnað Seðlabankans" er aðeins verið að ganga á gjald- eyriseign þjóðarinnar, eyða í- mynduðum sjóðum, prenta seðla. Þetta er sá fjársjóður sem ríkisstjórnin telur sig hafa fundið. Seðlabankinn er ekki sjálfstæð stofnun utan og ofan við þjóðarbúskapinn. Þvert á móti, bankinn er naflinn i peningamálunum, fylgist með og færir til bókar stöðuna i gjald- eyrismálum, sem er um leið staða þjóðarbúsins sjálfs. Gulleyjan er ekki til í raun- veruleikanum, frekar en í sögu Stevenson. Hún er ævintýri, til- búningur, sem er ágæt fyrir ímyndunaraflið en slæm fyrir pólitíkusa, ef þeir rugla saman skáldskap og veruleika. Þeir mega gjarnan lifa í sínum ævin- týraheimi, en þá er rétt að minna á, að Long John Silver komst aldrei yfir fjársjóðinn eftirsótta. Hans biðu önnur örlög. Gamli Nói. oamli Nói... Þá hafa enn einar ráðstafanir islenskrar rikisstjórnar litið dagsins ljós. ósköp er nú litið nýjabrum af þeim. Lækkun á gengi fyrirheit um athuganir, vilji er vist allt sem þarf. Þegar landsfaðirinn fær ágengar spurningar I útvarpi um áfram- hald, bregst hann önugur við, enda vanur aö segja einungis það sem hann vill, og áminnir fréttamanninn um það að hann skuli ekki vera aö reyna að toga neitt upp úr sér! Of seint, of lítið? Auövitaö er þessi gengisfell- ing ekkert annað en viðurkenn- ing á orönum hlut, frekar en aðrar gengisfellingar islensku krónunnar i tvo áratugi. Þar að auki er gengisfellingin minni en raunveruleikinn segir til um, rétt eins og aðrar breytingar á hinni opinberu gengisskráningu undanfarin ár. Of seint og of lttið segja forystumenn atvinnu- vega og hafa aö vissu leyti hár- rétt fyrir sér. Fleiri hliðar eru samt á málunum. Þvi verður ekki neitað aö þrátt fyrir allt hefur rikisstjórninni tekist að halda nokkuö aftur af verðbólgu- hraðanum I þessu snaróða lifs- gæðakapphlaups-þjóðféiagi, með þvi að þrjóskast eins lengi við og hún gat að viöurkenna staöreyndir. Þaö þýðir I raun aö tekist hefur að draga nokkuð úr útgjöldum atvinnufyrirtækj- anna á móti þvi að þau hafa ekki fengiö nauösynlegar verð- hækkanir fyrir útflutning. En hvað gerist nú? Nú eru nær allir kjara- samningar í landinu lausir og aöilar vinnumarkaðarins eru að byrja að takast á í samninga- þófi. Tæplega verður opinber gengisfelling til þess að liðka fyrir þvi aö launþegar geri sig ánægða með litlar kaup- hækkanir. Ef dæma á eftir venj- unni þýða allsherjar kjara- samningar verulegar launa- hækkanir eða kannski öllu heldur verulegar kostnaðar- hækkanir atvinnufyrirtækjanna og þar með verður lagður grunnur að nýrri gengisfellingu og hringekja vitleysunnar fer á fulla ferð að nýju. Hvenær læra menn? Nú virðast allir sammála um að gengisfelling sé engin lækn- ing, aðeins mýkjandi umbúðir á meinin. Stjórnmálamenn jafnt sem launþegar og vinnuveit- endur samþykkja það. Samt bendir enginn á neina aðra leið þvi þessi er þægilegust. Þá er i raun ekki gengið á neins hlut fremur en annars, finnst mönn- um. Vissulega slæmt, en hvað annaö? Dæmið er i raun ósköp einfalt. Allar gengisfellingar stafa af þvi að innlendur kostnaöur eykst umfram þaö sem viö ber- um úr býtum I samskiptum við aöra. Viö lifum um efni fram sem þjóðfélag og á meöan við gerum það