Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.2001, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.2001, Blaðsíða 12
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. MAÍ 2001 Man ég þig vel um vetrartíð í válegum næturskugga, er þú í kulda og kafaldshríð þér kastaðir inn um glugga. Ferlega varstu fannbarinn og frostið napurt í klónum, og kært þér var það, kisi minn, að komast inn úr snjónum. Og orðið var þér á því mál að innbyrða næringuna, svo indælis mjólk á undirskál þá óðara lét ég buna. – – – Svo gaf ég þér fisk, sem góður var; það gat ég ei eftir talið. Loks háttaði ég; mér hugnun bar í húminu kattarmalið. AUÐUNN BRAGI SVEINSSON Höfundur er ljóðskáld. MINNING UM KÖTT

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.