Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.2001, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. OKTÓBER 2001 3
E
FTIR að hafa fylgst með
heimsmálunum undanfarnar
vikur rifjaðist upp fyrir mér
eftirfarandi klausa sem ég
hafði einhvern tímann rekist
á og höfð var eftir Woody
Allen:
Öruggasta merkið um að
vitibornar verur sé að finna á öðrum hnött-
um er að þær hafa ekki reynt að hafa sam-
band við okkur.
Það verður að segjast eins og er að það
er hreint ekki fýsilegur kostur að setjast að
á plánetunni Jörð nú um stundir ef litið er
til þeirrar lífveru sem virðist nú hafa örlög
hennar í hendi sér. Taumlaus græðgi, yf-
irgangur og grimmd eru aðalsmerki þess-
arar tegundar, sem einhver húmoristinn
gaf í eina tíð nafnið Homo sapiens, og kem-
ur æ betur í ljós hvílíkur stjörnubrandari
það er.
Alla tuttugustu öldina gekk á með slíkum
hjaðningavígum, yfirgengilegum illverkum
og fjöldamorðum á saklausu fólki að maður
þarf að vera ótrúlega kaldrifjaður eða til-
finningasljór til að geta haldið sönsum,
verði manni hugsað til þess arna. Enda öllu
trúlegra að mannkynið allt, þar með talinn
þú, lesandi góður og ég sem þessar línur
rita, sé orðið hugsjúkt af þessum ósköpum.
Líklega er það rétt sem einhverjum hugs-
uðinum varð einu sinni að orði: Aðeins guð
getur leitt hugann að hinu illa án þess að
spillast.
Hugsuðir og mannvinir í öllum menning-
arsamfélögum hafa alltaf verið að vona að
mannskepnan lærði á endanum sína lexíu,
fengi nóg af hryllingnum, fargaði vopn-
unum og færi að leggja stund á ástir í stað-
inn fyrir stríð. Make love not war er eitt
snjallasta ákall sem um getur og hafi ein-
hvern tímann verið tilefni til að mála stafi á
spjald og þramma, þá er það nú.
Hvernig væri nú að alþýða manna um
gjörvallan hnöttinn, sem hefur meiri áhuga
á fyrrnefnda verknaðinum en hinum síðari,
legði niður vinnu og færi að þramma undir
þessum formerkjum, lamaði þjóðfélögin og
sinnti hreinlega ekki öðru en kröfugöngum
í þágu algjörrar afvopnunar og friðar með-
al manna?
Eitthvað verður að taka til bragðs og
auðvitað verður alþýðan að taka það að sér
eins og svo oft áður þegar mikið hefur legið
við. Ríkisstjórnir og valdhafar eru alls
ófærir um þetta verk eins og dæmin sanna.
Þessir aðilar kunna bara eina aðferð, og
það er að mæta ofbeldi með enn meira of-
beldi og þar með er vítahringur illsku og
haturs kominn í gang. Og þá vél virðist ekki
með nokkru móti vera hægt að stoppa. Svo
oft er búið að prófa auga fyrir auga aðferð-
ina, að ég er hræddur um að sá vís-
indamaður væri vandfundinn sem teldi
ekki fullsannað haldleysi þeirrar kenn-
ingar. Nei, ekki aldeilis. Áfram skal haldið
að berja höfðinu við steininn þar til heila-
slettur lita allt umhverfið, það er nú allt
sapíensið.
Meira að segja á Íslandi, þar sem auðvit-
að er hlægilegt að taka sér vopn í hönd, eru
valdhafar og æðstu embættismenn frið-
arríkisins rígfastir í hugmyndafræði hefnd-
ar, refsingar og miskunnarleysis. Í kjölfar
atburðanna í Bandaríkjunum 11. sept-
ember kvað forsætisráðherrann okkar fast
að orði og hét á alla sína þegna að standa
nú dyggan vörð sem aldrei fyrr um tönn
fyrir tönn fílósófíuna. Stóðu eldtungurnar
nánast út úr honum, gneistaði úr augum og
hnúarnir hvítnuðu þegar hann stóð við
ræðupúltið og messaði yfir æskulýðnum í
flokki sínum. Engin elsku mamma eða fá-
nýtt friðarhjal á þeim bænum.
Aðspurður í sjónvarpsþætti af sama til-
efni lét biskup Íslands sig hafa það að svara
ungu stúlkunni, sem spurði hvort hann
teldi að hægt væri að fyrirgefa illvirkin 11.
september, á þá lund að það væri ekki
hægt. Hann tvítók það meira að segja til að
það færi ekki framhjá neinum hver skoðun
geistlegs yfirvalds væri í þessu efni. Slíka
glæpi væri ekki hægt að fyrirgefa.
Undirritaður kallar nú ekki allt ömmu
sína en það verður að segjast eins og er að
hann kófsvitnaði á stólbríkinni fyrir framan
sjónvarpið og hélt fyrst að sér hefði mis-
heyrst en svo kom tvítekningin, og kaldur
svitinn varð eftir. Biskupinn er bersýnilega
búinn að gleyma í hverju kjarni krist-
indómsins er fólginn. En þessi Jesús, sem
kristindómurinn er nú einu sinni kenndur
við, var alltaf að nauða um fyrirgefninguna,
að maður ætti að elska óvini sína og biðja
fyrir þeim sem ofsækja mann. Bjóða fram
vinstri vangann ef maður væri sleginn á
þann hægri. Að sá einn sem syndlaus væri
skyldi refsa meðbræðrum sínum og systr-
um. Þetta kenndi hann að væri nauðsynlegt
til að koma á friði meðal manna. En auðvit-
að átti ekki að taka það bókstaflega sem
hann var að þrugla seint og snemma um
þessi mál, nei, nei, sei, sei, nei. Hann sagði
nú svo margt, hann Jesús.
