Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2002, Qupperneq 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 2. FEBRÚAR 2002
„ÉG VAR að leita að tónlist til að semja dans-
verk við sem myndi höfða til yngra fólks,“
segir Richard Wherlock höfundur verksins
Lore. Tónlistin sem varð fyrir valinu er írskt
þjóðlagarokk hljómsveitarinnar Pogues ásamt
söng írska kvennakvartettsins The Fallen
Angels. Líklega hitti Wherlock naglann á höf-
uðið því fimm ár eru liðin síðan Lore var
frumsýnt og það hefur farið víða og notið mik-
illa vinsælda meðal nútímadansflokka og
áhorfenda.
Wherlock er breskur, fæddur í Bristol og
átti glæstan feril sem ballettdansari áður en
hann lagði skóna á hilluna og hóf að stýra
ballettflokkum og semja dansa.
Ferill hans á því sviði hefur ekki síður verið
glæsilegur því hann hefur tvívegis verið út-
nefndur efnilegasti danshöfundur ársins af
þýskum tímaritum og árið 1993 var hann val-
inn „efnilegasti listamaður ársins“ í Þýska-
landi.
Wherlock segir að líklega hafi sól hans ver-
ið talin hæst á lofti er hann var ráðinn list-
rænn stjórnandi Berlínarballettsins. „Ég
gerði samning til fimm ára og taldi mig hafa
landað stærsta fiskinum í tjörninni. 120
manna dansflokkur, hljómsveit og óperuhús
til ráðstöfunar. En ég komst fljótlega að því
að ekki var gert ráð fyrir að ég hefði nein
áhrif á listræna stefnu, mér var ætlað að
halda sömu stefnu, halda allar hefðir í heiðri.
Eftir eitt ár þakkaði ég fyrir mig og yfirgaf
herlegheitin.“ Ekki er að merkja að hann sjái
eftir því. „Mér var síðan boðið starf listræns
stjórnanda Borgarballettsins í Basel í Sviss.
Það hefur reynst gjöfult samstarf.“
Wherlock er jafnvígur á allar hliðar ball-
ettsins, hann telur upp verk og tónlist sem
hann hefur verið að semja við á undanförnum
árum og þar gætir ýmissa grasa. „Ég hef ný-
lokið við að semja dansverk við Kindertoten-
lieder eftir Mahler, einnig Vorblótið og Pulc-
inella eftir Stravinsky og loks ballett við
tónlist eftir Mozart. Þetta er eins konar þver-
skurður af því sem við fáumst við í Basel því
við viljum halda góðu sambandi við áhorf-
endur og bjóða upp á sem fjölbreyttastan seð-
il.“
Hann líkir starfi sínu við starf matreiðslu-
meistara sem þarf að setja saman sem lysti-
legastan matseðil fyrir gestina. „Eitthvað fyr-
ir alla svo dansinn verði ekki áhugamál fárra
útvaldra. Ég býð fram konfektkassa og gæti
þess að hann sé alltaf fullur af góðgæti.“
Þau tvö verk sem Íslenski dansflokkurinn
sýnir að þessu sinni eru líkleg til að höfða til
breiðs fjölda áhorfenda. Fyrra verkið,
Through Nana’s eyes, er eftir ísraelska dans-
höfundinn Itzik Galili. „Við erum öll brjáluð
þótt við höldum annað, segir hann um verk
sitt. Í „Með augum Nönu“ sjáum við konu
ganga yfir sviðið með gullfisk í vatnsfylltum
barnavagni úr gleri og hundur dansar við tón-
list eftir Tom Waits. Tíminn líður og allt
breytist fyrir augum hinnar öldruðu og góð-
hjörtuðu Nönu. Þarna er krafturinn og húm-
orinn í fyrirrúmi.
Itzik Galili er margverðlaunaður danshöf-
undur. Fyrsta verkið samdi hann árið 1990
þegar hann vildi vita hvort hann gæti yfirleitt
búið til dansverk. Svo virtist vera og hann er
enn að.
Wherlock nýtir sér hinar írsku hefðir sam-
eiginlegrar gleði og hreyfingar. „Ég hef alltaf
hrifist af lífsgleði Íra og hversu auðvelt þeir
eiga með að tjá gleði sína og sorg. Í dansinum
er dansað með stóla og múrsteina og hvoru-
tveggja vísar til þess sem Írar eru þekktir
fyrir í Bretaveldi. Þeir skemmta sér saman og
starfa við byggingar. Ég vildi líka bjóða
áhorfendum með í leikinn á vissan hátt. Dans-
ararnir stappa og klappa í takt, þau dansa
fyrir hvert annað og dansa saman, karlmenn-
irnir takast á og konurnar syrgja menn sína.“
Þarna er dregin upp mynd af samfélagi sem
tjáir tilfinningar í hreyfingu og dansi.
Wherlock kveðst hafa mikla ánægju af að
vinna með Íslenska dansflokknum. Hann seg-
ir flokkinn hafa vakið mikla athygli í dans-
heiminum í Evrópu á undanförnum árum og
segir það vera árangur stefnu Katrínar Hall
listræns stjórnanda flokksins. „Það er mjög
spennandi að hér skuli vera svo góður flokkur
nútímadansara. Það hefur líka vakið athygli
hversu góðir og alþjóðlega þekktir danshöf-
undar hafa samið verk fyrir Dansflokkinn á
undanförnum árum. Þar nefni ég Jochen Ul-
rich, Rui Horta, Jorma Uotinen, Jirí Kylián,
að ónefndum okkur Itzik,“ bætir hann við.