verðum viö fátækari og fátækari að meiri og meiri viðrinum I augum annarra þjóöa. Með þessu er ég ekki að halda þvi fram að allir hafi það of gott i þessu þjóðfélagi, ég er bara aö tala um okkur I heild, meö öllum kostum og göllum okkar þjóðskipulags. Lifskjör okkar eru fölsk á meðan við get- um ekki haldið þeim uppi með ööru en þvi að slá lán og skerða gjaldmiðil okkar. Hver dagur þessarar fölsku sælu er ávisun á erfiðleika afkomenda okkar, nema þvi aöeins aö einhver þau straumhvörf verði i lífi okkar spm þjóðar, sem enginn fær séð fyrir. Samt eru allir tiltölulega ánægðir! Enginn vill taka höfuðið upp úr sandinum. Jafn- vel stjórnarandstaðan sem þyk- ist bera hag atvinnuveganna þessi ósköp fyrir brjósti, titrar af sælu I hvert sinn sem hún fréttir af einhverri kröfu þrýsti- hóps sem líkleg er til þess að koma róti á vinnumarkaðinn svo bannsett ekkisen rikis- stjórnin fái eitthvað til að hugsa um. Nýjar álkrónur? Nýja krónan okkar hrapar og hrapar i verðgildi og áliti. Þótt landsfeöur frétti ekki af þvi hvernig myntbreytingin hefur i sumum tilvikum verið misnotuð af ,,athafna”mönnum veit hinn almenni launþegi það. Opinbert stjórnleysi á efnahagsmálum skerðir hana einnig hratt. Lík- lega verður farið aö framleiða hana úr áli innan áratugs, svo engan þurfi að styggja i þjóð- félaginu. Svo inikiö er vist að ekki virðist almenningur i landinu hafa áhyggjur af þvi. Þegar hin- ir lægst launuðu I þjóðfélaginu setja fram hógværari kröfur en oft áöur, sperrast hálaunahópar upp úr öllu valdi. Þegar sjávar- útvegsráðherra vogar sér að láta að því liggja að rétt kunni aö vera aö endurmeta launa. kjör sjómannastéttar meö til- liti til tækninýjunga, ætlar allt af göflum að ganga. Það gæti nefnilega þýtt að launa- dreifingin innan stéttarinnar myndi breytast og þá yrði einhver óánægður myndi jafn- vel halda vöku fyrir einhverj- um verkalýðsleiötoganum. Ef einhver vogar sér að segja að launahækkun lægst - laun- uðu verkamanna þurfi ekki endilega að streyma út i alla uppmælingu og bónus, þá er það árás á heigan samningsrétt. A hverju ári taka prentiönaðar- menn kverkataki á útgefendum og prentiðnaðarfyrirtækjum, þegar þeir ná inn megninu af árstekjunum, enda þótt viö blasi að unnt sé að flytja prent- iðnaðinn að verulegu leyti út úr landinu til landa þar sem unnt Magnús Bjarnfreðsson skrifar um efnahags- ráðstafanir ríkisstjórnar- innar. Ekki finnst honum mikið til þeirra koma. Hann segir: „Lífskjör okkár eru fölsk á meðan við getum ekki haldið þeim uppi með öðru en því að slá lán og skerða gjaldmiðil okkar. Hver dagur þessarar fölsku sælu er ávísun á erfið- leika afkomenda okkar, nema þvf aðeins að ein- hver straumhvörf verði í lífi okkar sem þjóðar, sem enginn fær séð fyrir". er að tala viö menn I alvöru. Þetta eru aöeins nokkur dæmi. En á meðan allir sjá þetta og allir vita þetta, rembast allir við að gera ekki neitt til þess að bæta úr málum. Engan má styggja, gamla góða gengis- fellingarleiðin er sú eina, sem menn rata, svolitið dulbúin að visu að hluta en bein og greiö. Hvers vegna er ástandið svona? Vilji er allt sem þarf, sagði maöurinn. Þaö er nú meinið.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.