Eitthvað var sá sami Jesús líka að tala
um að það sem mennirnir gerðu einum
sinna smæstu bræðra, það gerðu þeir einn-
ig honum. Og að hjálpræði sálarinnar væri
ekki hvað síst í því fólgið að gefa hinum
þurfandi helming eigna sinna. Það er
kannski eilítið viðeigandi á þessum tíma-
mótum að velta því fyrir sér hvernig svo-
kallaðir kristnir menn hafa farið eftir þess-
um heilræðum frelsarans.
Upp í hugann koma myndir af kúgun,
arðráni, þrælkun, útrýmingu, pyntingum
og endalausri undirokun á lítilmagnanum í
mannheimum, varnarlausu fólki sem notað
er eins og dýr í þágu auðsöfnunar.
Ef einhver snefill af sönnum kristindómi
leynist enn meðal þjóða sem játa kristni þá
er núna tími til kominn að þær taki höndum
saman við að bæta fyrir glæpi sína gagn-
vart mannkyninu og vinda sér í að skapa
betri heim. Og byrja á að skila helmingnum
af ránsfengnum til hinna sveltandi þjóða.
Ef hinir skelfilegu atburðir við turnana
tvo yrðu þrátt fyrir allt til þess að opna
augu mannanna fyrir sannleikanum í frið-
arboðskap frelsarans gæti hinsta ósk þess
fólks sem þar lét lífið ef til vill ræst. Sú orð-
lausa bæn um frið á jörðu saklausum börn-
um sínum til handa.
FRIÐUR
RABB
E Y S T E I N N B J Ö R N S S O N
SIGFÚS DAÐASON
MYNDSÁLIR
BLASPHEMIA IN CORDE
(HLUTI)
Hann vaknar fyrir miðjan morgun
og er næstum því alveg dofinn.
Murrandi hálfkvikindi eitthvurt
er á hafbeit innan í honum.
Hann veit ekki sitt rjúkandi ráð.
Raddir úti í grámanum
og raddir úr launkofum.
Torkennileg rödd alla leið úr iðrum jarðar.
Hvísl og þrusk og taut.
Og svamlað í kringum ofblíð orð.
Ennfremur myndir álengdar
ókunnuglegar myndir
gufulegar og myndbreytilegar myndir
og myndir firrtar sýnilegum útlínum
á hæglátum skriði svo árla morguns
áður en flugurnar eru komnar á hreyfingu.
Og hann veit ekki sitt rjúkandi ráð
en bölvar og formælir
sjálfum sér og heiminum og Guði.
Feyrubragð að loftinu finnst honum
fúnuð sígrænka í hugskotinu.
En réttumegin við ódáinsengin
illukeldur og rotin dý.
...
Sigfús Daðason (1928–1996) gaf út sex ljóðabækur og ljóðið Myndsálir birtist í
þeirri síðustu, Að hugleiða steina, sem kom út að honum látnum árið 1998.
FORSÍÐUMYNDIN
er eftir Halldór Baldursson. Myndskreyting úr bókinni Allir með strætó eftir
Guðberg Bergsson. Myndin er meðal verka á sýningunni Myndir úr barna-
bókum sem opnuð verður í Grófarhúsinu 12. október í tengslum við Nor-
ræna barna- og unglingabókahátíð.
Sjónþing
Gerðubergs
það fyrsta á þessu hausti, fer fram í dag og
fjallar um myndlistarkonuna Þórunni
Sveinsdóttur. Hún hefur unnið um árabil
sem búningahönnuður við leikhús en ým-
islegt fleira hefur hún tekið sér forvitnilegt
fyrir hendur.
Sigfús Daðason
gaf út fyrstu bók sína fyrir hálfri öld, Ljóð
1947–1951. Birna Bjarnadóttir og Hall-
grímur Helgason fjalla um viðhorf hans til
skáldskapar eins og þau birtust í frægri rit-
gerð hans, „Til varnar skáldskapnum“, sem
birtist í Tímariti Máls og menningar 1952,
ári eftir að hann sendi frá sér sína fyrstu
ljóðabók.
Köttur úti í mýri
heitir viðamikil norræn barna- og unglinga-
bókahátíð sem haldin verður í Norræna
húsinu 10.–14. október. Heiða Jóhanns-
dóttir segir frá því helsta sem þar verður á
dagskrá.
Dr. Bjarni Einarsson
lést fyrir réttu ári, 6. október árið 2000.
Hann var einn af athyglisverðustu sérfræð-
ingum landsins á sviði fornra bókmennta og
handritarannsókna. Síðasta verk hans var
undirbúningur að útgáfu Möðruvallabók-
artexta Egils sögu og er það verk nú í
prentun. Baldur Hafstað fjallar um Egils
sögu í anda kenninga Bjarna um að hún sé
höfundarverk Snorra Sturlusonar.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
3 9 . T Ö L U B L A Ð - 7 6 . Á R G A N G U R
EFNI