Hann segir að dansheimurinn byggist upp á
persónulegum tengslum. „Dansarar eru mikið
á ferðinni og skipta um dansflokka og dans-
höfundarnir ferðast á milli. Þannig skapast
sambönd og vinátta. Við komum hingað af því
að við þekkjum Katrínu og vitum að hún er að
gera vel. Við viljum leggja okkar af mörkum
til að það geti tekist hjá henni. Eitt sterkasta
einkenni Íslenska dansflokksins er hversu
samstilltur og einbeittur hann er. Allir eru til-
búnir að leggja allt í sölurnar. Það er gaman
að vinna með slíku fólki.“
LEGGJA ALLT Í SÖLURNAR
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir í kvöld verk eftir tvo af fremstu danshöfundum Evrópu, Richard Wherlock og
Itzik Galili. HÁVAR SIGURJÓNSSON ræddi við Wherlock um verk hans Lore og samstarfið við Dansflokkinn.
Morgunblaðið/Golli
Úr Með augum Nönu eftir Itzik Galili.
Morgunblaðið/Golli
Úr Lore eftir Richard Wherlock.
havar@mbl.is
SJALDFUNDNAR söngperlur er heiti tón-
leika í Salnum annað kvöld kl. 20 þar sem
Hrólfur Sæmundsson barítonsöngvari og
Richard Simm píanóleikari flytja verk sem
þeir segja ef til vill of sjaldan flutt, eða hafa
ekki verið flutt áður hér á landi. Á efnisskránni
verða þó líka þekktari verk í bland við þau
sjaldheyrðu. Þeir flytja gamansöngva eftir
Atla Heimi Sveinsson, lagaflokkinn „Of Love
and Death“ eftir Jón Þórarinsson, og ýmis lög
eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Sigvalda Kalda-
lóns, Jón Ásgeirsson, Jórunni Viðar og Þorkel
Sigurbjörnsson. Einnig verður fluttur laga-
flokkur eftir Grieg við ljóð Ibsens, sunginn á
norsku, sem er annað tungumál Hrólfs. Að síð-
ustu eru það aríur eftir Bach, aría úr óperunni
L’heure Espagnole eftir Ravel, „Katalógaría“
Leporellos úr Don Giovanni, og rakaraarían
fræga eftir Rossini, úr Rakaranum í Sevilla.
Hrólfur segir að sig hafi sérstaklega langað
til að syngja íslensk lög á þessum tónleikum.
„Mig langaði þó til að vera með eitthvað annað
en þau lög sem heyrast oftast. Í námi mínu
sóttist ég alltaf eftir því að syngja eitthvað
annað en þetta týpíska. Þarna blandast saman
alvara, eins og í lagaflokki Jóns Þórarinssonar
og gaman, eins og í lögum Atla Heimis Sveins-
sonar. Lögin sex sem Grieg samdi við ljóð Ib-
sens eru líka mjög skemmtileg, þar er mikið
sungið um þrána. Bacharían er úr Kantötu nr.
13. Þetta er afskaplega skemmtileg tónsmíð,
mjög krómatísk og hljómfræðilega ferlið í
henni er geysilega intressant. Hinar aríurnar
syng ég svo í lok tónleikanna.“
Hrólfi líst vel á að vera kominn heim, og seg-
ir það mikilvægt að að vera duglegur sjálfur
við að koma sér á framfæri. Í sumar ætlar
hann að setja upp óperuna Dido og Aeneas eft-
ir Purcell. „Ég er búinn að fá stjórnanda frá
Wales og hugmyndin er að fá unga listamenn í
þetta. Það verður ekki langt í það að ég auglýsi
prufusöng og prufuspil fyrir söngvara og
hljóðfæraleikara.“
Hrólfur Sæmundsson lauk Mastersnámi í
einsöng við New England Conservatory í
Boston á liðnu ári. Áður hafði hann lokið 8.
stigi og burtfararprófi undir leiðsögn Guð-
mundar Jónssonar. Hann hefur verið ein-
söngvari í kirkjuverkum á bandarískri grundu,
sungið ýmis óperuhlutverk þar, fyrst með óp-
eru skólans, og síðar atvinnuhópum, svo sem
Harvard Early Music Society. Hrólfur hefur
sungið á tónleikum bæði í Bandaríkjunum í
Williams Hall, Jordan Hall og hér heima. Í
námi hlaut Hrólfur verðlaun fyrir túlkun á
Bach, sem og frönskum sönglögum.
Richard Simm fæddist í Newcastle á Eng-
landi og vakti athygli sextán ára gamall með
leik sínum á píanókonsert nr. 1 eftir Liszt.
Hann nam við Konunglega Tónlistarháskólann
í London og við Ríkistónlistarháskólann í
München. Hann hefur haldið tónleika í þekkt-
ustu tónleikasölum Lundúna, auk fjölmargra
tónleika í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hann
var fastráðinn píanisti og kennari við Háskól-
ann í Wales í níu ár og gestaprófessor í þrjú ár
við Illinois-háskólann í Bandaríkjunum. Frá
því hann settist að á Íslandi árið 1989 hefur
hann komið fram víða og unnið með mörgum
helstu tónlistarmönnum landsins.
Hrólfur Sæmundsson vill taka það fram, að
fari svo að Íslendingar leiki úrslitaleik á EM í
handbolta á sunnudaginn, og leiktími þess
leiks dragist á langinn, verði tónleikunum
seinkað sem því nemur, svo handboltaunnend-
ur þurfi ekki að missa af tónleikunum.
Vildi heldur syngja
það sjaldheyrða
Morgunblaðið/RAX
Hrólfur Sæmundsson barítonsöngvari.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Richard Simm píanóleikari.